Þjóðviljinn - 29.04.1986, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 29.04.1986, Qupperneq 13
HEIMURINN Kjarnorkuverið á Þriggja Mílna Eyju í Bandaríkjunum. Þar varð alvarlegt kjarnorkuslys árið 1980. Nú hafa Sovétmenn tilkynnt um kjarnorkuslys hjá sér. Ekki er enn vitaö hversu alvarlegt það er Kjarnorkuver Kjamorkuslys í Sovétríkjunum Kjarnakljúfurí Kjernóbíl kjarnorkuverinu norðan við Kiev bilaði með þeim afleiðingum að geislavirkni barst út íandrúmsloftið. Það hefurnú boristtil Norðurlandanna Stokkhólmi — Mikil bylgja geislunar barst yfir Svíþjóð, Finnland, Noreg og Danmörku í gær eftir að leki hafði orðið í Kjernobíl kjarnorkuverinu norður af borginni Kiev í Úkra- ínu. Tass fréttastofan sagði frá því í gær að slys hefðu orðið á mönnum, ástæða slyssins var sögð vera bilun í einum kjarn- akljúfi versins. Sænskir embættismenn sögðu frá því fyrr í gær að talið væri að geislunin hefði borist með vind- um yfir Eystrasalt frá einhverju kjarnorkuveri í Eystrasaltslönd- um innan landamæra Sovétríkj- anna, slysið hafi líklega orðið á sunnudaginn. „Við teljum að þetta komi frá Sovétríkjunum - vegna einhvers konar lek'a úr kjarnorkuveri," sagði Ingemar Vintersved í Varnarrannsóknar- stöð Svíþjóðar. Fulltrúi í sænska sendiráðinu í Moskvu hafði eftir fulltrúum so- vésku kjarnorkunefndarinnar fyrri hluta dagsins í gær, að þeir hefðu ekki heyrt unt neitt kjarn- orkuslys á sovésku landsvæði og þeir myndu vita um það hefði slíkt slys orðið. Tilkynning Tass fréttastofunnar kom síðan seinni partinn og þykir óvenjulegt að Sovétmenn viðurkenni slys af þessari tegund svo fljótt sem raun varð á. Mest geislun mældist í gær í Finnlandi. I norður- og miðhér- uðum Finnlands mældist allt að sex sinnum nteiri geislun en eðli- legt getur talist. I Danmörku sögðu embættismenn frá því að geislavirkni væri fimm sinnurn meiri en hún er vanalega og í Osló mældist hún 50 % hærri en vanalega. „Geislunin kemur vissulega úr austurátt sem skýrir það hvers vegna hún mælist hærri í Danmörku en Noregi," sögðu fulltrúar í Risö kjarnorkurann- sóknastöðinni í Danntörku. Talsmaður sænska orkuráðsins sagði að engin hætta væri frá geisluninni fyrir almenning og ljóst væri að hún væri aðeins vegna leka, ekki vegna tilrauna- kjarnorkusprengingar. í gærmorgun var talið að lek- inn hefði orðið í sænsku kjarn- orkuveri norður af Stokkhólmi. Par voru 600 starfsmenn orku- vers fluttir á brott. Frakkland Mitterrand vill samtök gegn hryöjuverkum Mitterrand og Chirac fara báðir til leiðtogafundar helstu iðnríkja með nýja stefnu Frakka gagnvart hryðjuverkum í farteskinu. París — Francois Mitterrand, forseti Frakklands, lýsti því yfir í fyrsta sinn í gær aö Frakk- ar væru tilbúnir til að styðja al- þjóðleg samtök lögregluyfir- valda og leyniþjónustu sem hefðu það hlutverk með hönd- um að berjast gegn pólitísku ofbeldi. Fulltrúar franskra yfirvalda segja að hér sé ekki um neina meiri háttar breytingu á franskri utanríkisstefnu að ræða, frekar sé hér um að ræða yfirlýsingu um að þær stofnanir sem nú sjá unt þessi mál, samhæfi störf sín beturen nú er. Mitterrand gaf þessa yfirlýs- ingu í viðtali