Þjóðviljinn - 03.06.1986, Page 9
HEIMURINN
Sovétríkin
Rúmlega 200 manns fá
að flytjast úr landi
Sovéskyfirvöld hafa veitt rúmlega 200 manns leyfi til aðflytja til
ættingja sinna í Bandaríkjunum
Moskvu — Tilkynnt var í So-
vétríkjunum í gær að rúmlega
200 sovéskum þegnum yrði
leyft að flytjast úr landi til ætt-
ingja sinna í Bandaríkjunum.
Engir gyðingar sem vilja flytj-
ast til Israel eru í þessum hópi.
Júrí Kasjlev, formaður so-
Noregur
Milljarða gassamningur
Stavangri — Tilkynnt var í gær
að Norðmenn hefðu gert
samning um sölu á jarðgasi til
næstu 27 ára úr Norðursjó fyrir
um það bil 250 milljarða nor-
skra króna
Talsmaður norska ríkisolíufyr-
irtækins, Statoil, Willy Olsen,
sagði í gær að þessi samningur
muni tryggja Norðmönnum
Noregur
Harka í
verkföllum
Fjöldi opinberra starfsmanna
sem taka þátt í verkfallinu
eykststöðugt og sér ekkifyrir
endann á því
Osló — Þungi verkfalls opin-
berra starfsmanna jókst í gær
þegar tala verkfallsmanna tvö-
faldaðist og eru þeir nú orðnir
48.000 sem krefjast hærri
launa.
Verkfallið hefur nú staðið í 12
daga og haft víðtæk áhrif. Stræti-
svagnaferðir hafa stöðvast í Osló
og Bergen, starfsfólki á sjúkra-
húsum hefur fækkað mjög og
útvarps- og sjónvarpssendingar
eru komnar í lágmark. Verkfallið
mun brátt hafa áhrif í höfnum og
rafnmagn fer brátt af í mörgum
bæjarfélögum.
Leiðtogar kennara sögðu í gær
að frá og með morgundeginum
yrðu um það bil 8000 kennarar og
fyrirlesarar komnir í verkfall.
Líklegt er talið að fresta verði
prófum í skólum landsins.
Samningaviðræður fóru út um
þúfur á sunnudagskvöldið.
Stjórnvöld hafa hingað til neitað
að setja deiluna í gerðardóm.
aukna markaðshlutdeild í Evr-
ópu um ókomin ár. Hann sagði
einnig að gasframleiðslan sem
kemur af Trölla- og Sleipnissvæð-
inu svonefnda, muni hefjast 1993
og seldir yrðu 450 miljarðar kú-
bikmetra af gasi. Þeir sem kaupa
eru frá V-Þýskalandi, Hollandi,
Belgíu og Frakklandi en við-
ræður eru enn í gangi við fleiri
þjóðir um kaup á gasi.
Norðmenn hafa átt í mikilli
samkeppni við Sovétmenn og
Alsír sem hafa geysilegt magn af
gasi á lægra verði en Norðmenn.
Talið er að staða Norðmanna
sem áreiðanlegur bandamaður á
Vesturlöndum hafi haft mikið að
segja þegar kaupendur gerðu upp
hug sinn. Samkvæmt samningn-
um skuldbinda kaupendur sig til
að kaupa gas til ársins 2020, 20
milljarða kúbikmetra á ári.
vésku nefndarinnar á ráðstefnu í
Bern um samskipti þjóða í milli,
sagði fréttamanni Reuter að þeg-
ar hefðu verið samþykktar 36
beiðnir þar sem 119 manns ættu í
hlut.í fyrradag hefði síðan verið
gefið grænt ljós á 35 beiðnir. Þar
með væru þeir orðnir „rúmlega
200“ sem fá að flytjast til Banda-
ríkjanna, var haft eftir Kasjlev.
Kasjlev sagði að fleiri umsókn-
ir sovéskra þegna um að flytjast
til annara landa hefðu verið sam-
þykktar. Þessi mál eru ekki tengd
ráðstefnunni í Bern.
Talsmaður bandaríska sendi-
ráðsins í Moskvu sagðist ekki
kannast við neina viðbót við þær
36 umsóknir sem fyrst voru af-
greiddar. Kasljev sagði hins veg-
ar að enn ætti eftir að ganga frá
nokkrum formsatriðum varðandi
sumar umsóknir en flest hefði
fólkið yfirgefið landið eða myndi
gera það á næstu dögum.
Felipe Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, hefur gilda ástæðu til að brosa,
flokki hans er spáð yfirburða sigri í þingkosningum síðar í mánuðinum.
