Þjóðviljinn - 18.04.1986, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.04.1986, Blaðsíða 7
Umsjón: Sigríður Arnardóttir MðÐWUINM Sumarvinnan Klíkuskapur rædur mestu Um þessar mundir tala unglingar mikið um sumarvinnuna. Prófm að nálgast og svo tekur sumarvinnan við. Margir eru þegar búnir að útvega sér vinnu en aðrir ekki byrjaðir að leita. Undanfarin sumur hefur líka alltaf verið einhver hópur sem ekki fær vinnu fyrr en langt er liðið á sumarið. Glætan forvitnaðist um þessi mál hjá nokkrum fyrirtækjum og stofnunum og hjá krökkum í Hólabrekkuskóla og FjölbrautíBreiðholti. Nær allir viðmælendur Glætunnar töldu að klíkuskapur réði mestu um hvaða starf maður fær og einnig sögðu margir að miklu erfiðara væri að fá vinnu þegar krakkar eru ekki orðnir 16 ára. Þó sögðu sumir að til væru atvinnurekcndur sem vildu heldur ráða til sín krakka undir 16 ára aldri því hægt er að borga þeim minna kaup og þau hafa minni réttindi. Glætan reyndi að fiska upp úr krökkum hvaða störfværu eftirsóknarverðust og út úr því kom að flestir töldu að mestu máli skiptir að fá gott kaup en svo var líka mikið í tísku hjá stelpum að komast í fataverslun. Að sögn flestra er bæjarvinnan ekki mjög eftirsóknarverð því kaupið þar er ekki mjög hátt. En hvað segja atvinnurek I endur og krakkarnir sjálfir? Við gefum þeim orðið. Helgi Ingvarsson 16 aö (veröa 17) ■ Fjölbraut í Breiöholti. Nei, ég er ekki búinn að fá vinnu. Ættingjar mínir eru að athuga fyrir mig. Þetta er allt klíkuskapur. í fyrra var ég í tvo mánuði í kaupa- vinnu í sveit og svo í bæjarvinn- unni. Það var hvorttveggja ágætt. En mig langar samt að gera eitthvað annað í sumar. Þaö er skítakaup sem maður fær borgað fyrir sveitastörf en mér finnst sanngjarnt að maður fái í kring- um 120-130 kr. á tímann. Ætlaröu i unglingavinnuna? Vinnuskólinn byrjar 1. júní Hjá vinnuskólanum fengum við þær upplýsingar að ekki verð- ur byrjað að auglýsa eftir krökkum til stafa fyrr en um mán- aðamótin apríl-maí. Vinnuskól- inn er fyrir krakka á aldrinum 14- 15 ára. Unnið er við allskyns garðrækt og hreinsun á borginni. Vinnuskólinn byrjar 1. júní. Bændur vilja stráka Hjá Búnaðarfélaginu var Glætunni tjáð að mjög vinsælt er að komast í sveit og miklu færri komast að en vilja. Bæði strákar og stelpur sækjast eftir því að komast í sveit allt frá 12 ára aldri og upp í svona 16 ára. Bændur sækjast helst eftir strákum á aldr- inum 14, 15 og eldri. En þeir sækjast eftir stelpum á aldrinum 12-14 ára til að gæta barna. Launin eru þannig að 12 ára eru taldir matvinnungar, kaup 13 ára krakka er ekki enn endanlega ákveðið en laun 14 ára eru 10.820 krónur á mánuði. 15 ára fá 14.208 á mánuði en 16 ára og eldri fá 18.667 krónur á mánuði. Innifal- ið í þessu er svo fæði, húsnæði og þjónusta. 1. júní hækka þessar tölur um 2%. Ástæðan fyrir því að bændur vilja helst stráka sem eru eldri en 14 ára er sú að það er bannað að láta krakka yngri en 14 ára vinna á vélum. Það sem krakkarnir gera yfirleitt eru almenn land- búnaðarstörf og snúningar. Byrjað er að skrifa niður um- sækjendur um mánaðamótin apríl-maí. Þeir sem hringja fyrst hafa mesta möguleika á að fá starf í sveit. Bóndi sem óskar eftir að ráða ungling fær gefin upp 2-3 nöfn til að velja úr. Hann getur þá hringt í þessa krakka og samið við þau, athugar hvort þeim líki staðurinn o.s.frv. Miðað er við að unglingar geti verið allt sumarið í sveit. Stelpur fara í bankana Glætan athugaði hjá Lands- bankanum hvort unglingar eru ráðnir í sumarafleysingar þar. í ljós kom að mjög vinsælt er að vinna í banka því mjög margir sækja um, sérstaklega stelpur. Rúmlega 100 manns eru á hverju sumri ráðnir í afleysingar en ekki er ráðið fólk sem er yngra en 17 ára. Þeir sem fá einu sinni vinnu eru ráðnir aftur og aftur og því er lítið bætt við. Launin eru í kring- um 20 þúsund. Það er nú þegar of seint að sækja um því búið er að ráða í allar stöður. Glætan forvitnaðist um það eftir hverju væri farið þegar unglingar eru ráðnir í af- Eöa, á að skella sér í sveit? leysingastörf. Ráðningarstjóri tjáði Glætunni að farið væri m.a. eftir því hvernig fólk kemur fyrir í viðtölum þegar það sækir um. „Kikk“ í tískubúðum Það er mjög eftirsóknarvert að vinna í fatabúð ef marka má hve margir sækja um. T.d. var Glæt- unni tjáð í versluninni Kjallarinn að það væri alltaf að hringja fólk á „gelgjualdri“ sem endilega vill vinna í fatabúð. „Þetta þykir voða kikk að vinna í fatabúð," sagði starfsmaður í Kjallaranum. Jafnframt var Glætunni tjáð að ekki fleiri verði ráðnir til starfa þar í sumar. SÍS miðar við 16 ár Ráðningastjóri Sambandsins sagði í samtali við blaðið að það væri ekki mikið um sumarráðn- ingar á vegum Sambandsins en alltaf þó eitthvað. Það er helst ráðið í skrifstofustörf, lagerstörf, afgreiðslustörf og sendilsstörf. Á hverju ári sækir „slatti" af ung- lingum um störf en þó minna nú en áður. Yfirleitt er miðað við 16 ára aldurstakmark en getur þó farið neðar t.d. í sendilsstörfin. Líklega er búið að fylla allar lausar stöður fyrir sumarið. Óttast atvinnuleysi Atvinnumiðlun stúdenta hefur undanfarin sumur útvegað stór- um hópi ungs fólks sumarstörf. En atvinnumiðlun stúdenta opn- ar 1. maí. Hjá Hagvangi fengum við þær upplýsingar að mjög líklegt er að atvinnuleysi unglinga verði meira í sumar en undanfarin ár, því miklu stærri hópur hefur nú þeg- ar leitað til Hagvangs um störf en áður, en aftur á móti eru færri störf í boði en áður. „Ekki er mikið um það að ungir krakkar leyti til ráðningastofa heldur fara þau sem töggur er í sjálf í fyrir- tækin. Krakkar gera allt sem þau geta sjálf til að útvega sér vinnu,“ sagði starfsmaður Hagvangs. Þá er bara að hvetja unglinga til að fara strax af stað í atvinnu- leit fyrir sumarið, og gangi ykkur vel. Glætan

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.