Þjóðviljinn - 18.04.1986, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 18.04.1986, Blaðsíða 9
HEIMURINN Líbya Bandaríkjamenn Strasborg — Evrópuráöið sam- þykkti í gær að fordæma harkalega sprengjuárásir Bandaríkjamanna á Líbýu sem „smánarlegt brot á alþjóða- lögurn". Samþykkt var ályktun þar sem segir að alþjóðlegu öryggi og friði stafi hætta af árásunum. Á fundi utanríkisráðherra EBE var mælt á móti frekari hernaði og lögð áhersla á að endir yrði bundinn á það hættuástand sem nú ríkir. Varast var að taka afstöðu sem væri andstæð Bandaríkjunum á þann hátt að hún gerði sambúð- ina erfiðari en hún er nú. Sovéski utanríkisráherrann, Shevardnadze, sendi aðalritara Sameinuðu Þjóðanna, Javier Perez De Cuellar, bréf þar sem hann fór fram á neyðarráðstafan- ir til að stöðva það sem hann nefndi frekari árásaraðgerðir Bandaríkjamanna, í ljósi loftá- rásanna á Líbýu. Yfirvöld í Moskvu ásökuðu einnig Banda- ríkjamenn um lygar varðandi þá atburði sem leiddu til sprengjuá- rásanna. Bandaríkjamenn sögðu hins vegar í gær að þeir teldu árásirnar hafa verið nær gallalausar hern- aðaraðgerðir unnar við erfiðar aðstæður, flugmenn sprengju- flugvélanna ættu lof skilið fyrir vel unnið verk við erfiðar aðstæð- ur. Bandaríska varnarmálaráðu- neytið birti loftmyndir sem sýndu verksummerki við sprengingarn- ar. Pær voru teknar um leið og sprengjuárásirnar fóru fram. Sýndar voru myndir af eyði- lögðum hernaðarmannvirkjum, m.a. búðum Gaddafis sjálfs. Engar myndir voru birtar sem sýndu sprengingar í íbúðahverf- um. í gær voru yfirvöld á Italíu og í Austurríki að íhuga brottflutning ítala og Austurríkismanna í Lí- býu. í gærkvöldi var von á sendi- manni Gaddafis til Aþenu til við- ræðna við grísk stjórnvöld. Ekki var ljóst hvert umræðuefnið átti að vera. Gaddafi hefur undanfar- ið gefið í skyn að hann vilji eins konar vopnahlé á Miðjarðar- hafssvæðinu og er ekki talið ólík- legt að sendimaður Gaddafis í Aþenu hafi átt að ræða það mál við grísk stjórnvöld. Sovétmenn svöruðu í gær á- sökunum Bandaríkjanna um að sovésk yfirvöld hefðu neitað að taka þátt í að forða hryðjuverk- um, Bandaríkjamenn hefðu e.t.v. getað komist hjá sprengju- árásum á Líbýu ef Sovétmenn hefðu brugðist jákvætt við beiðni þeirra. „Slík yfirlýsing er kald- ranaleg lygi,“ svaraði talsmaður Sovétríkjanna. Hann staðfesti að Bandaríkjamenn hefðu haft sam- band við Sovétstjórnina hinn 27. mars vegna grunsemda um ný hryðjuverk Líbýumanna. Hann sagði að Bandaríkjamönnum hefði verið tilkynnt að Sovét- menn væru á móti öllum hryðju- verkum en þeir vildu ekki láta draga sig inn í áróðursherferð gegn Líbýumönnum. Þúsundir Spánverja fóru í gær í mótmælagöngu um miðborg Ma- drid til að mótmæla loftárásum Bandaríkjamanna. Pá mótmæltu mörg hundruð manns fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna í Lissa- bop. í Kaíró tóku 100 lögfræðing- Bretlana Skæruhemaður qegn Frá ívari Jónssyni, fréttaritara Þjóðviljans í Bretlandi: Scotland Yard, breska lögregl- an, handtók konu á Heathrow flug. vellii í gaer og gerði upptæk 27 kg