Þjóðviljinn - 19.12.1985, Síða 15
Handbolti
ÍÞRÓTTIR
Valur auðveld-
lega á toppinn
Tíu marka forysta gegn Prótti fyrir hlé
Guðmundur A.Jónsson markvörð-
ur hélt Þrótturum á floti með frábærri
markvörslu í gærkvöldi. Hann náði
ekki að vinna Valsarana einn, hinir
Þróttararnir gerðu lítið til að reyna
að bjarga andíitinu. Það þarf ekki að
koma á óvart hve áhugalausir þeir
voru, þeir voru þegar fallnir. Vals-
menn eru hinsvegar í efsta sæti
l.deildar eftir 30-17 sigur.
Valsarar gerðu útum leikinn í fyrri
hálfleik er þeir náðu 10 marka for-
skoti. Valsliðið í heild lék nokkuð vel
og þá voru hraðaupphlaupin sérstak-
lega góð. Ur þeim skoruðu þeir meira
Staðan
í l.deild karla i handknattleik:
Valur...........11 9 0 2 258-219 18
Víkingur........11 9 0 2 271-210 18
Stjarnan........11 7 2 2 257-222 16
FH..............11 6 0 5 268-255 12
KA..............11 4 1 6 223-229 9
Fram........... 11 4 0 7 256-264 8
KR............. 11 3 1 7 234-256 7
Þróttur.........11 0 0 11 224-336 0
Markahæstir:
Egill Jóhannesson, Fram.............72
ÞorgilsÓttarMathiesen, FH...........72
Konráð Jónsson, Þrótti..............70
ValdimarGrímsson, Val...............70
Gylfi Birgisson, Stjörnunni.........66
Þrjár síðustu umferðir deildarinn
ar verða leiknar fvrri part janúar.
Kuwait
Verkfall
stöðvað
Knattspyrnusambandið í Kuwait
batt í gær enda á hálfsmánaðar langt
verkfall þarlendra dómara með því að
ráða 15 erlenda dómara í staðinn.
Deildakeppnin í landinu hefur lcgið
niðri síðan dómararnir fóru í verkfall
til að mótmæla því að stjórn knatt-
spyrnusambandsins skyldi vera rek-
in. Nýja stjórnin náði í sex Júgóslava
og tvo Englendinga og auk þess dóm-
ara frá Oman, Súdan, Líbíu og Sýr-
landi. Hinn nýrekni formaður knatts-
pyrnusamhandsins gerði allt sem í
hans valdi stóð til að koma í veg fyrir
þetta en hann og stjórn hans fengu
reisupassann vegna ásakana um fjár-
málasvindl.
—VS/Reuter
B-keppnin
Tap í
lokaleik
Kvennalandsliðið í handknatt-
leik tapaði lokaleik sínum í B-
kcppninni í Vestur-Þýskalandi í
fyrrakvöld, 26-13 gegn Sviss. Lið-
ið tapaði öllum sínum leikjum og
varð í 16. og síðasta sæti.
Körfubolti
Tveir í kvöld
ÍBK og KR leika í kvöld frestaðan
leik sinn í úrvulsdeildinni í körfu-
knattlcik. Hann átti að fara fram í
Keflavík sl. laugardag en verður í
kvöld á sama stað kl.20. Á sama tíma
hefst í Hafnarfirði viðureign Hauka
og Valur.
en helming markanna, aðallega Jak-
ob og Valdimar. Geir var sterkur í
vörninni og Ellert átti ágætan leik í
markinu.
Ef undan er skilið kæruleysi,
áhugaleysi og baráttuleysi hrjáir það
helst Þróttara að þá vantar örvhentan
leikmenn því þeir ná ekki upp eðli-
legum leik hægra megin. Guðmundur
markvörður var langbestur og er í
stöðugri framför. Konráð átti sæmi-
legan leik.
—Logi
Laugardalshöll 18.des.
Vaiur-Þróttur 30-17 (17-8)
3-2, 6-2, 10-6, 16-6, 17-8 •
22-9, 23-14, 27-15, 30-17.
