Þjóðviljinn - 13.12.1985, Síða 12

Þjóðviljinn - 13.12.1985, Síða 12
ALÞYÐUBANDALAGIÐ AB Selfoss og nágrennis Almennur félagsfundur verður haldinn laugardaginn 14. desember kl. 17.00 að Kirkjuvegi 7 Sel- fossi. Dagskrá: 1) Inntaka nýrra félaga. 2) Forval fyrir komandi sveitar- stjórnarkosningar. Stjórnin Alþýðubandalagið í Kópavogi Jólaglögg verður laugardaginn 14. desember á milli kl. 15 og 18 í Þinghóli. Skáld lesa úr verkum sínum. Komið við úr jólainnkaupunum og yljið ykkur á jólaglöggi og ræðið málin. Stjórnin Alþýðubandalagið í fíeykjavík Forval Kjörnefnd Alþýðubandalagsins í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosning- anna 1986 hefur hafið störf. Nefndin óskar eftir ábendingum og hugmynd- um flokksfélaga, gjarnan bréflega, til skrifstofu flokksins eða eftirtalinna nefndarmanna: Arnmundur Bachman s. 77030, Arnþór Pétursson s. 71367, Guðbjörg Sigurðardóttir s. 34998, Lena M. Rist s. 71635, Margrét Pála Olafsdóttir s. 29371, Steinar Harðarson s. 18953 og Þorbjörn Guðmundsson s. 76562. Sameiginlegur listi kjörnefndar og þeirra sem tilnefndir hafa verið af flokksfélaögum veröur birtur 14. desember í Þjóðviljanum. Þá hafafélagar síðan tvær vikur til frekari tilnefninga og er eindagi þeirra 31. desember. (Samkvæmt nýju forvalsreglunum geta 5 félagar í ABR tekið sig saman og tilnefnt einstakling til forvals enda hafi hann samþykkt tilnefninguna). Kjörnefnd AB í Kefiavík og Njarðvík Bókmenntakynning og tónlistarkvöld verður haldið í KK húsinu við Vesturbraut laugardaginn 14. desember kl. 15.00. Eftirtaldir listamenn koma fram: Siguröur A. Magnússon les úr bók sinni Skilningstréð, Jónas Árnason les úr nýútkominni viðtalsbók sinni, Karvel Ögmundsson les úr nýútkominni bók sinni, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson les úr bók sinni Jarðljóð, Einar Kárason les úr bók sinni Gulleyjan. - Kristín Ólafsdóttir syngur lög af nýútkominni þlötu sinni. Steinar Guðmundsson leikur létta tónlist á píanó. Léttar veitingar og piparkökur. Aðgangseyrir 100 kr. Menningar- og fræðslunefnd AB í Keflavík Alþýðubandalagið í fíeykjavík Viðtalstímar borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins í Reykjavík eru á þriðjudögum kl. 17.30-18.30 að Hveríisgötu 105. Þriðjudaginn 17. desember verður Guðmundur Þ. Jónsson til viðtals. Guðmundur AB Akureyri Þýðingarmikill fundur veröur haldinn í bæjarmálaráði mánudaginn 16. desember kl. 20.30 í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18. Fundarefni: Drög að fjárhagsáætlun Akur- eyrarbæjar 1986. Stjórnin AB Kóþavogi Jólaglögg - breyttur tími Af óviðráðanlegum ástæðum verðum við að færa jóiaglöggið fram á sunnudag og verður það haldið í Þinghóli sunnudag 15. desember og hefst kl. 15.00. Þórarinn Eldjárn skáld mun lesa upþ úr bók sinni Margsaga. Ef til vill verður sitthvað fleira á dagskrá. Stjórnin ÆFAB ÆFfí Komandi kjarasamningar Næsta laugardag 14. desember höldum við fund niður á Hverfisgötu 105 þar sem Asmundur Stefánsson og Björn Arnórsson taka fyrir komandi kjarasamninga. Þessi fundur er galopinn öllum sem vilja koma. Hefst hann stundvíslega kl. 14.00. Verkalýðsmálanefndir ÆFAB og ÆFR ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Flokksdálkur Æskulýðsfylkingar Ójá kæru félagar. Nú þegar allt stefnir i hina mestu óáran í litla og vinalegá þjóðfélaginu okkar þá er Reykjavíkurdeild Æskulýðsfylkingar Alþýðuþandalagsins ákveðin í að slá málunum upp í grín (þó aðeins um stundarsakir, að sjálfsögðu). í kvöld verður haldið stórkostlegt jólaglögg að Hverf- isgötu 105 þar sem flutt verður mergjuð skemmtidagskrá með léttum menningarbrag. M.a. mun Þórhallur Sigurðsson leikari lesa vel valdan kafla úr einni vel valdri bók, og Orri Vésteinsson stud, art. mun flytja jólahugvekju af sinni alkunnu snilld. Margt fleira verður síðan til gamans gert, dansað og sungið fram eftir nóttu. Það ætti ekki að saka að þú, kæri félagi, mættir á staðinn og allavega kannaðir stemmninguna. Glens og grín - aþþelsín. ÆFR Þórarinn Tap Útvegsbankans og hrun Hafskips eru bara hinum fjölmiðl- unum að kenna. SKUMUR 1 Sjálfirerum viðhérna áDValsaklausiraf að hafa nokkuð verið að æsa fólk upp í þessu máli Og það er alger rógur að við höf- . um eitthvað fengið í staðastað- inn. ÁSTARBIRNIR Fjallabjörn, ætlaröu virkilega að auglýsa í Sjáðu til. Sumir okkar líta ekki vel út í stuttbuxum á íþróttaæfingum. Eru yfirleitt hallærislegir. FOLDA í BLÍDU OG STRÍÐU 2 3 □ ■ 5 3 7 □ ■ 9 10 □ 11 12 13 m 14 • □ 15 1« m 17 18 m Tö « n 22 23 □ 24 25 J KROSSGÁTA Nr. 80 Lárétt: 1 hljóð 4 band 8 dauðyfli 9 tangi 11 hrap 12 stigi 14 sting 15 fé 17 geil 19 elskaður 21 keyrðu 22 leiður 24 afkvæmi 25 vökvaði. Lóðrétt: 1 pár 2 bylgja 3 dutt- lungar 4 gengur 5 þjóta 6 fugl 7 auðkýfingar 10 svolgra 13 strita 16 sáðland 17 hnöttur 18 vesöl 20 tryllt 23 flugur. Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 spor 4 baug 8 regluna 9 ráði 11 arar 12 krukku 14 ðð 15 auðn 17 gaurs 19 geir 21 örn 22 alin 24 anga 25 ánni. Lóðrétt: 1 serk 2 orðu 3 reikar 4 blauð 5 aur 6 unað 7 garður 18 Ármann 13 kusa 16 nein 17 góa 18 ung 20 inn 23 lá. 12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. desember 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.