Þjóðviljinn - 16.02.1986, Page 9
Börn
Fimm Ijóð
úr samkeppni
Stundin okkar efndi til Ijóðasamkeppni meðal áhorf-
enda sinna. Þjóðviljinn birtir verðlaunaljóðið og fjögur
önnur
Stundin okkar í sjónvarpinu efndi ný-
lega til Ijóöasamkeppni meöal barna
og voru úrslitin tilkynnt í stundinni á
sunnudaginn var. Við fengum leyfi
Agnesar Johansen umsjónarmannstil
aö birta nokkur þeirra Ijóöa sem dóm-
nefndinni leist hvaö best á.
Dómnefndin var þannig skipuð að í henni
sátu Agnes, Sjón, ljóðskáld úr hópnum
Medúsa, og Hildigunnur Hafsteinsdóttir, 9
ára stúlka úr Landakotsskóla. Nefndin
komst að þeirri niðurstöðu að veita bæri
Hallvarði Asgeirssyni 1. verðlaun fyrir ljóð
hans, Stjörnufiskar. Það birtist hér á síð-
unni ásamt fjórum af uþb. 20 ljóðum sem
nefndinni þóttu best.
Verðlaunahafinn, Hallvarður Asgeirs-
son, er 9 ára piltur til heimilis að Blönduhlíð
14 í Reykjavík. Hann gerði reyndar meira
en að semja Ijóðið því á sunnudaginn flutti
hann það í Stundinni okkar í tónlistarbún-
ingi með aðstoð þriggja bekkjarbræðra
sinna. Þeir voru Rúnar Þór Bjarnason
(hljómborð), Stefán Ingi Stefánsson
(trommur), Flóki Guðmundsson (söngur)
og svo höfundur sjálfur sem lék á gítar.
En nóg um málalengingar, hér kemur
ljóðið hans Hallvarðar:
Stjörnufiskar
Stjörnufiskar synda,
það má sjá hvað þeir erufallegir.
Stjörnufiskar synda,
hægt og rólega.
Þegar ég lít á stjörnufiska
er eins og það séu eyðimerkur
á þeim,
því það rísa alls konar hrukkur
á þeim
og þœr eru eins og sandfjöll.
Svo eru þeir bleikir á litinn
og það er eins og sandurinn.
Stjörnufiskar, stjörnufiskar
eru fallegir.
Stjörnufiskar, stjörnufiskar
eru fallegir.
Næst kemur ljóð eftir Rögnu Haraldsdótt-
ur, Hvassaleiti 48, Reykjavík. Það ber ekk-
ert nafn en við erum nú samt búin að gefa
því nafn í huganum:
Kanarífuglinn
kúrir á priki
safnar spiki
meðan Palli tosar
í stélfjaðrirnar
lagar sig til
snyrtir sig allan til
því að í rólunni
efst uppi
stendur Lína
Lína fína
Lína ofsafína
á öðrum fœti
kann sér ekki lœti
því að Palli sœti
er með látalœti
fyrir Línu fínu
og hún veit það.
Það er frekar þungur tónn í ljóðinu hennar
Valgerðar Jónsdóttur, 9 ára stelpu sem býr
að Bjarkargrund 7 á Akranesi:
Hesturinn
Hesturinn hleypur um stokka
og steina,
hvað hann er að hugsa er erfitt
að greina.
Æ, nú hleypur hann hraðar,
hrasar og dettur.
Auminginn litli fær á sig slettur
því leðjan er blaut, hann í hana
sekkur.
Enginn honum til hjálpar kemur.
Hann hefur greinilega hlustað á þulur hann
Haukur Már Helgason, 7 ára piltur úr
Hafnarfirði, og eins og öðrum upprennandi
ljóðskáldum á þessari síðu er dýraríkið
honum hugstætt:
Ég átti hund
sem fór útí lund,
þar hittann tík
tíkin var rík,
hún átti skart
og hann átti margt,
þau spunnu ull
og fengu þá gull.
Síðasta ljóðið í þessari syrpu er einnig úr
Hafnarfirðinum. Það er eftir Erlu Sigurðar-
dóttur, Breiðvangi 3, og er í anda þulunnar
eins og ljóð Helga Más og Rögnu:
Dýrin
Ég á eina kú
og lítið hœnsnabú.
Kúin heitir Snúra
og henni finnst gott að lúra.
Kýrin þekkir hest
sem er með maga-pest,
og hesturinn þekkir hana
og stóran fíl með rana.
Fíllinn þekkir Lobba
og vin hans hann Kobba.
Hann Kobbi er grís
og finnst góður ís.
Bókavarðarstaða í Norræna
húsinu í Reykjavík
Umsóknarfrestur um stööu yfirbókavarðar,
sem auglýst var laus til umsóknar þ. 26. janúar,
hefur verið framlengdur til 31. mars 1986.
Forstjóri Norræna hússins.
Norræna félagið
NORRÆNA
HÚSIÐ
Til leigu
viö Auðbrekku, 140 fm. iðnaðarhúsnæði á ann-
arri hæð. Hér er um að ræða sal og 3 herbergi.
Hentugt fyrir léttan iðnað eða lager ásamt skrif-
stofu og kaffistofu.
Upplýsingar í símum 46101 og 22522.
Tökum að okkur
matseld
fyrir fyrirtæki
og hópa, fermingarveislur, afmæli,
giftingar, árshátíðir og önnur
samkvæmi sem þið kunnið að halda.
HringiA og fáið tillögur
ísíma
84939 eða 84631.
MATSTOFA MIÐFELLS SF.
FUNAHÖFÐA 7- SÍMI: 84939
M
IAI
Sunnudagur 16. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 9