Þjóðviljinn - 14.02.1986, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 14.02.1986, Qupperneq 12
ALÞÝÐUBANDALAGK) AB Seyðisfirði Almennur fundur um landsmál og bæjarmál verður haldinn föstudaginn 14. febrúar kl. 20.30 í Herðubreið. Helgi Seljan alþingismaður kemur á fundinn. Allir velkomnir. AB Seyðisfirðl Alþýðubandalagið Ólafsvík Opinn fundur um bæjarmálin Alþýðubandalagið í Ólafsvík heldur fund í Mettubúð, sunnudaginn 16. febrúar kl. 14. Á fundinum er ætlun að vinna í málefnahópum að gerð stefnuskrár AB fyrir bæjarstjórnarkosningarnar. Allt stuðningsfólk AB er að sjálfsögðu hvatt til að mæta og minnt er á að fólk þarf ekki að vera flokksbundið til að starfa með Alþýðubandalaginu. Vinnum saman að gjörbreyttum valdahlutföllum í bæjarstjórn, nýjum viðhorfum og nýrri sókn í bæjarmálum! Stjórnin AB Akranesi Árshátíð verður haldin laugardaginn 1. mars nk. í Rein. Hátíðin hefst með boröhaldi kl. 20.00. Fjölbreytt skemmtiatriði. Nánar auglýst síðar. Skemmtinefndin AB Mosfellssveit Hreppsmálaráð heldur opinn hreppsmálafund mánudaginn 17. febrúar kl. 20.30 í fundarað- stöðu hreppsmálaráðs í Hlégarði. Á dagskrá er umræða um skipulagsmál. Ásmundur Ásmundsson for- maður skipulagsnefndar i Kópavogi og Sigurður Gíslason skipulagsnefnd- armaður í Hafnarfirði verða gestir fundarins. Flokksfélagar og stuðningsmenn eru hvattir til að mæta. Forval Alþýðubandalagsins á Akranesi Forval Abl. á Akranesí vegna bæjarstjórnarkosninganna verður í Rein sunnudaginn 16. febrúar kl. 16-18. Rétt til þátttöku í forvalinu eiga allir félagar og stuðningsmenn Alþýðubandalagsins, enda hafi þeir náð 18 ára aldri eða verði 18 ára á þessu ári. Félagar og stuðningsmenn, komið í Rein á sunnudaginn og takið þátt. Heitt á könnunni. Uppstillingarnefndin. AB Hveragerði Félagsfundur verður haldinn að^-ieiðmörk 31 mánudaginn 17. febrúar kl. 20.30. Dagskrá: 1) Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga 2) Tilhögun forvals og kosning starfsnefnda. AB Selfoss Forval - síðari umferð Síðari umferð vegna bæjarstjórnarkosninga i vor fer fram sunnudaginn 16. febrúar að Kirkjuteigi 7 Selfossi frá kl. 13 - 20. Atkvæðagreiðsla utan kjörstaðar verður að Kirkjuvegi 7 miðvikudag 12. febrúar og föstudag 14. febrúar frá kl. 19 - 22 báða dagana. Kosningarétt hafa allir fullgildir félagar í Alþýðubandalaginu með lögheimili á Selfossi. Uppstillinganefnd Djúpivogur Opinn fundur Alþýðubandalagið og Æskulýðsfylking Alþýðu- bandalagsins boðar til fundar um stefnu ríkisstjórn- arinnar og kjaramálin í Félagsheimilinu í Djúpavogi föstudaginn 14. febrúarkl. 20.30. Ræðumenn verða Anna Hildur Hildibrandsdóttir og Hjörleifur Gutt- ormsson. Fyrirspurnir og umræður. Fundurinn er öllum opinn. ...... . , .. Alþyðubandalagið Höfn í Hornafirði Opinn fundur Alþýðubandalagið og Æskulýðsfylking Alþýðu- bandalagsins boðar til fundar um stefnu ríkisstjórn- arinnar og kjaramálin í Sindrabæ laugardaginn 15. febrúar kl. 15.00. Kaffi á fundarstað. Ræðumenn eru Anna Hildur Hildibrandsdóttir og Hjörleifur Gutt- ormsson. Fyrirspurnir og umræður. Fundurinn er öllum opinn. Alþýðubandalagið Hreppsmálaráð AB Borgarnesi boðar til fundar laugardaginn 15. febrúar kl. 14.00 í Röðli. Fundarefni undirbúningur sveitarstjórnarkosninga. Félagar og aðrir áhugamenn um væntanlegan stórsigur Alþýðubandalagsins í kosningunum eru hvattir til að fjölmenna. Nefndin viðtalstími borgarfulltrúa er á þriðjudögum kl. 17.30 til 18.30. Á þriðjudag 18. febrúar mætir Guðrún Ágústsdóttir. AB Kópavogi Starfshópur um skipulags-, stjórnsýslu- og atvinnumál heldur fund í Þinghóli laugardag- inn 15. febrúar kl. 13.30. SKUMUR FOLDA í BLIÐU OG STRIÐU *r | Smiðurinn i kemur á morgun. Beint fyrir ofan rúmið þitt, Beta. Og draugarnir uppi á lofti koma til þín í nótt! KROSSGÁTA NR. 109 Lárétt: 1 reykir4blunda6kyn7þæg- ur 9 karlmannsnafn 12 reiðan 14 væn 15 aftur 16 grefur 19 sundfæri 20 ofar 21 hindra. Lóðrétt: 2 fönn 3 dans 4 bás 5 skemmd 7 trúr 8 fima 10 röskleiki 11 hitar 13 hópur 17 eyri 18 eðja. Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 slór 4 sótt 6 átt 7 skap 9 öfug 12 laski 14 álm 15 rif 16 espar 19 unnt 20 laug 21 nótin. Lóðrétt: 2 lak 3 rápa 4 stök 5 tau 7 smáður 8 almenn 10 firran 11 göfugt 13 sóp 17 stó 18 ali.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.