Þjóðviljinn - 07.01.1986, Side 7
DJÖÐVILJINN
írland
Atvinnuleysið
minnkar ekki
Rœtt við Kevin Wallace, tvítugan írafrá Corkþarsem 28%
íbúanna eru atvinnulausir
Kevin Wallace: ómetanlegt tækifæri til að kynnast því hvernig íslendingar leysa
þau vandamál sem við erum að kljást við heima fyrir. Ljósm. Sig.
„Nei, ég get varla leyft mér að
vera bjartsýnn. Það koma sífellt
fleiri út úr skólunum á ári hverju
og atvinnulífið hefur ekki
undan,“ sagði Kevin Wallace, tví-
tugur íri frá Cork. Kevin hefur
verið atvinnulaus frá því í júní og
er þar á báti með 14 þúsund
atvinnulausum bæjarbúum, en
hvergi í Evrópu er atvinnuleysi
jafn mikið og í þessari næst stær-
stu borg Irska lýðveldisins eða
28%. Reyndar er atvinnuleysi
gífurlegt í öllu írska lýðveldinu,
18% landsmanna eru atvinnu-
lausir og er það hæsta hlutfall í
Evrópu.
Kevin hyggst ásamt félögum
sínum tveimur, Andrew sem er
atvinnulaus Breti frá Durham og
Marco, hagfræðistúdent frá Mi-
lano á Ítalíu, kynna sér atvinnu-
mál á íslandi og einkum þá stað-
reynd að hér mælist ekkert
atvinnuleysi miðað við það sem
önnur Evrópulönd kljást við.
Reyndar sagði einn aðstandenda
ferðarinnar að íslenskir ráða-
menn hefðu ekki verið hrifnir af
því að til stæði að kanna dulið
atvinnuleysi á íslandi og vildu
ekki kannast við að það væri til.
En það kom fyrir ekki. Samtökin
EEE taka ekíci pólitíska afstöðu
og fara sínar eigin leiðir í athug-
unum á samfélaginu, sagði þessi
sami maður.
Kominn til
að læra
í Evrópu er 8-18% atvinnu-
leysi með þeirri undantekningu
sem ísland er. „Við ætlum að
reyna að skilja hvers vegna
atvinnuleysi á borð við þetta
þekkist eicki hér á landi og reyna
að læra af því,“ sagði Kevin. „Við
væntum góðrar samvinnu við
verkalýðsfélögin og viljum einnig
kynnast starfi þeirra nánar m.a.
að samningagerð og að félags-
málum verkafólks."
Hópurinn kom til íslands 27.
desember sl. og strax þann 3. jan-
úar hafði Kevin tekið eftir ýmsu
sem hann á ekki að venjast heima
fyrir. „Þið byrjið að fara á krárn-
ar þegar þær loka heima, klukkan
11 á kvöldin,“ sagði hann. „Að
öðru leyti sýnist mér unga fólkið
hér svipað og alls staðar annars
staðar. Það hefur það greinilega
mjög gott og er ánægt.“
„Eitt af því sem er gott hjá ykk-
ur íslendingum er að leyfa ekki
erlendum stórfyrirtækjum að
setja sig hér niður. Það höfum við
orðið að gera á írlandi og þangað
hafa þau verið lokkuð með gylli-
boðum og skattfríðindum um til-
tekið árabil. Þegar sá tími er lið-
inn og fyrirtækin eiga að fara að
borga skatta láta þau sig bara
hverfa og fólkið stendur eftir
atvinnulaust. Þannig fór í Cork
en meginástæðan fyrir hinu gífur-
lega mikla atvinnuleysi þar er
lokun tveggja stórra erlendra
verksmiðja, Ford og Dunlop.
Slík fyrirtæki lækka atvinnu-
leysistölurnar bara í skamman
tíma og þau bæta ekki efnahags-
ástandið í landinu til lengri tíma
litið," sagði Kevin.
1800 krónur á viku
Kevin kemur úr verkamann-
afjölskyldu og lauk skólanámi
1984. Þá átti hann kost á Ijós-
myndaranámskeiði í Dublin og
hóf þar að starfa með leikhópi
sem m.a. starfaði í Belfast á N-
írlandi. Leikhópurinn naut opin-
berra styrkja en í júnímánuði sl.
voru styrkirnir teknir af og síðan
hefur hann verið atvinnulaus.
„Ég hef öðru hvoru fengið smá-
verkefni á sviði ljósmyndunar og
svo hef ég unnið á sveitabæjum,
en eftir slíkar tarnir getur tekið
allt að 6 vikum að komast aftur á
skrá yfir atvinnulausa," sagði Ke-
vin. „Meðalvikulaun fullvinn-
andi fólks er 120-150 írsk pund en
atvinnuleysisbæturnar eru 36
pund á viku eða 1800 íslenskar
krónur. Allt að 20 pundum fara í
húsaleigu og þá á eftir að borga
rafmagn og mat.“
„írar eru orðnir langþreyttir á
atvinnuleysinu," sagði hann.
