Þjóðviljinn - 29.04.1986, Side 4

Þjóðviljinn - 29.04.1986, Side 4
LEIÐARI Rambó forseti - eða Ronald Reagan Kastljósþáttur um Ronald Reagan Bandaríkj- aforseta í sjónvarpi á dögunum hefur vakiö mikla athygli. í þættinum var sýnt hvernig forseti Bandaríkjanna ruglar saman atvikum og at- buröarás í gömlum kvikmyndum og veruleikan- um sem hann er aö fást viö sem forseti Banda- ríkjanna. Forsetinn heldur ræöur og svarar spurningum meö klisjum úr kvikmyndum og þaö er bersýnilegt aö vitundarheimur hans er mjög takmarkaöur viö þá reynslu. Erlendir fréttaskýrendur hafa að undanförnu fjallaö mikiö um þennan afdrifaríka þátt í stjórn- kerfi Bandaríkjanna, -og þarmeð heimsbyggö- ar. Maðurinn sem sjálfur þekkir til dæmis stríö ekki nema úr kvikmyndum á í mestu erfiðleikum meö aö skilja á millli kvikmyndarinnar og veru- leikans. Hann virðist vera fullkomnlega fær um aö steypa heiminum í þá glötun, sem gagnrýnendur hans í Bandaríkjunum óttuðust aö hann gæti gert. í pólitískum útleggingum og „réttlætingum" á athæfi Bandaríkjastjórnar hefur hún sjálf ein- faldaö veruleikann einsog í kvikmynd - og for- setinn jafnvel vísað til kvikmynda um pólitísk viöhorf sín og viöbrögö. Hrifning hans á ofbeld- ismyndinni Rambó gaf honum tilefni til yfirlýs- inga um hvernig ætti aö bregöast viö óvinum. Og loftárársirnar á Líbýu voru líkari atriöi úr kúrekamynd en „yfirvegaöri pólitískri aögerö11 og gætu hleypt þriöju heimsstyrjöldinni af staö. í málnotkun hefur forsetinn og starfslið hans í Hvíta húsinu tekist aö búa til einfalda svart-hvíta heimsmynd, sem meirihluti þjóöarinnar virðist styöja, a.m.k. nú um stundir. I tungutaki þeirra hefur einföldunin náö guöfræöilegum víddum í umsögnum um þjóöarleiötoga. í vitund þeirra eru Bandaríkin guös útvalin, - og þar af leiðandi eru öll ríki og ríkisstjórnir, andstæð stefnu Bandaríkjanna, frá hinu illa komin. Sá sem veröur fyrir árásum Bandaríkjanna gerir rétt með því aö taka árásum sem yfirnáttúrlegu straffi. Bandaríkin geta nefnilega ekki sam- kvæmt Reagan og hans liði fariö í stríö viö Líbýu - heldur ber aö líta á innrásina í Líbýu sem krossför. Menningarafurðir þjóðfélaga segja oft mikiö um þaö sem er aö gerast meö þjóöunum. Hin nýja einföldum, hatursþrungin afstaða til hins ókunna, þjóðremban sem villir mönnum sýn verður einkar bersýnileg í bandapskum kvik- myndum sem sýndar hafa verið aö undanförnu í íslenskum kvikmyndahúsum; Rambó, Rocky 4, Innrásin og Rauð dögun eru dæmi um slíkar myndir. Menn eiga auðveldara meö aö skilja hvers vegna stuðningur er jafn mikill og raun ber vitni viö árásarstefnu Reagans í Bandaríkjunum sjálfum þegar heimsmyndin er komin niörá þaö plan sem sýnt er í þessum kvikmyndum. Krossferöir Ronalds Reagans í veruleikanum njóta hins vegar stuönings nokkurra evrópskra ríkisstjórna meö ýmsum hætti. Ríkisstjórn ís- lands hefur gerst þátttakandi í undirbúningi þessara krossferða meö því aö leyfa herjum Bandaríkjamanna mikla uppbyggingu í landinu. Þó hlutverk íslands sé ekki stórt í því mikla bíói sem gæti orðið þaö síðasta, - er þaö nægilega mikilvægt til að frumsýningin gæti dregist, ef ísland drægi sig útúr krossferðinni. Dýrkeypt