Þjóðviljinn - 19.02.1986, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.02.1986, Blaðsíða 8
MENNING Spáð í stjörnurnar Birgir Andrésson í Nýlistasafninu TYCHO BRAHE Þetta er danski stjörnufræöingurinn Tycho Brahe, einskonar táknmynd fyrir sýningu Birgis Andréssonar í Nýlistasafninu. f Nýlistasafninu við Vatnsstíg hefur hver ágætissýningin rekið aðra að undanförnu og má segja að árið byrji vel hjá stofnuninni. Nýlega er lokið viðgerð á lofti, en Alþýðubankinn var að stækka húsakynni sín og við það hefur myndast nokkuð skemmtilegt skot í salnum á efri hæð. Ekki er laust viðþað að útkoman minni á gamla SUM-salinn, hinum megin í portinu. Reyndar má safnið vel við una hvað sýningarpláss varð- ar, því segja má að það státi af salarkynnum sem svipar til þekktustu sýningarsala heims. Nýlistasafnið er m.ö.o. mjög „international“ sem gallerf og mundi óbreytt geta sómt -sér hvort heldur væri í Berlín, París ellegar New York. Hins vegar skortir nokkuð á að safnið sem safn búi við viðunandi húsakost. T.d. vantar sárlega geymslurými og skrifstofa er nán- ast engin. En safnið hefur treyst sig í sessi þrátt fyrir þann og ýms- an annan mótbyr á þeim tíu árum sem það á að baki og vonanadi mun það enn halda áfram að eflast 4 komandi áratugum. En nú stendur þar yfir allsér- stæð og athyglisverð sýning á verkum eftir Birgi Andrésson í Nýlistasafninu. Hann sýnir röð tíu mynda, sem allar eru af stjörnuhimni. Beinar línur eru dregnar milli nokkurra stjarn- anna eins og Grikkir til forna gerðu til að flokka stjörnukerfi. Fyrir ofan hverja þessara tíu mynda er sett lágmynd soðin saman úr steypustyrktarjárni. Lágmyndirnar eru af téstiku, riffli, viftu, ref, borði, önd, hnatt- líkani, víkingi, jakka og vita. Á boðskortinu að sýningunni er mynd af Tycho Brahe, hinum fræga danska 16. aldar stjörnu- fræðingi, sem tókst að koma auga á og skrásetja 777 nýjar stjörnur í himinhvolfinu. Birgir setur sig þannig í spor stjörnuskoðarans og athugar himinhvolfið. Að vísu verða athuganir hans ekki til þess að fjölga stjörnum í safnritum vísindanna, heldur nýjum og óvæntum stjörnumerkjum. Fjinn óendanlegi makrókosmos verður kveikja að míkrókosmos lista- mannsins, á nákvæmlega sama hátt og hann varð Grikkjum upp- spretta táknmynda úr þeirra eigin þekkingarheimi. Eins og allir vita er þetta leikur að punktum, þar sem strik eru dregin frá einum til annars, uns fullsköpuð mynd birtist. Ekkert bannar mönnum að sjá eitthvað annað út úr þessum hafsjó punkta en það sem Grikkir hinir fornu sáu og nefndu t.d. litla og stóra björn. Raunar er allsendis óvíst að einhverjir tveir menn sjái hið sama úr stjörnunum, hafi þeir ekki fyrirfram ákveðnar hug- myndir um það sem þeir eygja. Myndir Birgis eru eins konar ádeilur á formfestu Grikkjanna, og kerfisbindingu þeirra á tákn- myndum himinhvolfsins. Par með eru þær ádeila á kerfisbind- ingu ímyndunaraflsins og hugar- flugs á öllum tímum. Eins og hann bendir á í viðtali við Jó- hönnu Sveinsdóttur (HP, fimmtudaginn 13.2.), eru verk hans vegvísar að hugmyndum frekar heldur en opinberanir þeirra. í þessu tilfelli eru þau ábendingar til manna um að þeir skoði hver fyrir sig himinhvolfið og leyfi huganum að kalla fram úr stjörnumoðinu hvaða myndir sem vera skal. Sýning Birgis er m.