Þjóðviljinn - 09.09.1986, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
TORGK><
Þjóðhagsstofnun
Góðærið magnast
Nýþjóðhagsspá: Hagvöxtur meiri. Þjóðartekjur aukast. Viðskiptahalli minnkar
Þjóðhagsstofnun gerir ráð
fyrir að hagvöxtur ársins 1986
verði talsvert meiri en spáð var í
aprfl eða um 5% í stað 3.5%, að
viðskiptahallinn verði mun minni
en áður hefur verið áætlað, að
þjóðartekjur aukist um 7% í stað
5% eins og áður var spáð og að
verðbólga á árinu fari niður fyrir
10% þegar upp verður staðið.
Þetta kemur fram í endurskoð-
aðri þjóðhagsspá sem forsætis-
ráðherra kynnti í gær. Spáin er
grundvölluð á reynslu fyrstu sjö
til átta mánaða ársins. í spánni
segir einnig að launabreytingar
hafi orðið mun meiri en áætlað
hafi verið í kjölfar kjarasamning-
anna í febrúar. Spáð er að at-
vinnutekjur á mann hækki um
allt að 31% að meðaltali.
Kauptaxtar að meðtöldum áhrif-
um kjaradóms og sérkjarasamn-
inga eru taldir hækka um 25% að
meðaltali á árinu. Þjóðhagsstofn-
un telur að kaupmáttur atvinnu-
tekna verði mun meiri í ár en
áður var reiknað með og muni
hann aukast um 8% á mann að
meðaltali frá í fyrra. í spánni
segir að sama máli gegni um
kaupmátt ráðstöfunartekna
heimilanna.
fíjörn Björnsson hagfræðingur
ASI sagði í gær að með þessari
spá fengist enn frekari staðfesting
á því að markmið febrúarsamn-
inganna hafi náðst. „Þetta þýðir
að við göngum til næstu samninga
við allt aðrar aðstæður en áður.
Við munum ganga til samninga
við þær aðstæður að framleiðsla
verður í fullum gangi og vaxandi,
að jafnvægi verður í viðskiptum
við útlönd og að verðbólga verð-
ur lægri en sl. 15 ár, þannig að við
munum hafa betri forsendur við
gerð samninga en verið hefur um
langt skeið,“ sagði Björn.
Steingrímur Hermannsson
sagði í gær á blaðamannafundi að
hann þakkaði þetta fyrst og
fremst ytri aðstæðum og samn-
ingunum sem gerðir voru í árs-
byrjun. Hann taldi að nota ætti
þennan efnahagsbata einkum á
þrennan hátt. í fyrsta lagi til þess
að jafna kjörin, í öðru lagi til þess
að verja unninn kaupmátt án þess
að hleypa verðbólgunni upp og í
þriðja lagi til þess að lækka er-
lendar skuldir, sem spáð er að
verði 52% af landsframleiðslu í
ár. -£g.
Skrítið. Alls staðar góðæri
nema í launaumslögunum!
Húsnœðislögin
ÁæUanir erfiðar
Talsvert borið á því aðfólk á í vandrœðum
með að gera kostnaðar- og greiðsluáœtlanir
Meðal nýmæla í húsnæðislögu-
num sem tóku gildi um síð-
ustu mánaðamót eru ákvæði um
að senda kostnaðar- og greiðslu-
áætlun með umsóknum um lán.
Hefur mjög borið á því að fólk er
illa í stakk búið að gera kostnað-
aráætlun sem þessa og íhuga
menn í Húsnæðisstofnun að
breyta eyðublöðum og gera áætl-
anagerðina auðveldari viðfangs.
Helgi Guðmundsson hjá Hús-
næðisstofnun kvað þessi ákvæði
sett til verndar lántakendum
sjálfum. Hann sagði allt of mikið
hafa borið á því á undanförnum
árum að fólk hafi ráðist í bygging-
ar eða húsakaup sem það réði svo
ekki við. „Hins vegar hefur kom-
ið í ljós að fólk á erfitt með þessar
áætlanir, en við erum tilbúnir til
aðstoðar í þeim efnum“, sagði
Helgi ennfremur.
Kostnaðar- og greiðsluáætlun
sem fólk á að senda inn með um-
sókn um lán þarf ekki að vera
ítarleg. Hins vegar verður ná-
kvæm kostnaðaráætlun að liggja
fyrir amk. þremur mánuðum
fyrir útborgun 1. hluta láns. Guð-
laugur Gauti Jónsson formaður
Arkitektafélags íslands sagði
arkitekta alvana að gera slíkar
áætlanir og því þýddi þetta
ákvæði enga erfiðleika fyrir þá.
