Þjóðviljinn - 23.02.1986, Síða 13
Senditæki sjónvarpsstöðvanna á efstu hæð Eiffelturnsins.
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
Efna (verk) fræðingur
Matvæla (verk)-
fræðingur
Iðntæknistofnun íslands vill ráða tvo sérfræðinga,
annars vegar efnaverkfræðing eða efnafræðing og
hins vegar matvælafræðing eða matvælaverkfræð-
ing, vegna aukinna verkefna fyrir íslensk fyrirtæki í
efna- og matvælaiðnaði.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi störf. Verkefnin
eru m.a. fólgin í vöru- og ferlisþróun, prófunum og
gæðaeftirliti, námskeiðahaldi og ráðgjöf ásamt
hagnýtum langtímarannsóknum á efnum og ferlum.
Leitað er eftir dugmiklum og áhugasömum starfs-
mönnum, sem geta unnið sjálfstætt. Reynsla af störf-
um í iðnfyrirtækjum æskileg.
Umsóknum skal skilað til Iðntæknistofnunar íslands,
Keldnaholti, 112 Reykjavík, fyrir 10. mars nk. á um-
sóknareyðublöðum, sem fást hjá stofnuninni. - Upp-
lýsingar veitir Rögnvaldur S. Gíslason yfirverkfræð-
ingur í síma (91) 68-7000.
Hlutverk Iðntæknistofnunar er að vinna að tækniþróun og
aukinni framleiðni í íslenskum iðnaði með því að veita einstök-
um greinum hans og iðnfyrirtækjum sérhæfða þjónustu á
sviði tækni- og stjórnunarmála, og stuðla að hagkvæmri nýt-
ingu íslenskra auðlinda til iðnaðar.
Svo kaldhæðnislega vill til að
Fellini er eini kvikmyndaleik-
stjórinn sem tapað hefur bóta-
laust máli gegn Berlusconi á þeim
makalausu forsendum að sjón-
varpsáhorfendur þekki orðið svo
vel myndir hans að það komi ekki
að sök þótt þær séu bútaðar niður
og lagaðar að þeim sundurlausa
auglýsingarytma sem sjónvarps-
áhorfendum sé orðinn tamur.
Sósíalistar
taka
Eiffelturninn
Víkjum aftur til Parísar og að
tilraunum sósíalista til að koma
fyrir kapítalísku loftneti á Eiffel-
turni Chirac borgarstjóra. Samn-
ingaviðræður höfðu staðið yfir í
nokkrar dýrmætar vikur við
stjórnarandstöðuforingjann og
hvorki gekk né rak, enda til-
gangur hans einmitt sá að draga
málið svo á langinn að stöðin
kæmist aldrei í gagnið fyrir kosn-
ingar. Fékk þá einn þingmaður
sósíalista þá hugmynd að leggja
breytingartillögu við sjónvarps-
frumvarpið fram fyrir þingið,
sem heimilaði stjórninni afnot af
öllum þökum borgarinnar í yfir
300 metra hæð (!) Tillagan var
síðan lögð fyrir þingmeirihluta
sósíalista síðla kvölds og sam-
þykkt.
Morguninn eftir voru forsíður
hægri pressunnar undirlagðar
fréttinni. „Eiffelturninn, nýjasta
fórnarlamb miskunnarlausrar
þjóðnýtingarstefnu sósíalista“,
var fyrirsögnin í Figaro, og í Fra-
nce Soir mátti lesa að sósíalistar
hefðu „tekið Eiffelturninn um
miðja nótt“. Chirac borgarstjóri
lagði athæfið að jöfnu við sví-
virðilega eignaupptöku og ásak-
aði stjórnina um „hold-up“ sem
er vinsælt orðasamband (úr
bankaræningjamáli) í stjórn-
málabaráttunni íFrakklandi í dag
(borið fram ól:-döbb á frönsku).
Eftir þetta fer málið að ganga
hraðar fyrir sig. Stjórnarandstað-
an kærir frumvarp sósíalista fyrir
stjórnarskrárnefnd sem finnur á
því formgalla og dæmir ógilt.
Stjórnarandstaðan fagnar sigri.
Stjórnin sníður formgallana af og
keyrir nýtt frumvarp í gegn í þing-;
inu. Tæknimenn mæta síðan í
Eiffelturninn næsta dag til að
setja upp loftnet nýju stöðvarinn-
ar, en koma að lokuðum lyftu-
dyrum. Astæða: Það þyrfti að
koma fyrir sérstakri öryggisgrind
á efsta palli turnsins, áður en
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 13
hægt væri að hleypa tækni-
mönnum upp. Sú vinna gæti tekið
nokkrar vikur. Reyndar lægi hún
niðri sem stæði, þar sem vantaði
stykki er þyrfti að panta frá Jap-
an...