Mörk Vals:Jakob Sigurðsson
7(1 v), Valdimar Grímsson 6,
Þórður Sigurðsson 4(1 v), Geir
Sveinsson 3, Jón Pétur Jónsson
3, Júlíus Jónasson 2, Þorbjörn
Jensson 2, Þorbjörn Guðmunds-
son 1, Theodór Guðfinnsson 1,
Guðmundur Guðmundsson 1.
Mörk Þróttar: Konráð Jónsson
7, Guðmundur Óskarsson 4,
Nikulás Jónsson 4(1 v), Brynjar
Einarsson 1.
Dómarar: Björn Jóhannsson
og Sigurður Baldursson — góðir.
Maður leiksins: Guðmundur
A.Jónsson, Þrótti.
Man.Utd
Sivebeck
vísað frá
Ekkert verður af því að Manc-
hester United kaupi danska
landsliðsmanninn John Sivebcck
frá Vejle. Við læknisskoðun kom
í Ijós að hann hefur ekki jafnað
sig eftir botnlangaskurð sem
gerður var á honum snemma á
árinu. Man.Utd hugðist grciða
Vejle 250 þúsund pund fyrir Sive-
beck sem hefur leikið mjög vel
mcð danska landsliðinu undan-
farið.
NBA-deildin
Annað tap
hjá Celtics
Boston Celtics töpuðu í fyrrakvöld
sínum öðrum leik í röð í bandarísku
körfuboltanum, 116-108 gegn Chic-
ago Bulls. Celtics hafa þó áfram ör-
ugga forystu í Atlantshafsriðli, hafa
unnið 20 leiki af 25 en næstir koma
New Jersey Nets með 14 sigra í 26
leikjum.
Los Angeles Lakers unnu sinn 21.
sigur í 24 leikjum, 105-99 gcgn New
York Knicks. Milwaukee Bucks op
llouston Rockets eru áfram í efstu
sætum í hinum riðlunum.
—VS/Reuter
3. deild
ÍA vann
ÍA sigraði Hvergerðinga 32-25
í Hveragerði í gærkvöldi. Þetta
var lokaleikur fyrri umferðar
3. deildarkeppninnar í hand-
knattleik og nú eru ÍBK, Týr og
ÍA jöfn og efst með 20 stig. ÍBK
kemst í efsta sætið á bestri út-
komu í innbyrðis leikjum lið-
anna. Reynir hefur 18 stig í
4. sæti.
—VS
Iþróttasamband íslands og Frjálst Framtak útnefndu í gærkvöldi íþróttamenn ársins hjá hinum einstöku sérsamb-
öndum. Þá gefur að líta á myndinni, alla nema Einar Vilhjálmsson (frjálsar íþróttir) sem ekki gat mætt. Aftasta röð
frá vinstri: Sigurður Pétursson (golf), Guðmundur Sigurðsson (lyftingar), Ari Bergmann Einarsson (siglingar),
Bjarni Friðriksson (júdó), Þorgils Óttar Mathiesen (handknattleikur), Pálmar Sigurðsson (körfuknattleikur).
Miðröð: Árni Einarsson (karate), Guðmundur Þorbjörnsson (knattspyrna), Eðvarð Þ.Eðvarðsson (sund), Davið
Ingason (fimleikar), Gissur Skarphéðinsson (skotfimi), Ólafur H.Ólafsson (glíma). Fremsta röð: Guðrún H.
Kristjánsdóttir (skíði), Auður Aðalsteinsdóttir (blak), Tómas Guðjónsson (borðtennis), Þórdis Edwald (badmint-
on) og Ina Valsdóttir (íþróttir fatlaðra). Mynd: E.ÓI.
England
Neal
til
Bolton
Phil Neal, sá kunni enski
landsliðsbakvörður í knatt-
spyrnu, yfirgaf í gær Livcrpo-
ol og gerðist leikmaður og
framkvæmdastjóri hjá
3.deildarliðinu Bolton Wand-
erers.