gabb I fréttum að undanförnu hefur komiö fram að Reykjavíkurborg hafi meö óskynsamlegum kaupum á hljómflutningstækjum tapaö miljón- um króna. Kaupin á þessum okurtækjum voru ákveöin eftir aö Davíö Oddsson borgarstjóri og Ómar Einarsson framkvæmdastjóri Æskulýös- ráös höföu heimsótt breska fyrirtækiö sem seldi þeim svo tækin. Þau munu kosta hingað komin um 20 miljónir króna. Faglegir aöilar hérlendis segja að hægt heföi verið aö kaupa nægilega góö tæki fyrir 6-10 miljónir króna. Mörgum finnst furðulegt aö þessi tækjakaup skuli ekki hafa verið boðin út, enda sé fyrirtækið sem borgin keypti tækin af, heimsþekkt fyrir okurverð og veröiö fáheyrt. Enn einu sinni er komið dæmi um ófagleg vinnubrögö borgar- stjórans og gagnrýnislaust mat. Þessi vinnu- brögö eru borgarbúum dýrkeypt. ~óg KUPPT OG SKORIÐ Eftirlit er auðvelt Menn hafa sjálfsagt tekið eftir því, að þegar talið berst að banni við tilraunum með kjarnorku- vopn (sem nú um skeið hafa farið fram neðanjarðar), þá fara Bandaríkjamenn mjög undan í flæmingi. Þeir grípa gjarnan til þess að segja sem svo, að Rússar geti trútt um talað og heimtað slíkt bann - þeir séu sjálfir búnir að framkvæma þær sprengingar sem Kanar standa nú í. Eða þá að sagt er sem svo, að það séu ýmsir erfiðleikar á því að fylgjast með því, hvort Sovétmenn haldi bann við kjarnorkusprengingum neð- anjarðar. Og ráðherrar Sjálfstæðis- flokksins og Morgunblaðsmenn hafa mikla tilhneigingu til að taka undir rök af þessu tagi. Eins þótt þau standi á mjög veikum fótum. í fyrsta lagi: einmitt á síðari misserum hafa orðið þær fram- farir í því að mæla hverskyns jarðhræringar, að sérfróðir draga það ekki lengur í efa að hægt sé að fylgja stranglega eftir banni við tilraunum með kjarnorkuvopn. Dæmi er af því tekið, að í júlí í fyrra sprengdu Sovétmenn kjarn- orkusprengju í austanverðu Kaz- akstan í Mið-Asíu. Þetta var lítil sprengja eða ekki „nema“ eitt kílótonn (þar með er átt við þá orku sem þúsund tonn af venju- legu sprengjuefni, TNT, leysir úr læðingi). Þykir þetta semsagt ekki stór sprengja í heimi þar sem oft hafa verið gerðar tilraunir með 150 kílótonna sprengjur. Stöðvar utan Sovétríkjanna-, sem fylgjast með jarðhræringum, hefðu ekki átt að geta greint sprengingu þessa. En þó tók stöð ein, sem Bandaríkjamenn hafa komið upp í Norður-Noregi, við greinilegum boðum um hana. Eins þótt stöðin sé í 4500 kíló- metra fjarlægð frá sprengjustað. Stöð þessi er einmitt gott dæmi um þær nýjungar í mælitækni sem gera margumdeilt eftirlit miklu auðveldara og áreiðanlegra en áður. Ætla að sprengja meir Nei, talið um eftirlitserfiðleika og ímyndað forskot Rússa í til- raunasprengingum á að leiða at- hyglina frá öðru í því háskalega áróðursstríði um atómvopn sem nú er í fullum gangi. Frá því, að Bandaríkjamenn ætla ekki að hætta við tilraunir með þessi vopn - þeir ætla þvert á móti að stórfjölga þeim. Vegna þess að þær eru lítt auglýstur partur af svonefndri Stjörnustríðsáætlun Reagans. Forsetinn hefur oft sagt á þá leið, að þau geimvarnarvopn sem áætlað er að smíða verði ekki kjarnorkuvopn. En í rauninni er það svo, að sú aðferð að skjóta eldflaugar niður með