Þjóðviljinn - 07.06.1986, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 07.06.1986, Blaðsíða 14
m LAUSAR STÖÐUR HJÁ W REYKJAVÍKURBORG Staða forstöðumanns við dagheimilið Bakkaborg við Blöndubakka. Umsóknarfrestur til 15. júní. Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjón- arfóstrur í síma 27277. Fóstrustöður á dagheimili og leikskóla Hraunborg Hraunbergi 10. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 79770. Umsóknarfrestur til 24. júní. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð. Sveitarstjóri óskast Starf sveitarstjóra í Miðneshreppi er her með auglýst laust til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist á skrifstofu Mið- neshrepps Tjarnargötu 4,245 Sandgerði fyrir 30. júní n.k. Nánari upplýsingar veitir Jón K. Ólafsson sveitar- stjóri í síma 92-7554. Sveitarstjóri Miðneshrepps, Sandgerði Vöruflutningar Óskum eftir að ráða stöðvarstjóra Bifreiðastöðvar K.B. Bifreiðastöðin annast einkum mjólkur- og vöru- flutninga og eru fastir starfsmenn um 20. Umsóknir sendist til Georgs Hermannssonar, sem gefur nánari upplýsingar. Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi, sími 93-7200 Fóstrur - Kópavogur Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir lausar til umsóknar fóstrustöður á eftirtalin dagvistarheim- ili. Um er að ræða ýmist 50% eða 100% starf. 1. Dagvistarheimilið Grænatúni. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 46580. 2. Leikskólann Fögrubrekku. Fóstra 50% starf. Starfsmaðurvið uppeldisstörf 50% starf. Upplýs- ingar gefur forstöðumaður í síma 42560. 3. Leikskólann Kópahvol. Fóstra í 60% starf. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 40120. 4. Skóladagheimili Dalbrekku. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 41750. 5. Dagvistarheimilið Efstahjalla. Fóstrur í 50% störf. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 46150. 6. Dagvistarheimilið Marbakka. Fóstra og starfsmaður við uppeldisstörf. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 641112. Umsóknarfrestur er til 1. júlí. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi á Félagsmálastofnun Kópavogs, Digra- nesvegi 12, og veitir dagvistarfulltrúi nánari upp- lýsingar um störfin í síma 41570. Félagsmáiastofnun Kópavogs Náttúran rak LÞ skrifar um tónleika í Norræna húsinu sl. þriðjudag, þar sem flutt voru verk eftirJón Nordal. Það hefur alls ekki farið á milli mála undanfarna mánuði, að vin- ur vor og meistari, Jón Nordal er orðinn sextugur. Sumsé kominn á sjötugsaldur. Var það ekki ann- ars einhverntímann í febrúar sem hann átti merkisafmælið. Ja mér er reyndar sama, bara ef maður- inn heldur áfram að vera jafn brattur og hann var þegar ég sá hann síðast, á þriðjudaginn var, vestur í mýri. Það var í húsinu sem kennt er við norrænu og var teiknað af Alvar Alto eða ein- hverjum svoleiðis og þarna var verið að flytja verk eftir „II Mae- stro“, honum og eilífðinni til heiðurs og ánægju. Og mikið fannst mér gaman að heyra þarna gömul og ný verk eftir þennan okkar öndvegis- tónsmið eftirstríðsáranna. Sér- staklega þó elsta verkið, Systur í Garðshorni, sem þær Laufey Sig- urðardóttir og Selma Gunnars- dóttir léku, því þetta verk heyrði maður fyrst langt innan við ferm- ingu og var þá svo hissa að á fs- landi væri líka hægt að búa til al- mennilega músík. Og síðan blás- aratríóið, sem heyrðist að mig minnir fyrst á tónleikum í MR, ætli það hafi verið 1948 eða 9? Það eru ógleymanlegir tónleikar. Þá var man ég flutt píanósónata eftir Stravinsky, sönglög eftir Hindemith og sónatínan fyrir klarinett og píanó eftir Honegger og svo þetta yndislega smátríó f. óbó, klarinett og horn eftir Jón. Ætli þetta hafi ekki verið mesti tónlistarviðburður