Þjóðviljinn - 26.01.1986, Síða 21
DAGSBRÚN 80 ÁRA
Höfumsofnai
á veriinum
Helgi Björnsson gröfustjóri: Burt með stjórnina
Helgi Björnsson hefur starfað í
tvö ár sem gröfumaður hjá verk-
takafyrirtækinu Völur hf. sem
hefur aðsetur sitt á Ártúnshöfða.
Grafan var á verkstæði fyrirtæk-
isins þegar Þjóðviljann bar að
garði og var Helgi önnum kafínn
við að dytta að ferlíkinu. Hann
tók sér þó tíma til að spjalla við
blaðamann.
Launabarátta þungavinnu-
vélamanna er nokkuð snúin um
þessar mundir. Ástæðan fyrir því
er sú að sögn Helga, að taxtar á
útleigu á vélum hafa hrapað,
samtímis sem öll gjöld af þeim
hafa hækkað mikið. Þetta orsak-
ar það, að rjúki vélamennirnir
upp í launum, þá er stór hætta á
að mörg fyrirtækjanna muni
rúlla, því þau geti tæpast staðið
undir slíkum hækkunum. „Við
verðum því að styðja við bakið á
vinnuveitendum og reyna að kný-
ja fram leiðréttingu á þeirra mál-
um, áður en okkar kjör verða
leiðrétt. Þetta auk þess sem mik-
ill samdráttur hefur orðið í öllum
framkvæmdum, veldur því að við
eigum mjög erfitt um vik að fara í
hart auk þess sem stór hætta er á
að slíkt hafi lítið upp á sig.
Reynslan hefur sýnt að krónu-
hækkun er tekin jafn óðum aftur
af okkur, samanber BSRB-
verkfallið haustið ’84, þegar op-
inberir starfsmenn sátu eftir með
sárt ennið og launamissi."
Eitthvað verður samt til bragðs
að taka, því launamenn hafa
dregist mikið aftur úr á undan-
förnum árum. Að mati Helga er
orsaka þess bæði að leita hjá
stjórnvöldum og ósamstöðu hjá
verkalýðshreyfingunni. „Verka-
lýðurinn hefur sofnað á verðin-
um, en því miður á ég ekkert svar
við því hvernig skuli brugðist við
því. Það er hins vegar augljóst að
öskur á prósentuhækkun er ekki
alltaf rétta leiðin. Bein launa-
hækkun fer beint út í verðlagið
því ég hef litla trú á að kaupmátt-
artryggingin náist í gegn. Skatta-
lækkun væri besta kjarabótin sem
við gætum fengið við þessar að-
stæður“.
Með skattalækkunum gæti
verkamaðurinn unnið meiri eftir-
vinnu og þannig þénað mun
meira án þess að eiga á hættu að
lenda ofarlega í skattastiganum.
„Þetta kann að þýða aukið vinnu-
álag á fólk, en við skulum gera
okkur grein fyrir því, að íslend-
ingar eru vanir að vinna mikla
eftirvinnu og að hér verður ekki
komið á átta tíma vinnudegi
svona einn tveir og þrír. Slíkt eru
ekkert annað en draumórar“.
Hvert er álit Helga á verka-
lýðsforystunni: „Það er kannski
ekki rétt að segja að hún hafi
staðið sig illa, en hún mætti samt
standa sig mun betur“.
Helgi er þeirrar skoðunar að
alltof lítið samband sé milli for-
ystunnar og almennra félags-
manna, það sé rétt svo að félags-
menn viti af henni. Þá er hann á
því að flokkspólitík einkenni of
mikið val á mönnum í stjórn
Dagsbrúnar.
Helgi telur að það sé rétt að
standa að samningum eins og
núna er gert, að ASÍ semji fyrir
alla línuna. Á þann hátt komi
réttlátari hækkun fram, sem
komi í veg fyrir að bilið breikki
stöðugt, þó ekki verði algjörlega
komið í veg fyrir það, því ýmsir
hópar muni fara af stað með sér-
kjarasamninga strax að afloknum
samningum. Fyrir nokkrum
árum tíðkuðust yfirborganir í
verktakavinnunni en svo er ekki
lengur. Ástæðan fyrir því er vafa-
laust samdrátturinn sem fyrir-
tækin horfa upp á.
Það er myrkt hljóð í Helga þeg-
ar talið berst að núverandi stjórn,
sem að hans mati pr engin stjórn,
því þar rekur hver vitleysan aðra.
Sem dæmi urn það nefnir hann
sætabrauðsgjaldið, sem ekki
muni færa ríkiskassanum eina
einustu krónu, heldur orsaka
gjaldeyristap, þar sem bakarar
munu hætta við að framleiða inn-
lent bakkelsi og þess í stað flytja
inn kökur erlendis frá.
„Þjóðin á heimtingu á að fá að
kjósa til Alþingis sem fyrst, því
slík stjórn sem við höfum í dag á
ekki rétt á að fá að sitja við
stjórnvölinn. Við höfum einfald-
lega ekki efni á því,“ sagði Helgi
Björnsson að lokum. Helgi Björnsson var langt kominn með að hluta gröfuna í frumpartana þegar
-Sáf. Ijósmyndara Þjóðviljans tókst að fá hann til að líta upp frá iðju sinni. Mynd Sig.
0
af údániim okkai'
faratil emstriklirma.
Það segir meira en mörg orð um stefnu
okkar og stöðu.
Fastir viðskiptavinir vita að hverju þeir ganga:
Örugg og óbundin ávöxtun á Trompreikningi.
Heimilissafnlán, þar sem reglubundinn
sparnaður veitir lántökurétt.
Réttur til launaláns fyrir skuldlausa viðskiptavini,
sem leggja laun sín inn reglulega.
Gjaldeynsviðskipti, afgreiðsla kreditkorta og geymsluhólf.
Föstudagsopnun til kl. 18.00.
Hraðbanki allan sólarhringinn.
Traust og persónuleg þjónusta, næg bílstæði.
Gera aðrir betur?
SRmKIÖDUl^lfVÉI^rK)RA
Borgartúni 18. Sími 28577.
Sendum
DAGSBRÚN
kveðjur og árnaðaróskir
í tilefni 80 ára afmælisins.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100
*