Þjóðviljinn - 09.09.1986, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 09.09.1986, Blaðsíða 5
AFMÆU Skúli Alexandersson Sextugur í dag Skúli! Pað er margs góðs að minnast frá löngu samstarfi okkar í póli- tíkinni. Margt er líka að þakka, margt gott að þakka: ósérplægni þína til dæmis og ódrepandi dugnaðinn, - og drengskap þinn. Þú hefur alltaf verið sannur félagi félaga þinna. Manna hollastur í flokki. Betur ef slíkt hið sama mætti segja um alla þá sem nú ráðskast mest með stefnumál ís- lenskra sósíalista. Hollir menn, hollur flokkur. Ekki meira um það. Margs góðs að minnast, sagði ég. Af hverju geri ég þá ekki út- tekt á því í Blaðinu Okkar í tilefni af sextugsafmæli þínu? Af því að ef vel ætti að vera mundi þetta verða svo ógurlega langt; það mundi taka svo mikið pláss frá öðru efni mikilvægara í blaðinu. Ritstjórarnir mundu segja að ég yrði að stytta þetta til stórra muna, skera niður. Og ég mundi vitaskuld verða reiður og segja þeim að þeir gætu bara étið það sem úti frysi. Og fyrr en varði mundi einhver „áreiðanleg heim- ild“ hlaupa með deilumálið í DV eða Helgarpóstinn. Ekki þar fyrir, - ritstjórarnir mundu auðvitað hafa á réttu að standa. Eins og nú er komið mundi auðvitað enginn heilvita Þjóðviljalesandi nenna að pæla í gegnum langloku um gamlan félagsmála- og atvinnumálapuð- ara sem er bara einn óbreyttur landbyggðarþingmaður og þar að auki Sandari. Já, hann hefur breyst, Þjóðvilj- inn okkar. Tímarnir hafa líka breyst. Nútíminn gerir aðrar kröfur en. gerðar voru í gamla daga. Sameiginlegur kunningi okkar (ekki alveg laus við ótuktarskap) segir að meðal merkilegra greina frá gáfuðu lærdómsfólki sem of- annefnt „málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfing- ar“ hafi sankað að sér til birtingar á næstunni séu: 1. Þróun sonnettuskáldskapar við Oxfordháskóla á árunum 1867-1872. 2. Samanburður á kvikmynda- gerð Frakka og Japana síðasta áratuginn. 3. Það sem Stuðmönnum þótti merkilegast við matargerðarlist Kínverja. 3. Engjasláttur í skáldsögum Halldórs Laxness. (Framhalds- greinaflokkur upp á sjö heilsíður samtals). 5. Hversvegna er ekki hægt að velja úr fleiri rauðvínstegundum en fjórum í Þjóðleikhússkjallar- anum? 6. Jesús og ég. - Viðtal við Ing- ólf í Útsýn um túlkun hans á verk- um Hándels og Bach. 7. Undirtónarnir undir undir- tónunum í söng Megasar. 8. Geta sannir vinstrimenn sætt sig við að fá bara að fara með blessunarorðin í kirkjum lands- ins á meðan menn eins og Davíð Oddsson komast upp með að flytja þar heilu predikanirnar? Eru ekki allir jafnir fyrir Guði? 9. Stefnuleysið í poppþáttum hljóðvarps og sjónvarps. En -, Skúli minn, hvað sem þessu líður megum við fyrir alla muni ekki segja að Þjóðviljinn sé orðinn ómerkilegra blað en hann var þegar við vorum ungir og hrif- umst af boðskap hans og urðum fyrir bragðið báðir tveir það sem við höfum verið síðan: sósíalist- ar. Þvert á móti. Þjóðviljinn er auðvitað orðinn miklu merki- legra blað - sem slíkur. Sem slík- ur. Jamm. Og svo er bara að óska þér til hamingju með afmælið. Við Guðrún hlökkum til að hitta ykkur Hrefnu og aðra ágæta félaga vestur á Hellissandi í kvöld. Það verður gaman. Það verður kannski ekki mikið talað um listirnar og Menninguna með stórum staf. En það verður gam- an samt. Jónas Arnason. Það er við hæfi að hylla félaga Skúla og samfagna honum með áfanga á lífsleiðinni. Allir vita að hann er ekki ástvinur kvótasetn- ingar en hvað sem líður ártölum og áratugum þá lætur hann ekki setja sér neinn aldurskvóta. Þess vegna er það í raun undarlegt að vera að senda honum kveðju í tilefni 6 tuga lífshlaups svo ungur er hann enn í andanum, svo albú- inn ætíð til átaka. íturhress finnst mér hann hann oft bera með sér óþreyju stráklingsins og víst er að vettlingatök og óþarfa vafstur eru honum víðs fjarri. Þó er hann fyrst og síðast fulltrúi einlægni, hlýju og grómlausrar gleði sem gjarnan endurómar í hlátri hans sem er að minsta kosti vestur- landsfrægur fyrir sakir óvenju- legrar útgeislunar. En jafnhliða léttri lund og leiftrandi kátínu á góðum stundum er hann einnig maður alvörunnar, fastur fyrir og enginn skyldi bregða honum um skapleysi. Hann hefur fastmótað- ar skoðanir og fylgir þeim eftir af festu og þunga. Skúli er hinn dæmigerði félagsmálamaður sem bæði hefur verið í forystu fyrir fólkinu og jafningi þess um leið. Félagsmálasaga hans á Hellis- sandi er farsæl hið besta og ekki síður virk þátttaka í lífi fólksins þar, striti þess og störfum öllum. Þannig eiga þingmenn að vera, í náinni snertingu við kjör og að- búnað alþýðu manna. Ætíð reiðubúnir til þátttöku í hverju því sem skilað getur fólkinu fram á veg og um