Þjóðviljinn - 12.08.1986, Blaðsíða 13
MÓBWUINM
Og þetta
líka...
ísraelskar
herflugvélar gerðu í gær loftárás á
stöðvar palestínskra skæruliða í
Bekaa dalnum í Líbanon sem sýr-
lenskar hersveitir ráða. Þetta var
önnur loftárásin á 24 klukkustund-
um. Árásin mun hafa verið í hefnd-
arskyni fyrir nýlega áras sveita
Palestínuskæruliða í norður hluta
fsrael. Árás ísraelsmanna var aftur
á móti á tvö skotmörk vestur af
bænum Baalbek. Byggingar og
farartæki í búðunum skemmdust í
árásinni. ísraelsmenn hafa heitið
því að ráðast gegn hermönnum
Palestínuskæruliða hvar og hve-
nær sem tækifæri gefst til að koma
í veg fyrir árásir þeirra inn á land-
svæði ísraelsmanna. Árásin í gær
var sú tíunda sem ísraelsmenn
standa fyrir inn í Líbanon á þessu
ári.
Picasso
er tilefni deilna um menningarmál í
Ástralíu og það nokkuð svæsinna.
Menningarráðherra Viktoríufylkis í
Ástralíu fékk í gær brunna eld-
spýtu senda í pósti og sagði hann
að ekki væri ólíklegt að sendingin
kæmi frá samtökum sem hóta að
eyðileggja Picassomálverk sem
þeir stálu úr málverkasafni fylkis-
ins. Samtökin nefnast því kostu-
lega nafni „Áströlsku menningar-
hryðjuverkamennirnir" og mál-
verkið sem þeir stálu fyrir níu
dögum síðan er „Grátandi kona“,
frá árinu 1937. Samtökin höfðu til-
kynnt að málverkið yrði brennt
viku eftir þjófnaðinn ef ríkisstjórn
Ástralíu yki ekki að miklum mun
framlög til menningarmála og
kæmu af stað tveimur árlegum
verðlaunaveitingum fyrir unga
listamenn. Menningarfrömuður
nokkur tilkynnti á föstudaginn að
hann hefði ákveðið að setja á stofn
tvo sjóði fyrir unga listamenn og
yrði veitt úr hvorum þeirra 5000
dollurum á ári. Yfirvöld tilkynntu
þá að þau vonuðust tll að þar með
væri menningarfýsn samtakanna
svaiað. Brennda eldspýtan virðist
hins vegar gefa annað til kynna.
Gull-
og platínuverð hefur hækkað með
ógnarhraða á mörkuðum vegna
ótta um að S-Afríkustjórn muni
draga úr sendingum sínum á þess-
um málmum til annarra landa tii að
svara umræðum um refsiaðgerðir
gegn S-Afríku. S-Afríka framleiðir
einna mest í heiminum af þessum
málmum. Verð á gulli hefur ekki
verið hærra á alþjóðamörkuðum í
2 1/2 ár. Talið er að únsan af gulli
muni brátt kosta 400 dollara, það
er nú 394,50 dollarar á hverja
únsu. Únsan af platínum kostaði
aðeins 235 dollara fyrir ári síðan. í
gær kostaði hún hins vegar 565
dollara í Zurich.
Granma,
dagblað yfirvalda á Kúbu, tilkynnti
í gær að ofursti í her Bandarikj-
anna hefði sótt um hæli sem pólit-
ískur flóttamaður á Kúbu vegna
stefnu bandarískra yfirvalda í Mið-
Ameríku. Bandarísk yfirvöld neita
hins vegar fréttinni og segja að
maðurinn, Romeu Almeida, sé
hvergi á skrám hjá þeim. Granma
sagði að Almeida væri kúbansk-
fæddur Bandaríkjamaður sem
hefði verið í herþjónustu í Stutt-
gart í V-Þýskalandi. Blaðið sagði
að Almeida hefði sótt um hæli þar
sem herinn hefði ætlað að senda
hann til Mið-Ameríku. Vietnam
stríðið mun hafa haft mikil áhrif á
þessa ákvörðun hans. Hann var á
þeim tíma í herþjónustu í Dominik-
anska lýðveldinu. Hann mun hafa
komið til Kúbu í gær. Bandaríkja-
menn vilja hins vegar ekkert víð
manninn kannast, segja engan
mann með þessu nafni vera í þjón-
ustu Bandartkjahers í Stuttgart.
