Þjóðviljinn - 22.02.1986, Síða 5

Þjóðviljinn - 22.02.1986, Síða 5
Lech Walesa og barátt- ufélagar hans á sokka- bandsdögum Solidarnosc gerðu það að grundvallar- atriði í samningum sínum við Jarúselski og herfor- ingjana í Póllandi að opna fyrir auglýsingastreymi til fólksins. Þeir komu upp há- tölurum utan við salina þar sem menn tókust á yfir samningaborðum, til að flytja samfelldar fregnir af atburðarásinni. Þetta var einn af höfuðþáttunum í því nána sambandi sem varð á miili þeirra og fólksins. Wa- lensk vinnubrögð af þess- um toga geta aldrei annað en styrkt sambandið á milli forystunnar og félaganna í hreyfingum sem eiga að vera lifandi, og sjúga nær- ingu sína úr sífrjóum jarð- vegi hinna virku tengsla á milli toppa og táa, - foryst- unnar og fjöldans. Þessir garpar vilja kaup sitt en engar refjar!! árum, og þ\í sanngjarnt að það njóti alis batans núna. 1. Miðað við spá unt 4 prósenta aukningu þjóðartekna, þá yrði kaupmáttur að aukast að meðal- tali um 4 prósent til þess að skiptahlutföllin í þjóðfélaginu héldust óbreytt. En miðað við að þjóðartekjur aukist um fimm prósent, sem er hklegt. þá vrði kaupmáttur að aukast að meðal- tali um 5 prósent. Með því að hafa aukninguna minni hjá tekjuhærri/-hæstu hópunum, þá mætti auðvitað auka kaupmátt þeirra verst settu miklu meira. 2. Með því að gera ráð fyrir fjögur prósenta aukningu þjóðar- tekna og sömuleiðis því, að öll aukningin færi til launafólks, þá þyrfti kaupmáttur að aukast um 6.7 prósent að meðaltali. Sé hins vegar gert ráð fyrir 5 prósenta aukningu þjóðartekna. þá yrði kaupmáttur að aukast um 8,3 prósent að meðaltali. Skattalækkanir Ríkisstjórn og sveitarfélög Svigrúm og samningar Skipulagðir fréttalekarforkólfa VSÍ. Pjóðartekjur munu aukast umfimm til sexprósent á árinu. s Igóðœri verður að ná einhverju af kjararáninu frá 1983 til baka Hókus pókus í Garðastræti fara allir samn- ingar hins vegar fram fyrir lukt- um dyrum. Fjölmiðlafælnin er meira að segja orðin slík, að það er búið að taka upp þá nýbreytni að læsa húsakynnum VSÍ, þar sem viðræðurnar fara fram. Fréttamenn eru þarmeð sviptir öllum upplýsingum. Einungis þeir sem eru í náðinni hjá topp- unum fá allra náðarsamlegast að tala við stórmennin í tíma. Þann- ig er hægt að stjórna fullkomlega hvernig fréttir berast til þjóðar- innar. Þetta eru auðvitað gjörsam- lega fráleit vinnubrögð. Fyrir verkalýðshreyfinguna skiptir einkum og sér í lagi máli að koma fréttum af gangi mála til fólks vegna þess hversu gífurlega flóknir þeir samningar eru, sem nú er verið að gera. Einmitt vegna þess er samningsgerðin í augum fólksins á götunni orðin að hálfgerðum hókus pókus í Garðastræti. Það er líka rétt að benda á, að fréttaleyndin skapar svigrúm fyrir ósvífna menn til að skapa tiltekið andrúmsloft gagnvart samningunum með klókinda- legum „fréttalekum". Þetta hafa forystumenn VSÍ notfært sér til hlítar á einkar ógeðfelldan hátt. Með völdum „fréttalekum" í Morgunblaðinu hófu þeir harð- skeyttan sálfræðihernað, sem var ætlað að skapa þau viðhorf hjá fólki, að ekki væri að búast við neinni kaupmáttaraukningu. Á undanförnum dögum hefur Morgunblaðið þannig æ ofan í æ birt fréttir úr miðju samning- anna, sem höfðu þetta að megin- kjarna og töldu fólki trú um að raunverulega væri verið að ræða núll prósent aukningu. Tilgang- urinn var sá, að skapa andrúms- loft sem gerði auðveldara en ella að knýja fram samninga upp á mjög litla aukningu. Fólk myndi þá hugsa sem svo, að lyktir hefðu alla vega ekki orðið eins slæmar og Morgunblaðið hefði gefið til kynna og sætta sig betur við niðurstöðuna. Afleiðing þessara vandlega undirbúnu leka í Moggann varð hins vegar sú að fólk missti trú á samningunum, fylltist nokkru vonleysi og taldi þá lítils virði áður en niðurstaða var fengin. Fréttaleyndin og undirbúnir lek- ar forkólfa VSÍ í Moggann grófu þannig undan samningamönnum verkalýðssamtakanna. Stóraukið svigrúm Núverandi samningar eru óhemju flóknir sem fyrr segir, og það er auðvelt að týnast í frum- skógi húsnæðismála, lífeyris- sjóða, vaxtalækkana og niður- greiðslu á verðbólgunni. Til að gera sér grein fyrir möguleikun- um í stöðunni, og réttmætum vinningum, er auðveldast að reyna að grilla eftir heildarlínum. Til að byrja með er hægt að spá í hið stóraukna svigrúm, sem hefur skapast vegna hagstæðs byrs í viðskiptakjörum okkar. Þegar verkalýðshreyfingin setti fram kröfuna um 8 prósent aukningu á kaupmætti í nóvem- ber var gert ráð fyrir að þjóðar- tekjur ykjust um tvö prósent. En síðan hefur olían