Þjóðviljinn - 14.02.1986, Síða 3

Þjóðviljinn - 14.02.1986, Síða 3
FRETTIR Samningarnir Ekkert þokast Ásmundur Stefánsson: Semjum ekki um lœkkun launa. Ekki verið boðaður nýr samningafundur hjá ASÍ og vinnuveitendum. Undirnefndir að störfum. Nýr sáttafundur hjá BSRB og ríkinu í dag Ekkert þokaðist í samkomu- lagsátt í gær hvorki hjá ASI og vinnuveitendum, sem hittust á fundi í Garðastræti, né hjá samn- inganefndum BSRB og ríkisins sem funduðu hjá sáttasemjara. Ásmundur Stefánsson, ASÍ, sagði að samninganefndin hefði gert vinnuveitendum ljóst að þeir væru í þessum viðræðum til að semja um kaupmáttaraukningu og til að tryggja þann kaupmátt. ASÍ stendur ekki í viðræðunum K1 Launamisrétti leiðrétt Kennarar í KÍ hafa ákveðið að taka tilboði Þorsteins Pálssonar um að frá og með 1. febrúar fái þeir sömu laun og kennarar í HÍK. Þorsteinn gerði kennurum grein fyrir þessu á fundi um þrjú- leytið í gær. Hafa kennarar því fallið frá þeim aðgerðum sem fyr- irhugaðar höfðu verið, en í dag átti kennsla að falla niður á Suð- urlandi og Norðurlandi vestra. Kennaramálin voru rædd á Al- þingi í gær og sagði Hjörleifur Guttormsson m.a. að sá árangur sem náðst hefði væri fyrst og fremst órofa samstöðu kennara gegn ríkisstjórninni að þakka. - Sáf. Lögverndun á leiðinni? í gær skilaði nefnd, sem þáver- andi menntamálaráðherra skipaði í fyrra, áliti til Sverris Hermannssonar um lögverndun á starfsheiti kennara. Sagðist ráðherrann nú myndu leggja þetta fyrir ríkisstjórn og væntan- lega fyrir alþingi í frumvarps- formi mjög bráðlega. Þetta kom fram í máli ráðherr- ans í gær á alþingi í tilefni fyrir- spurnar frá Hjörleifi Guttorms- syni. Sagði Sverrir að í frum- varpsdrögunum væri gert ráð fyrir lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara og fram- haldsskólakennara og einnig endurskoðun á lögum um emb- ættisgengi kennara og skóla- stjóra. - ÁI. I til að semja um lækkun launa. Það er því ljóst að viðræður hljótí að byrja aftur frá grunni. Þegar fundi var slitið í gær- kvöld var ákveðið að efna- hagsmálanefndin hittist kl. 9 árdegis í dag, en ekki hefur verið boðaður annar samningafundur. Um helgina mun samninganefnd ASÍ funda með stjórnum verka- lýðsfélaganna um allt land og í framhaldi af því munu félögin út- vega sér verkfallsheimild. Samninganefndir BSRB og ríkisins hittust hjá sáttasemjara. Var á þeim fundi ákveðið að undirnefndir hittust kl. 9 í gær- kvöld til að ræða kauptrygging- una, samningsréttarmál og fleiri sérákvæði samninga. Nýr fundur með stóru samninganefndunum hefur verið boðaður kl. 15 í dag. - Sáf. Ásmundur Stefánsson forseti ASl Vörumarkaðurinn 70 miljónir á borðið Ríkissjóður búinn að kaupa Vörumarkaðinn Ármúla undir rannsóknarstofur og Hollustuvernd. Kaupverðið tekið að láni hjá lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins Ríkissjóður keypti í gær Vöru- markaðshúsið við Ármúla fyrir 70 miljónir króna á borðið. Kaupin eru að fullu fjármögnuð með láni úr lífeyrissjóði starfs- manna ríkisins. Reiknað er með að heildarkostnaður vegna lag- færinga og innréttinga á húsinu verði um 40-50 miljónir. Sigurður Þórðarson deildar- stjóri í fjármálaráðuneytinu sagði í samtali í gær að tekist hefði að koma kaupverðinu niður með því að borga allt út að fullu og eins með því að kaupa alla hús- eignina. Kjallari og 1. hæð Vörumark- aðarins verða afhent 1. apríl nk. en aðrar hæðir í lok júní í sumar. Ráðgert er að sýkla- og veiru- rannsóknardeildir Háskólans auk Hollustuverndar ríkisins fái aðstöðu í húsinu og meðal annars verður innréttuð