Þjóðviljinn - 19.02.1986, Page 13

Þjóðviljinn - 19.02.1986, Page 13
_________HEIMURINN Suður-Afríka Miklar óeirðir Kirkjuleiðtogi segir 80 manns hafa látist í úthverfi Jóhannesarborgar um síðustu helgi, lögreglan hafði aðeins tilkynnt um að 10 manns hefðu látist Alexandra - Virtur prestur í Suður-Afríku sagði í gær að hann heföi fregnir af því að 80 manns hefðu látist í fjögurra daga óeirðum um síðustu helgi i Alexöndru, útborg Jó- hannesarborgar. Lögreglan mótmælti þessu hins vegar og sagði að aðeins tíu manns hefðu látist í þessum óeirðum. Presturinn, Beyers Naude sem er aðalritari kirkjusamtakanna í Suður-Afríku sagði að þeir hefðu fréttir af því að 80 manns hefðu látist og 300 manns hefðu særst eða látist. Naude fór í gær ásamt Desmond Tutu, biskup og nób- elsverðlaunahafa og Allan Boes- ak, presti sem mikið hefur barist gegn kynþáttaaðskilnaðarstefn- unni, í heimsókn til Alexöndru í gær til að reyna að stilla til friðar. Naude sagði að fólk í hverfinu hefði grátbeðið sig um að skerast í leikinn. Þrímenningunum var ekki hleypt í gegnum vegartálma sem herinn hafði komið upp við aðalleiðina inn í hverfið. Þar er Lögreglumenn á eftirlitsgöngu um göturnar. Lögreglan afneitarmorðum en vill ekki hleypa fréttamönnum inn í Alexöndru nú mikill fjöldi hermanna úr sér- sveitum Suður-Afríkuhers. Mörgum innlendum og er- lendum fréttamönnum var skipað að halda sig frá Alexöndru og hverfum hvítra sem umlykju Alexöndruhverfið. Lögregla og her höfðu umkringt hverfið þannig að enginn komst inn eða út. Vitni sögðu hins vegar að þús- undir Alexöndrubúa hefðu safn- ast saman á aðaltorgi hverfisins til að ákveða hvernig brugðist skyldi við umsátrinu. Lögreglan neitaði að gefa fréttamönnum upplýsingar um ástandið í hverfinu. Talið er að ástæðan fyrir þessu sé sú að Suður-Afríka mun á fimmtudag- inn hefja viðræður við bresk stjórnvöld í London til að fá við- skiptabanninu aflétt. I Alexöndru hafa ekki verið miklar óeirðir undanfarin tvö ár en á þessu tímabili hafa 1.200 manns látist í óeirðum í Suður- Afríku. Alexandra er nokkurs konar frávik frá reglunni varð- andi aðstæður svartra íbúa í sam- býli við hina hvítu. Alexandra er eins og áður sagði umlukin hverf- um hvítra í Jóhannesarborg sem löngum hefur verið talin hjartað í viðskiptum Suður-Afríku. Vitni sögðust í gær hafa séð marga erlenda fréttaritara færða á lögreglustöð rétt utan við Alex- öndru en ekki var ljóst hvort þeir yrðu kærðir fyrir að fara inn í lok- að hverfi. Bannið við að hleypa fréttamönnum inn í hverfi hvítra sem umlykja Alexöndru kom nokkuð á óvart, þrátt fyrir að fréttamenn fái ekki að fara inn á óróasvæði en það voru reglur sem Suður-Afríkustjórn setti í nóv- ember síðastliðnum. Frétta- mönnum hafði tekist að fylgjast að nokkru leyti með óeirðunum í Alexöndru úr nærliggjandi hverf- um hvítra. Óeirðirnar í Alexöndru, þar sem 100.000 manns búa, hófst á laugardaginn eftir jarðarför eins íbúanna þar. Lyf Lyfjafyrirtæki hugsa sinn gang Johnson andJohnson innkalla allar birgðir afverkjalyfinu Tylenol eftirað kona fannst látin. Hún hafði tekið inn Tylenol hylki sem blásýru hafði verið blandað í Skák Einvígið í Bretlandi London - Bretar verða að minnsta kosti að hálfu leyti gestgjafar í næsta heims- meistaraeinvígi milli Garrí Kasparofs og Anatólí Karpofs sem haldið verður í London um miðjan ágúst. Það var gamall stórmeistari breskur, Raymond Keene