Þjóðviljinn - 29.04.1986, Side 6
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir
Sigurður Bjartmar Arnmundsson
lést 17. apríl á Sjúkrahúsi Akraness.
Jarðarförin hefur farið fram. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki Sjúkrahúss Akraness fyrir góða umönnun og
öllum sem minntust hans.
Valgerður Þórólfsdóttir
börn, barnabörn, tengdabörn,
og systur hins látna
armrfwg hf.
Hluthafafundur
í Arnarflugi h/f
Arnarflug h.f. heldur hluthafafund mánudaginn
12. maí n.k. aö Hótel Sögu og hefst hann
kl. 17.00.
Dagskrá:
Tillaga stjórnar félagsins um niðurfærslu
hlutafjár í félaginu.
Tillaga stjórnar félagsins um niðurfærslu hlutafjár
í félaginu mun liggja frammi ásamt fylgigögunum
á skrifstofu félagsins, Lágmúla 7, Reykjavík, frá
og með 5. maí n.k. til athugunar fyrir hluthafa.
í tillögu um niðurfærslu hlutafjár er lagt til að
hlutafé félagsins verði iækkað í 10% af.
nafnverði, þannig að hlutafé félagsins verði eftir
niðurfærsluna kr. 4.836.000,00.
Stjórnin
IIa ba/U ball
Nú skemmtum við okkur saman
Það verður
dúndrandi ball í Miðgarði, Hverfisgötu
105 að kvöldi30. apríl.
Húsiðopnað kl.21.30.
Við syngjum og syngjum og skemmtum okkur.
Eldfjörugt tríó leikur fyrir dansi.
Ljúfar veitingar á lágu verði (sem okkar ástsæla
ríkisstjórn hefur þó ný-hækkað).
Aðgangseyrir kr. 250.
Dönsuminnl.maí.
ABR-ÆFR
Afmæli
jðjuþjalfafélag
íslands 10 ára
Jóna Kristófersdóttir kjörin heiðursfélagi
í mars 1986 náði Iðjuþjálfafé-
lag íslands merkilegum áfanga -
10 ára afmæli félagsins. A rúm-
lega 10 árum hefur iðjuþjálfum á
Islandi fjölgað úr einum einstakl-
ingi í stéttinni í 38. Reyndar eru
íslenskir iðjuþjálfar 53, en 15 eru
erlendis.
Iöjuþjálfar á íslandi eru allir
menntaðir erlendis í u.þ.b. 10
mismunandi löndum þó er gert
ráö fyrir námsbraut í iðjuþjálfun
viö Háskóla íslands samkvæmt
lögum um iðjuþjálfun, sem fengu
löggildingu 1977. Við stefnum að
stofnun iðjuþjálfaskóla á íslandi
en vegna fámennis og fjárskorts
hefur það ekki tekist enn. Yfir-
leitt eru á milli 20-25 manns í
námi erlendis á hverjum tíma. 4
iðj uþj álfar eru méð Masters próf.
Iðjuþjálfar vinna nú á 18 mis-
munandi vinnustöðum hér á
landi: á 4 sjúkrahúsum og 3
endurhæfingarstöðvum. Iðju-
þjálfar vinna líka á vernduðum
vinnustöðum, hjásjálfstæðumfé-
lögum, í svæðisstjórn (1 iðjuþjálfi
er framkvæmdastjóri einnar
svæðisstjórnar), og hjá Trygging-
astofnun ríkisins. Nokkrir iðju-
þjálfar vinna við iðjutækni (ergo-
nomi) bæði í skólum og á vinnu-
stöðum og 1 iðjuþjálfi vinnur hjá
hjálpartækjabankanum.
Félagið hefur gefið út stéttar-
blað tvisvar á ári síðan 1979. f
tilefni 10 ára afmælis félagsins var
haldinn glæsilegur aðalfundur 15.
mars sl. í húsnæði BHM. Þá var
Jóna Kristófersdóttir, fyrsti ís-
lenski iðjuþjálfinn, gerð að Knútsson heiðruð
heiðursfélaga. Einnig var Hope mennsku í 10 ár.
fyrir for-
Jóna Kristófersdóttir (t.v.), fyrsti íslenski iðjuþjálfinn, tekur við viðurkenningum
sínum.
Saga
Flugleiðir
Class á öllum
leiðum
Flugleiðir bjóða nú Saga Class
farrými á öllum leiðum félagsins í
millilandaflugi.
