Þjóðviljinn - 11.03.1986, Page 8

Þjóðviljinn - 11.03.1986, Page 8
8. MARS Hátt í 300 manns sóttu fundinn en dagskránni var hljóðvarpað um allan Hlaðvarpann. Þrjár konur héldu ræðu á fundinum, þær Birna Þórðardóttir skrifstofumaður, Björk Vilhelmsdóttir nemi og Kristín Ólafsdóttirfélagsfræöingur. íslenskar konur varla matvinnungar Ályktun baráttufundar kvenna í Hlaðvarpanum 8. mars 1986: Nýgerðir kjarasamningar breyta ekki því að íslenskar launakonur þurfa að þræla myrkranna á milli Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars 1986, eftir heilan kvennaáratug, á 10. ári jafnréttislaganna eru íslensk- ar konur varla matvinnungar. Nýgerðir kjarasamningar munu ekki breyta þeirri staö- reynd að íslenskar launakon- ur þurfa að þræla myrkranna á milii til að ná endum saman. Peim fjölgar með degi hverjum sem þurfa að leita eftir fjárhagsaðstoð félags- málastofnana. Uppvaxtarskil- yrði barna fara hríðversnandi og kjör aldraðra eru ekki mönnum bjóðandi. Fundurinn hafnar nýgerð- um kjarasamningum og lýsir vantrausti á þá.verkalýðsfor- ystu, sem samþykkir að launa- fólk greiði sjálft hinar svo- kölluðu kjarabætur. Það er deginum ljósara að það dugir konum skammt að fá sæti í samninganefndum undir stjórn karla. Eina leiðin til að fá réttlátt mat á störf kvenna er að konur taki sjálf- ar forystuna í verkalýðshreyf- ingunni. Konur! Látum ekki karla lengur hafa einkarétt á sannleikanum. Okkar sann- leikur felst enn sem fyrr í þess- um lágmarkskröfufn: - Að dagvinnutekjur dugi til að framfæra fjölskyldu. - Að öll börn eigi kost á heilsdags dagvistun. - Fæðingarorlof í 9 mánuði á fullum launum. - Frjálsar fóstureyðingar og ókeypis getnaðarvarnir. Fundurinn hófst með því að gengið var frá Hljóm- skálanum að Hlaðvarpanum. Hópur úr Kram- húsinu dansar trylltan dans sem kallast „Bónus- dansinn". Meðal annarra skemmti- atriðið atriði úr Rauðhóla Rannsý og nokkur stutt leikin atriði úr lífi vinnukonu. Auk þess fluttu þær Hanna María Karlsdóttirog Mar- grét Ólafsdóttir hluta úr verki eftir Jakobínu Sigurð- ardóttur. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. mars 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.