Allar teikningar að nýbyggingum
þurfa að hafa slíkar áætlanir ef
þær eiga að teljast lánshæfar hjá
Húsnæðisstofnun.
Helgi Daníelsson sagði í sam-
tali að þar íhuguðu menn
breytingar á eyðublöðunum með
það fyrir augum að auðvelda
fólki kostnaðaráætlanirnar. - v.
slenskir unglingar eru greinilega mikið fyrir aðalsmenn, því vinsældum Greit-
anna frá Húsavík ætlar aldrei að linna. Blátt blóð rennur um vinsældarlista
Rásar 2.
Greifarnir
Öll lögin
á lista
Sveinbjörn gítarleikari:
Ótrúlegt hvað okkur
hefur gengið vel. Ný
plata í smíðum
Hljómsveitin Greifarnir frá
Húsavík á hug og hjörtu íslenskra
ungmenna um þessar mundir.
Greifarnir gáfu út fjögurra laga
plötu fyrir Verslunarmannahelg-
ina, Blátt blóð, og hún hitti strax í
mark. Lagið Útihátíð lenti um
leið á toppi vinsældarlista Rásar 2
og í síðustu viku voru öll lög
piötunnar inni í 20 efstu sætum
rásarlistans.
„Við höfum mikið verið að
spila á böllum í sumar og höldum
því áfram í vetur. Svo eru í gangi
samningar um nýja tíu laga plötu.
Við erum fullbókaðir á böllum út
þennan mánuð en eftir það ætlum
við að fara að æfa af kappi. Við
höfum haft svo mikið að gera í
sumar að við höfum ekki mátt
vera að því að æfa. Okkur er farið
að langa til að semja nýtt efni,“
sagði Sveinbjörn Grétarsson gít-
arleikari í Greifunum við Þjóð-
viljann í gær.
Sveinbjörn gat þess til að ein
ástæðan fyrir vinsældum Greif-
anna væri að undanfarin ár hefðu
íslenskar hljómsveitir verið í svo
þungum pælingum að fólk hefði
verið farið að þrá létta og hressa
tónlist eins og Greifarnir flytja.
SA.
Einvígið
Heimsmeistarinn stendur betur
Hörkuskák í gœr. Kasparoff virðist vera að ná afgerandi forustu
í gær var 14. skákin í einvígi
Kasparoffs og Karpoffs um
heimsmeistaratitilinn tefld.
Kasparoff hafði hvítt og lék
kóngspeðinu tvo reiti fram öllum
að óvörum í fyrsta leik. Upp kom
flókið afbrigði af Spænskum leik
og fóru vopnaskiptin aðallega
fram á drottningarvæng þótt
Kasparoff ætti að vísu mikilvirk-
an riddara kóngsmegin. Eftir
miklar flækjur og þvæling fram
og aftur náði Kasparoff að skipta
upp í sigurvænlegt endatafl með
þvingaðri leikjaröð. í biðstöð-
unni á hann valdað frípeð. Karp-
off á að vísu frípeð líka en það er
dauðadæmt.
Hvítt: KasparofT
Svart: Karpoff
1. e4 — e5 6. Hel — b5
2. Rf3 - Rc6 7. Bb3 - d6
3. Bb5 - a6 8. c3 - 0-0
4. Ba4 - Rf6 9. h3 - Bb7
5. 0-0 - Be7 10. d4 - He8
Hvítur hefur meira rými á mið-
borðinu og getur nýtt sér það til
sóknar hvort heldur sem er á
kóngs- eða drottningarvæng ef
svartur hefst ekki að. Svartur
beinir nú spjótum sínum einkum
að e4-reitnum um hríð.
11. Rb-d2 - Bf8 13. Bc2 - exd4
12. a4 - h6
Með þessu gefur svartur lítil-
lega eftir á miðborðinu en hyggst
bæta sér það upp með framsókn
drottningarmegin. Önnur leið
var g6 og Bg7 en þá þrýstir hann á
miðborð hvíts úr öllum áttum.
