Þjóðviljinn - 11.03.1986, Side 2
______________________________FRÉTTIR________________
Vík í Mýrdal
Tilboði Guðjóns hafnað
Búist við að Kaupfélag Skaftfellinga kaupi Kötlu hf.. Eignir metnar á
13,3 miljónir. Skuldir langt umfram það. Málalokívikunni
að er erfitt á þessu stigi að
fullyrða um hvað við gerum,
en það er Ijóst að annað hvort
BSRB
Atkvæða-
greiðsla hafin
Atkvœði verða
að póstleggjast
fyrir föstudaginn.
Fundarherferð
um allt land
Félagar í BSRB munu í þessari
viku greiða atkvæði um nýgerðan
kjarasamning við ríkið, og er
utankjörstaðakosning reyndar
þegar hafin. Fundir um samning-
ana verða haldnir víða um land í
vikunni.
Fyrirkomulag atkvæðagreiösl-
unnar er það sama og síðast er
kosið var. Hver félagsmaður fær
kjörgögn sem merkt eru honum
persónulega og þau verða síðan
að fara rétta boðleið til yfirkjörst-
jórnar BSRB. Á höfuðborgar-
svæðinu fór kosning fram
fimmtudag og föstudag, en utan
höfuðborgarsvæðisins fá félags-
menn send kjörgögn á vinnustað-
inn. Atkvæði verður að póst-
leggja ekki síðar en á föstudag-
inn, ella teljast þau ógild.
Sem fyrr segir er mikil funda-
herferð í gangi um allt land vegna
samninganna, hófst á laugardag-
inn, en lýkur á föstudaginn. For-
ystumenn í BSRB verða tíðir
gestir á vinnústöðum næstu daga.
-gg
Verktakasambandið
Aukið vega-
framkvæmdir
leggjum við fram kauptilboð í
Kötlu, eða við höldum að okkur
höndum. Þetta: skýrist væntan-
lega í lok vikunnar, sagði Frið-
björn Níelsson kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Skaftfellinga í Vík í
Mýrdal í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Tilboði Guðjóns Kristbergs-
sonar fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Prjónastofunnar Kötlu um
leigu á rekstrinum hefur verið
hafnað. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans gerði hann tilboð
umað greiða 53 þúsund krónur á
mánuði í leigu. Hann gaf skipta-
ráðanda frest fram á fimmtudag í
síðustu viku, en því var ekki
tekið.
Það hefur komið fram, að
eignir Kötlu eru metnar á 13.3
miljónir króna, en skuldir eru
áætlaðar á bilinu 18-20 miljónir,
það liggur þó ekki ljóst fyrir.
Hvorki Sigurmar Albertsson
bússtjóri né Sigurður Hallur Stef-
ánsson skiptaráðandi Kötlu vildu
úttala sig um þetta mál í gær, en
þeir búast við að Kaupfélag
Skaftfellinga geri kauptilboð í
vikunni. Þeir áttu von á að málið
yrði útkljáð í þessari viku.
Sem kunnugt er misstu 35
manns atvinnuna þegar Katla
varð gjaldþrota, en vonir standa
til að starfsemi fyrirtækisins geti
hafist að nýju innan tíðar. Stær-
stu hagsmunaaðilar í þessu sam-
bandi eru kaupfélagið og Mýr-
dalshreppur sem er í ábyrgð fyrir
stórum hluta skuldanna.
Þorvarður Hjaltason.
Kolbrún Guðnadóttir.
Selfoss
Sigríður Ólafsdóttir.
Framboðslistinn ákveðinn
Porvarður Hjaltason í 1. sæti
Framboðslisti Alþýðubanda-
lagsins á Selfossi vegna
byggðakosninganna í vor hefur
verið lagður fram. Níu efstu sæti
listans skipa:
1) Þorvarður Hjaltason kenn-
ari, 2) Kolbrún Guðnadóttir
kennari, 3) Sigríður Ólafsdóttir
formaður Verslunarmannafélags
Árnessýslu, 4) Bryndís Sigurðar-
dóttir húsmóðir, 5) Ottó Valur
Ólafsson nemi, 6) Þorbjörg Þor-
kelsdóttir sjúkraliði, 7) Hreg-
gviður Davíðsson húsasmiður, 8)
Gyða Sveinbjörnsdóttir sjúkra-
liði og í 9. sæti er Gunnar Jónsson
bílstjóri.
- v.
Ráðstefna
Fátækt
á íslandi?
Ráðstefna á vegum Samtaka íslenskra félagsmálastjóra
Á aðalfundi Verktakasam-
bands íslands, sem haldinn var
28. febrúar sl., var samþykkt ál-
yktun þess efnis að skora á
stjórnvöld að auka vegafram-
kvæmdir í ár, þar sem virkjanafr-
amkvæmdir liggja nú að mestu
niðri. Telur fundurinn eðlilegt að
innlendur sparnaður lands-
manna verði notaður til að fjár-
magna þessar framkvæmdir séu
eru einhverjar þær arðvænleg-
ustu sem völ er á í dag.
