Þjóðviljinn - 18.04.1986, Blaðsíða 8
GLÆTAN
Jóhanna Vilhjálmsdóttir
nemandi í 9. bekk í Hóla-
brekkuskóla.
Nei, ég er ekki búin að fá vinnu
en ég fæ örugglega einhverja.
Undanfarin sumur hef ég unnið i
sjoppu, fataverslun og unglinga-
vinnunni. Það var langskemmti-
legast að vinna í fataverslun því
þar var maður að starfa við það
sem ég hef áhuga á. Svo hef ég
líka unnið við að skúra en það
fannst mér mjög erfitt. Það eru
margir alveg á móti því að vinna í
unglingavinnunni en mér fannst
það mjög gaman. Það var svo
gaman að vera úti og vinna með
mörgum skemmtilegum krökk-
um. Kaupið var að vísu lélegt en
kaupið er bara ekki það eina sem
skiptir máli og svo er betra að fá
eitthvert kaup heldur en að vera
atvinnulaus og fá ekkert. Mér
finnst 120 kr. á tímann vera sann-
gjarnt kaup fyrir unglinga.
Ljósm. Sig.
Guöný Pétursdóttir 19 ára í
Fjölbraut í Breiöholti.
Já ég er búin að fá vinnu. Ég er
á Heilsugæslubraut hér í Fjöl-
braut og því fer ég að vinna á
Borgarspítalanum sem sjúkra-
liðanemi. Ég efast um að ég fái
gott kaup, er ekki borgað svo illa
á spítölunum að þetta er eins og
sjálfboðavinna? Mér finnst alveg
nauðsynlegt að maður fái alla-
vega yfir 20 þúsund á mánuði ef
eitthvað á að verða úr peningun-
um. Gott kaup skiptir miklu máli
en líka að það sé góður mórall á
vinnustaðnum. Ég held að það
sé ekkert mál að fá vinnu á
sumrin ef maður byrjar bara nógu
snemma að leita, svona upp úr
jólum. Maður þarf bara að leggja
sig fram og þá er þetta ekkert
mál. Það er að vísu erfiðara að fá
vinnu ef maður er ekki orðinn 16
ára. Ljósm. Sig.
Gyöa Eyjólfsdóttir 15 ára í
9. bekk Hólabrekkuskóla.
Já, ég er búin að fá vinnu. Ég
verð að afgreiða í sjoppunni
Nesti. Ég fékk starfið í gegnum
mömmu. Það fá flestir starf í
gegnum klíku. Þeir unglingar
sem eiga enga ættingja, sem eru
í aðstöðu til að útvega þeim
vinnu, fara flestir í fyrirtæki og
sækja sjálfir um starf. í fyrra var
ég í bæjarvinnunni og þar var
hræðilega lélegt kaup. En í Nesti
fæ ég líklega í kringum 21 þús-
und á mánuði. Ég vinn 6 daga í
viku á vöktum. Flestir sem ég
þekki taka það starf sem býður
upp á gott kaup. Ég fékk vinnuna
strax í febrúar en sumir bíða ró-
legir fram í maí með að útvega
sér vinnu.
Siguröur Sighvatsson 15
ára nemandi í 8. bekk Hóla-
brekkuskóla.
Nei, ég er ekki búinn að fá
endanlegt loforð um vinnu í sum-
ar. Pabbi er að reyna að útvega
mér vinnu við að búa til harðfisk í
Kópavoginum. Þar fæ ég ábyggi-
lega mjög gott kaup. 3 síðastliðin
sumur vann ég við að þurrka
þorskhausa. Flestir fá vinnu í
gegnum foreldrana, en ef það
tekst ekki held ég að margir reyni
að komast í sveit eða fara í
bæjarvinnuna.
Örn Arnarson 15 ára í 9.
bekk í Hólabrekkuskóla.
