Þjóðviljinn - 26.01.1986, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 26.01.1986, Blaðsíða 13
DAGSBRUN 80 ARA Vantornýtt blóð í veika- lýðsfoiystona Ásbjörn A. Garðarsson, lager- maður hjá Istak: Það eru ekki laun verkafólks sem hafa hleypt upp verðbólgunni, heldur stjórnvöld sj álf. „Verkalýðsforystan hefur ekki staðið sig nógu vel,“ sagði Ás- björn A. Garðarsson, lagermað- ur hjá verktakafyrirtækinu ístak, er Þjóðviljinn ræddi við hann fyrr í vikunni. „Ástæðuna fyrir því tel ég vera, að nýju blóði hefur ekki verið hleypt í forystuna og hún hefur því slitnað úr sambandi við almenna félagsmenn*'. Ásbjörn er þeirrar skoðunar að alltof lítið sé gert til að reyna að virkja almenna félagsmenn í Dagsbrún. Vill hann að það sé gert með því að koma af stað um- ræðufundum á vinnustöðum, því það sé ekki nóg að stefna fólki á fundi þegar búið er að skrifa undir samninga. Það er hans skoðun að eðlilegt hefði verið að funda nteð fólki nú, áður en gengið var til samninga, og kanna þannig hljóðið í því fólki sem á að semja fyrir. Það er skoðun Ásbjörns, að mun vænlegra hefði verið að Dagsbrún hefði samið sér fyrir sitt fólk, heldur en að fara í sam- flot með ASÍ eins og ákveðið hef- ur verið. „Það hefði komið mun sterkara út. Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina, að þegar ASÍ ætl- ar sér að semja fyrir öll aðildarfé- lögin, þá hefur alltaf komið upp klofningur". Út af fyrir sig telur Ásbjörn að 35% launahækkun sé góð og gild, hinsvegar efast hann um að hún náist í gegn, og fari svo að samið verði um þessa hækkun, þá er hann fullviss um að henni verði hleypt beint út í verðlagið aftur. Hvað kröfuna um kaupmáttar- tryggingu viðkemur, þá efast hann um að hún nái í gegn. „Það má búast við að stjórnvöld og atvinnurekendur hefji upp gamla sönginn um verð- bólgusamninga og að viðbáran verði hin sama og alltaf, að at- vinnuvegirnir beri ekki hækkan- irnar. En það gleymist að geta þess, að það eru ekki verkamenn- irnir sem hafa komið verðbólg- unni af stað, heldur stjórnvöld sjálf“. Ásbjörn er þeirrar skoðunar að forystan eigi að reyna að semja um skattalækkanir. „Það er besta kauptrygging sem þeir gætu samið um fyrir okkur. Helst vildi ég að tekjuskatturinn yrði algjörlega afnuminn“. Én eru Dagsbrúnarmenn, sem vinna hjá verktökum tilbúnir að fara í hart til að ná fram kröfum sínum? Ekki er það skoðun Ás- bjarnar. Mikill samdráttur hefur átt sér stað hjá verktakafyrirtækj- unum og á flestum stöðum hefur þurft að fækka fólki. T.d. þurfti lstak að segja upp fólki, sem vann við flugstöðvarbygginguna, en Hagvirki mun hafa endurráðið flesta þegar þeir fengu innréttingarnar. Þessi samdráttur veikir mjög stöðu verkafólksins og því telur Ásbjörn verkföll ekki vænleg til árangurs eins og mál- um er nú háttað. Ásbjörn hefur unnið verka- mannavinnu í 15 ár og allan tím- ann hjá ístak. Áður var hann sjó- maður. Hann var að lokum spurður að því hvort hann teldi að hagur verkamanna hefði vænkast frá því að hann hóf störf eða hrakað. Hann sagði að það væri erfitt að gera sér grein fyrir því. hinsvegar finndi fólk veru- lega fyrir því hversu mjög kjörin hafa rýrnað í tíð núverandi ríkis- stjórnar. -Sáf. Ásbjörn A. Garðarsson á lagernum hjá ístaki. Mynd Sig. Þekkir þú lífevrisrétt þinn? Þessir lífeyrissjóðir mynda eina lífeyrisheild: Lsj. ASB og BSFÍ Lsj. byggingamanna Lsj. Dagsbrúnar og Framsóknar Lsj. Félags garðyrkjumanna Lsj. framreiðslumanna Lsj. Landssambands vörubifreiðastjóra Lsj. málm- og skipasmiða Lsj. matreiðslumanna Lsj. rafiðnaðarmanna Lsj. Sóknar Lsj. verksmiðjufólks Lsj. Vesturlands Lsj. Bolungarvíkur Lsj. Vestfirðinga Lsj. verkamanna, Hvammstanga Lsj. stéttarfélaga í Skagafirði Lsj. Iðju á Akureyri Lsj. Sameining, Akureyri Lsj. trésmiða á Akureyri Lsj. Björg, Húsavík Lsj. Austurlands Lsj. Vestmanneyinga Lsj. Rangæinga Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurnesjum Lsj. verkafólks í Grindavík Lsj. Hlífar og Framtíðarinnar SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA Samræmd lífeyrisheild ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.