Umsjón:
Ingólfur
Hjörlejfsson
S-Afríka
Neyðarlög ógild
Dómstóll í S-Afríku úrskurðaði ígœr að klásúla í neyðaraástandslögunum í S-Afríku,
sem leyfir handtöku og varðhald fólks án réttarhalda, sé ólögleg
Jóhannesarborg - Hæstiréttur í
fylkinu Natal í S-Afríku úr-
skuröaði í gær að neyðar-
ástandstilskipun stjórnvalda í
S-Afríku, sem segir m.a. að
leyfilegt sé að setja fólk í varð-
hald án dóms, hafi ekki laga-
gildi.
Úrskurðurinn sem tilkyrintur
var í Durban í gær er mesta áfallið
til þessa sem ríkisstjórnin í S-
Afríku hefur orðið fyrir varðandi
neyðarástandslögin. Lögfræðing-
ar í landinu sögðu í gær að ef ríkis-
stjórn P.W. Botha gefur ekki út
nýja og endurbætta reglugerð um
neyðarástandslög verði að leysa
þúsundir manna úr haldi á næstu
dögum. Talið er að nú séu um
það bil 5000 manns í haldi og má
búast við að þeir verði flestir látn-
ir lausir.
Ríkisstjórnin fór strax í gær
fram á áfrýjun úrskurðarins í
Durban. Sá úrskurður gekk út á
að Lechesa Dinoli, ritari Lam-
ontville deildar Sameinuðau
lýðræðisfylkingarinnar (UDF),
yrði látinn laus. Hann var hand-
tekinn 12. júní, á fyrsta degi
neyðarástandslaganna. Hæsti-
réttur Natal fylkis úrskurðaði að
stjórnvöld gætu því aðeins hand-
tekið fólk, að slíkt leiddi til þess
að ekki væri lengur þörf fyrir
neyðarástandslögin. Dómstóll-
inn úrskurðaði einnig að örygg-
ismálaráðherrann, Louis Le
Grange, og dómsmálaráðherr-
ann, Kobie Coetsee, skyldu leysa
Tsenoli úr haldi og borga dóm-
skostnað.
Ríkissaksóknari hélt því fram
að Tsenoli hefði notað heimili sitt
sem þjálfunarbúðir í vopnaburði.
Tsenoli hafði neitað þessu. Geoff
Budlener, einn helsti lögfræðing-
urinn í S-Afríku á sviði
mannréttindamála, sagði í gær að
þessi úrskurður yrði áreiðanlega
til þess að leysa yrði þá fanga úr
haldi sem handteknir voru sam-
kvæmt neyðarástandslögum.
Aðrir lögfræðingar héldu því hins
vegar fram að stjórnin gæti gefið
út nýjar reglugerðir og létu í ljós
efasemdir um að úrskurður rétt-
arins í Natal væri bindandi fyrir
önnur fylki. Talsmaður
stjórnvalda sagði í gær að ekkert
yrði sagt um þetta mál fyrr en
áfrýjun stjórnarinnar hefði verið
tekin fyrir.
Sovét
Júrí
Bandaríkin /Sovétríkin
Afvopnunarviðræður
Háttsettir embœttismenn Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
funda nú í Moskvu um afvopnunarmál
og er vonast til að það muni greiðafyrir leiðtogafundi
Moskvu -Bandarískir og so-
véskir embættismenn hittust í
gær í Moskvu til viðræðna um
fækkun kjarnaorkuvopna og
geimvopnakerfa. Er vonast til
að þessar viðræður greiði veg-
inn fyrir leiðtogafundi á þessu
ári.
Fundurinn á einnig að greiða
fyrir afvopnunarviðræðum stór-
veldanna í Genf. Formenn
nefndanna eru Paul Nitze, sér-
stakur ráðgjafi Reagans Banda-
Osló - Kaare Willoch, formað-
ur norska íhaldsflokksins og
fyrrverandi forsætisráðherra,
mun segja af sér sem flokks-
formaður á næsta aðalfundi
flokksins, eftir því sem fregnir
hermdu í Osló í gær.
Reuter fréttastofan hefur eftir
heimildarmönnum sínum að sá
sem muni taka við af honum
verði líkast til Rolf Presthus. Aft-
Shanghai - Desmond Tutu,
biskup í S-Afríku, sagði í gær
að hann kysi helst
stjórnmálakerfi sósíalismans,
en væri hins vegar andvígur
kommúnisma.