Neal kom til Liverpooi frá
Northampton fyrir 11 árum og
hefur unnið flest sem hægt er
að vinna í knattspyrnunni.
Hann varð fjórum sinnum
Evrópumeistari með Liverpo-
ol og sjö sinnum enskur
meistari svo eitthvað sé nefnt.
Hann var urn skeið fyrirliði
liðsins. Þá lék hann 50 lands-
Borðtennis
Stjaman ógnar
veldi KR-inga
Liðin jöfn eftir fyrri umferð
Phil Neal.
leiki fyrir England, m.a. í úr-
slitum heimsmeistarakeppn-
innar á Spáni árið 1982.
Neal hefur ekki komist í lið
hjá Liverpool í vetur, eða síð-
an hans gamli félagi Kenny
Dalglish tók við stöðu fram-
kvæmdastjóra. Hann tekur
við Bolton, sem lék í l.deild
fyrir fáum árum, í erfiðri
stöðu. Liðið er í sjöunda
neðsta sæti 3.deildar og því í
fallbaráttu.
—VS/Reuter
Körfubolti
Danir
og Kanar
Danska landsliðið og há-
skólalið Luther College frá
Bandaríkjunum koma hingað
til lands strax eftir áramótin
og taka þátt í fjögurra liða
móti. Hin työ liðin verða a- og
b-landslið íslands.
Mótið fer fram í Keflavík
dagana 3.-5.janúar og er liður
í undirbúningi landsliðsins
fyrir Evrópukeppnina í vor.
Luther College hefur átt góð
samskipti við Island á körf-
uknattleikssviðinu og sá t.d.
um Bandaríkjaferð landsliðs-
ins í nóvember.
Stjarnan ógnar nú 11 ára veldi
KR í dcildakcppni karla í borð-
tennis. Fyrri hluti kcppninnar fór
fram i Laugardalshöllinni um síð-
ustu hclgi og þá skildu Stjarnan
og KR jöfn, 5-5, og unnu aðra
leiki sína.
Staðan í l.dcild karia er þessi:
KR-a..................4 3 1 0 23-7 7
Stjarnan-a............4 3 1 0 23-7 7
Vikingur-a............4 2 0 2 15-14 4
Örninn-a..............4 1 0 3 9-19 2
KR-b..................4 0 0 4 1-24 0
V.Pýskaland
Jafntefli
Bayer Uerdingen, lið Lárusar
Guðmundssonar og Atla Eð-
valdssonar, gerði í gærkvöldi
jafntefli við Borussia Möncheng-
ladbach, 1-1, í Bundesligunni í
knattspyrnu. Gladbach hefur þá
hlotið 25 stig cinsog Bayern
Munchen og Hamburger en
Brcmen hefur 29 stig. Bayern
Munchen sigraði Bochum 2-0 í
3.umferð bikarkeppninnar.
—VS/Reuter
Knattspyrna
Spánn vann
Spánn sigraði Búlgaríu 2-0 í
vináttulandsleik sem fram fór í
Valencia á Spáni í gærkvöldi. Mi-
guel og Caldere skoruðu mörkin,
sitt í hvorum hálfleik.
—VS/Reutcr
I.deild kvenna:
A-riðill:
UMSB-a..................2 2 0 0 6-0 4
Víkingur-a..............2 10 13-32
UMSB-c..................2 0 0 2 0-6 0
B-riðill:
KR-a....................3 3 0 0 9-2 6
Stjarnan................3 2 0 1 7-4 4
UMSB-b..................3 1 0 2 5-7 2
Víkingur-b..............3 0 0 3 1-9 0
Víkingur-b er í efsta sæti
2.deildar karla með 8 stig en b-lið
Stjörnunnar kcmur næst með 6
stig. í unglingaflokki er keppt í
tveimur riðlum, Stjarnan-a hefur
unnið alla sína leiki í A-riðli en
KR-a alla sína í B-riðli.
Fimmtudagur 19. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15