Þjóðviljinn - 07.01.1986, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 07.01.1986, Qupperneq 3
FREITIR LIN Rannsakið Sverri! Starfsmenn LÍN á fundforsœtisráðherra ígœr. Máliðfyrir ríkisstjórnarfund. Starfsmenn skora á forsœtisráðherra að láta rannsaka embœttisstörf Sverris Starfsmenn Lánasjóðs náms- manna hafa skorað á Steingrím Hermannsson forsætis- ráðherra að láta rannsaka emb- ættisfærslu menntamálaráðhcrra með tilliti til þess hvort hann hafi vikið framkvæmdastjóra sjóðsins frá á röngum forsendum. Steingrímur mun taka þetta mál upp á ríkisstjórnarfundi í dag. Starfsmenn sjóðsins áttu fund í hádeginu í gær með stjórn LIN þar sem málin voru rædd og stjórnin gagnrýnd harðlega fyrir að víkjast undan ábyrgð á áætlun- um sjóðsins. Strax á eftir héldu starfsmenn fund þar sem sam- þykkt var ályktun þess efnis að þeir telji brottvikningu Sigurjóns ólöglega og að hún stangist á við lög um réttindi og skyldur opin- berra starfsmanna. Síðdegis í gær fóru starfsmenn á fund forsætisráðherra og skoruðu á hann í fyrsta lagi að láta rannsaka embættisfærslur Sverris Hermannssonar varðandi brottvikninguna. í öðru lagi hvort ásakanir ráðherrans um vanrækslu Sigurjóns í starfi stangist ekki á við hegningarlög. I þriðja lagi hvort samþykkt meii i- hluta stjórnar LÍN um þetta mál sé ekki þess eðlis að ástæða sé.til að leysa þann meirihluta þegar frá stjórnarstörfum, en þar sam- þykktu þrír stjórnarmanna að þeir teldu ráðherra hafa fullt vald til að reka Sigurjón og það sé alfarið á hans ábyrgð. Sem fyrr segir mun forsætis- ráðherra taka málið upp á ríkis- stjórnarfundi í dag. Sverrir Her- mannsson er erlendis sem stend- ur og mun því einhver félaga hans úr Sjálfstæðisflokknum standa fyrir máli hans á fundinum. - gR Hafskip Eimskip yfirtekur Eimskipafélag íslands yfirtók í gær meginhlutann af eignum þrotabús Hafskips og nam kaupverð cignanna um 316 milj- ónuin króna. Er það um 78 milj- ónum króna lægri upphæð en upphaflegt tilboð Eimskips gcrði ráð fyrir og stafar það af því að ekki rcyndist unnt að selja úr þrotabúinu skipið Skaftá og veru- legt magn gáma að auki. í kaupsamningi Eimskips er gert ráð fyrir að félagið eignist skipin, Hofsá, Rangá og Selá svo og eignar- og leiguréttindi þrota- búsins við Faxaskála, A-skála og Ingólfsgarð. Þá má nefna 164 gáma, bifreiðar, vörulvftara og fleiri farartæki, vélar og áhöld ýrnis konar, lestunar- og losunar- búnað og hlutabréf í 8 félögum. Verslunarskólinn FluttiTgær N Verslunarskólanemendur koma fyktu liði að nýja skólanum, og klingja skólabjöllunni. Á innfelldu myndinni er Jónas Fr. Jónsson, formaður nemendafélags Verslunarskólans. - Mynd: E.ÓI. u verður ekki aftur snúið,“ sagði Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslunarskóla íslands, þegar nemend- ur skólans höfðu gengið inn í nýja húsn- æðið sem skólinn hcfur nú tekið í notkun við Ofanlciti í nýja miðbænum. Nemendur og starfslið skólans gengu í gær fylktu liði frá gamla skólanum við Grundarstíg inn í Ofanleiti. Fyrir göng- unni fóru tveir nemendur sent héldu á skólaklukkunni en hún verður notuð fram í hinu nýja húsnæði. Borð og stólar nemenda höfðu verið fluttar með flutn- ingabílum og nemendur báru þau síðan inn í sínar skólastofur. Nemendur voru nokkuð ánægðir með nýja húsnæðið, helst virtist sem fólk saknaöi þess þokka sem var yfir gamla húsnæðinu. Jónas Fr. Jónsson sagði aö hlaupið yrði með félagsandann í skjóðu á laugar- daginn kemur úr gamla skólanum í þann nýja, inn á skemmtun og dansleik sent þá verður haldinn í tilefni af þessum tímamótum. Aðspurður um nemenda- aðstöðu í hinum nýju húsakynnum sagði Jónas að nú yrði mikil breyting til hins betra. „Niðri í bæ vorum við með að- stöðu í mörgum byggingum en hér verð- ur allt á einum stað, og auðvitað mjög rúmgott. Ég er að vona að hér verði öflugt gos í félagslífinu." sagði Jónas. - 1H Friðarganga Strand í Nicaragua Stjórnir Honduras og El Salvador meina 300 friðar- sinnum um aðgangað löndum sínum. Aðsúgur gerð- ur að friðargöngunni í Costa Rica en allir þátttakend- ur eru frískir Undanfarnar vikur hafa uþb. 300 friðarsinnar víða að úr heiminum verið á friðargöngu um ríki Mið-Ameríku en í þcim hópi er íslendingurinn