leið tilbúnir að fara í fylkingarbrjósti ef þess er farið á leit. A Alþingi er Skúli ódeigur í orðahríð, vaskur til varnar og sóknar og dregur þar hvergi af sér. Yfirburða þekking á undir- stöðugrein þjóðarbúsins kemur að góðu gagni ásamt fjölþættri reynslu af vettvangi félagsmála. Hann hefur eignast þar sem ann- arsstaðar ágæta vini og félaga sem meta hann að verðleikum fyrir skýrar skoðanir og óraga einbeittni samfara sáttfýsi ef svo vill horfa. En vinsældir hans þar og er heima í héraði bindast ekki síst þessum einlæga og notalega persónuleika sem veldur því að það er svo gríðarlega gott að una í návist hans og eiga hann að vini. Og nú þori ég ekki að mæra Skúla meira svo ekki hljótist af alvar- legri hlutir því endilega vil ég eiga hann að góðvini áfram. Um leið og við Hanna sendum þér hjartanlegar heillaóskir er Hrefnu samfagnað með þér og henni sendar hlýjar kveðjur. Heill félaga Skúla með óragan aldur þó kirkjubækur segi sitt. Megi Vesturlands jarl vel una ó- gleymdum áratugum. Helgi Seljan Þegar þingmaður þess flokks, sem ég hef stutt gegnum tíðina, tók upp á því að verða sextugur, kom sá þanki að mér að nú, - já akkúrat núna, - væri ástæða til að brjóta gegn gamalli ákvörðun, sem sagt þeirri að skrifa hvorki afmælis- né minningargreinar. Ég nughreysti mig með því, að ég gæti þó alltaf hætt við að senda hinni þríheilögu ritstjórn Þjóð- viljans skrifin, settist síðan út í sólskinið og tók til að skrifa um Skúla sextugan. Ég á því einstaka láni að fagna, ásamt fáum hundruðum annarra íslendinga, að hafa alist upp í Neshreppi utan Ennis. Ég man því eftir Skúla frá þeim árum, þegar hann fór að láta að sér kveða í pólitík og atvinnulífi þess byggðarlags. Þó að á þeim árum hafi ég ekki verið mikið farinn að gefa gaum að pólitík fann ég fyrir þeim straumum aðdáunar á dugnaði og krafti til félagsstarfs og framkvæmda, sem athafnir Skúla og félaga hans vöktu í byggðarlaginu. Og ekki varð maður síður var við virðingarb- landna öfund pólit skra andstæð- inga vegna þess starfs sem unnið var. En þótt Skúli hafi aflað vinstri hreyfingu meira fylgis en fyrir- finnst annars staðar, nema ef vera skyldi á Austurlandi, þá hafa gamlir fordómar örugglega komið í veg fyrir að það yrði enn meira. Því oft man ég eftir að hafa heyrt setningar í þessum dúr: „Ég myndi kjósa hann Skúla, ef hann væri ekki komm- únisti!“ Það er þó ekki umdeiluvert, að enginn sem unnið hefur að sveitarstjornarmálum í Nes- hreppi undanfarna áratugi hefur haft meiri og betri áhrif á viðgang sveitarfélagsins en Skúli. En þótt Skúli hafi verið á kafi í félagsmálum og fiski í sinni heimabyggð, þá gaf hann sér jafnframt tíma til að starfa af krafti að kjördæmis- og lands- málum. Það var því einhugur urn það hjá okkur Alþýðubandalags- KONUR OG KJÖR Konur stöndum saman Þjóðviljinn spyr 1. Hvað veldurað illa gengurí kjarabaráttu kvenna? " 2. Hvað er til ráða? Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir svarar 1. Til þess eru ýmsar orsakir. Sú fyrsta er að ekki er langt síðan konur komu almennt út á vinnu- markaðinn. Þær fóru tíma og tíma, oftast til vinnu fyrir ein- hverju sem heimilið vantaði. Fram á síðustu ár hafa heimilis- störf ekki verið metin til starfa (sbr. svör unglingsins: „Hún mamma vinnur ekkert, hún er bara heima.“) Konur eru oft öryggislausar þegar þær byrja á vinnustað. Yfirmaður notar sér það gjarnan, hvort sem hann er karl eða kona. Konur sem fara til stéttarfé- lagsins fá oftar en ekki snuprur fyrir að vera að klaga. Þetta stuðlar m.a. að því að konur nöldra út í horni en standa illa saman. Þær líta gjarnan á stétt- arfélagið sem einn kröfuhafann enn og vilja ekki af því vita. En séu konur virkar og það er sem betur fer nokkuð stór hópur, þá er ekki hægt að finna betri félaga. Þær hafa fórnfýsi og baráttuvilja. Nú það er eiginlega óþarft að nefna langan vinnudag og kann- ske líka að heimilisstörfin hvíla meira á konunni. Því verður heldur ekki neitað að í stóru sam- flotunum hafa konur lítið að segja og það er helsta skýringin á því hvað þeim hefur miðað grát- lega seint. Að konur þjappi sér sam- an. Hætti að láta bónus og ákvæði ráða ferðinni í launamálum kvenna. Brjóta á bak aftur það sem því miður er orðið allsráð- andi í launþegahreyfingunni, að aðeins þeir sterkari skuli umbun hljóta, en þeir veikari skildir eftir eða stjakað frá. Enn er langur vegur til réttlætis en ef konur standa saman og vinna saman í einlægni og þora að leggja á nýjar leiðir þá kann meira að ávinnast en okkur órar fyrir. Aðalhelður Bjarnf reðsdóttir er for- maður Verkakvennafélagsins Sóknar. Þrlðjudagur 9. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.