af sprengiefni sem hún hafði í far- angri sínum. Konan var skráð sem farþegi ísraelska flugfélags- ins El Al. Hún hafði arabískt vegabréf, að sögn lögreglunnar. Tveir Bretar og Iri, að því er talið er, voru teknir af lífi í Líban- on í gær. Á miða sem var festur við líkin, var sagt að mennirnir hefðu verið njósnarar CIA og bresku leyniþjónustunnar. Mið- inn var undirritaður af samtökun- um Arab Commando Cell. Jafn- framt var breskum fréttamanni rænt í gær þegar hjann var á leið til flugvallarins í Beirút og flugskeytum var skotið að sendi- ráði Breta í borginni. Þessir atburðir eru taldir fyrstu merki um hefndaraðgerðir arab- ískra skæruliða gegn Bretum fyrir þátttöku þeirra í loftárásum Bandaríkjamanna á Líbýu. í Gallup skoðanakönnun sem Daily Telegraph birti í gær og var gerð á þriðjudag, kemur fram að 69% Breta eru andvígir þátttöku þeirra í loftárásinni en 27% sam- mála. 65% spurðra voru andvígir loftárásum Bandaríkjamanna en 29% sammála. Daily Telegraph birti einnig í gær skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaflokkanna í Bretlandi. Þar kemur fram að íhaldsflokk- urinn heldur áfram að tapa fylgi, hann hefur nú aðeins 28%. Verkamannaflokkurinn er í sókn með 38,5% fylgi og bandalag Frjálslynda flokksins og Sósíal- demókrata hefur 31,5 % fylgi og hefur tapað 3 % síðan í mars. { gær birtu fjölmiðlar upplýs- Vínhneykslið Tveir ákærðir um morð Tveir ítalskir feðgar sem nú eru grunaðir um að hafa eitrað vín, hafa verið ákærðir um morð, voru áður ákœrðir um manndráp Mílanó — Tveir ítalir sem grun- hanól í vín hafa nú verið fram í tilkynningu saksóknar- aðir eru um að hafa sett met- ákærðir um morð. Þetta kom ans j málinu. ítalskt vín sett í ræsið í V-Þýskalandi. Nú er staðfest að 20 manns hafi látist vegna eitrunar í víni. í fyrri- nótt var framkvæmd krufning á karlmanni sem dó í Monza sem sýndi að hann hafði dáið úr met- hanóleitrun. Talan gæti enn átt eftir að hækka þar sem beðið er eftir niðurstöðum úr fleiri krufn- ingum. Italskur ríkissaksóknari sagði fréttamanni Reuters í gær að hann hefði breytt ákærum á hendur þeini Giovanni og Dani- ele Ciravegna. Þeir höfðu verið ákærðir um manndráp en eru nú ákærðir um morð. Reuter frétta- stofan hefur eftir heimildar- mönnum í ítalska dómskerfinu að mennirnir tveir, faðir og sonur sem eru vínsalar frá Narzole, sunnan við Tórínó, séu sakaðir um að hafa af ásettu ráði sett hættulega mikið magn af metha- nóli í vín í lágum gæðaflokki, til þess að gera það sterkara. Sjö aðrir menn eru nú í varð- haldi vegna þessa methanól vín- hneykslis, þeir hafa verið ákærðir um manndráp. Saksóknari segir að þeir hafi dreift eitruðu víni en hefur ekki sönnun fyrir því að þeir hafi vitað af því. fordæmdir Gaddafi ásamt konu sinni og þremur sonum. Hvað gerir hann eftir að hafa misst eina fósturdóttur? ar sem þar voru á fundi, sig til og brenndu fána Bandaríkjanna, Bretlands og ísraels til að mót- mæla loftárásum Bandaríkja- manna, stuðningi Breta við þær og hersetu ísraelsmanna á arab- ísku landi. Bretum ingar um atvinnuleysi frá