við japanska blaðið Yomiuri Shimbun í tengslum við fund æðstu manna sjö iðnríkja sem haldinn verður í Tokyo í maí. Textinn var gerður opinber í El- yseé höllinni í gær. „Við erum tilbúnir til að taka þátt í samhæfingu lögreglu. leyni- þjónustu og jafnvel hersins til að mynda alþjóðleg samtök gegn hryðjuverkum," sagði Mitter- rand. Hann bætti því við að slík samtök yrðu aðeins ntöguleg ef utanríkisstefna hvers lands væri algjörlega óháð hlutverki þessara samtaka. Frakkar hafa hingað til ekki verið reiðubúnir til að taka þátt í aðgerðunt gegn hryðju- verkum og hafa lýst því yfir beint að þeir rnyndu ekki taka þátt í myndun samtaka gegn hryðju- verkunt. Pá sagði Mitterrand einn- Þettalíka... Brussel — Belgía, Holland og Luxemburg hafa fylgt nokkrum öðrum Evrópuþjóðum í að hefja aðgerðir gegn Líbýu. Þjóðirnar þrjár lýstu því yfir í gær að fjöldi líbýskra sendiráðsmanna yrði fækkað um helming Varsjá — Pólskir saksóknarar hafa hafa sagt leiðtogum Sam- stöðu að þeir fái á sig langa fang- elsisdóma ef þeir efna til mót- ntælagöngu 1. maí í Varsjá Höfðaborg — Svartir unglingar grýttu fyrrunt forsætisráðherra Frakklands, Laurent Fabius, í hverfi svartra rnanna nálægt Höfðaborg, eftir því sent vitni segja. í öðru hverfi svartra, í Jó- hannesarborg, létust tveir svartir menn í skothríð við lögregluna sem umkringdi hús í Alexöndru,' norðan við Jóhannesarborg. Ankara — Tveir Líbýumenn hafa verið ákærðir fyrir að hafa ætlað að sprengja klúbb bandarískra hermanna í borginni í loft upp. Saksóknari sagði að verið væri að rannsaka hvort sendiráð Líbýu í Tyrklandi væri í tengslum við þá. Moskvu — Sovétfæddur yfirmað- ur útvarpsstöðvarinnar Radio Li- berty sem rekin er af Bandaríkja- mönnum kont í dag frant í Mos- kvu. Hann sagði að stöðin sent útvarpar á rússnesku yfir Austur- Evrópu sé rekin sem verkfæri bandarísku leyniþjónustunnar til þess að grafa undan sovéska rtk- inu. Fulltrúar Radio Liberty sem staðsett er í Munchen, neituðu þessunt ásökunum. ERLENDAR FRÉTTIR w ig:„Við villjum ekki að Frakk- land taki þátt í slíku samstarfi í því augnamiði að berjast gegn al- þjóðlegri hryðjuverkastarfsemi ef þeir hafa ekki athugað slíkt gauntgæfilega fyrirfram." Talið er að Mitterrand hafi þarna vísað til þess þegar Frakkar neituðu Bandaríkjamönnum um að að sprengjuflugvélar þeirra fengju að fljúga í franskri lofthelgi á leið þeirra til Líbýu fyrir tveimur vik- urn. Margir fréttaskýrendur telja nú að þessar yfirlýsingar séu samt sem áður mikilvæg stefnu- breyting fyrir Tokyofundinn. Ólíkt því sem vanalega er, verða tveir franskir fulltrúar á þeint leiðtogafundi: Sósíalistinn Mitterrand og hægrisinninn Chir- ac. R hjörleVfsson/R EUTE Spánn ETA ábyrgir fyrir Madridsprengingunni Samtöksem berjastfyrir sjálfstœði Baskalands (ETA) segjastábyrg fyrir sprengjutilrœðinu. Maðursem spœnsk yfirvöld segja að sé einn helsti leiðtogi ETA, hefur verið handtekinn Finnland Verkföll Helsinki — Verkföll verða i Finnlandi 1. maí. Viðræður eru í gangi en talið er ólíklegt að verkfallið leysist fyrir hátíðis- dag verkafólks. I viðræðum sem haldnar voru um helgina voru ekki ræddar meginkröfur