Þjóðviljinn - 14.02.1986, Qupperneq 13
Filippseyjar
Fólk á Haiti er enn að fagna brottför „Baby Doc“. Sá fögnuður birtist í ýmsum
myndum og hér er vúdú læknir á vúdú samkomu og dúkkan sem hann heldur á
mun eiga að tákna son hins fyrrverandi einræðisherra.
„Baby Doc“
Vill ekki fara
fra Frakklandi
Talloires - Lögfræðingur Jean-
Claude Duvalier, fyrrum ein-
ræðishera á Haiti, sagði í gær
að Duvalier, öðru nafni „Baby
Doc“, vildi fyrst og fremst vera
í Frakklandi og hygðist ekki
fara þaðan með f jölskyldu sína
nema hann yrði neyddur til
þess.
„Baby Doc“ er nú farinn að
valda stjórnvöldum í Frakklandi
verulegum áhyggjum. Upphaf-
lega var sagt að Duvalier hefði
átta daga til að verða sér úti um
eitthvert land sem væri tilbúið til
að taka við honum. Nú hefur ver-
ið fallið frá þessu og sagt að
Frakkland sé einungis viðkomu-
staður fyrir einræðisherrann fyrr-
verandi.
í gærdag bað franska stjórnin
yfirvöld í Afríkuríkinu Líberíu að
taka við Duvalier. Þegar síðast
fréttist hafði þessari beiðni ekki
verið svarað. Og á meðan enginn
vill taka við fyrrverandi stjórn-
anda á Haiti er farið að bera á
óánægju á Haiti með hina nýju
stjórn sem tók við völdum á
eyjunni fyrir viku síðan. Sylvio
Claud sagði í gær að í hinni 19
manna stjórn, sem Henry Namp-
hy ofursti er í forsæti fyrir, væru
aðeins tveir meðlimir sem ekki
hefðu verið fylgismenn Duva-
liers. „Það er enginn þeirra sak-
laus sem var starfandi innan
stjórnkerfis Duvaliers", sagði
hann.
Manilla- Þingið á Filippseyjum
hætti talningu atkvæða í miðj-
um klíðum í gær þegar starfs-
menn þess voru búnir að telja
50% þeirra atkvæða sem bor-
ist höfðu. Þá var Marcos sagð-
ur vera með tæplega miljón at-
kvæða meirihluta á Aquino.
Talningunni var frestað þar til í
dag.
Bæði stjórnin og óháðir eftir-
litsmenn segjast áætla að 20 milj-
ón manns hafi neytt kosninga-
réttar síns. Talið er að fjöldi
kosningabærra manna á Filpp-
seyjum sé 26,2 miljónir. Forseti
sameinaðs þings, Nicanor Ynigu-
•ez, sagði að eina skylda þingsins
væri að telja atkvæði og lýsa sig-
urvegara úr kosningunum.
Deilur vegna óeðlilegra kosninga
yrði að bera upp við sérstakan
dómstól kjörmanna.
Marcos sagði í gær að stjórnin
væri viðbúin óeirðum en vildi
gera allt til að komast hjá þeim.
Hann bauð Aquino að koma til
viðræðna ef það gæti komið í veg
fyrir einhverja ókyrrð.
Leiðtogar kirkjunnar á Filipps-
eyjum hittust í gær til að taka
ákvörðun um það hvort þeir eigi
að styðja þá óhlýðniherferð sem
Aquino hefur hótað ef hún verð-
ur ekki lýst forseti. Biskuparnir
sögðust vera að undirbúa yfirlýs-
ingu sem þeir myndu gefa á
morgun.
Á meðan þingið taldi atkvæði
söfnuðust þúsund stuðnings-
menn Aquino fyrir utan þinghús-
ið og hrópuðu slagorð gegn
Marcosi. Fréttaskýrendur telja
nokkuð víst að þingið muni á
næstunni lýsa Marcos sigurveg-
ara kosninganna.
Kína
Forsetinn varar við
Mammonsdýrkun
Peking - Hin opinbera frétta-
stofa í Kína birti nýlega ræðu
forseta Kína, Lis Xiannian, þar
sem hann viðrar áhyggjur
sínar yfir því að Kínverjar séu
að fyllast peningaæði og að
vestrænar hugmyndir séu að
smita þá um of.
Ræðuna hélt forsetinn í Al-
þýðuhöllinni á nýársdag þeirra
Kínverja að viðstöddum 20.000
manns. Xiannian lagði á það ríka
áherslu að stjórnmál og hug-
myndafræði mættu ekki verða
undir í sókn Kínverja eftir
auknum lífsgæðum.
„Við verðum að standa föstum
fótum í þeim hræringum sem nú
eiga sér stað í kínversku þjóðlífi",
sagði forsetinn. „Þar á ég sérstak-
lega við þá hugmynd að setja
einstaklings- og peningahyggju
ofar öllu öðru. Að dýrka allt það
sem erlent er, að gera allt á vest-
rænan hátt, þ.e. nautnastefnu“.