snarlækkað og sérfræðingar Þjóðhagsstofnunar telja þá búbót 500 miljóna virði fyrir þjóðina. Freðfiskur hefur hækkað um 5 prósent á erlendum mörkuðum okkar og saltfi- skurinn um 16 prósent. Samtals gefa þessir þrír þættir af sér um tvo miljarða aukreitis fyrir þjóð- ina. Miðað við fyrri spár Þjóð- hagsstofnunar má samkvæmt þessu áætla að þjóðartekjur aukist um 1,5 til 2 prósent í við- bót, eða alls um 3,5 til 4 prósent á þessu ári. Samt er þessi spá áreiðanlega of lág. Miðað við hráolíuverðið í dag mun olíulækkunin ekki skila okkur 500 miljónum, heldur milj- arði. Miðað við það (og olían er enn að lækka þessa dagana) má gera ráð fyrir að þjóðartekjur hækki um hálft prósent í viðbót, og verði að minnsta kosti 4 til 4,5 prósent. Þá er enn eftir að gera ráð fyrir <jákvæðum áhrifum í efnahagslíf okkar, sem stafa af uppsveiflu og hagvexti (m.a. vegna olíulækk- unar) í viðskiptalöndum okkar. En það er einfaldlega hagfræði- leg staðreynd, að hagvöxtur í þeim leiðir til aukins hagvaxtar hjá okkur. Það er því alls ekki fráleitt að ætla, að í stað þeirrar spár sem Þjóðhagsstofnun setti frarn um tveggja prósenta aukningu þjóð- artekna verði hún alltaf sex pró- sent. Svigrúmið til kjarabóta hef- ur því stóraukist frá því kröfurnar voru settar frarn. Dollaradella Því er að vísu dreift markvisst af forkólfum VSÍ, að óhagstæð þróun dollarans síðustu vikur hafi í rauninni brennt upp þann „happdrættisvinning" sem felst í stórbættum viðskiptakjörum. Þetta er hins vegar rangt. Vissulega hefur dollarinn lækkað um 3,5 prósent síðustu fjórar vikur. Það þarf hins vegar ekki að leiða til raunlækkunar á því sem við fáum fyrir fiskinn okkar. í fyrsta lagi er fiskmarkað- urinn í Bandaríkjununt mjög sterkur um þessar mundir, hann er „seljendamarkaður", og því allt eins líklegt að tekjulækkun af völdum dollarasigs vinnist upp með verðhækkun (í dollurum) á fiski í Bandaríkjunum. Það gerð- ist til að mynda síðastliðið haust, þegar dollarinn lækkaði og fisk- urinn hækkaði í doliurum talið til móts við tapið og jafnvel meira. Síðast en ekki síst má svo ekki gleyma, að þegar dollarinn fellur styrkjast evrópumyntir og niark- aðir okkar í Evrópu, sem við höf- unt vanrækt illilega (t.d. í Bret- landi). Tekjutap vegna gengis- breytinga dollarans getur þannig leitt til tekjuaukningar í Evrópu. Það er því alrangt, sem VSÍ er að láta seytla út þessa dagana, að dollarasigið sé að eyða öllum batanum. Möguleikar á hækkunum Lítum þá á, hvað hið aukna svigrúm vegna aukinna þjóðar- tekna gæti fræðilega fært launa- fólki. Þetta er fróðlegt að skoða út frá tvennu: annars vegar með því að gera ráð fyrir að skipta- hlutföllin í þjóðfélaginu séu óbreytt, og hins vegar með því að ætla að allur batinn fari til launa- fólks. Pólitískt er auðvitað ókleift að ætlast til þess, en út frá sanngirnissjónarmiðum er það ekki óeðlilegt sé litið til þess að launafólk hefur tekið á sig 30 prósenta skerðingu á síðustu hafa fyrir sitt leyti fallist á ákveðnar skattalækkanir, sem nema 450 miljónum, til að liðka fyrir kjarasamningum. Það er hins vegar fráleitt að tala um ein- hverja fórn af þeirra hálfu í þessu sambandi. Þessi minnkun er ein- ungis leiðrétting til samræmis við áætlaða hjöðnun verðbólgunnar og er ekki raunlækkun á tekjum ríkissjóðs og sveitarfélaga. Jafnframt eru uppi hugmyndir um að greiða niður verðbólguna nteð 1250 miljónum króna, sem yrði varið til lækkunar óbeinna skatta og niðurgreiðslu á ýmsum neysluvörum. Helming þessa fjár vilja menn að ríkisstjórnin fái að láni frá k'feyrissjóðunum, sem launafólk á sjálft. Hinn helming- inn á svo að fjármagna með ann- ars vegar niðurskurði á fé til veg- aframkvæmda (þó einungis til samræmis við hjöðnun verðbólgu þannig að ekki yrði um raunlækk- un að ræða). Hins vegar vilja samninga- menn verkalýðshreyfingarinnar auka skatta á banka og eignir. Það er full þörf á slíkri skatt- heimtu, og sjálfsagt að taka undir slíkar kröfur. A þessu stigi eru vissar vonir bundnar við góða úrlausn í hús- næðismálum, en að öðru leyti er býsna erfitt að spá fyrir um út- komuna. Það er hins vegar klárt, að það er ekki hægt að þola að skiptahlutfallið breytist fyrir- tækjunum í vil, eins og VSÍ stefn- ir greinilega að. Óbreytt hlutföll eru í sjálfu sér heldur ekki nógu góð. Það ríkir góðæri, og undir slík- um kringumstæðum er ljóst að við verðum að stefna að því að ná aftur einhverju af kjararáninu sem var framið á launafólki 1983. Ossur Skarphéðinsson Laugardagur 22. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.