Stjórnin átti næsta leik og dag-
inn eftir mættu tæknimenn enn á
ný í turninn, í þetta sinn í lög-
reglufylgd og með tilvísun frá
Franqois Mitterrand á lyftulyki-
linn.
Og nú bíða menn eftir næsta1
leik á þessum endaspretti kosn-
ingabaráttunnar sem gæti t.d. fal-
ist í því að pallskúringakonur í
turninum færu í verkfall svo aftur
yrði að loka turninum.
Á meðan þessu hefur farið
fram hafa þjóðnýtingaröflin síður
en svo setið aðgerðarlaus.
Hvort sem það er til að dreifa
þeirri óþægilegu athygli sem
leyfisveitingin fyrir fyrstu einka-
sjónvarpsstöðinni hefur valdið.
eður ei, þá hafa sjónvarpsleyfin
margfaldast á síðustu dögum.
Önnur einkastöðin er þegar í
burðarliðnum. Það verður mús-
íkstöð með sérstakri skírskotun
til unga fólksins og er sérstaklega
tekið fram að hún verði „100%
frönsk", hvernig sem það má nú
fara saman við tónlistarsmekk
væntanlegra áhorfenda hennar.
Nema átt sé við eigendurna, sem
eru auglýsingafyrirtækið Public-
is, kvikmyndafyrirtækið Gau-
mont, forstjóri Burger King
hamborgarasölunnar og ferða-
skrifstofan Club Mediterranée.
Sú hin þriðja, sem sjá mun
dagsins ljós á næsta ári, verður
hins vegar ómenguð kúltúrstöð
(loksins) og verður sjónvarpað í
gegnum gervihnött. Eða eins og
Frakkar segja sjálfir; „Dans un
monde il faut un tout“, í heimin-
um þarf eitthvað af öllu..., eink-
um ef kosningar eru í nánd.
Fyrri hluti aðalfundar Iðju, félags verksmiðjufólks
verður haldinn á Hótel Esju 2. hæð, þriðjudaginn
25. febrúar 1986 kl. 17.
Dagskrá: , •
1. Skýrsla stjórnar.
2. Lýst stjórnarkjöri.
3. Heimild til verkfallsboðunar.
4. Önnur mál.
Iðjufélagar fjölmennið.
Stjórn Iðju
St. Jósefsspítali, Landakoti
Starfsstúlka/maður
Skóladagheimilið Brekkukot vantar starfsstúlku/mann, sem
fyrst. Upplýsingar veittar í síma 19600-260, alla daga milli kl.
9-16.
Sur larafleysingar
Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og hjúkrunarfræði-
nemar, óskast til sumarafleysinga á allar deildir spítalans.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 19600-220-300.
Reykjavík, 20. febrúar 1986.
PSORIASIS-
SJÚKLINGAR
Ákveðin er ferð fyrir psoriasissjúklinga 16. apríl
n.k. til eyjarinnar Lanzarote, á heilsugæslustöð-
ina Panorama. Peir sem hafa þörf fyrir slíka ferð
snúi sér til húðsjúkdómalækna og fái vottorð hjá
þeim. Sendið það merkt nafni, heimilisfangi,
nafnnúmeri og síma til Tryggingarstofnunar ríkis-
ins, Laugavegi 114, 3. hæð.
Umsóknir verða að berast fyrir 10. mars.
Tryggingastofnun ríkisins.
A
Útideild í
Kópavogi
óskar að ráða tvo starfsmenn í Vz stcðu hvorn.
Starfið er fjölbreytt með sveigjanlegum vinnu-
tíma. Reynsla og/eða menntun tengd unglinga-
starfi æskileg. Umsóknarfrestur er til 3. mars nk.
Upplýsingar eru veittar á Félagsmálastofnun í
síma 41570.
Félagsmálastofnun Kópavogs
Frá Ljósmæðraskóla
íslands
Kennsla hefst í Ljósmæðraskóla íslands mánu-
daginn 1. september 1986. Inntökuskilyrði eru
próf í hjúkrunarfræði. Umsóknir sendist skóla-
stjóra Ljósmæðraskóla íslands, Kvennadeild
Landspítalans fyrir 1. júní nk. ásamt prófskírtein-
um og heilbrigðisvottorði. Umsóknareyðublöð
fást í skólanum.
Nánari upplýsingar eru veittar í skólanum á
mánudögum frá kl. 9.00 -16.00 og fimmtudögum
frá kl. 13.00 - 16.00.
Reykjavík, 19. febrúar 1986.
Skólastjóri