Ari Tryggvason. Á göngunni hefur ýmislegt borið til tíðinda og hafa göngumenn orðið fyrir barðinu á hægrisinnuðum öfgamönnum, jafnt þeim sem sitja í ríkisstjórn- um og hinum sem utan stjórna eru. Friðargangan hótst 1 Panama þann 10. desemberogvar ætlunin að ganga um Costa Rica, Nicar- agua, Honduras, E1 Salvador, Guatemala og Mexíkó en þar átti göngunni að ljúka með fundi í Mexíkóborg 22. janúar nk. Nú er óvíst hvort hægt verður að halda þessa áætlun, að því er Þjóðviljanum var tjáð á skrif- stofu friðargöngunnar í Osló í gær. „Göngumönnum hefur ver- ið meinuð viðkoma í Hondúras og E1 Salvador,“ sagði Trond á skrifstofu friðargöngunnar. „Gangan er búin að vera í Nicar- agua ansi lengi eftir að hægrisinn- ar í Costa Rica bókstaflega hentu göngumönnum út úr landinu fyrir jól. Þeir réðust á gönguna og köstuðu grjóti og táragasi að göngumönnum. Við það tækifæri slösuðust nokkrir en þeir hafa nú náð sér og að því er við best vitum eru allir þátttakendur við góða heilsu,“ sagði Þrándur. ið? Hvert verður svo framhald- „Einhverjir úr röðum göngu- manna ætla að freista þess að komast sjóleiðina inn í E1 Salva- dor en mjög er óvíst hvort það ber árangur. Ef ekki er ætlunin að leigja flugvél og fljúga til Gu- atemala og halda síðan áfram þaðan til Mexíkó." — Er tryggt að gangan fái að koma til Guatemala? „Það er frekar búist við að svo verði. Þann 14. þm. tekur nýr forseti, borgaralegur, við völdum í landinu og hann vill áreiðanlega síður hefja feril sinn á því að neita göngumönnum um að koma til landsins.“ — Var búist við viðtökum af þessu tagi? „Það má segja að þær hafi ekki komið alveg á óvart. En það hef- ur ekki verið rökstutt með neinum hætti hvers vegna göngu- mönnum er meinaður aðgangur að Hondúras og E1 Salvador. Það eina sem heyrst hefur er að stjórnvöld í Hondúras treysti sér ekki til að tryggja öryggi göngu- manna,“ sagði Trond. —ÞH MOÐURMALSSKOLINN hefur nú starfsemi sína á nýju ári og býöur upp á námskeið í ýmsum greinum móðurmálsins auk ýmiss konar þjónustu. Kennt verður á kvöldin virka daga og e.h. á laugardögum. Stefnt verður að því að á hverju námskeiði séu einungis 5-10 þátttakendur en hvert námskeið sé 20 stundir. Nemendur geta stjálfir haft umtalsverð áhrif á framkvæmd námskeiða. Námskeiðin eru ætluð öllu áhugafólki um íslenskt mál og bókmenntir og ekki síður nemend- um sem þurfaað bætasig íeinhverritiltekinnigrein. Námskeiðinerueinnig hugsuðfyrirýmiss konar hópa er tækju sig saman, t.d. innan fyrirtækja, félaga eða klúbba. Við getum kennt slíkum hópum á vinnustöðum þeirra eða þar sem þeir hafa aðstöðu fyrir félagsstarf. Við hefjum kennslu í eftirfarandi greinum í janúar ef næg þátttaka fæst. ■Rettritun■ Farið verður yfir helstu reglur um réttritun með fjölbreyttum æfingum. Einnig framhaldsnám- skeið. Greinar og ritgerðir • og samning annars efnis. Hvernig gerum við grein fyrirskoðunum okkar í rituðu máli? Hvernig byggjum við greinar og ritgerðir? Farið verður yfir helstu einkenni gcðra ritgerða og gerð þeirra æfð. ------------------------Málfræði íslenskrar tungu — á „nýju málfræðinni” og samanburður við hefðbundna mál Upprifjun og skýringar setningafræði. og Skáldskapur, samning Ijóða og smásagna Við bjóðum þeim sem sjálfir semja eða hafa löngun til þess upp á aðstoð og gagnrýni. -----------—-----------íslenskar fornbókmenntir --........... Fjallað verður um sögu bókmennta okkar og vikið að helstu bókmenntagreinum á fyrstu öldum íslandssögunnar. Lesin skáldverk sem valin verða í samráði við nemendur. Bókmenntir á 20. öld Farið verður yfir helstu þætti bókmenntasögunnar á okkar öld og lesin valin skáldverk í samráði við nemendur. Þjónusta Við bjóðum upp á margs konar þjónustu, t.d.: a) Við útvegum nemendum aukatíma, einum eða fleiri í senn. b) Við erum reiðubúnir að taka að okkur ýmiss konar námskeið sem hópar taka sig saman um. c) Við getum séð um að lesa yfir handrit og prófarkir og fylgt bókum og öðru efni gegnum prentsmiðju. Þátttökugjald er kr. 3000.- fyrir hvert námskeið. Innritun ferfram e.kl. 19 til 18. janúar í síma 41311 (Heimir Pálsson) og 41059 (Þórður Helgason). Þriðjudagur 7. janúar 1986 ÞJÓpVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.