Þjóðviljinn - 19.02.1986, Síða 12

Þjóðviljinn - 19.02.1986, Síða 12
FRÉTTIR Vöruflutningar Aukin hagræðing Lokið er nú athugun, sem gerð var á innanlandsflutningum kaupfélaganna. Sérstök nefnd, sem vann að málinu, hefur nú skilað lokaskýrslu til kaupfélag- anna. Verkefni nefndarinnar var að gera úttekt á flutningaþörfinni og gefa ábendingar um hvernig hag- ræða mætti flutningunum. Telur Axel Gíslason, formaður nefnd- arinnar, fullvíst að verulegum sparnaði væri hægt að ná með auknu samstarfi kaupfélaganna á þessu sviði, og þar með lækkun vöruverðs. Yfir hafa staðið fund- ir með kaupfélögunum, þar sem niðurstöður nefndarinnar eru kynntar. Síðan munu vinnuhópar taka til athugunar hvernig koma megi í framkvæmd ábendingum nefndarinnar. Nefndina skipuðu auk Axels Gíslasonar, kaupfélagsstjórarnir Ólafur Sverrisson, Borgarnesi, Valur Arnþórsson, Akureyri, Þorsteinn Sverrisson, Egilsstöð- um, Ólafur Ólafsson, Hvolsvelli og Hjalti Pálsson, framkvæmda- stjóri. Með nefndinni störfuðu Ómar Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri, Sigurður Jónsson, forstöðumaður og sem ráðgjafi Jón Sævar Jónsson, rekstrarverk- fræðingur hjá Ráðgjöf hf. -mhg pjóðarauður 100 miljónir dollara Gætum selt saltfisk á þessu ári fyrir yfir 100 miljónir bandaríkjadala Verðmæti útflutts saltfisks á þessu ári gæti farið yfir 100 milj- ónir bandaríkjadollara ef tekið er tillit til væntanlegrar framlciðslu- aukningar og hærra verðs á mörkuðum. Þetta eru um 4213 miljónir króna. A sl. ári voru framleidd um 46 þúsund tonn af saltfiski en úr landinu voru seld 49 þúsund tonn, þ.e. óseldar birgðir frá ár- inu áður. Ekki er talið ólíklegt að framleiðslan verði í ár um 50 þús- und tonn og seljist öll á árinu. Með verðhækkuninni sem nýlega varð má því telja víst að verðmæti saltfisks í ár fari yfir 100 miljónir dollara. Hlutfall heildarafla sem fer í saltfisk er yfirleitt svipað frá ári til árs, - eða um 43%. -óg. Æsir Óðinn, Þór, Loki Listaverk af goðum og gyðjum ásatrúarinnar eru nú komin út í formi eftirprentana, ásamt út- skýringum á myndunum og stuttri frásögn Sveinbjörns Beinteinssonar allsherjargoða Ásatrúarmanna, um hvert goð, bæði á íslensku og ensku. Nú þegar, eru komnar út 5 myndir; ÓÐINN, ÞÓR, FREYJA, IÐUNN og LOKI. Sjötta myndin, ÆGIR, kemur út í mars. í framtíðinni verða svo gefnar út myndir af fleiri goðum, jötnum svo og frægum víkingum svo sem Leifi heppna og Eiríki rauða. RAGNARÖK, þegar heimurinn ferst, og lýsing á heimunum níu' ásamt YGGDRASIL, veraldar- trénu, verða gefnar út í stærðun- um 60smx80sm. Listamaðurinn og hugmynda- fræðingurinn bakvið myndaflokk þennan sem hefur verið í bígerð í nokkur undanfarin ár, er HAUKUR HALLDÓRSSON myndlistarmaður, þekktari sem „tröllateiknari" fyrir túlkanir sínar á þjóðsögunum. Sameining HÍ og KHÍ í eina sæng? Kratar vilja alla kennslu á háskólastigi á vegum sömu skólastofnunar Þingmenn Alþýðuflokks hafa lagt fram tillögu til þingsálykt- unar um sameiningu Kennarahá- skóla íslands og Háskóla íslands. Markmiðið er að öll kennara- fræðsla á háskólastigi verði á veg- um einnar og sömu skólastofnun- ar, reynslu og þekkingu, sem til er í skólunum báðum megi samnýta og koma megi á sameiginlegri yf- irstjórn þessara skóla. I greinargerð kemur fram að flutningsmenn leggja ekki aðeins áherslu á að með þessari skipan mála megi spara fé og nýta betur reynslu og búnað, heldur telja þeir að með því að öll kennara- menntun á háskólastigi færi fram í einni stofnun væri verið að styrkja og efla kennaramenntun í landinu. -ÁI SKÚMUR ÁSTARBIRNIR FOLDA Sjáðu ég er með lausa^j tönn. Ég ætla að leggja hana undir koddann og þá gefa rotturnar Eftir nokkra daga. Því fyrr sem viðfáum útþessa s tönn því meiru tekst okkur að bjarga undan verðbólgunni. jr ' I BUÐU OG STRHDU KROSSGÁTA NR. 111 Lárétt: 1 þjark 4 hópur 6 stök 7 dansleikur 9 vaða 12 lái 14 kyn 15 spil 16 ávöxtur 19 sveia 20 hræðsla 21 fiski Lóðrétt: 2 stilla 3 hæð 4 bjarg- brún 5 grámi 7 ættingjar 8 deyja 10 annaðist 11 óhreinkaöir 13 bleytu 17 ílát 18 blóm Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 skær 4 stef 6 inn 7 alls 9 öldu 12 æstra 14 sos 15 get 16 ilman 19 orni 20 regn 21 gnótt Lóðrétt: 2 kál 3 riss 4 snör 5 eld 7 aðstoð 8 læsing 10 lagnet 11 urt- una 13 tóm 17 lin 18 art

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.