Þjóðviljinn - 29.04.1986, Síða 2

Þjóðviljinn - 29.04.1986, Síða 2
Samband byggingamanna Stormasamt þing Gagnrýnin umrœða um kjaramál. Kröfugerð: Verðtryggð laun, hœrri kaupmáttur, niðurfelling eftirvinnu. Siðferðisleg skylda hreyfingarinnar að beita sér af hörku fyrir úrbótum. Beitum verkfallsvopninu efekki er annarra kosta völ. landsþingi Sambands ■ byggingamanna lauk á Akureyri sl. laugardag. Um 70 fulltrúar sátu þingið, en alls eru í sambandinu 19 aðildarfélög. Þetta er í annað sinn sem þing SBM er haldið utan Reykjavíkur. Fyrir fjórum árum var það haldið í Munaðarnesi. Þótti því ýmsum sem þarna ætti sér stað merk tímamót í sögu sambandsins. Að þingsetningu lokinni af- hentu húsgagnasmiðir í Reykja- vík Benedikt Davíðssyni og Grét- ari Þorleifssyni blómvönd. í ávarpi sem Kristbjörn Arnason flutti við það tækifæri, þakkaði hann þeim m.a. fyrir vel unnin störf og að hafa átt sinn þátt í að bjarga ríkisstjórninni frá falli. Væri vel við hæfi að færa þeim blómvönd, því nú væri stefnt að því að heyja verkalýðsbaráttuna með búkkettum. „Þetta var eitthvert storma- samasta þing sem ég hef setið og hef ég þó sótt sambandsþing byggingamanna mörg undanfarin ár,“ sagði einn viðmælanda blaðsins, þegar hann var spurður um gang mála. „Verkalýðshreyf- ingin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir gerð síðustu kjara- samninga og einnig hafa menn haft mjög ákveðnar skoðanir um þau tvö megin mál ráðstefnunn- ar, sem voru kjaramál og menntunarmál félagsmanna.“ Þorbjörn Guðmundsson vara- formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur var beðinn að gera í stuttu máli grein fyrir því helsta sem fram hefði farið á þinginu hvað varðaði menntunarmál. Hann benti á að í erindi sem Hall- dór Grönvold hafði haldið á þing- inu og vakti mikla athygli. kom fram að þörf væri á umbyltingu í núverandi iðnfræðslukerfi iðn- verkafólks. I framtíðinni ætti fræðslukerfi iðnverkafólks að byggjast upp á áfangakerfi, sem fæli í sér að menn gætu Iært einn afmarkaðan þátt í iöninni, tré- smiðir lærðu til að mynda einung- is uppslátt og síðan gætu menn safnað punktum og þannig öðlast sveinsréttindi. Annað sjónarmið sagði Þor- björn hefði verið uppi um þessi mál, sem byggðist í stórum drátt- um á núverandi fyrirkomulagi. Þó væri þar gert ráð fyrir að allir þeir sem á námssamning færu tækju eins árs grunnnám í verk- menntaskóla. Allir voru sam- mála um að endurskoða þyrfti verkmenntunina, þótt ekki væri uppi einn rómur í þeim efnum. Sem dæmi um hve úreltar reglur giltu sumsstaðar var nefnd náms- Tónleikar Ljóð í Norræna í kvöld klukkan 20.30 verða ljóðatónleikar í Norræna húsinu og syngur þar sænska söngkonan Marianne Eklöf við undirleik Stefans Bojstens. Á efnisskrá eru 9 söngvar eftir Þorkel Sigur- björnsson við ljóð eftir Jón úr Vör, söngvar eftir Wilhelm Sten- hammar, Wilhelm Peterson- Berger, Xavier Monsalvatge og þrjú vorljóð eftir Miklos Maros við japönsk ljóð. Stefan Bojsten leikur verk eftir F. Chopin á pí- anó. skrá fyrir bólstrun. Hún er frá því árið 1942. Verðtryggð laun í kjaramálaályktun, sem sam- þykkt var á þingi SBM komu m.a. fram mikil vonbrigði með hvað nýgerður kjarasamningur væri lítill áfangi að meðal kaup- mætti