Já, ég fæ vinnu hjá pabba. Ég
á að vinna við ýmislegt t.d. að
grafa fyrir hitaveitu o.fl. Ég hef
ekki unnið við þetta áður. I fyrra
var ég í bæjarvinnunni, það var
leiðinlegt. Ég veit ekki hvað ég fæ
í kaup í sumar en 120 á tímann
væri ágætt. Flestir sem ég þekki
fá vinnu í gegnum foreldrana.
Berglind Raf nsdóttir 15
ára í 9. bekk í Hólabrekku-
skóla.
Nei, eða svona kannski. Það
getur verið að ég fái vinnu við að
vaska upp á Lækjarbrekku. Ég
hef gert það áður og það var
ágætt kaup. Ef ég fæ þetta starf
ætla ég að labba í ýmis fyrirtæki
og athuga hvort þaö vantar ekki
starfsfólk. Ég held að flestir fari í
þá vinnu sem er vel borguð, það
skiptir mestu máli. Mér finnst 120
kr. á tímann vera nokkuð gott
kaup fyrir unglinga en það fer
náttúrlega eftir því við hvað mað-
ur vinnur. Unglingavinnan er illa
borguð en það er þó betra að fara
í unglingavinnuna en fá enga
vinnu.
/
Kjartan Guöbergsson 19
ára í Fjölbraut í Breiöholti.
Já, ég verð að vinna í Klúbbn-
um. Ég hef verið plötusnúður þar
í vetur og verð það áfram í sumar.
Svo verö ég líka að vinna við að
innrétta Klúbbinn upp á nýtt, það
á að breyta staðnum í sumar.
Það fá flestir vinnu út á það að
maður þekki mann. Þetta er tóm
klíka. Þeir sem eru ekki í neinni
klíku neyðast til að fara i fisk út á
land. Það er í sjálfu sér ekki svo
hræðilegt nema að því leyti að þá
getur maður ekkert sinnt áhug-
amálunum í bænum. Mér finnst
að kaup fyrir fólk á mínum aldri
eigi ekki að fara undir 30 þús. á
mánuði. Maður getur ekki lifað af
minna en 30 þúsund. Annars fer
það mikið eftir því við hvað maður
er að vinna. Draumavinnan mín
er þannig að það er mikið kaup,
lítil vinna og mikið frí.
Vinsældalistar Þjóðviljans
FellaheHir 1. (5) Move away- Culture Club 2. (3) Kiss - Prince 3. (6) Litle girl- Sandra 4. (2) La-Lif- Smartband 5. (-) Living doll- Cliff Richards 6. (-) Love comes quickly- Petshop Boys 7. (-) 1 won’t steal away- Time Bandits 8. (-) Touch me (1 wantyour body)- Samantha Fox 9. (~) Kyrie- Mr. Mister 10.(-) Different Corner- George Michael Grammió 1. ( -) Parade- Prince and the Revolution 2. ( -) Straight aid bushwaker- Wooden Tops 3. ( -) Meet is murder- Smiths 4. ( 1) Dirty work- Rolling Stones 5. ( -) Techö Primitive - Chris and Cosey 6. ( 2) Echoes in a shallow bay- Cocteau Twins 7. ( -) lllustrated musical encyclopedia- Ryuichi Sakamoto 8. ( -) Hatefull of hollow-Smúhs 9. (10) Waiting for the floods- The Armory Show 10.( 4) Secret wish- Propaganda Rás 2 1. ( 1) La-líf- Smartband 2. ( 3) Little girl-Sandra 3. ( 2) Waiting for the morning- Bobbysocks 4. ( 4) Absolute beginners - David Bowie 5. ( 7) Move away- Culture Club 6. ( 8) The Kiss - Prince 7. ( -) A Different corner- George Michael 8. (17) Goodbye is forever- Arcadia 9. (21) Önnur sjónarmið- Edda Heiðrún Bachman 10.( 5) Gaggó-Vest (í minningunni) - Eiríkur Hauksson, Gunnar Þórðarson o.fl.
8 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 18. apríl 1986