Þjóðviljinn - 29.04.1986, Page 8

Þjóðviljinn - 29.04.1986, Page 8
MANNLÍF 8 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 29. apríl 1986 Ættingjar Símonar í Birtingarholti: W. Sesselja, Garðar, Steingrímur og Magnús Steingrímsbörn og hjónin Sigríður Sigmarsdóttir og Guðbjörn Jónsson. (Mynd Sig). Reykjavík Þau voru krakkar á Bráðræðisholtinu Eru núna flutt út um hvippinn og hvappinn Björn A. Guðjónsson og Soffía Eygló Jónsdóttir voru í framkvæmdanefnd með Pétri Péturssyni: Við bjuggumst við svona um 60 manns en það komu 80 sögðu þau kampakát. Þær rifja upp bernskuminningarnar. Helga Hansdóttir, Inga Dagbjartsdóttir og Þóra Guðjónsdóttir en tvær þær öftustu þekkjum við því miður ekki. (Mynd Sig). „Við ákváðum að hóa saman þessu fólki sem ólst upp á Bráð- ræðisholtinu til að rifja upp gaml- ar minningar þaðan, en Bráð- ræðisholtið var hér áður fyrr heimur út af fyrir sig. Þarna var sérstakt mannlíf, það var róið til fiskjar úr Selsvör, fiskur var þurrkaður á stakkstæðum við húsin og þarna voru kartöflu- garðar við hvert hús, nú sumir voru með sauðfé þarna og jafnvel kýr“. Það er Pétur Pétursson sem segir þetta en á sunnudaginn síð- asta var haldin samkoma þeirra sem ólust upp á Bráðræðisholtinu í félagsmiðstöðinni Frostaskjóli í Reykjavík. Þarna voru um 80 manns og skemmtu sér hið besta eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. „Okkur datt þetta í hug þegar ég var að leita að Ijósmynd af býl- inu Bráðræði, en ég safna gömlum myndum," sagði Pétur. „Holtið er kennt við þetta býli og einhvern tíma var sagt að það væri ekki von að vel færi í Reykjavík, bæ sem byrjaði í Bráðræði en endaði í Ráðleysu, en það var hús sem stóð við Laugaveg innarlega.“ Pétur Pétursson heldur ræðu. Hann hefur líklega framið nokkur strákapörin á Bráðræðisholtinu hér áður fyrr.... (Mynd Sig).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.