Tutu, sem nú er í heimsókn í
Kína, sagði á fundi með frétta-
mönnum að hann hefði hrifist af
umburðarlyndi kommúnískra
yfirvalda í landinu gagnvart ólík-
um sjónarmiðum. Hann bætti
ríkjaforseta um afvopnunarmál,
og Viktor Karpof, formaður so-
vésku sendinefndarinnar í við-
ræðunum í Genf. Báðir aðilar
vildu í gær ekkert segja um gang
viðræðnanna. Schultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
síðustu viku að menn skyldu ekki
vera of bjartsýunir um gang þess-
ara viðræðna. Opinberir fjöl-
miðlar í Sovétríkjunum tilkynntu
nýlega að í bréfi Reagans Banda-
ríkjaforseta til Gorbatsjofs, 25
júlí, væri ekki að finna tillögur
enposten hafði eftir Willoch í gær
að hann vildi ekkert segja um
þessar fregnir enn. Blaðið til-
kynnti hins vegar að nú væri ljóst
að Presthus yrði næsti leiðtogi
flokksins. Willoch, sem er 57 ára
gamall, hefur verið þingmaður
frá árinu 1957.
Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs og formað-
ur norska Verkamannaflokksins,
hins vegar við að hann væri
mótfallinn kommúnisma. „Ég er
mótfallinn allri þeirri hugmynda-
fræði sem fylgir guðleysishug-
myndum og sjálfur vildi ég ekki
lifa í kommúnísku samfélagi".
Hann sagðist einnig vera and-
snúinn kapítalisma þar sem sú
hugmyndafræði tæki gróðasjón-
armið fram yfir manngildissjón-
armið. „Ég hef andstyggð á kap-
ítalisma", sagði Tutu ennfremur.
sem leitt gætu til áþreifanlegs ár-
angurs í afvopnunarviðræðum.
Ymsir sérfræðingar telja að
helsta vonin um árangur sé nú að
finna í viðræðum varðandi fækk-
un meðaldrægra kjarnorkueld-
flauga í Evrópu. Helsti Þrándur í
Götu fyrir samkomulagi er hins
vegar talinn SDI áætlun (Stjörnu-
stríðsáætlunin) Bandaríkjafor-
seta sem kveður á um varnarkerfi
í geimnum gegn kjarnorkuvopn-
aárás. Reagan vill ekki falla frá
þeim áætlunum.
hefur tilkynnt að hún muni í
haust leggja fram á þinginu til-
lögur um strangar aðahaldsað-
gerðir í ríkisfjármálum. Þær að-
gerðir eiga að vinna gegn lækk-
andi olíuverði, hætta er hins veg-
ar á því að ríkisstjórnin, sem er í
minnihluta á þingi, muni falla ef
Brundtland tekst ekki að koma
tillögum sínum í gegnum þingið í
október.
„Sú leið sem vestræn ríki hafa far-
ið varðandi kynþáttaaðskilnaðar-
stefnuna styrkir mig í andstöðu
minni við kapítalismann. Ég vil
heldur eitthvert form sósíal-
isma.“
Tutu, sem verður erkibiskup af
Höfðaborg í næsta mánuði, kom
til Shanghai á föstudaginn og er
búist við að hann hitti æðstu ráða-
menn Kommúnistaflokks Kína í
þessari viku.
Brésneff
atvinnu-
laus
Gengið brösuglega eftir
að Gorbatsjofftók við
Júrí Brésneff sonur Leóníds
heitins er kominn á eftirlaun að-
eins 53 ára gamall. Hann hefur af
heilsufarsástæðum fengið lausn
frá stöðu sinni sem fyrsti að-
stoðarutanríkisverslunarráð-
herra.
Júrí varð ráðherra 1979, þrem-
ur árum áður en faðir hans lést,
og komst skömmu síðar í mið-
stjórn flokksins. Honum hefur
hinsvegar gengið brösuglega í
pólitíkinni eftir að Gorbatsjoff
tók við.
Júrí var hinn síðasti af
Brésneff-ættinni að láta af háu
embætti í sovéska stjórnkerfinu,
en á síðustu Brésneffárunum
varð þar vart þverfótað fyrir son-
um, dætrum, frændum, frænkum
og tengdasonum rithöfundarins
og bflavinarins mikla.
ERLENDAR
FRÉTTIR
HARALDSSOn/R E in ER
Tutu biskup, vill búa við sósíalískt
hagkerfi.
Noregur/íhaldsflokkurinn
Willoch hættir formennsku
Desmond Tutu
Vill sósíalisma,
ekki kommúnisma
Þriðjudagur 12. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17