ársins 1983, eins og kröfur SBM stefndu að. Að sögn þeirra Grétars Þorsteinssonar formanns Trésmiðafélags Reykjavíkur og Grétars Þorleifssonar formanns Fél. byggingamanna í Hafnar- firði, fór fram mjög gagnrýnin umræða um kjaramál. I kröfu- gerð SBM væri lögð megin áhersla á fimm þætti, en þeir eru: Verðtrygging launa, kaupmáttur sem ekki yrði lakari en að með- altali 1983, niðurfelling eftir- vinnu, tryggja innheimtu sjóða félagsmanna, róttækar úrbætur í húsnæðismálum. I kjaramálaá- lyktun SBM, segir síðan m.a.: „í samningnum er gert ráð fyrir Iaunakönnun, sem gerð verði í samráði við kjararannsókna- nefnd og niðurstöður hennar verði grundvöllur að röðun í nýtt launakerfi í samráði við verka- lýðsfélögin. Þingið leggur áherslu á að allar ákvarðanir sem varða úrvinnslu og röðun í launaflokka, verði í höndum félaganna sjálfra, enda er það skoðun þingsins að rangt sé að auka á miðstýringu við gerð kjarasamninga og taka frumkvæði við samningsgerðina úr höndum félaganna, eins og til- hneiging hefur verið til. Þingið telur rétt að gerð sé tilraun til niöurfærslu verðlags í trausti þess að stjórnvöld axli þá ábyrgð, sem samningurinn gerir ráð fyrir, og að vanda ríkissjóðs verði ekki velt á undan sér með miklum hækkunum í byrjun næsta árs. Þingið telur að verslunin og ýms- ar aðrar greinar atvinnulífsins geti og eigi að axla hluta af niður- færslunni. Verkalýðshreyfing taki sig á í húsnæðismálum er stigið stórt og mikilvægt skref, segir enn- frernur í ályktuninni. Þingið lýsir eindregnum stuðningi við þær leiðir sem farnar eru og hvetur til að hvergi verði hvikað í þeim efn- um, svo sem í vaxta- og skatta- málum. Eitt megin markmið í efnahagsstefnu núverandi ríkis- stjórnar var að skerða afkomu launafólks um 25%-30%. Þessu markmiði hefur hún náð án veru- legra átaka við verkalýðsh- reyfinguna. Lífskjör almennings á íslandi eru því mun lakari en þau hafa verið í áratugi. Ójöfnu- ður hefur stórlega aukist og s'á hópur, sem ekki getur framfleytt sér af launum sínum fer stækk- andi, en á sama tíma hafa pen- ingamenn rakað að sér fjármun- um í stórum stíl. Stefna VSÍ er m.a. að hafa frjálsar hendur við yfirborganir en halda kauptöxtum lágum, með það fyrir augum að brjóta niður verkaiýðshreyfinguna og eyðileggja félagslega ávinninga sem þegar hafa náðst. Það hefur valdið gremju almennings hvað ýmis félög sem hafa sterka samn- ingsaðstöðu hafa verið deig og ófústil baráttu. Verkalýðsfélögin verða að taka sig á og heyja raun- hæfa baráttu fyrir því að fólk geti lifað á umsömdum dagvinnu- launum. Að undanförnu hefur fátækt verið mjög til umræðu enda er það viðurkennd stað- reynd að fimmti hver íslendingur býr við fátækt. Þingið leggur áherslu á að fátækt sé ekki hag- fræðilegt reikningsdæmi, heldur er hér verið að fjalla um lifandi fólk og hamingju þess. Það er sið- ferðileg skylda verkalýðshreyf- ingarinnar að beita sér af hörku fyrir tafarlausum úrbótum. Forystan fylgi folkinu Verkalýðshreyfingunni hefur ekki tekist að virkja fólk til að vera sá sóknarkraftur, sem launþegahreyfingu er nauðsyn- legt. Verkalýðshreyfingin og þá ekki síst ASI hefur fengið yfir sig æ meira yfirbragð stofnunar, enda hafa völd innan hreyfingar- innar í