Þjóðviljinn - 18.04.1986, Blaðsíða 3
FRETTIR
Félagsmálastofnun
Ollum úrbótum hafnað
Tillögurminnihlutans umfjölgun starfsmanna hverfaskrifstofafelldar af meirihlutanum.
Starfsmenn margsinnis farið fram á aukinn mannafla. Ohóflegt vinnuálag.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins felldu tvívegis í gær til-
lögu minnihlutans um að fjölgað
verði starfsmönnum hverfaskrif-
stofa Félagsmálastofnunar.
Starfsmenn skrifstofanna hafa
margsinnis bent á að bráðnauð-
synlegt sé að auka mannafla
vegna fjölgunar þeirra sem þurfa
á fjárhagsaðstoð frá borginni að
halda. Slíkum málum hefur fjölg-
að um 30-40% á síðustu árum.
Guðrún Agústsdóttir borgar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins
lagði tillögu um fjölgun starfs-
manna fyrir félagsmálaráð, en
hún var felld af meirihlutanum á
fundi ráðsins í gær. A borgar-
stjórnarfundi í gærkvöldi flutti
Guðrún Jónsdóttir Kvennafram-
boði samhljóða tillögu, en hún
var einnig felld af meirihlutan-
um.
Það hefur komið í ljós að
vinnuálag á starfsmönnum
hverfaskrifstofanna hefur verið
óhóflegt urn langan tíma. Auka-
vinna er gífurleg á stofnuninni og
í skýrslu sem lögð hefur verið
fram í félagsmálaráði kemur fram
að kostnaður við yfirvinnu starfs-
manna á síðasta ári jafngilti
kostnaði við 7 og hálft stöðugildi.
Starfsmenn hafa kvartað sáran
yfir miklu vinnuálagi.
Ástandinu á hverfaskrifstofun-
um hefur verið líkt við neyðará-
stand, bæði vegna skorts á mann-
afla og vegna fjárskorts sem var
viðvarandi fyrstu rnánuði ársins
og leiddi til mikillar notkunar
beiðna í stað peninga þegar greitt
var úr vanda skjólstæðinga.
-gg
Katla h.f.
Samningar
að takast
Rekstur Kötlu gœti hafist
innan tíðar
Enn hefur orðið dráttur á því
að Byggðastofnun finni aðila til
að taka yfir rekstur Prjónastof-
unnar Kötlu h.f. í Vík í Mýrdal,
en að sögn Stefáns Melsteð hjá
stofnuninni er búist við að saman
gangi innan tíðar.
Byggðastofnun hefur um
nokkurt skeið verið í samningum
við ónafngreindan aðila um að
leigja reksturinn. Ef samningar
nást mun Byggðastofnun leggja
fram kauptilboð í þrotabúið og
rekstur gæti hafist að nýju.
Stefán sagði í gær að hann gæti
ekki upplýst hver það er sem hef-
ur áhuga. Þessi aðili hefur sótt
um afurðalán til Búnaðarbank-
ans í Vík og bendir allt til þess að
það fáist, en dráttur á samningum
hefur orðið m.a.vegna þess að
það hefur ekki fengist afgreitt.
-«8
Frambjóðendur á fullri ferð. Kristín Ólafsdóttir og Össur Skarphéðinsson á skrifstofum Flugleiða í gær. —E.ÓIa-
Byggingavísitalan
Hækkun jafn-
gildir 22.5%
verðbólgu
Hagstofan hefur reiknað vísi-
tölu byggingarkostnaðar eftir
verðlagi í apríl 1986. Reyndist
hún vera 265,32 stig, eða 0,19%
hærri en í mars.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 32,4%. Hækkun vís-
itölunnar um 0,19% á einum
mánuði frá rnars 1986 til apríl
1986 svarar til 2,3% árshækkun-
ar. Undanfarna þrjá ntánuði hef-
ur vísitalan hækkað um 5,2% og
jafngildir sú hækkun 22,5% verð-
bólgu á heilu ári.
Allir launaliðir vísitölunnar
héldust óbreyttir og flestir efnis-
liðir einnig. Örlítil hækkun varð
þó á raflagnaefni, málningarefni
og nokkrum öðrum efnisliðum.
Tekið skal fram, að við upp-
gjör verðbóta á fjárskuldbindingar
samkvæmt samningum þar sent
kveðið er á um, að þær skuli
fylgja vísitölu byggingar-
kostnaðar, gilda hinar lögform-
legu visitölur, sem reiknaðar eru
fjórum sinnum á ári eftir verðlagi
í ntars, júní, september og des-
ember, og taka gildi fyrsta dag
næsta mánaðar. Vísitölur fyrir
aðra mánuði en hina lögboðnu
útreikningsmánuði gilda hins
vegar ekki nerna sérstaklega sé
kveðið á um það í samningum.
Námsstefna
um fjölmiðla
Æskulýðsfylkingin hcldur
námsstcfnu með öðrum ungum
sósíalistum á Norðurlöndum,
(Færeyjum, Danmörku, Noregi
og Svíþjóð) dagana 19. og 20. apr-
íl á Miðgarði, Hverfisgötu 105.
Ath.: Allt er flutt á skandinav-
isku, en hægt er að þýða ef þörf er
á.
Veitingahúsin
Deilan
leystist
Ekkert verður af verkfalli Fé-
lags starfsfólks í veitingahúsum í
dag og á morgun því síðdegis í
gær samþykktu félagsmenn sátt-
atilboð sem sáttasemjari lagði
fyrir deiluaðila í gærmorgun. 153
voru samningum fylgjandi, en 66
voru á móti. Veitingamenn sam-
þykktu einnig.
