Þjóðviljinn - 22.02.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 22.02.1986, Blaðsíða 16
Laugardaour 8. febrúar 1986 32. tölublað 51. örgangur Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 81663. Niðurfœrslan Kostar 1250 miljónir Hugmyndir um tollalœkkanir og afnám launaskatts. Agreiningur um verðjöfnunargjald á raforku Áætlað er að það muni kosta ríkissjóð að minnsta kosti 1250- 1300 miljónir að færa verðbólg- una niður í 7 prósent á árinu. ASI og atvinnurekendur munu sam- kvæmt heimildum Þjóðviljans vera sammála um að 600 miljón- um beri að verja til að standa straum af lækkun tolla á græn- meti, heimilistækjum, bifreiðum og hjólbörðum. ASÍ og atvinnurekendur hafa sömuleiðis rætt um að fara þess á leit við ríkisstjórnina að afgangi upphæðarinnar verði varið til að mæta niðurfellingu launaskatts og lækkun á verðjöfnunargjaldi á rafmagni. Fulltrúar verkalýðs- hreyfingarinnar munu margir ó- sammála seinna atriðinu. Samanlögð áhrif aðgerðanna sem hafa verið rædd myndu sam- tals færa verðlag niður um rúm fjögur prósent, og af því mun toll- alækkun á bifreiðum vega þyngst. Aætlað er að helmingur 1250- 1300 miljónanna verði lán frá líf- eyrissjóðum, sem ríkið tekur. Hugmyndir eru uppi um að fjár- magna afganginn með sérstökum tíu prósent launaskatti á banka, 40 prósent álagi á eignaskatt og lækkun á fjárveitingum til vega- gerðar. Sáf BSRB-viðrœðurnar Éfliðupp- lýsinga- streymi „Við styðjum ítrustu kröfur. Við viljum kaupmáttaraukningu og kaupmáttartryggingu. Við viljum gott upplýsingastreymi af viðræðum og við viljum að þið sofið vel. Við viljum ekki að þið semjið syfjuð fyrir okkar hönd," segir í ályktun starfsmannafélags sjónvarpsins. Ályktuninni var beint til samninganefndar BSRB, sem nú situr á löngum og ströng- um næturfundum. Samningarnir Hálfgerð kyrrstaða virðist vera komin í samningaviðræðurnar og flækir það málin að ekki er verið að ræða út frá sömu verðbólgufor- sendum í Karphúsinu og í Garðastræti. Samninganefndir BSRB og ríkisins ganga út frá 9% verðbólgustigi en Alþýðusam- bandið og atvinnurekendur út frá 7% verðbólgustigi. Af viðræðum ASÍ og atvinnurekenda er það helst að frétta, að samkomulag er orðið um aðgerðir í húsnæðismálunum. Er lífeyrissjóðunum í sjálfsvald sett hversu miklu af ráðstöfunarfé sínu þeir eyða í kaup á skuldabréfum byggingarsjóðanna, en til að sjóðfélagar öðlist lágmarksréttindi þurfa sjóðirnir að kaupa fyrir 20% af ráðstöfunarfénu. Full lán til kaupa á nýju húsnæði er um tvær miljónir og ein og hálf til kaupa á gömlu. I>á er talað um að verja 500 miljónum í neyðarhjáíp til fórnarlamba misgengisáranna. Lítið sem ekkert þokaðist í viðræðum um kaupmátt og tryggingu, en annaðhvort smellur þetta saman nú um helgina eða það verður boðað til verkfalls, sagði einn af viðmælendum Þjóðviljans í gær. ASÍ og atvinnurekendur hittust aftur í Garðastræti seinni hlutann í gær og var búist við öðrum næturfundi. Samninganefndir BSRB og ríkisins hittust kl. þrjú í gær hjá sáttasemjara en fundi hafði verið slitið snemma í gærmorgun. Er stóra samninganefndin boðuð til fundar klukkan fjögur í dag. Að sögn Kristjáns Thorlaciusar, formanns BSRB, hafa viðræður einkum snúist um kaupmáttartrygginguna, en hugmyndir ríkisins hafa ekki verið fullnægjandi að mati Kristjáns. Oformlegt tilboð mun hafa komið frá ríkisstjórninni í fyrrinótt sem BSRB gat ekki sætt hafa'^ ikiömivið °í^Karohúsinu Þe9ar Þjóðviljinn leit við í Karphúsinu í fyrrinótt var húsið læst. Elísabet Ólatsdóttir, skrifstofustjóri sáttasemjara birtist þá ,, ... 