vaxandi mæii færst frá kjörnum fuíltrúum í hendur sér- fræðinga. Verkalýðsforystan þarf að fylgja fólkinu og vera tilbúin að taka áhættu þannig að ríkis- valdinu og atvinnurekendum standi ógn af hreyfingunni og taki tillit til skoðana hennar. Verk- fallsvopninu verður að beita sé ekki annarra kosta völ. Þingið telur nauðsynlegt að aðildarfélög innan sambandsins endurmeti stöðu sína fyrir komandi kjara- baráttu í ljósi reynslu síðustu mánaða. Félögin taki m.a. til at- hugunar fyrirkomulag samninga, svo sem samflot ASÍ félaga, samninga á vettvangi SBM félag- anna sjálfra, sameiginlegan samning iðnaðarmanna og at- vinnugreinasamning. “ Þingfulltrúar báru almennt lof á alla framkvæmd og aðstöðu á þinginu og hafði einn góður mað- ur orð á því við blaðamann að SBM ætti að þinga á Akureyri um ókomna framtíð. -GA Það anga víðar blóm en á Al- þingi MS-sjúklingar Sömu kjarabætur Aðalfundur M.S. félags fslands var haldinn 17. apríl síðastliðinn. Fund- urinn skorar á ríkisstjórn fslands að endurskoða ákvörðun sína um eftir- gjöf aðflutningsgjalda bifreiða frá 9. apríl 1986, þar sem upphæð sú er fatl- aðir fá eftirgefna heíur lækkað um allt að 85% og verð á eldri bifreiðum um 50%. Fundurinn leggur til að sölu- skattur á bifreiðum til fatlaðra verði felldur niður svo þeir njóti sömu kjar- abóta og aðrir. Höskuldur Skarphéðinsson: Deilan stendur um lífeyrisréttindi (Ljósm. EÓI) Yfirmenn Deilt um lífeyrisréttindi Höskuldur Skarphéðinsson formaður Öldunnar: Yfirmenn viljafá sömu lífeyris- réttindi og gilda í lífeyrissjódi sjómanna. Viljum einnig fá samninga varðandi atvinnumálin og leiguskipin. Skip tekin á leigu 3ja hvern dag Pað sem okkar deila snýst um er einkum tvennt. Við viljum í fyrsta lagi fá sömu lífeyrisréttindi og gilda í lífeyrissjóði sjómanna, enda höfum við gamalt loforð bæði frá SÍS og Eimskipafélaginu um það, en félögin hafa algerlega svikið þau loforð. I annan stað eru það atvinnumál okkar. Af þeim höfum við verulegar áhyggj- ur. Það er ekki bara að föstu leiguskipin fímm séu með er- lendar áhafnir, heldur færist það injög í vöxt að skipafélögin taki leiguskip. Við létum kanna það mál og kom þá í ljós að 20 skip voru tekin á leigu fyrstu 60 daga þessa árs, eða skip á 3ja daga fresti. Þetta sagði Höskuldur Skarp- héðinsson formaður skipstjóra- og stýrimannafélagsins Öídunnar í samtali við Þjóðviljann en yfir- menn á farskipum hafa boðað tímabundin verkföll á næstunni. Varðandi lífeyrissjóðsmálið, sem er aðal mál kjarabaráttunnar hjá yfirmönnum nú, þá fá félagar í lífeyrissjóði sjómanna lífeyris- greiðslur frá 60 ára aldri. En í lífeyrissjóði yfirmanna hjá Eint- skip ekki fyrr en við 67 ára mark- ið og nú ætlar SÍS að hækka markið í sínum sjóði uppí 70 ár. Það er krafa okkar að annað hvort fáum við okkur færða yfir i lífeyrissjóð sjómanna eða að skipafélögin breyti reglunum hjá sér til samræmis við reglur sjó- manna lífeyrissjóðsins, sagði Höskuldur. Hann tók fram að kaupkröfur væru ekki inní myndinni í þessari deilu, yfirmenn tækju því sem ASI/VSI sömdu um í vetur. í dag kl. 16.30 hefur verið boðaður fundur hjá sáttasemjara í þessari deilu- -S.dór 2 SÍÐA - ÞJÓÐVÍLJINN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.