Þjóðviljinn - 07.06.1986, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 07.06.1986, Blaðsíða 13
HEIMURINN A usturríki/Kosningar Waldheim talinn öruggur Vín — Talið er nokkuð víst að Kurt Waldheim verði kjörinn forseti í seinni umferð kosn- inganna sem verða á morgun þrátt fyrir ásakanir víða að um nasistafortíð hans. Kurt Steyrer, mótframbjóð- andi hans og fyrrum heilbrigðis- ráðherra, er samkvæmt síðustu skoðanakönnunum einum 6 til 8 prósentum á eftir Waldheim. Hann sagði á fundi með frétta- mönnum í gær að hann væri enn bjartsýnn um sigur. Hann vitnaði í óþekkta könnun sem gaf til kynna að hann væri aðeins tveimur prósentustigum á eftir Waldheim hvað fylgi varðar. „Það voru ein milljón Austurrík- ismanna sem kaus Waldheim ekki í fyrri hluta kosninganna, ég á enn góða möguleika,“ sagði Steyrer. í fyrri hluta kosninganna mun- aði litlu að hann næði kjöri. Hann fékk þá 49,64 % atkvæða, Steyrer fékk 43,66 %. Umhverfi- sverndarsinninn Freda Meissner- Blau fékk 5,5% og hægri öfgas- inninn Otto Scrinzi fékk 1,2 %. Waldheim og Steyrer verða einir í kosningu á morgun og Steyrer gerir sér von um að fá atkvæði Meissner-Blau. Waldheim sem er studdur af Þjóðarflokknum sem er í stjórnarandstöðu segist hins vegar viss um að hann fái mikinn fjölda atkvæða frá stuðn- ingsmönnum hennar. Waldheim er talinn öruggur um nægilegan fjölda atkvæða á morgun, þrátt fyrir ásakanir um að hann sé að fela eitthvað Ijótt. Kaipof efstur Bugojno — Nú er níu umferðum lokið á sterkasta skákmóti sem haldið hefur verið og An- atólí Karpof, fyrrum heimsmeistari er enn í forystu með 1 1/2 vinning fram yfir Lju- bojevic frá Júgóslavíu og Sokolof frá Sovétríkjunum. Öllum leikjum í níundu um- ferð sem háð var í fyrradag, lauk með jafntefli. Tony Miles frá Bretlandi sem var í forystu í upp- hafi mótsins tefldi varlega gegn Lajos Portisj frá Sovétríkjunum og samdi um jafntefli eftir aðeins 14 leiki. Artúr Júsúpof skipti á drottningu í upphafi taflsins en náði engu forskoti á Karpof. Karpof hefur nú 5 vinninga og biðskák, Ljubojevich og Sókolaf koma næstir með 4 1/2 vinning og biðskák. Spasskí hefur 4 1/2 vinn- ing, Miles 4 vinninga og biðskák, Júsúpof og Portisj eru báðir með 4 vinninga og Timman frá Hol- landi er neðstur með 3 1/2 vinn- ing. Angólaárásirnar Sovésk og kúbönsk skip Moskvu — Sovéska fréttastof- an Tass sagði frá því í gær að flutningaskipin sem S- Afríkumenn sprengdu í gær í höfninni í Namibe í Angóla hefðu verið sovésk og kúb- önsk. Tass sagði að vegna skæru- hernaðarins hefðu tvö sovésk skip, Vislobokof og Tsjirkof, orðið fyrir alvarlegum skemmd- um þegar verið var að skipa úr þeim vörum. Tass sagði að eng- inn hefði særst. Þá sagði í frétt Tass að rannsókn væri nú hafin frá hendi sovéskra yfirvalda. Ekki var greint frá afdrifum kú- banska skipsins. í frétt angólsku fréttastofunnar Angop í fyrradag sagði að eitt skipið hefði sokkið. „Athygli vekur að á sama tíma og skipin sprungu, skutu s-afrísk skip flugskeytum á ákveðna staði í landi við höfnina í Namibe“, sagði í fréttinni frá Tass. Angóla- stjórn sem nýtur stuðnings Sovét- manna hefur undanfarið sakað S- Afríkumenn um stuðning við UNITA skæruliðahreyfinguna sem berst gegn stjórnvöldum. SP ráðstefna UNITA hreyfingin fékk nýlega loforð hjá Bandaríkjastjórn um hernaðaraðstoð. S-Afr:'kustjórn hefur neitað að segja nokkuð um ásakanir Angólastjórnar um árá- sirnar. UNITA hreyfingin gaf í gær út tilkynningu um að stjórnarherinn hefði hafið mikla sókn í austur- og suðausturhluta landsins þar sem skæruliðar hafa vígi sín. Skærur hafa verið með UNITA og stjórnarhernum frá því landið fékk sjálfstæði undan stjórn Port- úgals árið 1975. Hvatt til olíubanns á S-Afríku Fulltrúar 21 þjóðar innan Sameinuðu þjóðanna samþykktu að herða bann við flutningi olíu til S-Afríku Osló—í gær var ákveðiö á ráð- stefnu á vegum Sameinuðu þjóðanna að setja enn frekari hömlur á olíubirgðir sem eiga að fara til S-Afríku. „Það er