Þjóðviljinn - 03.09.1986, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.09.1986, Blaðsíða 3
FREITIR Nígería Skreiðin enn um borð Kynningarrit Allir með strætó 40-80 krónum ódýrara en með einkabíl úr Breiðholti í miðbæinn Stjórn SVR bauð blaða- mönnum til stjórnarfundar í gær til að kynna útgáfu upplýsingarits sem borið verður í hvert hús í borginni nú i vikunni. Hr það von SVR að upplýsing- aritið megi verða til þess að marg- ir sem nota alfarið einkabílinn og þekkja ekki þjónustu strætis- vagnanna muni verða margs vís- ari um þá þjónustu sem þeir veita. í ritinu er að finna leiða- kort, tímatöflur og margs konar upplýsingar aðrar sem að gagni mega koma. Líta má á upplýsing- aritið sem framlag SVR til Reykjavíkurafmælisins, en eins og menn muna var ókeypis með vögnunum á afmælisdegi borgar- innar. Stjórnarmeðlimir bentu á að vaxandi umferðarþungi í borg- inni hefur nú aukið þörf öflugrar þjónustu SVR, auk þess sem verulegur peningasparnaður fylgir notkun hennaren það er 40-80 kr. ódýrara að fara með strætisvagni úr Breiðholti í mið- bæinn en í einkabíl. Einnig losna menn við áhyggjur af umferðinni og erfiðum akstursskilyrðum, leit að bílastæðum o.fl., svo ekki sé minnst á hina þjóðhagslegu hag- kvæmni sem gott strætisvagnak- erfi býður upp á. - GH Engar tryggingar hafa enn komiðfrá Nígeríumönnum vegna skreiðarfarmsins sem þangað varsendur á dögunum. Ní- geríumenn skulda íslendingum um 200 miljónir króna fyrirskreið Pað hefur engin trygging verið lögð fram enn og því er farm- urinn enn um borð í skipinu, sem liggur fyrir utan losunarhöfn í Nígeríu. En við erum sannfærðir um að tryggingin verður greidd, þetta gengur bara hægt þarna syðra, sagði Árni Þór Bjarnason hjá íslensku umboðssölunni, en hún sá um skreiðarfarminn sem sendur var út á dögunum. Árni sagði að Islenska um- boðssalan ætti um það bil 900 þúsund dollara inni hjá Nígeríu- mönnum fyrir skreið. Hannes Hall hjá Samlagi skreiðarfram- leiðenda sagði að samlagið ætti enn inni rúmar 4 miljónir dollara, sem er skuld allt frá árinu 1983. Skuldir Nígeríumanna við ís- lenska skreiðarframleiðendur nema því um 200 miljónum króna og virðist ganga hægt að inn- heimta þetta. Þeir Árni og Hannes sögðu báðir að tvennum sögum færi af því hvort búið væri að loka skreiðarmarkaðnum í Nígeríu það sem eftir væri ársins. Hvoru- tveggja hefði heyrst, að hann væri opinn og að hann væri lokað- ur. - S.dór Þjóðviljinn Á sömu línu! Ég þurfí ekki annaö en að taka upp tólið hjá mér og með það sama var ég kominn inn á línu hjá ykkur. Þetta var bara svona eins og maður væri í sveitasímanum. En ég hlustaði nú ekkert, sagði Jóhannes Lárusson í samtali við Þjóðviljann í gær, en hann átti þess kost i sumar að hlera síma Þjóðviljamanna. Ekki var það nú samt svo að Jóhannes hafi komið fyrir hlerun- arbúnaði eða gert þetta af ásettu ráði með einhverjum belli- brögðum, heldur varð hann fyrir þessu alsaklaus og segist heldur hafa viljað vera án þess. Ástæðan var einfaldlega sú að tækjabún- aður Pósts og síma stóð sig ekki sem skyldi, en nú virðist því hafa verið kippt í lag. - gg Það var nóg af smáufsa í höfninni í Garði þegar Þjóðviljamenn litu þar við í gaer. Þeir félagar Guðni og Magnús drógu hvern tittinn á fætur öðrum og kváðust gefa mömmu og pabba í soðið ef þeir stóru bitu á öngulinn. Hitt fer líklega í gúanó. Ljósm. Sig. Dalvík Vatnið vantar Lindarsvœði í Karlsárdal rannsökuð í vetur Kjaradeilur Ósigur hinna þröngsýnu Ögmundur Jónasson: Lá við slysi en réttarríkið sigraði. 10 starfsmenn Ríkisútvarpsins sýknaðir afákœru saksóknara Lítið rofar til í vatnsmálum Dal víkinga þótt lokið sé ellefu ára grunnrannsóknum í vatnsmálum þeirra, en þeir hafa lengi mátt búa við þann kost að þurfa að nærast á óheilnæmu vatni. „Þórólfur Hafstað var að skila lokaskýrslu um rannsóknir sem staðið hafa meira og minna í 11 ár,“ sagði Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri í gær. „Einblínt hefur verið á að fá vatn frá einum stað, en nú er Ijóst að það verður aldrei mögulegt. í vetur er ætlunin að rannsaka lindarsvæði í Karlsárdal og fá í ljós hvort mögulegt er að fá vatn þaðan. Verði þær rannsókn- ir jákvæðar má búast við að fram- kvæmdir geti hafist seint á næsta ári, en á þessu stigi er allt óljóst í þessum efnum.