Liðin eru tæp tvö ár frá því fé-
XG
0PIÐ HUS DAGLEGA
í kosningamiðstöðinni Miðgarði,
Hverfisgötu 105
Kosningaskrifstofa ABR í Miðgarði er opin kl. 10-18 alla virka daga. Þar er hægt að
fá upplýsingar um kjörskrá og leiðbeiningar um utankjörfundarkosningu og kærur.
Alltaf heitt á könnunni! Þú nærð sambandi við starfsmenn skrifstofunnar, þau
Steinar Harðarson, kosningastjóra, Björk Vilhelmsdóttur og Gísla Þór Guðmunds-
son í síma 17500.
SJÁLFBOÐALIÐA VANTAR
áfek Góður árangur í baráttunni við íhaldið byggist
ekki síst á öflugu og vel skipulögðu starfi. Margar
hendur vinna létt verk! Alþýðubandalagið í
Reykjavík vantar heilan her sjálfboðaliða til ým-
Jra issa starfa. Líttu við eða hringdu og láttu skrá þig
tn starfa.
HVAÐ SEGJA FRAMBJÓÐENDUR?
Hvað hefur verið að gerast í Reykjavík undanfarin 4 ár? Fyrir hverja hefur verið
stjórnað? Fáðu frambjóðendur ABR á fund á vinnustað eða í skólann! Ekki veitir af
að fólk heyri eitthvað annað um borgarmálin en auglýsingar um borðaklippingar
og hornsteina Davíðs Oddssonar. Kosningaskrifstofan hefur milligöngu um að
senda frambjóðendur á fundi. Sláðu á þráðinn í síma 17500.
Kosningastjórn
lagið tók upp farrýmisskiptingu,
og þá fyrst aðeins í áætlunarflugi
til Norðurlanda og Bretlands.
Síðan hafa aðrar áætlunarleiðir
bæst við, og nú síðast á N-
Atlantshafinu.
Saga Class farrými á N-
Atlantshafsleiðum er boðið þeim
farþegum sem greiða Saga Class-
og Normal fargjöld. Tekin hefur
verið út sætaröð I þeim hluta vél-
anna sem ætlaður er Saga Class
farþegum, og aðrar raðir færðar
til svo rýmra verði um farþegana.
Einnig er aðeins tveim farþegum
úthlutað sætum í hverri þriggja
sæta röð þegar hægt er að koma
því við. Innritun farþega á Saga
Class fer fram við sérstakt
innritunarborð.
Sérstakar veitingar eru á Saga
Class, og má t.d. geta þess að
farþegar á leið til Bandaríkjanna
geta valið um tvo rétti samkvæmt
matseðli. Farþegum á Saga Class
er ekki gert að greiða fyrir
drykki. Þrátt fyrir þessa auknu
þjónustu á Saga Class hefur að
sjálfsögðu í engu verið dregið úr
þjónustu við aðra farþega.
VIÐHORF
Framhald af bls. 5
ystumenn þessara ríkja í Ijós
áhyggjur um framhaldið. Hvers-
konar tröllatök hefir þetta fjar-
læga herveldi á ráðamönnum
heimsins?
Sennilega stendur engin þjóð
jafn nærri leiðtogum sínum og ís-
lendingar. Flestir eiga vini eða
kunningja sem sitja á Alþingi.
Þetta skapar okkur möguleika á
raunhæfara aðhaldi og öflugri
stuðningi við góð mál en verið
gæti með stærri þjóðum. Þess ætt-
um við að neyta í baráttunni fyrir
friði. Spurningin um orsakir
styrjalda er án efa þýðingarmesta
umhugsunarefni þess hluta
mannkyns sem ætlar að lifa
lengur en til næsta dags. Hér hafa
íslendingar mikið að segja. Enda
þótt blettur hafi fallið á skjöld
okkar á síðustu áratugum með
herstefnunni og samþykki okkar
við hana, erum við vopnlaus
þjóð. Það er dýrmætur arfur og
ætti að vera framlag okkar í sam-
skiptum þjóða, fremur en her-
skáar ræður sem hljóta að vera
broslegar með tilliti til stærðar
þjóðarinnar. Slíkt er að vísu ekki
nein trygging gegn því að her-
veldi ráðist inn í landið, en það
eru hervarnir heldur ekki. En
það væri framlag í baráttunni
fyrir friði, sem hervarnir eru
ekki; framlag sem byggðist á
trausti en ekki tortryggni.
Traust manns á manni og þjóð-
ar á þjóð er eina forsendan sem
smáþjóðir geta byggt frjálsa til-
veru st'na á. Undir pilsfaldi her-
velda lifir hvorki friður né frelsi.
Helgi Jónsson
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. apríl 1986