ljóst að olíubannið hef- ur ekki gengið nógu vel hingað til. Það er forgangsatriði nú að fylla í holurnar varðandi bann- ið“, sagði Joseph Garba, fulltrúi Nígeríu á fundinum. Garba er fulltrúi nefndar SÞ sem vinnur gegn kynþáttaaðskilnaðarstefn- Los Angeles — Dómari í þess- ari annari stærstu borg Banda- ríkjanna dæmdi í gær yfirmenn „Bítlamaníu" skemmtidag- skrár til að greiða Apple fyrir- tækinu sem er í eigu fyrrum meðlima Bítlanna, 450 miljónir íslenskra króna í skaðabætur. Bítlamaníufyrirtækið fær að borga þessa upphæð fyrir að nota sér „persónuleika Bítlanna" án unni. Fulltrúar á ráðstefnunni samþykktu að hvetja allar þjóðir til að koma á virkri löggjöf sem styrkti olíuflutningsbann til S- Afríku. Undanfarna daga hefur ríkt nokkur stöðnun á ráðstefnunni. í gær samþykktu hins vegar fulltrú- ar Noregs og Nígeríu samkomu- lag um olíuflutningsbann sem Norðmenn gátu sætt sig við. Norðmenn hafa flutt miklar birgðir af olíu til S-Afríku. leyfís. Skemmtidagskráin var þannig uppbyggð að fjórir ein- staklingar sem líkjast Bítlunum fjórum léku nokkur vinsælustu Bítlalögin en á bak við voru sýnd- ar litskyggnur af helstu atburðum frá ferli Bítlanna. Þá hefur einnig verið gerð kvikmynd eftir þessari skemmtidagskrá. Hvorugt mun sjást opinberlega héðan í frá eftir dóm gærdagsins. Norðmenn, Danir og Hollend- ingar, einu stóru skipaflutninga- þjóðirnar á ráðstefnunni, höfðu áður lýst sig andsnúnar vissum at- riðum í endanlegri samþykkt. Þeir einu sem voru síðan á móti henni voru Hollendingar. Garba sagði í lokaræðu sinni að þó ályktanir þingsins væru ekki lög- festar, myndu þær vonandi hafa mikil áhrif á aðra stærri ráðstefnm á vegum SÞ um sama málefni sem hefst í París þann 16. þessa mán- aðar. í síðustu viku lauk í London ráðstefnu um bann við vopnasölu til S-Afríku og sagði Garba að þar hefði náðst góður árangur. Talið er að Lundúna- og Oslóar- ráðstefnurnar hafi lagt grunninn að þeirri sem hefst í París um miðjan mánuðinn en þar verður rætt um allsherjarverslunarbann gagnvart S-Afríku. í haust verður síðan atkvæðagreiðsla hjá SÞ um málið. „Vopnasölubann er til- gangslaust án olíusölubanns sem myndi stöðva hernaðarvél S- Afríkumanna“, sagði Garba. Norðmenn tilkynntu í vikunni að þeir væru að íhuga algert versl- unarbann gagnvart S-Afríku. Vikuna þar áður samþykkti danska þingið verslunarbann á S- Afríku sem hefst 15. júní en hefur sex mánaða aðlögunartíma. Bítlarnir Fá miljarða í skaðabætur Til Vestfjarða? Já, hvers vegna ekki? Kennarar athugið. Á Vestfjöröum eru tæplega 2 þúsund nemendur á grunnskólastigi í 23 skólum. Starfsliö Fræðsluskrifstofunnar veitir ráögjöf og ýmsa aðstoð en þar starfa, auk fræðslustjóra, rekstrarfulltrúi, sálfræðingur og sérkennslufull- trúi. Samvinna er við leiðbeinendur í stærðfræði og íslensku. Gagnasafn er hér ásamt útibúi frá Námsgagna- stofnun með fræðsluefni á myndböndum. Meðal fríðinda sem sveitarfélög hér bjóða um- fram kjarasamninga, er ódýr húsaleiga, flutn- ingsstyrkur og kaupuppbót. Hringdu til okkar í síma 94-3855 eða beint til viðkomandi skólastjóra og leitaðu upplýsinga. Sérstaklega óskast sérkennarar, tón- menntakennarar og myndlistarkennarar. Fræðslustjóri Vestfjarðaumdæmis Pétur Bjarnason Til sölu Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Rafmagnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í nokkra járnklædda timburskúra. Skúrarnir eru til sýnis í birgðastöð Rafmagns- veitunnar í Þórðarhöfða. Tilboð skilist til skrifstofu vorrar, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, eigi síðar en fimmtudaginn 12. júní n.k. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sirni 25800 Staða bæjarstjóra á Eskifirði er laus til umsóknar. Umsóknum meö upp- lýsingum um menntun og fyrri störf skal skila á skrifstofu bæjarstjóra fyrir 20. júní. Upplýs- ingar um starfið gefur bæjarstjórinn á Eski- firöi. Bæjarstjórinn á Eskifirði

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.