14. cxd4 - Rb4 19. Rd4 - Hxa3
15. Bbl - c5 20. bxa3 - Rd3
16. d5 - Rd7 21. Bxd3 - cxd3
17. Ha3 - c4 22. Bb2 - ...
18. axb5 - axb5
Peðið á d3 er bæði sterkt og
veikt. Ef svartur nær að koma
mönnunum fram til að styðja það
yrði það mjög illvígt. Þess vegna
hirðir hvítur ekki um peðið á b5
því eftir 22. Rxb5 Da5 23. Rd4
Dc3 stendur svartur vel (Ba6,
Re5 o.s.frv.)
22. ... - Da5 25. Rb3 - Db6
23. Rf5 - Re5 26. Dxd3 - Ha8
24. Bxe5 - dxe5
Peðið á a3 fellur og ef til vill
hefði verið einfaldast hér að taka
það með biskupi (Bxa3) og leika
honum síðan aftur upp í borð
(Bf8), leika svo b5-b4 og Ba6,
Hc8 o.s.frv. Hér í framhaldinu
lendir hrókurinn fram á borðið
og þá myndast veikleikar í kóngs-
stöðunni.
27. Hcl - g6 30. Rg4 _ Bf8
28. Re3 - Bxa3 31. Hcl - Dd6
29. Hal - Ha4
Eftir 32. Dxb5 Hb4 33. Dd3
Ba6 34. Dc2 h5 35. Re3 Db6 fær
svartur gott spil fyrir peðið.
Djarfur möguleiki hefði verið 32.
Dxb5 - Hb4 33. De8 Hxb3 34.
Rxh6+ Kg7 35. Dxf7+ Kxh6 36.
Hc7 og hvítur hefur vænleg færi
þótt staðan sé að vísu óljós.
Kasparoff finnur nú snjalla leið.
32. Rc5 - Hc4 34. Rxb7 - cxd3
33. Hxc4 - bxc4 35. Rxd6 - Bxd6
Uppskiptin voru þvinguð.
Svartur er nú öðru sinni í skák-
inni kominn með frípeð á d3 en
þetta peð er dauðanum undirorp-
ið eins og forveri þess. Hvítur á
sterkt frípeð á d5 sem tryggir
honum sigur fyrr eða síðar.
36. Kfl - Kg7 38. Rf2 - d2
37. f3 - f5 39. Ke2 - Bb4
40. Rd3 - Bc3
Hér fór skákin í bið. Peðið á d3
fellur eftir 41. Rc5 Kf6 42. Rb3 og
Rxd2. Það er vonlaust fyrir svart
að ryðjast með kónginn inn á
kóngsvæng, t.d. 42. ... Kg5 43.
Rxd2 Kf4 44. Rfl fxe4 45. g3+
Kg5 46. fxe4 og hvítur vinnur.
Hvítur gæti þá líka ýtt d-peðinu
fram og unnið biskupinn fyrir
það. Svartur verður því að reyna
að verjast drottningarmegin en
það er líka vonlaust. Eftir 42. ...
Ke7 43. Rxd2 Kd6 44. Rc4+ Kc5
45. Kd3 Bd4 (biskupinn verður
að valda e5-peðið) 46. Ra5 Bb2
47. Rc6 stekkur riddarinn í peðin
á kóngsvæng eins og gammur.
Það þarf meiriháttar kraftaverk
til að bjarga svarti.
Flug
Frúin í þyrlu
Ómar Ragnarsson nauðlenti
vél sinni, TF-Frú, uppi á Esju á
sunnudagskvöld, flaug of lágt yfir
fjallinu og náði henni ekki upp
aftur. Vélin skemmdist nokkuð. í
gær var þyrla landhelgisgæslunn-
ar fengin til að flytja Frúna af
fjallinu niðrá flugvöllinn í Mos-
fellsdal og gekk ferðin vel. Frúin
er 850 kfló.
Fyrirlestur
Miðalda
biskupar
á Grænlandi
í dag klukkan 17.15 heldur Lou-
is Rey fyrirlestur í hátíðasal Há-
skólans um grænlenska biskups-
dæmið á miðöldum.
Louis Rey hefur um langt ára-
bil stundað rannsóknir á norður-
slóðum, og er helsta
rannsóknarsvið hans um tengsl
Norðurlanda við Miðevrópu á
miðöldum. Fyrirlesturinn er á
vegum Minningarsjóðs Ásu Guð-
mundsdóttur Wright sem er í
vörslu Þjóðminjasafnsins.
2 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 9. september 1986