'tt' skyndilega út úr náttmyrkrinu og burðaðist hún með níðþungan ölkassa, sem átti að svala þyrstum samningamönnum. klukkan prju um nottina og rætt Rjtstjórnarfulltrúi Þjóðvijans hagaði sér einsog sönnum sjentilmanni sæmir og hélt dyrunum opnum fyrir Elísabetu. Er við formenn og varaformenn ekki að efa að einhver annar hefði reynt að troða sér inn til að þefa upp fréttir en okkar maður misnotar sér ekki aðstöðu samninganefndanna. sína. E.ÓI Olíkar verðbólgu- forsendur Lítið þokast. Samkomulag um húsnœðismálin. Annaðhvortsmellur það saman um helgina eða slitnar upp úr. Oformlegt tilboð frá ríkisstjórninni í fyrrinótt Verkamenn í Eyjum Svíkið ekki fiskvmnslufólk Verkfallsheimild samþykkt. Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélagsins: Fólk á erfitt með að skilja að verið séað ræða óbreyttan kaupmátt í þessari árgœsku Verkalýðsfélag Vestmannaeyja samþykkt verkfallsheimild á sjötíu manna fundi á fimmtudagskvöldið. Þar var einnig samþykkt ályktun, þar sem skorðað er á samninganefnd- irnar að svíkja ekki loforð um Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfírði varð sér úti um verkfallsheimild á fjölmennum fundi á fímmtudagskvöldið. Á fundinum var líka samþykkt á- lyktun þar sem ályktun er lögð á að kaupmáttur hækki verulega í ár og að ekki sé samið nema kaupmátturinn sé tryggður í samningunum. Sigurður T. Sigurðsson, vara- formaður Hlífar, sagði í samtali við Þjóðviljann í gær, að það væri verulegar útbætur á kjörum fisk- vinnslufólks. Það sættir sig ekki við að framhjá því verði gengið í samningum eina ferðina enn. Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélagsins, á sæti í samn- greinilegt að verkafólk sé þeirrar skoðunar að það þýði ekkert að taka orð þessarar ríkisstjórnar trúanleg og því þýði ekkert nema negling og aftur negling trygging- ar í samningana, enda er afreka- skrá ríkisstjórnarinnar tíunduð í ályktuninni. „Það er greinilegt að fólk er tilbúið að fara í verkfall til að ná fram hagstæðum samningum, en því er ekki að leyna að verkafólk er kvíðið, enda ástandið erfitt á flestum heimilum. Harmsögurn- inganefnd ASÍ, en hefur verið í Vestmannaeyjum lungann úr þessari viku. Hann settist þó aft- ur á fund með samninganefnd- inni í gærkvöldi, því þá átti að ræða málefni fiskvinnslufólks í framhaldi af ályktuninni. ar sem eru að gerast innan heimil- anna eru því miður ekki á allra vörum.“ Sigurður sagði að verkafólk þættist vera búið að borga sinn hlut til að koma verðbólgunni niður og nú ætti því röðin að vera komin að öðrum. „Við önsum engri helvítis vitleysu og ætlum okkur ekki að greiða verðbólg- una aftur niður. Launin verða að hækka verulega,“ sagði Sigurður að lokum. -Sáf „Mér fannst illa farið með tíma fólks að hanga í Garðastræti nótt eftir nótt án þess að neitt gerðist. Auk þess hafði ég nóg annað við tímann að gera.“ Sl. þriðjudag hélt Jón fund með starfsfólki í bræðslunum í Eyjum til að undirbúa sérsamn- inga þeirra. „Þeir samningar munu fyrst og fremst fjalla um hollustumál, en þessar bræðslur eru hálfgerðar skítakvarnir, sem mala gull handa eigendum sín- um, en ekkert er hugsað um að- búnað verkafólksins.“ Jón sagði að fólk ætti erfitt með að skilja að verið væri að ræða um óbreyttan kaupmátt á sama tíma og árgæska er slík sem nú er. „Það skilur eiginlega ekkert í því. Ástæðan er fyrst og fremst sú að stéttabaráttan hefur verið færð yfir á fræðilegt plan þar sem hag- fræðingar hafa haslað sér völl og ákveða hvaða stærðir eru til skiptanna. Svo fer ég ekkert dult með það að ég hef ákaflega illan bifur á að menn séu að setja traust sitt á þessa ríkisstjórn, sem alla tíð hefur sýnt að hún er fjand- samleg launafólki.“ -Sáf Önsum engri vitleysu Verkfallsheimildar aflað áfimmtudag. Sigurður T. Sigurðsson: Við tökum orð ríkisstjórnarinnar ekki trúanleg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.