sem tilkynnti þetta í gær fyrir hönd breska skáksambandsins. „Við erum að reyna að afla fjár þessa dagana til þess að geta haldið ein- vígið og erum nokkuð bjart- sýnir,“ sagði Keene. Ef breska skáksambandinu tekst ekki að afla nægilegs fjár verður seinni hluti einvígisins haldinn í Lening- rad. Keene sagðist telja að Sovét- menn væru ólmir í að heimsmeistaraeinvígið yrði hald- ið utan Sovétríkjanna þar sem þeir Kasparof og Karpof væru góðir fulltrúar heimalands síns. Keene sagði ennfremur að ein- vígið kæmi til með að kosta 1,2 milljónir punda og skáksam- bandið væri þegar búið að afla helmings þess fjár. New Jersey — Lyfjafyrirtæki eru nú að endurskoða lyfja- framleiðslu sína í hylkjaformi eftir að bandaríska fyrirtækið Johnson and Johnson ákvað að stöðva alla lyfjaframleiðslu sína í hylkjaformi. Það gerðist eftir að banvænir eitur- skammtar fundust tvívegis í Tylenol fyrir skömmu. Ein kona fannst þá látin í úthverfi í New York. Tylenol er eitt út- breiddasta verkjalyfið í Banda- ríkjunum sem hægt er að fá án lyfseðils. Fulltrúi Johnson and Johnson sagði í gær að það myndi kosta fyrirtækið 150 milljónir að stöðva lyfjaframleiðslu sína í hylkja- formi. Matvæla- og lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum lýsti því hins vegar yfir á sama tíma að algjört bann á lyf í hylkjaformi sem feng- in væru án lyfseðils, væri hæpið í dag. Arið 1982 dóu sjö manns í Chic- ago eftir að hafa tekið inn Tylen- ol sem innihélt blásýru. Ákvörð- un fyrirtækisins sem tilkynnt var í gær kemur í kjölfar þess að konan fannst látin í fyrradag, eftir að hafa tekið inn Tylenol. Hjá kon- unni fundust tvær flöskur af Tyl- enol og hafði hún tekið inn tvær töflur sem voru eitraðar. Fulltrúar Johnson and Johnson tilkynntu í gær að Tylenol í hylkjaformi yrði nú tekið af markaðnum en í stað þess kæmi Tylenol í Caplet formi. Það eru töflur með sykurhúð. Vín - Ónefndur flóttamaður frá Tékkóslóvakíu sagði i gær að meðlimir Mannréttindaskrár ’77 (Charta 77) sem eru samtök Hingað til hafa 30% af Tylenoi verið í hylkjaformi á Bandaríkja- markaði og talsmenn fyrirtækis- ins segja að kostnaður við breytinguna verði 150 milljónir dollara. Þeir báðu alla neytendur og dreifendur lyfsins að skila öllum þeim töflum sem þeir hefðu undir höndum. I staðinn fengju neytendur og dreifendur sama magn til baka af hinni nýju framleiðslu. andófsmanna í Tékkóslóvak- íu, teldu ekki ólíklegt að njósn- araskipti þau sem voru í síð- ustu viku gætu flýtt fyrir því að sex andófsmenn sem væru í fangelsi þar í landi yrðu látnir lausir. Indland —IH Charta 77 Næstu njósnaraskipti Meðlimir Mannréttindaskrár ’77 í Tékkósló- vakíu koma með uppástungur Verkföll gegn verohækkunum Nýja Dehli - Stjórnarandstöðu- flokkarnir á Indlandi tilkynntu í gær að þeir ætluðu að efna til eins dags allsherjarverkfalls í næstu viku sem ná myndi til alls landsins. Verkfallinu er ætlað að mótmæla hækkun ndversku stjórnarinnar á nauðsynjavörum en sú ráð- stöfun hefur vakið mikla gremju á Indlandi. Stjórnarandstaðan sem hefur notað verðhækkanir til að gagnrýna stjórn Rajhiv Gandhi tilkynnti að verkfallið yrði að öllum líkindum 26. febrúar. Tals- Gandhi og stjórn hans standa á næstu dögum frammi fyrir miklum mótmælum maður stjórnarandstöðunnar sagði að verkfallið yrði um allt landið að frátaldri höfuðborg- inni, Nýju Dehli, og fylkjunum Vestur Bengal og Tripura en þar hafa þegar