ö.o. ákall til áhorfenda um að þeir losi um í- myndunaraflið í sjálfum sér, því með hvaða rétti töldu Grikkir til forna sig þess umkomna að fast- setja ákveðnar myndir í himin- hvolfinu og ætla öllum öðrum að sjá það sem þeim sjálfum hafði eitt sinn flogið í hug? HBR Rósailmur / kreppuástandi Háskólahíó Kaírórósin/The purple rose of Cairo Handrit og leikstjórn: Woody Allen Aðalhlutverk: Mia Farrow, JefTDani- els og Danny Aiello Kvikmyndun: Gordon Willis Tónlist: Dick Hyman. A rose is a rose is a rose is a rose, sagði Gertrude Stein og þóttist þar með hafa sagt allt um rósina sem þurfti. Þessu eiga sumir erfitt með að kyngja og einn þeirra manna er Woody All- en og því gerir hann kvikmynd í fullri lengd um eitt afbrigði rósar- innar, Kaírórósina, en um hana má segja að Kaírórósin sé Woody Allen og Woddy Allen sé Kaíró- rósin. Pó er Kaírórósin ólík öðr- um sköpunarverkum háð- fuglsins, að við gerð hennar hélt hann sig bak við myndvélina í stað þess að vera beggja vegna hennar. Tilvistarkreppa mannsins er W. Allen mjög hugleikin og einn- ig virðist efnahagskreppan henta honum vel sem bakgrunnur kvik- mynda. Tvö síðustu sköpunar- verk hans, Zelig, sem sýnt var í Austurbæjarbíó sl. haust, og Kaírórósin, gerast bæði á kreppuárunum og fjalla bæði um leit mannsins að sjálfum sér. f þessum litlu furðusögum er tekist á við heimspekileg vandamál sem mannskepnan hefur í aldanna rás brotið heilann um án þess að vera neinu nær, um hver hún er og hvers vegna hún er það sem hún er. Það sem greinir W. Allen frá flestum öðrum, sem hafa leitað svara við þessum spurningum, er að hann nálgast þær með glimtið í auganu og er stöðugt á varðbergi að taka hvorki sjálfan sig né til- veruna of alvarlega. Stjórnmálamenn skýla sér gjarnan á bakvið frasann um að þegar stórt er spurt þá verði gjarnan fátt um svör. W. Allen hefur snúið þessu við. Þar sem nokkuð víst má telja að ekkert svar fáist við spurningum hans, er ekkert sjálfsagðara en að spyrja nógu stórt. I Kaírórósinni er fjallað um árekstur milli tveggja heima. Hversdagslífsins á kreppuárum og glamorveröld draumaverk- smiðjunnar Hollywood. „I’m in Heaven" syngur Fred Astair í byrjun og enda myndarinnar og dansar um á rósrauðu skýi í svart hvítu og öllu því þykist hann til- búinn að fórna fái hann að vanga við þig. Ogein af söguhetjunum á tjaldinu tekur hann bókstaflega, labbar út úr myndinni, fram í sal- inn og gerir hosur sínar grænar fyrir ungri vonsvikinni eiginkonu atvinnulauss brennivínsserks. Slíkt uppátæki riðlar vitaskuld bæði raunveruleikanum og draumnum. Veröld kvikmyndar- innar er mjög frábrugðin veru- leikanum og gilda tvenn ólík lögmál í þessum heimum. Draumurinn gengur út á það að hægt sé að treysta öllum jafnt vin- um sem óvinum en í raunveru- leikanum geturðu átt von á sparki í punginn er þú átt síst von á. Draumarnir enda ætíð vel en lífið er fallvalt. En hver hefur ekki látið blekkjast af draumnum? Þó sag- an sé fáránleg þá er hún mjög trúverðug og segir mun raun- verulegri sögu á sinn skoplega hátt en margar kvikmyndir, sem leggja höfuðáherslu á að hafa söguþráðinn sem trúverðugastan með því að sleppa aldrei taumun- um lausum á ímyndunaraflinu. í seinni kvikmyndum sínum hefur W. Allen töluvert fengist við formtilraunir. í Zelig tókst hann á við heimildarformið og í Kaírórósinni hrærir hann saman svart-hvítri veröld kvikmynda- heimsins á kreppuárunum og grámuskulegum litbrigðum veru- leikans. Árangurinn er mjög sannfærandi. Það hefur líka sitt að segja að höfundur einangrar sig þarna við eina hugmynd og fær það úr henni sem