sérstök aðstaða fyrir atVA-rannsóknir í kjallaran- um. - lg- Neskaupstaður Bæjarstjóm styður kennara Bœjarstjórnin í Neskaupstað lýsiryfir fyllsta stuðningi við kröfur kennara Afundi í bæjarstjórn Neskaup- staðar sl. þriðjudag var sam- þykkt ályktun til stuðnings kjara- baráttu kennara. Tillagan var samþykkt með 7 atkvæðum Al- þýðubandalagsmanna og Fram- sóknarmanna en bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, tveir, voru á móti. Tillagan er svohljóðandi: „Bæ- jarstjórn Neskaupstaðar lýsir yfir fyllsta stuðningi við Kennara- samband ísiands í yfirstandandi deilu þess við fjármálaráðuneyt- ið. Bæjarstjórnin átelur fjármála- ráðherra fyrir að standa gegn jafn sjálfsögðum kröfum og jöfnun launa kennara á grunnskólastigi og samningsrétti til handa Kenn- arasambandi íslands. Bæjar- stjórnin hvetur stjórnvöld til að koma til móts við kennarastéttina í þessum efnum, jafnframt því að inara- i ú Utsala vinna að lögverndun starfsheitis kennara. Bæjarstjórnin gerir sér grein fyrir því að jákvæð þróun menntunar og skólastarfs í landinu byggist á því, að réttinda- menn fáist til starfa í skólum landsins. Þess vegna lýsir bæjar- stjórnin yfir fyllsta stuðningi við kröfur KÍ um samningsrétt, lö- gverndun starfsheitis kennara, auk verulegra kjarabóta til handa kennarastéttinni". SG/óg. Nýtt fiskverð Yfirnefnd Verðlagsráðs sjáv- arútvegsins ákvað í gær nýtt fisk- verð sem gilda skal til 31. maí. Ákvörðunin felur í sér 3,5% með- alhækkun frá því verði sem giiti til 31. janúar. Ákvörðunin var m.a. byggð á því að sá kostnaðarhluti útgerð- ar, sem kemur til skipta sam- kvæmt lögum, verði aukinn um 2,5% þegar landað er innanlands en 1% þegar landað er erlendis. Forsenda þessarar ákvörðunar er m.a. að gasolíuverð lækki sem næst 7% frá 1. mars og um 3% frá 15. mars næstkomandi. Fari al- menn launahækkun á tímabilinu fram úr 5% er heimilt að segja fiskverðinu upp frá þeim tíma. Fulltrúar kaupenda andmæltu þessari ákvörðun, - og kváðu stöðu fiskvinnslunnar þannig að hún væri í heild rekin á núlli en með 1,5% tapi eftir þessa ákvörðun. - óg. Útvarpsleyfi Sex umsóknir Til menntamálaráðuneytisins hafa nú borist sex umsóknir um leyfi til útvarps- og sjónvarps- reksturs. Einhverra hluta vegna vill menntamálaráðuneytið ekki gefa það upp hverjir hafa sótt um leyfi. Þjóðviljinn veit fyrir víst um tvo aðila, Jón Óttar Ragnarsson matvælafræðing og Vídeólund á Akureyri. - S.dór. Vestmannaeyjar Lýst eftir sjómanni Lögreglan í Vestmannaeyjum lýsir eftir Jóni Kristinssyni sjó- manni af Helgu RE, en hann sást síðast niðri við Vestmannaeyja- höfn aðfaranótt sl. miðvikudags. Jón Kristinsson er 52ja ára. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum hefur Jóns ver- ið leitað í Vestmannaeyjum síðan á fimmtudagsmorgun, höfnin verið slædd en allt án árangurs. - S.dór. Jökulfellið selt Frystiskipið Jökulfell hefur nú verið selt til Kolumbiu. Skipið var selt á tæpar 15 milj. kr. og hefur nú verið afhent nýj- urn eigendum. Nefnist það nú Polar Ice og verður væntanlega í ávaxtaflutningum á milli Kol- umbiu og Miami. - nihg. Almenna bókafélagið Ðækur Utsala á yfir tvö hundruð bókatitlum á verðbilinu frá kr. 50 til kr. 200 Afgreiðslustaöir: BÓKAVERSLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR Austurstræti 18 Opið frá kl. 9 - 18 og að Skemmuvegl 36, Kópavogi Opið frá kl. 9 - 19 Föstudaginn 14. feb. kl. 9 - 19 Laugardaginn 15. feb. kl. 9 - 16 Laugardaginn 15. feb. kl. 9 - 16 Sunnudaginn 16. feb. kl. 13 - 16

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.