verið miklar mótmæl- aaðgerðir og verkföll vegna hækkananna. Fylgismenn stjórn- arandstöðunnar myndu hinsveg- ar fara þar í setuverkföll þann 26. febrúar. Talsmennirnir sögðu að þess- um aðgerðum væri beint gegn því sem þeir nefndu yfirlætislegar að- gerðir stjórnarinnar. Meðal þess sem hækkað hefur verið eru elds- neyti, hrísgrjón, brauð og kol. Gandhi forsætisráðherra varði í gær ráðstafanir stjórnarinnar og sagði að þær væru nauðsynlegar. „Þessi mannúðlega aðgerð vekur þær vonir að láta Tékka sem eru í fangelsi, dæmdir fyrir njósnir, verði látnir lausir,“ segir í bréfi sem sent hefur verið stjórnum Bandaríkjanna, Bret- lands, Frakklands, Vestur- Þýskalands, Hollands og Austur- ríkis. Einn þeirra sem látinn var laus í njósnaraskiptunum í síðustu viku var 38 ára gamall Tékki, Jar- oslav Javorskí. Hann hafði verið dæmdur í fangelsi fyrir að koma ríkisleyndarmálum undan til vestrænna ríkja. í bréfinu eru nefndir fjórir Tékkar sem dæmd- ir hafa verið fyrir njósnir auk tveggja andófsmanna. Þess menn segir Mannréttindaskrá ’77 að væri tilvalið að hafa með í njósnara- og andófsmanna- skiptum framtíðarinnar. Og þetta líka... Beirut — Róttækir skæruliðar múslima sem hafa ísraelsmenn í haldi sögðu í gærkvöldi að ef ísra- elsmenn dragi ekki her sinni burtu úr Suður-Líbanon innan 24 klukkutíma, muni þeir skjóta annan manninn. Skæruliðarnir tóku mennina tvo í launsátri í fyrradag. ísraelsmenn hófu mikla leit í gær að skæruliðum. Manila - Ungt fólk stóð mótmæl- astöðu utan við bandaríska sendi- ráðið í Manila í gær. Um svipað leyti fóru áskoranir Aquino um að sniðganga blöð fyrirtæki þeirra sem væru hallir undir Marcos, að hafa víðtæk áhrif. N’Djamena — Ríkisstjórn Afrík- uríkisins Chad sem nú er studd af hersveitum Frakka, tilkynnti í gær að hún hefði heitið því að gera alla skæruliða útlæga úr landinu. Bahrain - íranir sögðu í gær að hersveitir þeirra sæktu enn fram til norðurs og austurs frá íröksku hafnarborginni Faw. Yfirmenn í her fraka viðurkenndu hins vegar að þeim gengi illa að halda aftur af sókn Irana sem hófst fyrir níu dögum. París - Forseti Líbanon, Amin Gemayel, átti í gær viðræður við Mitterrand Frakklandsforseta og sagði eftir þær að stjórnir beggja landa ætluðu að sameinast í því að fá lausa þá fjóra gísla sem ver- ið hafa í gíslingu í Beirút allt síð- asta ár. Haag - Hollenska stjórnin hefur stöðvað lögleiðingu mannúðar- dráps í Hollandi þrátt fyrir að stuðningur sé fyrir því á þingi. Stuðningsmenn tillögunnar sögðu hins vegar að svo virtist enn sem Hollendingar yrðu þeir fyrstu sem lögleiddu mannúðar- dráp. Oxford - Breskur þingmaður sem er meðmæltur áframhald- andi samstarfi við Suður-Afríku á íþróttasviðinu var hrakinn burtu frá háskólabænum Oxford af reiðum námsmönnum. Honum hafði áður verið neitað að ávarpa samkomu í háskólanum. Santiago - Að minnsta kosti 80 manns létust og um 500 særðust þegar tvær lestir rákust framan á hvor aðra nálægt bænum Limac- he í Chile í fyrrinótt. Er talið að þær hafi verið á 60 og 70 kíló- metra hraða þegar þær skullu saman. París — Á fundi frönskumælandi ríkja sem hófst í París í fyrradag er rætt um leiðir til að auka sam- starf þessara þjóða á tæknisviði og einnig leiðir til að stemma stigu við hinni gegndarlausu sókn ensku sem alheimstungumáls. ERLENDAR FRÉTTiR hjörlbfssoi/R EIJTER Mi&vikudagur 19. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.