Þjóðviljinn - 26.01.1986, Side 27

Þjóðviljinn - 26.01.1986, Side 27
DAGSBRUN 80 ARA Foiystan verðurað sýna VSÍ meiri höriai Brynjólfur Yngva- son, trúnaðarmað- urDagsbrúnar á Reykj avíkurflug- velli: Hingað og ekki lengra Komi til verkfalls hjá Dags- brún munu allir flutningar bæði á láði og legi og lofti lamast, og yfir- leitt eru það flutningarnir sem eru hvað viðkvæniastir fyrir at- vinnurekendur. Astæða þcss að flutningarnir lamast er sú að Dagsbrúnarmenn sjá um að ferma og afferma bæði skip og flugvélar. Þjóðviljinn ákvað að kíkja við í Hlaðdcildinni á Reykjavíkurflugvelli og hitti þar Brynjólf Yngvason, trúnaðar- mann á staðnum, að máli. Brynj- ólfur hefur unnið á flugvellinum í rúm 15 ár. Hann er maður ákveð- inna skoðanna og var ekkert að skafa af áliti sínu á verkalýðsfor- ystunni né almennri stöðu verka- manna í dag. „Það er kominn tími til að við segjurn hingað og ekki iengra. Það er búið að troða okkur allt of langt ofan ískítinn. Núer kominn tími til að verkalýðsforystan sýni VSÍ fulla hörku. Hún hefur verið með alltof mikla linkind og yfir- leitt hafa samningarnir endað með því að hún hefur sagt já og amen og við staðið uppi með kol- ómögulega samninga“. Brynjólfur telur mikilvægast að í þeim samningum, sem fram- undan eru, náist verðtrygging aft- ur á laun og að jafnframt komi til veruleg kaupmáttaraukning. Þau 35% sem ASÍ fer fram á nú, telur hann langt frá því að nægi. „Þetta eru engan veginn raun- hæfar kröfur. Við höfum dregist það mikið aftur úr í launum að 35% hækkun dugir ekki. Auk þess verður búið að éta þau af okkur áður en við náum þeim, með allskonar hækkunum“. Brynjólfur er andvígur því að staðið sé að samningum þannig að ASÍ semji fyrir alla línuna, eins og nú er áformað. Hann tel- ur miklu raunhæfara að hvert fé- lag semji sér fyrir sína félags- menn með þeim fyrirvara að fé- lagsfundur samþykki samning- ana. Á þann eina máta geti hver einstakur verkamaður haft áhrif á samningana. Eins og fyrr setur Brynjólfur kaupmáttartrygginguna í fyrsta sæti. Að hans mati er hún lífs- spursmál fyrir verkamenn. Benti hann á að lífeyrissjóðslán, upp á 125 þúsund krónur, sem tekið var fyrir fimm árum, er nú komið í hálfa miljón þrátt fyrir að lánþeg- inn hafi allan tímann staðið í skilum. „Ég fullyrði það fullum fetum að lífeyrissjóðirnir stundi okur- lánastarfsemi, því ef þetta eru ekki okurlán, þá er ég ekki mæl- andi á íslenska tungu. Þess vegna getum við afhent lífeyrissjóðun- um eignir okkar beint“. Þegar blaðamaður Þjóðviljans ræddi við Brynjólf voru starfs- menn Hlaðdeildar nýbúnir að ganga frá kröfunt sínum að sér- kjarasamningiviðFlugleiðir. Áað leggja hann fram fyrir mánaða- mótin. Brynjólfur sagði að launa- kröfur væru í fyrsta, öðru og þriðja sæti, en auk þess væri farið fram á betri aðbúnað á staðnum. -Sáf. KJORBOKINA SEMUR ÞÚ SJÁLFUR SÉRSTÖK VIÐBÓTARHÖFUNDARLAUN FYRIR ÁRIÐ 1985 LÖGÐUST VIÐ UM ÁRAMÓT. E, rið 1985 varóvenjulegagott bókaár,-ogekkisíst Kjörbókarár. Kjör- bókareigendur vissu að Kjörbókin var góður kostur til þess að ávaxta sparifé: O f Co rn $>§! * í' X ** Í Í KIÖRBÓK Þeir vissu að hún bar háa vexti. Þeir vissu að samanburður við vísitölutryggða reikn- inga var trygging gagnvart verðbólgu. Þeir vissu að innstæðan var algjörlega óbundin. Þeir voru vissir um að þeir fjárfestu varla í betri bók. En þeir vissu samt ekki um vaxtaviðbótina sem lagðist við um áramótin. Svona er Kjörbókin einmitt: Spenn- andi bók sem endar vel. Við bjóðum nýja sparifjár- eigendur velkomna í Kjör- bókarklúbbinn. L Islands Banki allra landsmanna ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.