ársins, hvaða ár sem það nú var? Tríóið var þá leikið af Andrési Kolbeinssyni, Agli Jónssyni og undramannin- um Lanzky-Otto, sem mér finnst enn að hafi verið besti horn- leikari í heimi. Núna voru heldur engir aukvisar á ferðinni, Krist- ján Stephensen, Einar Jóhannes- son og Joseph Ognibene. Hvað viljið þið sosum betra? Hinsvegar hef ég aldrei kunnað við sónötu Jóns fyrir fiðlu og píanó. Alltaf fundist hún stíf og tilfærð, en það eru kannski fordómar sprottnir af minnimáttarkennd osfrv. En mikið spiluðu þau Rut Ingólfs- dóttir og Halldór Haraldsson hana samt fallega. Eftir hlé kom Dúóið fyrir fiðlu og selló, sem Guðný konsertmeistari og Gunn- ar Kvaran léku af hreinni snilld. Síðan Ristur f. klarinett og píanó með þeim Sigurði I. Snorrasyni og Önnu Guðnýju, en það verk hefur maður heyrt nokkuð oft sl. ár og er þó alls ekki orðinn leiður á því. Síður en svo. Hinsvegar var ég orðinn svo þreyttur í löppun- um (ég tapaði sætinu mínu í hléinu, það var troðfullt hús), og gafst upp áður en Hamrahlíðar- kórinn hóf að syngja nokkur smá- lög í lokin. Sé auðvitað alveg voðalega eftir því. En náttúran ræður. Aldurinn? LÞ Að raða sar 10 Austurríkisr Ein af þeim sýningum sem afar h'tið hefur farið fyrir í því stór- merkilega sýningarflóði sem skellur á okkur vegna Listahátíð- ar ’86, er sýning á verkum tíu Austurríkismanna í sölum Ný- listasafnsins við Vatnsstíg. Sýn- ingin er að vísu ekki stór í sniðum en hún veitir sýningargestum mikilsverðar upplýsingar um nokkuð af því sem er að gerast í austurrískri myndlist. Áður en þessi austurríska sýn- ing var sett upp náði ég tali af tveimur þeirra listamanna sem verk eiga í Nýlistasafninu. Þeir heita Franz Graf og Fritz Grohs og munu væntanlega vera staddir á Snæfellsnesi um þessar mundir; þessum skaga hvar guð hefur náðarsamlegast att saman flestu því sem prýðir íslenska náttúru í eins konar „míkró-skuggsjá“, svo útlendingar sem lítinn tíma hafa til að hlaupa út og suður geti fundið smjörþefinn á einum stað af öllu landinu. Því miður mun ekki vera pláss í blaðinu til að gera öllu skil sem okkur fór á milli, en þeir Franz og Fritz gátu frætt mig um ýmislegt sem einkennir austurríska list- hugsun á 9. áratugnum. Fyrst tjáðu þeir mér að þessi tíu manna hópur væri ekki samstilltur, held- ur væru listamennirnir hver öðr- um ólíkir og kæmu auk þess frá flestum héruðum Austurríkis. Þeir ættu lítið annað sameiginlegt en það að fást við austurrískan ] veruleika í myndum sínum, eins i og hann birtist í umhverfi þeirra, : sögu og hugsunarhætti. , Þeir Franz og Fritz voru var- - kárir og veigruðu sér við að tala fyrir munn þeirra átta sem ekki , voru viðstödd, en þegar þeir voru ; inntir eftir sérkennum austur- i rískrar nútímalistar, svöruðu þeir i því til að sagan skipti þar miklu • máli. Hvað þá sjálfa varðaði þá gætu þeir ekki annað en viður- kennt að fortíð Austurríkis væri þung á metunum og hvfldi eins og mara yfir austurrískri Iist. Þeir sögðu að þetta kæmi fyrst og fremst í ljós í afstöðu þeirra og annarra ungra listamanna til hug- myndafræðinnar sem lægi að baki því sem þeir sköpuðu. Þegar litast er um í salnum blasa við ákveðin einkenni sem sammerk eru flestum verkunum. Það eru hinar daufu, nánast óá- þreifanlegu áherslur sem ríkja, eilítið dauðakenndar en engu að síður upphafnar. Þessar „fíness- 1 ur“ stinga mjög í stúf við afdrátt- arleysi frændanna í norðri, Þjóð- verjanna, sem ávallt mála í anda Lúthers, „hér stend ég og get ekki meir“, jarðbundnir og fastir fyrir. Austurríkismenn virðast á hinn bóginn loftkenndir, annars- heimslegir og hverfulir. Það er áberandi hve mörg verkin á sýn- ingunni í Nýlistasafninu eru lit-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.