Á fundinum komu fram miklar
áhyggjur vegna samdráttar sem
fyrirsjáanlegur er í verklegum
framkvæmdum á landinu. Voru
fundarmenn sammála um að sá
samdráttur væri kominn á hættu-
legt stig. - Sáf.
Akureyri
Iðja
samþykkti
Félagsfundur Iðju, félags
verksmiðjufólks á Akureyri,
samþykkti nýgerða kjarasamn-
inga á fundi 9. mars með megin-
þorra atkvæða gegn tveimur. 39
manns mættu á fundinn en félags-
menn eru á áttunda hundrað.
Ennfremur var samþykkt á-
lyktun þarsem skorað er á bæjar-
yfirvöld að lækka útsvarsprósent-
una og til Hitaveitunnar og Raf-
veitunnar um að verða við tilmæl-
um stjórnvalda um lækkun.
- GA.
Samtök íslenskra félagsmála-
stjóra efna til ráðstefnu um mál-
efnið „Fátækt á íslandi?“. að
sögn Braga Guðbrandssonar fé-
lagsmálastjóra í Kópavogi verður
ráðstefnan tvíþætt. Annars vegar
verður haldið námskeið og hins
vegar málþing sem verður í beinu
framhaldi af námskeiðinu.
Tilgangurinn með náms-
keiðinu er að taka til umræðu
framkvæmd fjárhagsaðstoðar og
framfærslumál sveitarfélaga.
„Viðmiðunarreglur sveitarfélaga
við útreikning á fjárþörf fjöl-
skyldna eru mjög mismunandi. Á
námskeiðinu verður leitast við að
samræma þessar reglur en jafn-
frarnt að taka þær til gagnrýnnar
umfjöllunar. Auk þess munum
við á námskeiðinu ræða mismun-
andi tekjujöfnunarleiðir með til-
lit til þess hversu skilvirkar þær
eru. Hvort að þær séu of flóknar
og að hve miklu leyti þeir sem
þurfa á þessari tekjutilfærslu að
halda njóti góðs af“, sagði Bragi.
„Á málþinginu hins vegar“,
sagði Bragi, „verður reynt að
freista þess að skilgreina fátækt.
Málefnið verður skoða út frá fjöl-
mörgum sjónarhornum s.s.
heimspekilegu, sagnfræðilegu og
læknisfræðilegu sjónarhorni“.
Ráðstefnan verður haldin dag-
ana 13.-15. rnars að Borgartúni 6
í Reykjavík.
- K.ÓI.
Er allur Varinn góður?
Landbúnaðarmál
Búnaðar-
þingi slitið
33 mál til meðferðar.
Búnaðarfélagið
aldargamalt á nœsta ári.
Asgeir Bjarnason
að hætta
Búnaðarþingi, sem staðið hef-
ur yfir sl. hálfan mánuð, lauk á
sunnudaginn, með þingslitaræðu
Ásgeirs Bjarnasonar, formanns
Búnaðarfélags íslands. Þingið
hélt 14 fundi og hafði til meðferð-
ar 33 mál. Þrjátíu þeirra voru af-
greidd. Þetta voru nokkru færri
mál en oftast áður en á hinn bóg-
inn flest viðamikil og tímafrek,
svo sem jarðræktar- og búfjár-
ræktarlög, breytingar á félag-
skerfl landbúnaðarins o.fl..
Þetta var síðasta Búnaðarþing-
ið á þessu kjörtímabili. Ásgeir
Bjarnason lýsti því yfir, að hann
mundi ekki gefa kost á sér til á-
framhaldandi þingsetu en hann
hefur nú verið Búnaðarþings-
fulltrúi í 30 ár. Samskonar yfirlýs-
ingu gáfu þeir Hjalti Gestsson,
sem setið hefur 20 Búnaðarþing,
og Teitur Björnsson, sem setið
hefur 24 þing. Er mikill sjónar-
sviptir fyrir þingið af þessum
mönnum öllum.
Búnaðarfélag íslands verður
100 ára á næsta ári. Verður af-
mælisins einkum minnst með
tvennum hætti: Rituð verður
saga félagsins s.l. 50 ár, en áður
hefur saga fyrstu 50 áranna verið
skráð, og efnt verður til landbún-
aðarsýningar, sem væntanlega
verður í hinni nýju reiðhöll, sem
nú er í byggingu.
-mhg
Hljómsveitir
Bensín
skrímslið
skríður
Út er kominn 10 tommu plata
með hljómsveitinni svart/hvítur
draumur er nefnist „Bensín
skrímslið skríður". Hún inniheld-
ur 4 frumsamin lög eftir þá Gunn-
ar Hjálmarsson (söngur, bassi),
Steingrím Birgisson (gítar) og
Hauk Valdimarsson (trommur).
Áætlaður kostnaður við gerð
þessarar plötu er 3 mánaðarlaun
verkamanns eins og Gunnar
Hjálmarsson komst að orði.
Bjuggust þeir við að þeir gerðu
eitt tónlistarmyndband sem birt-
ist á næstunni.
-rg.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 11. mars 1986