at- vinnumálaráðuneytinu. Sam- kvæmt þeim hefur öfgastjórn Thatchers slegið enn eitt atvinnu- leysismetið. Atvinnuleysi í mars jókst um 12.900 og eru nú 3.323.476 manns atvinnulausir. Ef atvinnuleysið er framreiknað miðað við árstíðabundnar hag- stærðir, sem er talinn besti mæl- ikvarðinn á atvinnuleysið, er atvinnuleysi talið hafa aukist um 37.000 í mars. Talið er að þessar tölur sýni að langtíma atvinnuleysisaukning sé farin af af stað að nýju. Þess ber að geta að vegna breytinga á skráningu atvinnuleysis sem stjórnin hefur staðið fyrir til að lækka opinberar tölur, eru 600.000 atvinnuleysingja sem eru í sérstakri starsfþjálfun, ekki taldir með. ERLENDAR fRÉTTIR hjörleVfsson/ R E UT E R Nicaragua Mótmælaqönaur s Ibúar mótmœla loftárásum Bandaríkjamanna á Líbýu og umrœðum í bandaríska þinginu um aðstoð við Contra hryðjuverkamenn í Nicaragua Managua — Tugir þúsunda íbúa í Nicaragua fóru út á götur í fyrradag í mótmælagöngur til að mótmæla loftárásum Bandaríkjamanna á Líbýu og áætlunum Reagans um að veita Contra hryðjuverka- mönnum í Nicaragua 100 milljóna dollara aðstoð. Árás Bandaríkjamanna var fordæmd og hétu mótmælendur því að standast allan þrýsting Bandaríkjamanna og jafnvel beina íhlutun. I Managuasöfnuð- ust 10.000 manns saman á Óliáða torginu svonefnda, hrópandi byltingarslagorö og veifandi spjöldum. „Deilan á bandaríska þinginu er eins og samræða tveggja pyndingameistara um hvort rífa skuli burt nöglina eða kremja fingurinn," sagði Carlos Carrion Cruz, fulltrúi forseta landsins á fundinum. „Eina skiptið sem viö beygjum okkur fyrir Kananum, verður til að miða á hann,“ hrópaði þá einn fundarmanna til baka. Stjörn ustríðsáœtlun in Leyndarmal eða ekki Stjórnin í V-Þýskalandi segir samkomulag hennar við bandarísk yfirvöld um þátttöku í Stjörnustríðsáœtluninni ekki vera leyndarmál en neitar að birta það Bonn — Vestur-þýska stjórnin neitaði í gær að hún hefði gert leynisamkomulag við Banda- ríkin um hina svonefndu Stjörnustríðsáætlun. Stjórnin neitaði hins vegar kröfu stjórn- arandstöðunnar um að samkomuiagið yrði birt. Efnahagsmálaráðherra V- Þýskalands, Martin Bangenrann, neitaði því að þeir tveir samning- ar sem hann undirritaði þann 25. mars um hlutverk V-Þjóðverja í Stjörnustríðsáætlun Reagans, væru leynilegir. Vestur-þýskir jafnaðarmenn gerðu grín að því að svo virtist sem samningarnir væru ekki leynilegir en sarnt svo leynilegir, að enginn mætti líta á þá. Þá sögðu þeir fáránlegt að einkafyrirtæki sem hefðu áhuga á að taka þátt í þessari áætlun fengju enga vitneskju um þessa samninga. V-þýska stjórnin á- kvað að ekkert fjármagn færi í þessa áætlun úr vasa almennings, aðeins var um að ræða samþykki um að einkafyrirtæki i v-þýskum iðnaði mættu taka þátt í áætlun- unum. Breska stjórnin ætlar hins vegar að leggja leggja fram fé úr ríkissjóði. Stjórnin í Washington hefur boðið ríkjum í Atlantshafsbanda- laginu að taka þátt í „Stjörnu- stríðsáætlunum" sínum og þar að auki Japan og ísrael. Föstudagur 18. april 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.