„Verkalýðsfélögin eru sterk og
Verkamannaflokkurinn sem frá
upphafi hefur verið þeirra bak-
hjarl hefur losnað úr tengslum
við verkafólk og misst mikinn
stuðning enda hefur hann setið í
samsteypustjórnum með hægri
flokkum. Atvinnuleysið fer því
miður ekki minnkandi þó stjórn-
in státi sig af því að verðbólgan
hafi lækkað. Það hefur hins vegar
aðeins komið þeim til góða sem
eru vel stæðir fyrir, en breytir
engu fyrir ófaglært verkafólk sem
mælir göturnar atvinnulaust."
Kevin þurfti sjálfur að útvega
500 pund til fararinnar og
reyndist það ekki auðhlaupið
manni sem ekki hefur atvinnu.
Það tókst þó með styrkjum frá
fyrirtækjum og einstaklingum,
m.a. söfnuðust 200 pund á sér-
stökum hljómleikum þjóðlaga-
hóps í ferðasjóð hans hingað.
„Þetta er ómetanlegt tækifæri til
að kynnast fólki frá öðrum
löndurn," sagði Kevin, „og ekki
síst til að kynnast því hvernig
önnur samfélög í Evrópu leysa
þau vandamál sem við erum að
kljást við heima fyrir".
-ÁI.
Ungir Evrópubúar
Island undir
smásjá
17 manna hópurfrá 7 Evrópulöndum gerir
úttekt á íslensku samfélagi
Hópurinn sem kom hingað til lands 27. desember s.l. á vegum EEE. í efri röð fyrir miðju eru Pétur Kjartansson, sem
kynnti v-þýska fiskmiðlunarfyrirtækið Lúbbert á fundi með fréttamönnum, Peter Carlo Lehrell, fararstjóri og Helga
Guðrún Jónasdóttir, tengiliður hópsins hér á landi. Ljósm. Sig.
„Af hverju ísland? Fyrst og
fremst vegna fámennisins og ein-
angrunar landsins. Við erum að
kynna okkur hin ýmsu þjóðfélög
Evrópulandanna og á íslandi
næst betra heildaryfirlit en víðast
annars staðar auk þess sem nafn-
ið eitt kveikir í ímyndunarafl-
inu,“ sagði Peter Carlo Lehrell,
fararstjóri 17 manna hóps evr-
ópskra ungmenna sem dvelur hér
fram til 20. janúar nk. Önnur af-
mörkuð samfélög sem ætlunin er
að skoða síðar eru Finnland og
Vestur-Berlín en auk þess hafa
samtökin sent ungt fólk m.a. til
Afríku, þar sem ein íslensk stúlka
er með í för,“ sagði Peter.
EEE-samtökin eða „Náms-
reynsla og Evrópa“ eins og þa'u
nefnast í lauslegri þýðingu eru
tveggja ára gömul samtök ungra
Evrópubúa. Markmið þeirra er
að vekja ungt fólk til vitundar um
tilvist hins evrópska samfélags;
uppræta fordóma, efla samvinnu
fólks af ólíku þjóðerni og treysta
vináttubönd landa á milli. Sam-
tökin fjármagna starf sitt ein-
göngu með frjálsum framlögum
einstaklinga, fyrirtækja og ríkis-
stofnana og hefur v-þýska fisk-
miðlunarfyrirtækið Lúbbert í
Bremerhaven staðið mestan
straum af ferð ungmennanna
hingað, en fyrirtækið er íslensk-
um fiskútflytjendum að góðu
kunnugt.
í hópnum eru sem fyrr segir 17
manns að meðtalinni íslenskri
stúlku, Helgu Guðrúnu Jónas-
dóttur, sem er tengiliðurinn hér á
landi. Ungmennin koma frá ír-
landi, Frakklandi, Bretlandi,
Belgíu, Ítalíu og Skotlandi og
dvelja hér til 20. janúar. Tímann
hyggjast þau nota til að kynna sér
stöðu ýmissa áhugamála sinna
hér á landi, svo sem listhönnun
og iðnhönnun, ferðamannaiðn-
að, íslenska kvennahreyfingu og
atvinnumál kvenna, áhrif ís-
lendingasagna á þróun menning-
arlífs hér fyrr og nú, aðbúnað
aldraðra og loks atvinnuleysi,
málefni sem brennur á ungum
Evrópubúum meir en nokkuð
annað en íslendingar hafa verið
blessunarlega lausir við að
mestu.
Ungmennin vinna að þessum
áhugamálum sínum í 2ja og 3ja
manna hópum í samvinnu við
ýmsa aðila, svo sem Myndlista-
og handíðaskólann, Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar, Há-
skóla íslands, Ferðamálaráð og
verkalýðsfélögin.
Þó samtökin séu ung að árum
hafa þau þegar afrekað að koma
á laggirnar málvísindaskóla í
Cork í írska lýðveldinu. Þá
standa þau fyrir 6 mánaða för
evrópskra ungmenna um 15 Afr-
íkuríki um þessar mundir en í
þeim hópi er einn íslendingur,
Guðrún Högnadóttir, sem valin
var úr stórum hópi umsækjenda.
Á næstu árurn er fyrirhugað að
senda slíka hópa víðar um heim
til að veita ungu fólki tækifæri til
að kynnast fjarlægum þjóðum
jafnt sem nálægum. - ÁI.