Þjóðviljinn - 12.08.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Hvalveiðar
Grænfriðungar hóta
íslendingar verðskulda ekki að lifa á jörðinni. Grænfriðungar munu grípa til
aðgerðafljótlega. Bandaríkjamenn munu beita sérfyrir hertum reglum um
hvalveiðar í vísindaskyni
Talsmenn Grænfriðunga hafa í
hótunum við íslendinga vegna
hvalveiðanna. Allen Picaper,
talsmaður þeirra í Englandi,
sagði í gær við blaðamann Þjóð-
viljans, að íslendingar verðskuld-
uðu ekki að lifa á jörðinni og deila
henni með öðrum lífverum.
Sagði hann umhverfissinna
mjög reiða og á næstunni yrði
ákveðið til hvaða aðgerða yrði
gripið gegn ísiendingum.
Dean Wilkinson, talsmaður
Grænfriðunga í Bandaríkjunum,
sagði af og frá að nokkurt sam-
komulag hefði náðst milli ríkis-
stjórna Islands og Bandaríkjanna
um hvalveiðimálið, hinsvegar
sæju Bandaríkjamenn sér ekki
fært að grípa til viðskiptaþving-
ana.
Grænfriðungar í Bandaríkjun-
um munu ræða við fulltrúa sinn í
Alþjóða hvalveiðiráðinu í næstu
viku og móta stefnuna fyrir næsta
fund ráðsins. Mun fulltrúi
Bandaríkjanna þá líkast til bera
upp tillögur um hertar reglur um
vísindaveiðar.
Grænfriðungar fullyrða að
rannsóknir séu bara yfirvarp til
að stunda hvalveiðar í hagnaðar-
skyni. -Sáf.
Sjá bls. 3
s
Italía
Sögðu hug sinn
Róm - Einn hermdi eftir Hitler,
annar hermdi eftir pafanum og
ruddi úr sér f úkyrðum og klám-
vísum, enn annar hótaði ná-
granna sínum dauða. Þeir
hringdu í einkaútvarpsstöð í
Róm og fengu að segja það
sem þeim lá mest á hjarta.
Þessi útvarpsstöð, Vox Pop,
var opnuð upp á gátt fyrir hlust-
endum með þvflíkum afleiðing-
um. Tiltæki hlustenda gengu svo
fram af yfirvöldum að nú hefur
verið fyrirskipuð lögreglurann-
sókn á stöðinni og ekki er talið
ólíklegt að henni verði nú lokað.
-IH/Reuter.
Loðnan
Tregt með
móttöku
Nú eru 12 loðnuskip komin á
miðin, sem eru norðan við Jan
Mayen. I gær voru þrjú skip á leið
til lands en aðeins var trygg
löndun hjá tveimur. Krossanes-
verksmiðjan gat tekið við einum
farmi og Raufarhafnarverks-
miðjan öðrum. Talið var mögu-
legt að 3ja skipið fengi að landa á
Siglufirði.
Það er sumsé allt í óvissu með
loðnumóttöku ennþá. Aðeins
Raufarhöfn og Krossanesverk-
smiðjurnar taka við og líkur á að
SR á Siglufirði opni. Aðrar
verksmiðjur taka ekki við loðnu.
Það er því ljóst að erfiðleikar geta
orðið hjá þessum 12 skipum að
losna við loðnuna ef vel veiðist.
Aðal loðnuveiðisvæðið er nú
norðan við Jan Mayen að sögn
Andrésar Finnbogasonar hjá
loðnunefnd. Það er því æði langt
fyrir skipin að sækja loðnuna.
Þau skip sem voru á leið í land í
gær með afla voru Svanur RE
með 710 tonn, Þórður Jónasson
með 650 tonn og Hrafn GK með
670 tonn.
- S.dór.
Gffurleg spenna er komin í baráttuna um íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu eftir 1 -0 sigur Vals á Fram í gærkvöldi. Aðeins eitt stig skilur nú liðin að. Á mynd
E.ÓI. gómar Guðmundur Hreiðarsson markvörður Vals boltann af tám nafna síns Torfasonar úr Fram, markahæsta leikmanns 1. deildarinnar. Sjá iþróttir
bls. 9-12.