leysigeisl- um byggir helst að því, að sprengja atómvopn úti í geimnum til að skapa þá feikna- orku sem þarf í leysigeisla sem duga. Fyrir nú utan þetta vinna bandarískir vopnavísindamenn að því að skapa svonefnda „þriðju kynslóð" kjarnorku- vopna. Blaðið New York Times upp- lýsir það fyrir skemmstu, að þessi nýju vopnakerfi muni hvort um sig krefjast 100-200 tilrauna- sprenginga. En áður fyrr þurfti aðeins sex tilraunir áður en ný tegund atómhleðslu var tilbúin til notkunar. Blaðið hefur eftir Robert Seld- en, sem er áhrifamaður um rann- sóknir á sviði kjarnorkuvígbún- aðar í Los Alamos: „Við þurfum að minnsta kosti svo margar tilraunir. Hér er um algjörlega nýtt svið að ræða. Þau eðlisfræðilegu ferli sem við nú virðum fyrir okkur eru miklu flóknari en nokkuð annað sem við höfum rannsakað hingað til“. Bandaríkjamenn hafa upp á síðkastið gert 15 tilraunir með kjarnorkuvopn á ári. New York Times skýrir ekki frá því, hve mörgum menn eigi nú von á, en ef marka má þær tímasetningar sem settar eru Stjörnustríðsáætl- uninni, þá má búast við að sprengingarnar margfaldist. Til eilífðar - og lengur Auk þess sem gerðar verða til- raunir með nýjar tegundir vopna verður haldið áfram að sprengja í tilraunaskyni atómvopn af fyrstu og annarri kynslóð. En að því er varðar kynslóðina þriðju, þá segir annar sérfræðingur í Los Alamos, John C. Hopkins, í við- tali við New York Times, að það sé mjög margt á huldu nú um það, hvaða kerfi muni takast að búa til og hver ekki og því gerir hann ráð fyrir því að tilraunum verði haldið áfram „mjög lengi, áratugum saman“. Mönnum ber líka nokkuð sam- an um, að ástæðan fyrir því að Sovétmenn vilji nú margt á sig leggja til að stöðva tilraunir með atómvopn sé alls ekki sú, að þeir hafi náð forskoti á þessu sviði, heldur þvert á móti: að þeir vilji komast hjá því að leggja út í miklu umfangsmeiri og dýrari til- raunir en þær sem gerðar hafa verið til þessa. Hans Bethe heitir eðlisfræð- ingur sem var einn þeirra sem stóðu að gerð hinna fyrstu kjarn- orkuvopna. Hann segir um þær upplýsingar sem að ofan greinir: „Þetta þýðir að ef við höldum áfram með hugmyndir að þriðju kynslóð, þá verða tilrauna- sprengingar með atómvopn fram- kvæmdar um alla eilífð - plús einn dag. Eina ráðið til að koma í veg fyrir það cr að byrja alls ekki á þriðju kynslóð atómvopna“. DJ0ÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýöshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson. Ritstjórnarfuiltrúi: Oskar Guðmundsson. Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson. Biaðamenn: öarðar Guðjónsson, Guðlaugur Arason (Akureyri), Ing- ólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson. Sigurður Á. Frið- þjófsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir. Auglysingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Clausen. Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Olga Auglýsingar: Síðumúla 6 símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 40 kr. Helgarblöð: 45 kr. Áskriftarverð á mánuði: 450 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 29. apríl 1986

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.