Þjóðviljinn - 26.01.1986, Side 25

Þjóðviljinn - 26.01.1986, Side 25
1913 Fyrsta verk- fallið Ártalið 1913 er merkilegt í sögu Dagsbrúnar. Það ár gerði félagið fyrsta skriflega samninginn við atvinnurek- endur. Samningurinn var ekki undirritaður fyrr en eftir 6 vikna verkfall, hið fyrsta í sögu félagsins. Hann tók bæði til kaups og vinnutíma, og mætti upphaflega harðri andstöðu atvinnurekenda. Fyrsti samningafundurinn Nokkur kurr hafði magnast um skeið á meðal Dagsbrúnarmanna sökum illra kjara. Kauptaxti Dagsbrúnar hafði þá verið óbreyttur nánast frá stofnun fél- agsins 1906, með léttvægri sam- ræmingu taxta árið 1908. Á fé- lagsfundi á haustmánuðum 1912 kom fram afdráttarlaus vilji til að hækka kaupið. í janúar 1913 var svo kosin nefnd til að kanna mál- ið. Hún útbjó nokkur hundruð miða með áletrun, sem dreift var til verkamanna, og þeir beðnir að merkja við hvort þeir vildu að kaupið hækkaði eða ekki. Næst- um 500 manns létu álit sitt í ljós, og níu af hverjum tíu vildu hækk- un. Fyrsti samningafundurinn milli Dagsbrúnar og atvinnurekenda var svo haldinn klukkan fimm síðdegis á Hótel Reykjavík, þann' 21. mars 1913. Þar voru þrír mættir frá atvinnurekendum og sjö manna stjórn Dagsbrúnar. En kröfurnar náðust ekki fram, þó einstaka atvinnurekandi hafi hækkað kaupið eitthvað, í fram- haldi af samningafundinum. Sigursœlt verkfall Hinn 28. mars fór svo þriggja manna nefnd á fund verktakans, sem stóð fyrir hafnarvinnunni, og hótaði verkfalli yrði ekki farið að kröfum Dagsbrúnar. Sendi- nefndinni var tekið með köpuryrðum og hótað lögreglu. Kröfunum var hafnað og verkfall boðað þegar í stað. Verkfallsvarsla var engin, en spjöld voru gerð þar sem skorað var á verkamenn við höfnina að leggja niður vinnu. 22 félagar í Dagsbrún voru reknir úr félaginu fyrir verkfallsbrot. Best var sam- staðan meðal þeirra sem höfðu unnið í grjótnáminu. í annarri viku júní hafði verk- fallið staðið í sex vikur. Þá loksins hófust samningaviðræður fyrir al- vöru, og nokkruin dögum síðar undirritaði Pétur G. Guðmunds- son, þáverandi formaður Dags- brúnar, samninginn. Hann var síðar samþykktur á félagsfundi í Dagsbrún, og fyrsta verkfallinu hafði lokið með sigri. (Saga verkfallsins 1913 verður senn birt hér í Þjóðviljanum). VeRZLUNRRÐRNKINN -vimiwi me& fién ! Skeljungur h.f ISÉttdiJm félagsmönnum Dagsbrúnar olckar bestu kveðjur a -ÖÖ áiá afmælinu. ; ~ -a rm samskiptiBtl n árum. V/EIÐUM,V/IMHUM OQ 5EUUM l/eiðifloti Granda hf. er vel búinn og skipaður úrvals sjómönnum. Reykvískar fjölskyldur hafa haft afkomu sína af fiskveiðum í marga ættliði og vöxtur Reykjavíkur stafar ekki síst af þróun þilskipaútgerðar og síðar togaraútgerðar frá borginni. [/innslustöðvar Granda hf. eru í fremstu röð. Þar vinna hæfir starfsmenn að því að skapa vöru, sem stenst ströngustu gæðakröfur. Raupendur, jafnt innanlands sem í fjarlægum heimsálfum, mega treysta gæðum framleiðslunnar frá Granda hf. Tæknideild Granda hf. starfar að viðhaldi og sífelldri þróun tækjakosts fyrirtækisins. Hún á sinn þátt í góðri nýtingu aflans og lækkun kostnaðar á framleiðslueiningu. Yfirstjórn fyrirtækisins nýtir fullkomnasta tölvubúnað, sem völ er á til þess að fylgjast með rekstrinum. Hún leggur áherslu á að auka vinnsluvirði framleiðslunnar með vöruþróun og aukinni markaðsstarfsemi. Hefur það borið góðan árangur td. í sölu á ferskum fiski innanlands og á erlendum mörkuðum. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 25 GRANDIHF

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.