Sósíalistar/Spánn
ERLENDAR
FRÉ1TIR
hjörleVfssoi/REUl E R
Spáð stérum sigri
Pingkosningar verða á Spáni hinn 22. þessa
mánaðar og baráttan er að hefjast.
Niðurstöður skoðanakönnunar sem birtar
voru um helgina gefa til kynna að
Sósíalistaflokkur Felipe Gonzalez sem nú er
við völd muni vinna öruggan sigur
Madrid — Sósíalistaflokkur skoðanakönnunum
Spánar, (PSOE), mun halda
meirihluta sínum á þingi í kom-
andi kosningum, 22. júní
næstkomandi, samkvæmt
Pólland
Samstöðuleiðtogi handtekim
Zbigniew Bujak, táknrænn leiðtogi í Samstöðu var handtekinn um
helgina og segjafélagar í Samstöðu að handtakan sé eitt mesta áfallið í
Varsjá — Pólski andófsmaður-
inn Zbigniew Bujak, var hand-
tekinn um helgina eftir að hafa
verið í felum í fjögur ár. Tveir
aðrir andófsmenn Konrad Bi-
elinski og Ewa Kulik, voru
handtekin með Bujak.
Erlendir diplómatar í Póllandi
og félagar í Samstöðu segja að
Bujak hafi verið þekktur um allt
Pólland sem tákn fyrir andstöðu
og sem e.k. tengiliður í hugum
fólks við þá daga þegar Samstaða
var enn lögleg. Bujak hefur nú
verið sakaður um tengsl við vest-
rænar leyniþjónustur.
Henryk Dankowski, hers-
sögu samtakanna
höfðingi tilkynnti handtöku Bu-
jaks á þingi pólska kommúnist-
aflokksins á laugardaginn við
dynjandi lófatak þinggesta. Bu-
jak var handtekinn snemma á
laugardagsmorguninn þegar
hann var að koma af næturfundi.
Bielinski og Kulik munu hafa
verið á sama fundi. Bujak hefur
verið á flótta síðan í desember
1981. Hann var foringi í sérstakri
samhæfingarnefnd hinna bönn-
uðu verkalýðssamtaka Sam-
stöðu. Félagar í Samstöðu segja
að handtaka Bujak sé mesta reið-
arslagið fyrir Samstöðu síðan
herlög voru sett á í landinu 1981
og urðu til að lama samtökin.
Lech Walesa leiðtogi Sam-
stöðu hélt á sunnudaginn stutta
ræðu um handtöku Bujak fyrir
utan Brygida kirkjuna í Gdansk
og voru nokkur þúsund manns
viðstaddir. Hann sagði m.a. að
yfirvöld myndu hæla sér af hand-
tökunni en fyrr eða síðar myndu
friðsamlegar leiðir Samstöðu
hafa sigur.
Dankowski hershöfðingi mun
hafa sagt að Bujak hafi skipulagt
götuóeirðir og kerfi prentverka
um allt landið sem hefðu leitt til
„dapurlegra atburða um allt Pól-
land.
sem
stærsta dagblað Spánar, El
Pais, stóð fyrir nýlega.
Könnunin staðfestir fyrri
kannanir sem gerðar hafa verið,
um að stjórn Felipe Gonzalez fái
öruggan meirihluta í kosningun-
um. Samkvæmt könnuninni sem
náði um allt landið fá sósíalistar
46 % atkvæða og 194 þingsæti af
350 sætum á spánska þinginu.
Helsti stjórnarrandstöðuflokkur-
inn, hægriflokkurinn Alþýðu-
bandalagið (CP), fær samkvæmt
könnuninni 24 % atkvæða. Sam-
kvæmt þessu missa báðir flokk-
arnir nokkurt fylgi, sósíalistar
hafa nú 202 menn á þingi en það
breytir engu um stjórnarmeiri-
hluta.
Kommúnistar fá samkvæmt
könnuninni 3,9 % atkvæða, þeir
fengu 6 % 1982. Miðflokkur
fyrrum forsætisráðherra Adolfo
Suarez (CDS), fær samkvæmt
könnuninni 8% og rúmlega tvö-
faldar fylgi sitt frá síðustu kosn-
ingum. Stjórnmálaskýrendur á
Spáni telja þetta sýna tilraunir
íhaldssamra kjósenda til að finna
sér nýjan leiðtoga, í stað Manuel
Fraga sem nú virðist ætla að ieiða
flokk sinn í annan kosningaósi-
gurinn í röð.
aóeins einn banki býöur
þ&wxm
REIKNING
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.
- . 1 /»* v'iTÍ/iV • 1
I