Þjóðviljinn - 19.02.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 19.02.1986, Blaðsíða 16
Hótel Loftleiðir Erlend fyrir miljónir Stjórnarnefnd Hótels Loftleiða gengur að tilboði sœnsksfyrirtœkis. 7 íslenskfyrirtœkisniðgengin. Óá- nœgja með framkvœmd útboðs. Hallgrímur Magnússon: Veruleg vonbrigði Þetta eru okkur auðvitað veru- leg vonbrigði, við héldum að íslenska framleiðslan yrði fyrir valinu, sagði Hallgrímur Magnússon formaður Félags starfsfólks í húsgagnaiðnaði í fíSRB Ríkið á leik Beðið eftir útkomunni úr viðrœðum ASIog VSI. Ríkisstjórnin viðurkennir kaupmáttartryggingu amninganefndirnar Samninganefndirnar sitja a fundi og ég veit ekki sem stendur hvað út úr þeim fundi kemur. Samningamenn eru ekki menn margra orða enn sem kom- ið er, sagði Guðlaugur Þorvalds- son ríkissáttasemjari um við- raeður BSBR og ríkisins á tólfta tímanum í gærkvöldi. Um helgina slitnaði upp úr viðræðum eftir að BSRB hafnaði hugmyndum ríkis- ins um kauptrygginguna en síð- degis í gær boðaði sáttascmjari LIN Ólafur í skrípaleik Guðmundur A uðuns- son: Afsögn Ólafs ekki annað en skrípaleikur Það er augljóst af þessu að Ólafur ætlar sér að sitja þarna áfram og þessi afsögn hans er bara skrípaleikur, sagði Guð- mundur Auðunsson kjörinn full- trúi SHÍ í stjórn LÍN í samtali við Þjóðviljann í gær eftir að Ólafur Arnarson hafði ásamt Asdísi Þórðardóttur og Auðunni Sva- vari Sigurðssyni fellt tillögu um að Guðmundur skuli sitja fundi stjórnarinnar með fullum rétt- indum. Björn R. Guðmundsson full- trúi SÍNE og Vilborg Oddsdóttir fulltrúi BÍSN báru tillöguna upp á fundinum, en hún fékk aðeins þrjú atkvæði og var vísað frá. Til- lagan var þess efnis að Guð- mundur og Hrólfur Ölvisson varamaður hans fengju að sitja þessa fundi með fullum réttind- um, enda væri formlegrar skipun- ar menntamálaráðherra að vænta innan tíðar. Vökumennirnir Ólafur Arnarson og Guðný Eydal hafa bæði sagt af sér í stjórninni, enda ítrekað verið samþykkt vantraust á Ólaf. Til- lagan var síðan rökstudd með sambærilegum fordæmum úr ná- inni fortíð, m.a. má nefna að Árdís Þórðardóttir formaður stjórnar samþykkti slíka tillögu þegar Björn Rúnar Guðmunds- son tók við af Jónasi Guðmunds- syni í ágúst sl. Þá hafði Björn enn ekki verið skipaður í stjórnina. -gg samninganefndarinnar á fund sem hófst kl. 21 í gær. Þá mun forsætisráðherra hafa kallað fjármálaráðherra og samninga- nefnd ríkisins á sinn fund síðdegis í gær. Sáttasemjari sagðist í gær- kvöldi ekki eiga von á nýju tilboði en vildi að öðru leyti ekki segja neitt um horfurnar. Innan BSRB töldu menn í gær sennilegast að beðið yrði eftir útkomunni hjá ASI og atvinnurekendum. Það sem þykir merkilegast við seinasta tilboð ríkisins er að í því viðurkenna þeir viðræður um kaupmáttartryggingu, þó hún sé að mati BSRB fráleit einsog samninganefnd ríkisins hugsar sér hana. Samkvæmt tillögu ríkis- ins á að koma til 1% hækkun á meðaliaunum frá byrjun júlí hækki verðlag meira en 2,5% á tímabilinu 1. febrúar til 1. júní. Hækki vísitala framfærslukostn- aðar meira en 3,5% er hægt að segja samningum upp með viku fyrirvara. Samskonar mörk eru svo 1. október. Enn er santa prósentuhækkun- in eða 7% í þrem áföngum, við undirritun, 1. júní og 1. október. BSRB hefur ekki enn sett fram kröfur um launahækkanir en vill að þær komi í fjórum áföngum á samningsárinu, við undirritun, 1. júní, 1. september og 1. desemb- er. - Sáf samtali við Þjóðviljann í gær, en stjórnarnefnd Hótels Loftleiða ákvað í gær að kaupa erlend hús- gögn fyrir nokkrar miljónir króna í 50 herbergi á þessu ári. Það hefur verið á döfinni hjá Loftleiðum um nokkurt skeið að endurnýja húsbúnað í 100 her- bergjum og hefur verið ákveðið að kaupa ný húsgögn í 50 þeirra á þessu ári. Húsgögn sem ákveðið var að festa kaup á koma frá sænsku fyrirtæki en auk þess buðu 7 íslensk fyrirtæki í verkið. Valgerður Bjarnadóttir sem á sæti í stjórnarnefndinni sagði í gær að erlenda tilboðið hefði reynst lægst, auk þess sem það væri hagstæðara að nokkru leyti. Lægsta íslenska tilboðið hljóðaði upp á 3.9 miljónir og var sam- eiginlegt tilboð frá Ingvari og Gylfa og Grein h.f. „Það er gjörsamlega út í hött að halda því fram að erlenda til- boðið hafi verið lægst. Það er al- veg víst að okkar tilboð var lægra. Ef þetta á að vera stefnan í þessu landi, geri ég það að tillögu minni að fáninn okkar verði um leið dreginn niður,“ sagði Ingvar Þor- steinsson þegar Þjóðviljinn bar þetta undir hann í gær. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans var upphaflega alls ekki áformað að bjóða þetta verk út hér á landi. Sænska tilboðið var komið áður en íslenskir fram- leiðendur fengu tækifæri til að gera tilboð, og gætir nokkurrar óánægju með framkvæmd út- boðsins meðal þeirra. Hallgrímur Magnússon sagði í gær að sér þætti þetta sérstaklega hastarlegt í ijósi þess að þetta fyr- irtæki hefði í gegnum tíðina notið fyrirgreiðslu frá íslenska ríkinu og velvildar verkalýðsfélaga þeg- ar illa hefur staðið á fyrir því. Heildarkostnaður við hvert her- bergi verður að sögn Valgerðar rúmlega 100 þúsund krónur. -gg Bœndafundur Asgeir Svanbergsson hjá Skógræktinni: Fylgist með fjölærum blómpiöntum, víði og öðrum runnum. Ljósm. EÓI. fílíðviðrið Gróður í hættu Þannig er nú komið að ýmsir eru farnir að óttast afleiðingar blíðviðrisins og fer þá að verða vandlifað fyrir forsjónina, ef svo má að orði komast. Það er trjá- gróðurinn, sem menn telja að geti verið í hættu. Langvinn hlýindi geti orsakað það að tré og runnar fari að „bruma“ fyrir eðlilegan tíma. Síðan komi kuldakast, sem reynst geti gróðrinum skeinu- hætt, því ennþá er jú drjúgur spölur eftir af vetrinum, sé alm- anakið ekki orðið vitlaust á þess- um síðustu og verstu tímum. Garðyrkjumenn og gróðursér- fræðingar, sem blaðið hafði tal af, telja þó að enn sé engin veru- leg hætta á ferðum, síst hvað birkið áhrærir, hlýindin séu enn sem komið er ekki það samfelld. Rétt er þó ef svo fer enn fram sem horfir að fylgjast með fjölærum blómplöntum, víði og öðrum runnum, einkum í skjóli upp við húsveggi og nota yfirbreiðslur ef þörf þykir á. - mhg Á mörkum helgispjalla Bekkir úr Akureyjarkirkju bornir út í samkomuhúsið Njáls- búð til að bœndur mœttu sitja á fundi Það bar til á bændafundinum mikla í Njálsbúð í V- Landeyjum sl. mánudagskvöld að húsið yfirfylltist af fólki og sæt- aþurrð varð. Tóku menn það þá til bragðs að sækja kirkjubekki Akureyjarkirkju til að bæta úr. Nú er það svo að undirritaður minnist þess að fyrir nokkuð mörgum árum var skipt um bekki í téðri kirkju og var kallað á bisk- up að vígja þá og fleira sem hafði verið endurnýjað. Því vaknar sú spurning hvort þarna hafi ekki verið framin helg- ispjöll. „Ég þori ekki að segja til um það en það vill svo til að hér stendur yfir kirkjuráðsfundur og ég skal spyrjast fyrir um málið,“ sagði Bernharður Guðmundsson á biskupsstofu er Þjóðviljinn leitaði til hans. Eftir langa stund kom Bern- harður aftur í símann og sagði menn hafa rætt málið ýtarlega og hefði biskup komist að þeirri niðurstöðu að ef sóknarprestur og sóknarnefnd hafi verið beðin um leyfi teldi hann þetta ekki helgispjöll. Það væri takmark kirkjunnar að þjóna fólkinu og ef bekkirnir hafi orðið til þess að þreyttir mættu sitja, teldi hann þetta vera í lagi. - S.dór Dómur VSÍ í vil Við erum ósáttir við úrskurð félagsdóms og Dagsbrún hefur ör- ugglega ekki sagt sitt síðasta orð í þessu réttlætismáli, sagði Atli Gíslason lögfræðingur Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar í samtali við Þjóðviljann í gær eftir að félagsdómur hafði úrskurðað uppskipunarbann Dagsbrúnar á suðurafrískar vörur ólögmætt. Samkvæmt þessum dómi er Dagsbrún gert að aflétta upp- skipunarbanninu, sem nú hefur staðið í u.þ.b. þrjá mánuði. Það var Vinnuveitendasambandið sem kærði bannið til félagsdóms. Atli sagði í gær að dómurinn hefði í sjálfu sér ekki komið á óvart, en hann væri hins vegar að sjálfsögðu ósáttur við hann og það yrði vafalaust framhald á þessu máli. Aðalsími: 681333. Kvöldsfmi: 681348. Helgarsími: 81663. UOÐVIUINN Mlðvlkudaour 19. febrúar 1986 41. tðlublað 51. árqanour.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.