Fréttaskýrendur álíta að Xi-
annian sé ekki sammála þeim
breytingum sem leiðtogi kín-
verska kommúnistaflokksins,
Deng Xiao Ping, hefur verið að
konta á og túlki þar sjónarmið
ýmissa eldri framámanna í
flokknum.
Winnie Mandela
Fær ekki að halda blaðamannafund
Jóhannesarborg - Suður-
afrískur dómari bannaði í gær
Winnie Mandela að halda
blaðamannafund.
Mandela ætlaði að halda fund-
inn í dag í Alexöndru sem er bær
svartra, rétt utan við Jóhannesar-
borg. Stjórnin í Suður-Afríku
hefur bannað Winnie Mandela
að fara inn í Alexöndru. Formæl-
andi lögreglunnar sem gaf út
þessa yfirlýsingu um bannið sagð-
ist ekki vita hvers vegna það var
lagt á blaðamannafund Mandela.
Búist var við að Winnie Mand-
ela ætlaði að ræða orðróm þann
sem verið hefur hávær að undan-
förnu um að leysa ætti mann
hennar, Nelson Mandela, úr
haldi. Ekki er talið ólíklegt að
Winnie Mandela hafi valið fund-
inum stað í Alexöndru til að ögra
yfirvöldum og vekja athygli um-
heimsins á aðstöðu sinni en hún
hefur nú takmarkað ferðafrelsi
um Suður-Afríku.
Þingið frestar
enn talningu
Starfsmenn þingsins segja Marcos með miljón
atkvœða meirihlutaþegar búið er að telja 50%
Filippseyjar
Vandræði Reagans með Marcos
Bandaríska stjórnin veit ekki hvort hún á að veðja á hinn aldna forseta eða láta hann sigla sinn sjó.
Miklir hernaðarhagsmunir í húfi
Skrípaleikurinn sem upp-
hófst meö kosningunum á Fil-
ippseyjum sl. föstudag er nú
óðum að breytast í harmleik
sem á hverri stundu gæti leitt
til blóðugri átaka en áður hafa
orðið í 40 ára sögu lýðveldis-
ins á eyjunum óteljandi. Ef
ekki fást fljótlega úrslit úr
glímu þeirra Marcosar og Cor-
azon Aquino gæti róttækum
skæruliðum vaxið verulega
ásmegin og bandarísk
stjórnvöld svarað starfsemi
þeirra með hörðu.
Bandarískir fréttaskýrendur
segja að Reagan forseti standi
frammi fyrir erfiðustu ákvörðun-
um sínum á sviði utanríkismála et
ekki verður fljótlega skorið á
hnútinn sem stjórnmál eyjar-
skeggja eru komin í. Sagt er að
hann hafi veðjað öllu á sigur
Marcosar í forsetakosningunum
og alls ekki gert ráð fyrir þeim
möguleika að hann yrði að lúta í
lægra haldi fyrir Aquino.
Bandarísk afskipti
Áður en lengra er haldið í
bollaleggingum um viðbrögð Re-
agans við kosningunum er rétt að
huga dálítið að sögu bandarískra
afskipta af málefnum Filipps-
eyja. Eftir spánsk-ameríska
stríðið sem leitt var til lykta árið
1898 urðu eyjarnar bandarísk ný-
lenda fram yfir seinni heimsstyrj-
öld og frá þeim tíma bera filipps-
eyingar afar blendnar tilfinningar
til stórveldisins handan Kyrra-
hafsins.
Bandarískir ráðamenn völdu
þá leið til að tryggja hagsmuni
sína og yfirráð á eyjunum að gera
bandalag við voldugustu ættirnar
og stærstu landeigendurna. Þess-
ar ættir tóku í útrétta hönd
bandaríkjamanna og notfærðu
sér völdin til að hlaða undir sig
enn meiri jörðum og auði. Þessar
ættir voru gerspilltar og íhalds-
samar og orðið lýðræði var þeim
framandi. Þetta bandalag gerði
bandaríkjamenn ekki vinsæla
meðal almennings og enn í dag er
andúð á þeim mjög útbreidd á
Filippseyjum.
Ættarveldið hélt áfram um
stjórntaumana eftir að eyjarnar
fengu sjálfstæði árið 1946. Og svo
merkilegt sem það kann að virð-
ast í ljósi síðustu atburða þá
komst Ferdinand Marcos til á-
hrifa í krafti þeirrar stefnu að
binda endi á ættarveldið og spill-
inguna. Hann vildi skipta upp
jörðum landeigenda, iðnvæða
eyjarnar og laða að erlent fjár-
magn.
Pilsfaldakapítalismi
Marcosar
Það er sagt að filippseyingai
hafi mikla þörf fyrir hetjur og ei
sú þörf gjarnan skýrð með tilvís-
un til þess að langstærstur hluti
íbúanna sé kaþólikkar sem í fá-
tækt sinni og eymd vonast sífellt
eftir endurkomu Messíasar.
Marcos féll að mörgu leyti vel að
þessari þörf en hann var hins veg-
ar alveg ótrúlega fljótur að
gleyma stefnumálum sínum og
hefja sama leikinn og ættarveldið
sem hann vildi feigt. Hann gerði
sína einkahagsmuni að hagsmun-