Þjóðviljinn - 12.08.1986, Blaðsíða 14
Auglýsing
frá sjávarútvegsráðuneytinu vegna van-
skila á afla- og sóknarmarksskýrslum til
Fiskifélags íslands.
Aö gefnu tilefni vekur ráöuneytiö athygli útgerö-
armanna og skipstjóra á gildandi reglum í
botnfiskveiðileyfum um skýrsluskil til Fiskifélags
íslands. Ráöuneytiö mun á næstunni kanna
hvernig skýrslur hafa borist um afla og sókn ein-
stakra skipa og veröa þeir, sem ekki hafa skilaö
skýrslum samkvæmt gildandi reglum, sviptir
veiðileyfi án frekari fyrirvara og allar veiöar skipa
þeirra stöövaðar. Tekur þetta til allra skipa 10 brl.
og stærri og ennfremurtil smærri báta, sem neta-
veiöar stunduöu á sl. vetrarvertíð.
Sjávarútvegsráðuneytiö,
8. ágúst 1986.
Húseigendur!
Okkur bráövantar íbúöir og herbergi á skrá.
Húsnæðismiölun Stúdentaráðs HÍ
Sími 621080.
Kennarar
Grunnskólann í Grindvík vantar kennara fyrir
yngstu nemendurna næsta vetur. Einnig vantar í
7.-9. bekki kennara í íslensku, eölisfræöi og
stæröfræöi. Áhugasamir fá nánari upplýsingar
hjá skólastjóra í símum 92-8504 og 92-8555, og
skólanefnd í síma 92-8304.
Skólanefnd.
ra Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á geðdeild
F.S.A. sem opnuö var síðastliðið vor. Geödeildin
er í nýrri og vistlegu húsnæöi, meö rými fyrir 10
sjúklinga. Starfsaöstaða öll mjög góö.
Upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri og deildar-
stjóri geðdeildar.
Iðjuþjálfi óskast til starfa á geðdeild F.S.A..Upp-
lýsingar veita deildarstjóri og yfirlæknir deildar-
innar.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra F.S.A.
fyrir 15. september 1986.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
DJÚÐVILJINN
blaðið
sem
vitnað
eri
/s
HEIMURINN
Hvað líður tímanum? Jaruzelski flokksleiðtogi á 10. þingi pólska kommúnistaflokksins.
Pólland
í leit að stefhu
Pólskir kommúnistar velta núfyrirsér hvaða efnahagsstefnu skuli
framfylgja. Gorbatsjof hefur gefið yfirvöldum grœnt Ijós þráttfyrir
lítinn árangur undanfarinna ára og mikinn óróleika ípólsku samfélagi
Hinn Sameinaði pólski
verkamannafokkur (Kommún-
istaflokkur Póllands) er í klípu.
Jan Morawski heldur þessu
fram í danska blaðinu Inform-
ation. Morawski er dulnefni
samfélagsfræðings sem skrif-
ar reglulega í Information um
pólsk málefni.
Hann segir að flokkinn skorti
stefnu og vitund um mögulega
stefnu. Frá því í ágúst 1980 hefur
flokkurinn misst eina milljón
meðlima. Enn eru 2,1 milljón
manns í flokknum en reynslan frá
tíma herlaganna (desember, 1981
til júlí 1983) hefur haft sitt að
segja. Auk þess hefur lítið farið
fyrir árangri af yfirlýstum efna-
hagsumbótum og þess hefur gætt
meðal þeirra manna sem enn eru
í flokknum, segir Morawski.
Fyrir stuttu síðan var haldið 10.
flokksþing kommúnistaflokksins
í Póllandi og þar var lögð mest
áhersla á að flokkurinn hefði lyk-
ilhlutverki að gegna í pólsku
samfélagi sem einingartákn.
Hann væri enn traustur í sessi.
Handtökur nokkurra helstu for-
ystumanna neðanjarðarhreyfing-
ar Samstöðu nú í sumar, sögðu
ráðamenn að væru staðfesting
þessa. Til að fá punkta var síðan
samviskuföngum í Póllandi
sleppt úr haldi í hundraðatali. En
ekki forystumönnum Samstöðu.
Lýðrœðið skal
vera tœki valdhafa
Samt sem áður mátti heyra
raddir á þinginu sem hvöttu til
samstarfs við aðila utan flokks-
ins. Morawski segir hins vegar að
eftir að hafa rannsakað ræður
manna á flokksþinginu sé erfitt
að sjá að slíkar hugmyndir séu
raunverulega á dagskrá. Margar
ræður snerust að hans mati um að
lýðræðið væri fyrst og fremst tæki
valdhafa. Vel mætti hafa not af
því þar til taka þarf ákvarðanir.
Þá er fyrst og fremst þörf fyrir
öguð vinnubrögð til að koma
ákvörðunum í framkvæmd.
Áherslan er á aga, þar er tekin
upp tala Gorbatsjofs um að upp-
ræta spillingu og litla framleiðni
og hægfara skrifræði. En Jaruzel-
ski sagði einnig. „Gagnrýnið fólk
er nauðsynlegt þó oft sé erfitt að
eiga við það viðræður.“ Á þess-
um nótum er áherslan enn sem
fyrr á aga og í raun fer lítið fyrir
gagnrýnni umræðu. Morawski
vitnar einnig í orð
„heiðursgestsins“ á flokksþing-
inu, Gorbatsjof Sovétleiðtoga,
að það hafi mjög mikla þýðingu
við að koma á eðlilegu ástandi í
Póllandi að fólk „veit hvað er
leyft og hvað ekki verður með-
tekið.“
Morawski segir ljóst að mikil
óvissa ríki enn um það hvaða
stefnu beri að taka í efna-
hagsmálum. Hvort það verði hin
svonefnda ungverska leið sem
byggir að nokkru leyti á mark-
aðssjónarmiðum, eða hvort
austur-þýska módelið verður val-
ið sem byggir á miðstýringu í
samvinnu ólíkra starfsgreina.
Morawski segir að ef austur-
þýska leiðin verði valin verði Pól-
landi stýrt af laustengdu sam-
bandi atvinnugreina, það sé aftur
á móti afturhvarf til fyrri stefnu
sem ríkjandi var á sjötta áratugn-
um og gafst ekki vel. Hann segir
að slík leið sé ekki heppileg þar
sem í Póllandi sé ekki sama hefð-
in fyrir hollustu við vinnustað og
yfirvöld líkt og gerist í Austur-
Þýskalandi.
Morawski segir að þó lítið hafi
gengið við endurbætur á efnahag
landsins undanfarin ár hafi ná-
lægð sovéska leiðtogans á flokks-
þinginu í sumar þá þýðingu að í
stað heldur slæmrar samvisku
hafi nú komið fram nokkur
bjartsýni meðal pólskra valda-
manna. Gorbatsjof gaf núver-
andi valdamönnum grænt ljós á
framhaldið þó ekki hafi komið
fram ákveðin stefnumótun í efna-
hagsmálum. IH/Information
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 12. ágúst 1986