Þjóðviljinn - 29.04.1986, Side 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Þriðjudagur 29. apríl 1986 95. tölublað 51. örgangur
DJOÐVIUINN
Fiskeldi
Hafbeit bönnuð í Noregi
Tvœr miljónir flœkingslaxa úr eldiskvíum við strendur Noregs. Hans Nordeng, prófessor:
Getur skemmt innfœdda stofna í ám.Erfðamengun hœttuleg. íslendingar verða að gœta sín
Tvær miljónir flækingslaxa sem
hafa sloppið úr eldisbúrum er
nú að finna við strendur Noregs.
Þess eru dæmi að 40 prósent laxa í
norskum ám séu fiækingar úr
eldiskvíum, og að sögn Hans Nor-
deng, prófessors við Oslóarhá-
skóla, sem hélt fyrirlestur á veg-
um Landssambands stangveiðifé-
laga um helgina, getur þetta leitt
til erfðamengunar í laxastofnum í
Noregi. Af þeim sökum gengu í
gildi reglur í Noregi þann 1. janú-
ar, sem banna alla hafbeit og
sleppingar laxfiska í þarlendar
ár, nema því aðeins að hinn
sleppti fiskur sé samstofna fiskum
í viðkomandi á.
Nordeng er frumkvöðull
gagnmerkrar kenningar um rat-
vísi laxa. í stuttu máli byggir hún
á því, að laxar finni lykt eða
bragð af sérstökum efnum sem
laxar úr sömu fjölskyldu fram-
leiða. Fullorðnir laxar rati því
ekki aðeins heim í fæðingarána,
heldur á nákvæmlega sama stað-
inn og þeir klöktust úr hrogni,
með því að rekja sig eftir lyktinni
af gönguseiðum úr söniu fjöl-
skyldu, sem þeir mæta í hafi eða
ánni, eftir að í hana er komið.
Ef mikiö brögö eru að því að
laxar sleppi úr eldiskvíum, segir
Nordeng, þá eru líkur á því að lax
Fundur
Sterkari
verkalýðs
hreyfing,
hvemig?
af óvissum uppruna blandist
innfæddum stofnum, og hið arf-
bundna næmi á lyktina af ættingj-
unum skerðist, og þarmeð ratvísi
laxa.
Nordeng og fylgjendur hans
halda því fram, að hafbeit og til-
viljanakenndar sleppingar úr
eldiskvíum hafi geti þannig smám
saman eyðilagt laxastofna í ám.
Þess ber þó að geta að ekki eru
traust dæmi um slíkt, þó vissulega
beri að fara með gát, að allra
dómi.
Hér á íslandi er hafbeit í stór-
um stíl fyrirhuguð, og er raunar
þegar hafin, þannig að íslending-
ar ættu að huga nánar að kenn-
ingum Nordengs.
-ÖS
Ásgeir Sigurvinsson, samningur til ársins 1990.
Ásgeir Sigurvinsson, atvinnu-
maður í knattspyrnu, skrifaði urn
helgina undir fjögurra ára samn-
ing við félag sitt í Vestur-
Þýskalandi, Stuttgart. Mörg
vestur-þýsk lið höfðu falast eftir
honum, m.a. Bayern Múnchen
og Köln.
„Ég er mjög ánægður með
þennan samning. Ég á marga
góða vini hér í Stuttgart og það
vóg þungt á metunum," sagði Ás-
geir m.a. í spjalli við Þjóðviljann í
Stuttgart um helgina. Ásgeir átti
stjörnuleik með liði sínu á laugar-
daginn og fékk heimsklassa-
einkunn í blöðum.
-JHG/VS
Sjá íþróttir bls. 9-12
Sl. haust hélt Málfundafélag
félagshyggjufólks málfund um
„þjóðarsátt“ eða samráð verka-
lýðshreyfingar við atvinnurek-
endur og ríkisvald. Sá fundur
þótti takast vel, enda var þessi
hugmynd hvergi rædd annars
staðar á almennum fundi.
