Þjóðviljinn - 22.05.1986, Síða 8
STYKKISHÓLMUR
Frá Stykkishólmi.
Mismunandi
áherslur
Þótt hér séu ekki stórpólitísk
átök í sveitarstjórnarmálunum
og póiitískur áhugi í bænum
lítill, þá fer að sjálfsögðu ekki
hjá því að mismunandi áhersl-
ur séu hjá flokkunum um for-
gangsröð verkefna, sagði
Guðrún Ársælsdóttir, annar
maður á lista Alþýðubanda-
lagsins.
Guörún sagði að dagvistun-
armál í Stykkishólmi stæðu sæmi-
lega, eins væri þar rekið elliheim-
ili, en það sem vantaði væru þjón-
ustuíbúðir fyrir aldraða.
Það er mál sem mikil þörf er á
að leysa. Heimilishjálp fyrir aldr-
aða er til staðar, en þjónustuí-
búðirnar vantar. Og það er svo
sem ýmislegt sem látið hefur ver-
ið sitja á hakanum. Ég vil í því
sambandi nefna íþróttahúsið.
Það er orðið gamalt og alltof lítið.
Við áttum hér ágætt körfuknatt-
leikslið, en það mátti ekki leika
sína heimaleiki hér vegna þess að
húsið er ólöglegt. Önnur aðstaða
fyrir fþróttafólk er heldur ekki
nógu góð og að því þarf að vinna
að bæta þar úr.
Gott félagslíf
Félagslíf almennt í Stykkis-
hólrni?
Það er alveg þokkalegt miðað
við það sem gerist núorðið á
sjónvarps- og vídeóöld. Hér eru
þessir vanalegu klúbbar sem
starfa um allt land, hér er líka
líflegt leikfélag, lúðrasveit starfar
hér af krafti og stendur á gömlum
merg. Þá er hér starfandi félag
eldri borgara sem nefnist Aftan-
skin og þar er ungt fólk í forsvari.
Þannig að segja má að þeir sem
vilja taka þátt í félagslífi hafi nóg
að gera.
Vissulega er gott að búa í
Stykkishólmi og einmitt þess
vegna gefur maður kost á sér í
framboð til hreppsnefndar, til
þess að leggja sitt af mörkum til
að gera bæinn enn betri og enn
byggilegri en hann er nú.
Ferja
yfir Breiðafjörð
Eitt af þeim málum sem ég hef
brennandi áhuga fyrir er að smíð-
uð verði góð bílferja sem taki við
af Baldri í ferðum hér yfir
Breiðafjörðinn. Ef vegakerfið
hingað frá Reykjavík verður bætt
og góð ferja til staðar yfir fjörð-
inn, má spara þann miída kostn-
að sem fer í vegalagningu og
vegaviðhald vesturumað Brjáns-
læk. Það er alveg ljóst að svona
bílferja myndi stórauka ferða-
mannastrauminn hingað og
ferðamálin eru eitt af því sem við
eigum alla möguleika á að efla.
Að þessum málum vil ég og mun
vinna að, sagði Guðrún Ársæls-
dóttir.
- S.dór.
Guðrún Ársælsdóttir: Þjónustuíbúðir fyrir aldraða verða að koma.
RættviöGuðrúnu Ársælsdóttur
sem skipar2. sætiðá lista Alþýöu-
bandalagsinsí Stykkishólmi
•• /
HELGARDVOL I NATTURUPARADIS
Vertu velkominn á Nesið
Hótel
Njótið helgarhvíldar á vistlegu hóteli í paradís
íslenskrar náttúru.
Möguleikar á siglingu um Breiðafjörð.
Hrífandi náttúrufegurð Snæfellsness og Breiðafjarðar
lætur engan náttúruunnanda ósnortinn.
sími 93-8330
'/ / ■