Sigurður Guðmundsson for-
maður Félags starfsfólks í
veitingahúsum sagði í samtali við
blaðið í gær að samkomulagið
fæli í sér þær kauphækkanir sem
samið var um milli ASÍ og VSÍ,
en launabætur verða talsvert
hærri. Auk þess náðist hluti sér-
krafna félagsins fram. -gg
Radíóamatörar
Félagið 40 ára
Félag íslenskra radíóamatöra
er 40 ára í ár, en það var stofnað
1946. Félagið er aðildarfélag að
IARU, alþjóðasamtökum radíó-
amatöra. I dag, 18. apríl, er al-
þjóðadagur radíóamatöra, en
IARU voru stofnuð á þessum degi
í París 1925.
í fréttatilkynningu frá íslensk-
um radíóamatörum segir, að ra-
díóamatörar geti rætt við félaga
sína víðs vegar um heiminn og
þannig brúað bilið milli
stjórnmálaskoðana, trúar-
bragða, kynþátta, stétta og fjar-
lægða á sérstæðan hátt, sem vart
á sér hliðstæðu á öðrum vett-
vangi. -Sáf
Arnarflug
Tníi (jeim ekki eins vel
Matthías Bjarnason: Sár yfir vinnulagi Flugleiða. Svona
vinnubrögð þykja mér ekki góð
Eg er auðvitað sár yfir þessu
vinnulagi Flugleiða, sagði
Matthías Bjarnason, ráðherra
við Þjóðviljann í gær, í tilefni af
sölu hlutabréfa í Arnarflugi.
„Maður talar við þessa menn í
trúnaði og óskar eftir að þeir taki
ákveðin mál til athugunar. Svo
berast bara fréttir á skotspónum
um að það sé eitthvað að gerast í
málinu og hcldur öðruvísi en upp-
haflega var ætlað. Og þegar ég
spyr þá Flugleiðamenn, þá svarar
forstjórinn því til, að þeir hafí nú
verið að ganga frá málinu fyrir
örfáum mínútum. Svona vinnu-
brögð þykja mér ekki góð.“
- Nú þykir mörgum líklegt að
styttast kunni í að Flugleiðamenn
þurfi að koma bónarveg að
stjórnvöldum, ekki síst með fyrir-
sjáanlega þróun á Atlantshafs-
fluginu í huga. Má gera ráð fyrir
að þetta vinnulag Flugleiða nú
kunni að hafa áhrif á viðbrögð við
mögulegunt óskum um einhvers
konar aðstoð?
„Stjórnvöld verða auðvitað að
vega og meta hvað rétt er og
sanngjarnt hverju sinni. En það
er auðvitað klárt, að maður trúir
þeim ekki eins vel hér eftir,"
sagði Matthías Bjarnason ráð-
herra að lokum.
-ÖS
Dagskrá:
Laugardagur:
Setning: Helgi Hjörvar
1. kl. 10, Þorbjörn Broddason
talar um áhrif fjölmiðla.
2. kl. ll,ÆvarKjartansson,hlut-
leysi fjölmiðla og breyting þeirra.
3. kl. 13. Frá fréttastofu sjón-
varps, Ögmundur Jónasson eða
Guðni Bergsson, alþjóðlegur
fréttaflutningur.
4. kl. 14, Sigurður G. Tómasson,
Ameríkansering.
5. kl. 16, Helgi Guðmundsson,
verkalýðshreyfing og fjölmiðlar.
Sunnudagur:
1. kl. 13. Guðrún Helgadóttir,
Nordsat.
Umræður verða eftir hvern lið
og fruntmælendur svara fyrir-
spurnum.
Á sunnudag verða síðan um-
ræður.
Utanríkismálanefnd.
Málm - og skipasmíðasambandið
Dökkar horfur í atvinnumálum
12. þing Málm- og skipasmíðasambandsins stendur nú yfir. GuðjónJónsson,
formaður: Ástandið íkjara- og atvinnumálum slæmt. Lífeyrissjóðurinn hvattur til
að kaupafyrir 55% af ráðstöfunarfé sínu af byggingarsjóðunum
Atvinnumál og kjaramál verða
ofarlega á baugi á 12. þingi
Málm- og skipasmíðasambands-
ins, scm hófst í gær og lýkur á
morgun, laugardaginn 19. apríl.
Liggur fyrir þinginu ályktun um
atvinnumálin þar sem fjallað er
um ástandið hjá skipasmíða-
stöðvum hér.
Guðjón Jónsson, formaður
Málm- og skiðasmíðasambands-
ins, sagði í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær, að þeim væri þetta
tvennt, þ.e.a.s. atvinnumálin og
kjaramálin mjög hugleikið, enda
séu horfurnar dökkar. Ástandið í
skipasmíðum og viðgerðum er
mjög slæmt þar sem ótrúlega al-
gengt er að skip sigli í viðgerðir
erlendis.
Á þinginu mun Páll Kr. Páls-
son, forstjóri Iðntæknistofnunar,
fjalla um stöðu málmiðnaðarins
hér á landi og Ari Skúlason,
starfsmaður Kjararannsóknar-
nefndar heldur erindi um viðhorf
í kjaramálum.
Á þinginu eru málefni lífeyris-
sjóðsins einnig til umræðu og í
gær var samþykkt ályktun til
stjórnar hans, að hann keypti
fyrir 55% af ráðstöfunarfé sínu af
byggingarsjóðum ríkisins, svo
sjóðsmeðlimir nytu fullra rétt-
inda við lántökur hjá Húsnæðis-
stofnun.
Þingið sækja 103 fulltrúar, en
110 eiga rétt á setu, og sagði
Guðjón að það sýndi að mikill
áhugi væri nteðal félagsmanna á
málefnum sambandsins.
-Sáf
Guðjón Jónsson
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3