“ - Aðrar fréttir úr bænum... „Ekki nema góðar, að vísu er haustið farið að minna á sig því í gærmorgun hafði snjóað í fjöll. Atvinnumál standa vel og meira að segja vantar fólk í vinnu, m.a. iðnaðarmenn, og rækjuveiði hef- ur verið allgóð," sagði bæjar- stjóri Dalvíkur að lokum. - GH í gær voru útvarpsmennirnir 10, sem ákærðir voru fyrir að hafa haft forgöngu fyrir því að starfsmenn Ríkisútvarpsins lögðu niður vinnu þ. 1. október 1984, sýknaðir af ákærunni og ríkis- sjóður dæmdur til þess að greiða allan sakarkostnað. Ástæðan fyrir því að útvarpsmenn lögðu niður vinnu tilgreindan dag var sú að fastir starfsmenn höfðu ekki fengið mánaðarlaun sín greidd eins og lög gera ráð fyrir, en laun starfsmanna voru ekki greidd af íjármálaráðuneytinu á þeim for- sendum að BSRB hafði boðað verkfall fjórum dögum síðar. Kæran á hendur útvarpsmönn- unum var upphaflega send ríkis- saksóknara af tveimur aðilum, Félagi frjálshyggjumanna og for- svarsmönnum Fréttaútvarpsins, eða DV-útvarpsins, Þeim Sveini R. Eyjólfssyni, Herði Einarssyni, Ellert B. Schram og Jónasi Krist- jánsyni. Þessir aðilar kærðu út- varpsmennina fyrir ætlað brot gegn 176. gr. almennra hegningarlaga, en refsiákvæði greinarinnar er bundið við það að truflun á útvarpsrekstri sé valdið með ólögmætum verknaði og varðar brot á þessari grein allt að 3ja ára fangelsisvist. Jónatan Sveinsson saksóknari hafði auk þess vísað í 138. grein um brot opinberra starfsmanna í starfi, en hún heimilar að refsing verði helmingi þyngri og hefðu tímenn- ingarnir því getað átt von á því að vera dæmdir í fangelsi í allt að fjóru og hálfu ári. Um sýknun tímenninganna segir í dómabók Sakadóms Reykjavíkur að það sé ekki talið að ákærð, sem fæst unnu við beinar útsendingar, hafi með verknaðar- eða aðgerðarleysi sínu með því að sitja heima brotið refsiákvæði greinarinnar sem vís- að var til í kærunni. Þessu til rök- stuðnings segir í Dómabókinni að ákærð „hafi viljað knýja á um greiðslur starfslauna sem ógoldin voru og að þeirra mati í eindaga fallin. Ásetningur þeirra hafi ekki beinst að því að raska út- varpsrekstri. Ákærð unnu ekki spjöll á tæknibúnaði útvarpsins, og þau reyndu ekki að koma í veg fyrir, að aðrir, sem ekki lögðu niður vinnu gætu starfrækt út- varpið. Ekkert er fram komið því til styrktar, að ákærð hafi haft forgöngu um, að starfsemi út- varpsins stöðvaðist. Þess var ekki farið á leit við ákærðu, að þau hæfu störf að nýju. Öryggisvakt starfsfólks var hjá ríkisútvarpinu allan tímann“. “Við fögnum því að sjálfsögðu að dómsvaldið skuli hafa tekið fram fyrir hendur á þröngsýnum og vanstilltum stjórnmálamönn- um og öðrum þeim sem vilja verkalýðsbaráttuna feiga hér á landi. Það lá við slysi en réttarrík- ið sigraði og því fögnum við,“ sagði Ögmundur Jónasson frétta- maður og einn tímenninganna um dóminn í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. Verjandi tímenninganna var Páll Arnór Pálsson hæstaréttar- lögmaður. -K.Ól Bolungarvík 7 miljóna króna gat Þetta er miklu verri fjárhags- staða en menn vildu viðurkenna í lok síðasta kjörtímabils, en stað- reyndin er sú að á síðasta kjört- ímabili jukust skuldir á hvern íbúa bæjarins úr 4767 krónum í 19547 krónur og það er ekki lítil aukning, sagði Kristinn H. Gunn- arsson bæjarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins í samtali við Þjóð- viljann í gær. Nú verður nýi meirihlutinn að skera verulega niður fjárframli til framkvæmda og taka auk þe lán til þeirra. í ljós kom þeg fjármál bæjarins voru skoðuð ; fyrrverandi meirihluti hafði va áætlað gjöld verulega, en ofáæ að tekjur og innheimtu, þann að gat myndaðist upp á 7 miljór króna. Þess má geta til sama burðar að tekjur bæjarins nen aðeins um 50 miljónum. Miðvikudagur 3. september 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.