hinna 42.000 opin- berra starfsmanna, um 20 % launahækkun. Þess í stað voru rædd önnur minni mál. í Finn- landi eru venjulega fundir allra helstu póltískra samtaka auk verkalýðsfélaga. Búist er við að samningaviðræðurnar verði aðal- umræðuefnið. Um það bil 15.000 opinberir starfsmenn fóru í verkfall 2. apríl og 16. apríl bættust síðan aðrir 27.000 stéttarfélagar þeirra í hóp- inn. Auk þeirra eru nú 17.000 raf- virkjar, 12.000 byggingaverka- menn og 1200 starfsmenn orku- veitna í verkfalli. Búist er við að fleiri bætist við snemma í maí ef ekki verður búið að semja. San Sebastian — ETA, samtök þau sem berjast fyrir sjálf- stæði Baskalands, tilkynntu í gær að þau væru ábyrg fyrir sprengingu þeirri sem varð í miðborg Madrid, á föstudag- inn síðasta þar sem fimm lög- reglumenn létu lífið. Talsmaður Eta hringdi í Fréttastofu Baskalands og kom á framfæri þessari tilkynningu. Þá gerðist það einnig í gær að franska lögreglan sagði frá því að hún hefði handtekið Domingo „Txomin" Iturbe Abasolo, spænska lögreglan telur hann vera helsta foringja ETA samtak- anna. Spænska stjórnin lýsti yfir ánægju sinni með handtökuna. „Handtaka hvers þess sem ætl- ar sér að myrða, eru góðar frétt- ir,“ sagði fulltrúi spænska innan- ríkisráðuneytisins í gær. Tilkynn- ingin um handtöku Abasolo kentur fimnt dögunt eftir að innanríkisráðherra Frakklands tilkynnti starfsfélaga sínum á Spáni að frönsk yfirvöld myndu herða leit sína að grunuðum fé- lögum í ETA og ganga jafnvel harðar fram í því en fyrri stjórn Sósíalista. Með sprengingunni í Madrid á föstudaginn urðu fór- narlömb ETA skæruhernaðar 500 talsins í 18 ára baráttu um stofnun sjálfstæðs ríkis Baska- lands. Talsmaður innanríkisráð- uneytisins sagði að Spánverjar hefðu ekki farið fram á að Aba- solo yrði framseldur, yfirvöld ætl- uðu að bíða nteð það og sjá til hvað spænsk yfirvöld gerðu nteð hann. Spænsk yfirvöld hafa hins vegar farið frant á að hann verði yfirheyrður um rán á basknesk- um kaupsýslumanni í desember síðastliðnum. Spænsk yfirvöld telja að Aba- solo hafi átt þátt í morðinu á for- sætisráðherra Spánar, Luis Carr- ero Blanco, árið 1973. Það var fyrsta stóra aðgerð ETA. Aba- solo fékk sig viðurkenndan sem pólitískan flóttamann í Frakk- landi en var skipað að halda sig í borginni Tours, fjarri landamær- um Spánar og Frakklands. Hann hvarf síðan fyrir tveimur árurn. Haft er eftir heimildum í Baska- landi að Abasolo hafi verið því meðmæltur að reyna samninga- leiðina við spænsk stjórnvöld urn að binda endi á ofbeldi. Eftir þessum heimildunt er haft að ýmsir harðlínumenn í forystu ETA sem ekki hafi viljað fara santningaleiðina, hafi á undan- förnum árum verið fluttir til Afr- íku eða Mið-Anteríku. Einnig segja þessar heimildir að hand- taka Abasolos geti orðið til þess að draga úr hættunni á hermdar- aðgerðum eftir sprengjuárásina í Madrid á föstudaginn var. Búist hafðpi verið við slíku af And- hryðjuverkafrelsissveitunum (GAL) svonefndu. Það eru öfga- sinnaðar dauðasveitir hægri- manna sem hafa drepið marga út- læga Baska í Frakklandi til að hefna árása ETA.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.