Stjórn málfundafélagsins boð-
ar nú til annars almenns fundar
þar sem fjallað verður unt mál-
efni verkalýðshreyfingarinnar.
Umræðuefni hans verður: Sterk-
ari verkalýðshreyfing, hvernig?
Málshefjendur verða Guðrún
Árnadóttir framkvæmdastjóri
BSRB, Jón Karlsson formaður
verkalýðsfélagsins Fram á
Sauðárkróki, Tryggvi Þór Aðal-
steinsson framkvæmdastjóri
MFA og Ögmundur Jónasson
fréttamaður.
Tilgangur fundarins er hvorki
að fordæma verkalýðshreyfing-
una né að syngja forystu hennar
dýrðaróð. Fundarefnið gefur
hins vegar tilefni til að ræða mál-
efni verkalýðshreyfingarinnar á
jákvæðan hátt með eflingu henn-
ar að markmiði.
Fundurinn verður haldinn á
Hótel Borg þriðjudaginn 29. apr-
fl, kl. 20.30 og er opinn öllu fé-
lagshyggjufólki. Verkalýðshreyf-
ingin hlýtur að vera því hug-
leikin, enda vandséð hvernig sótt
verður fram til aukins lýðræðis og
jafnréttis í íslensku samfélagi án
sterkrar verkalýðshreyfingar.
Tvær höfuðkröfur undirmanna
á farskipum í þeirri deilu sem
þeir eiga nú í við skipafélögin eru
annarsvegar að laun þeirra
hækki úr 20 þúsund krónum á
mánuði uppí 27 þúsund krónur
og að yfirvinnuálag hækki úr
60% uppí 80%. Skipafélögin hafa
ekki verið til viðtals um neitt, vísa
aðeins í ASÍ/VSI samkomulagið
frá í vetur.
Guðmundur Hallvarðsson for-
maður Sjómannafélags Reykja-
víkur sagði að deiluaðilar hefðu
aðeins átt með sér einn fund til
þessa og að skipafélögin hefðu nú
vísað deilunni til ríkissáttasemj-
ara og væri boðaður fundur hjá
honum í uag kl. 16.30.
Undirmenn hafa boðað verk-
fall á flotanum frá og með morg-
að hefur ekkert verið leitað til
mín vegna þessarar deilu og
það eina sem ég hef í höndunum
hennar vegna er minnisblað frá
forstjóra Skipaútgerðar ríkisins
um hvað hún snýst. Það hefur
ekki verið rætt né komið til tals að
setja á bráðabirgðalög, sem
banna verkfall farmanna ef af
verður, sagði Matthías Bjarna-
son samgönguráðherra í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Farmenn hafa verið uggandi
um að sett yrðu á þá lög sem
banni verkfall þeirra, eins og gert
var í flugfreyjudeilunni í haust og
mjólkurfræðingadeilunm fyrir
skömmu.
En samkvæmt því sem sam-
gönguráðherra segir hefur það
mál ekki enn verið rætt, hvað sem
verða kann.
-S.dór
Undirmenn
Deitt um 7 þúsund krónur
Undirmenn gera kröfur um að mánaðarkaup þeirra hœkki úr
20 þús. kr. á mánuði uppí 27 þús. kr. Einnig að álag í
yfirvinnu hœkki úr 60% í 80%. Verkfall boðað annað kvöld
undeginum 30. apríl og er verk- fyrir undirmenn á farskipum og
fallsboðunin ótímabundin. því væri það útí hött hjá skipafé-
Guðmundur Hallvarðsson lögunum að vísa til samkomulags C 'UJ O
benti á að ASÍ hefði aldrei samið ASÍ/VSÍ frá í vetur. Undirmenn DlS. Z
vildu nú sem áður annast sína
samninga sjálfir. -S.dór
Farmannadeilurnar
Bráðabinjðalög ekki verið rædd
Matthías Bjarnason samgönguráðherra: Enginn hefur leitað til mín
vegna þessarar deilu. Setning bráðabirgðalaga vegna hennar hefur
ekki komið til tals