Sjálfstæðisflokkur
Keflavíkurflugvöllur
Tollskoðað í nryrkri
Rafmagnið var tekið af Flugstöðinni á
Keflavíkurflugvelli. Farþegarfengu ekki
afgreiðsluífríhöfninni. Tollskoðun ímyrkri
Morgunblaðið
ræðst á Þorstein
Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins: fjölmargir launþegar munu ekki
eiga fyrir nauðsynjum síðari hluta ársins vegna skattastefnu Þorsteins.
Skattastefnan kann að brjóta niður launastefnu kjarasamninganna
Við vorum ekki látnir vita af því
að flugstöðin yrði rafmagns-
laus og það er það eina sem ég tel
alvarlegt í málinu, sagði Ólafur
E. Hannesson fulltrúi lögreglu-
stjóra á Keflavíkurflugvelli um
þann atburð sl. laugardagskvöld
að rafmagn var tekið af flugstöð-
inni vegna einhverra viðgerða á
svæðinu.
Farþegar sem komu til landsins
sl. laugardagskvöld fengu enga
afgreiðslu í fríhöfninni við litlar
vinsældir, sem skiljanlegt er.
Sömuleiðis var ekkert tollskoðað
vegna ljósleysis að sögn farþega.
Ólafur E. Hannesson sagði aftur
á móti að „tollskoðun hefði verið
í lágmarki“.
Hin mikla öryggisgæsla, sem
vopnaðir Víkingar halda uppi í
flugstöðinni, var að sjálfsögðu
einnig í „lágmarki“ þar sem menn
sáu lítið sem ekkert til í myrkrinu
um kvöldið.
Ólafur E. Hannesson vildi lítið
gera úr málinu, sagði að á Suður-
nesjum væru síðsumarkvöldin
mun bjartari en í Reykjavík og
því hefði sést ágætlega til verka.
Hann sagðist aftur á móti hafa
haft samband við rafveituna og
farið þess á leit við hana að lög-
regla og tollgæsla yrðu látnar vita
ef rafmagn yrði tekið af flugstöð-
inni í framtíðinni.
- S.dór.
IReykjavíkurbréfl Morgun-
blaðsins um síðustu helgi er
hörð árás á skattastefnu Þorsteins
Pálssonar fjármálaráðherra og
formanns Sjálfstæðisflokksins.
Þar er því haldið fram, að á sfðari
hluta þessa árs muni „fjölmargir
launþegar greiða svo mikinn
hluta launa sinna í skatt síðari
hluta ársins að þeir eigi ekki fyrir
nauðsynjum“.
Morgunblaðið telur, að þetta
muni meðal annars leiða til vax-
andi launakrafna og aukins
launaskriðs „langt umfram þær
launabreytingar sem um var sam-
ið í kjarasamningum fyrr á þessu
ári“.
í Reykjavíkurbréfi er jafn-
framt leitt getum að því, að
launastefnan, og um leið sú efna-
hagsstefna, sem mörkuð var með
samningunum í haust, kunni að
brotna „niður með haustinu
vegna þess hve skattar koma
þungt niður á sumum þjóðfélags-
hópum".
Höfundur Reykjavíkurbréfs
tekur skýrt fram, að tæknilega
hefði Þorsteini verið kleift að
lækka skattvísitöluna í apríl, áður
en álagning fór fram, „en fjár-
málaráðherra taldi pólitískar for-
sendur ekki vera fyrir hendi til
þess“, segir í Reykjavíkurbréfi.
Þetta mat fjármálaráðherra og
formanns Sjálfstæðisflokksins er
svo mjög dregið í efa síðar í bréf-
inu.
Árásum á Þorstein Pálsson
hefur fjölgað mjög í Morgun-
blaðinu síðustu mánuði, en högg
af þessum þunga er sjaldgæft að
ritstjórar málgagns Sjálfstæðis-
flokksins felli á mann í sæti Þor-
steins Pálssonar. Þetta þykir
benda til þess að staða hans
veikist æ meir.
-ÖS
Sjá Klippt og skorið
bls. 4.