mögulegt er. Þá má ekki gleyma því að leikarar skila sínu af stökustu prýði og þó Mia Farrow, sambýl- iskona W. Allens, sýnu best. Einsog sjá má á þessu þá átti undirritaður mjög ánægjulega kvöldslund í Háskólabíói og lét ilm Kaírórósarinnar kitla hlátur- taugarnar, enda tími til kominn í því kreppuástandi, sem virðist ríkja í framboði á góðum kvik- myndum í sýningarsölum borgar- innar um þessar mundir. -Sáf Framhald af bls. 7 - Þegar skráð verður íslensk hugmyndasaga þessarar aldar verður ekki hægt að ganga fram hjá Jóhannesi Birkiland. Hinn, Jochum, var talsvert merkilegur dulspekingur, og á vafalaust skilinn kafla í sögu íslenskra dul- fræða, sem ég vona að einhver hafi djörfung til að skrifa áður en langt um líður. Hafa verk þeirra eitthvert bók- menntagildi í þínum augum? - Ég get ekki séð að neitt liggi eftir Jochum sem hafi slíkt gildi, - Birkiland orti nokkur ljóð sem eru góður skáldskapur, - og hvað varðar bókmenntasögu beinlínis ber tvímælalaust að líta á hann sem frumkvöðul, nýjungamann, jafnvel þótt hann hafi ekki haft merkjanleg áhrif á önnur skáld, mér vitanlega. Pú segir. í formála bókarinnar að þér hafi löngurn verið áleitið viðfangsefnið af hverju íslenskar samtímabókmenntir séu ,rsvo leiðinlegar sem raun ber vitni". Sýnist þér eitthvað vera að rofa til? - Fyrst um gagnrýnina, sem skiptir bökmenntir miklu máli eins og ég sagði í upphafi, - mér finnst hún mun líklegri til að hafa þroskandi áhrif á höfunda og þar með skapa skilyrði fyrir list- sköpun umfram þau sem nú eru, - þetta gildir um síðustu þrjú, fjögur ár. Gagnrýnendur eru orðnir viljugri að gefa af sjálfum sér í skrifum sínum, hafa sam- ræmdari skoðanir til grundvallar málflutningi sínum og tjá þær með einfaldari, skýrari, tilþrifa- meiri hætti. Fangaðir fuglar - Bókmenntirnar, - það koma árlega út skemmtilegar skáld- sögur; sögur skrifaðar af mikilli iþrótt. Og tvímælalaust má marka af skáldsögunum ákveðna þróun málsins sjálfs - þær eru ís- lenskulegri en slík skrif höfðu verið áður lengst af. Þú biður um dæmi um góðan skáldskap og ég nefni þér Eld og regn Vigdísar Grímsdóttur, smásagnasafn sem er samtíma sjálfu sér. Beyg eftir Hafliða Vilhelmsson gæti maður líklega Iesið þrisvar sér að gagni. - En það skortir mikið á fjöl- breytni og módernískar skáld- sögur hafa ekki náð að dafna sem skyldi. Hvað um sjálfan þig? Siðasta skáldsagan, sem kom út eftir þig var Fína hverfið, 1980, síðan kom smásagnasafnið Draumar um framtíð árið eftir. Ertu að fást eittthvað við skáldskap? - Ég hef ekki fengist við að semja skáldskap núna nokkuð lengi. Það sem ég hef gert á því sviði hefur verið við þýðingar. Ég lauk nýlega við að þýða skáld- sögu eftir bandarískan höfund, Freddy’s Book eftir John Gardn- er, sama höfund og skrifaði Nikk- elfjallið sem menn kannast við af kvikmyndinni. - Ég hef þýtt fjórar bækur á undanförnum þremur árum og valið þær allar sjálfur. Ástæðurn- ar fyrir þessum umskiptum eru fleiri en ein, sú skynsamlegasta en vafalaust ekki áhrifaríkasta sú að mér er yfirleitt sama hvaðan gott kemur. Og hversdagslega að minnsta kosti get ég lagt að jöfnu að þýða bækur höfunda sem hafa fangað þann fugl sem ég hefði viljað fanga sjálfur. Eða með öðrum hætti vísa á höfunda sem ég tel að eigi brýnt erindi við les- endur. - m. 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Ml&vlkudagur 19. febrúar 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.