Þjóðviljinn - 09.09.1986, Side 3
FRÉTTIR
Skógrœktarfélagið
Beitarfriðun á Reykjanesi
Vilja ríkislaunaban skógrœktarráðunaut
Anýafstöðnum aðalfundi Skóg-
ræktarfélags íslands, sem að
þessu sinni var haldinn í Reyni-
hlíð í Mývatnssveit, var sam-
þykkt tillaga, sem felur í sér
friðun Reykjanesskagans í meira
mæli en orðið er.
í tillögunni er lagt til, að athug-
aðir verði möguleikar á því, að
leggja með öllu niður sauðfjárbú-
skap á Reykjanesi. Komið verði
upp fjárheldri girðingu „frá Krísu-
víkurbergi í Kleifarvatn og frá
því norðanverðu í skógræktar-
firðingu Skógræktarfélags Hafn-
arfjarðar í Undirhlíðum". Telur
fundurinn þetta „eðlilegt fram-
hald af þeim friðunaraðgerðum,
sem nú standa yfir í námunda við
þéttbýlið á suðvesturhorni lands-
ins.“.
í annan stað var samþykkt, að
athugaðir verði möguleikar á því,
að brunatryggja skóglendi og
koma þar upp brunavörnum. Þá
var talið brýnt orðið að ráðinn
yrði sérstakur ráðunautur í skóg-
rækt og greiði ríkið laun hans í
samræmi við það sem gildir um
ráðunauta búnaðarsamband-
anna. Verður þessum ályktunum
fundarins, sem og öðrum, sem
samþykktar voru, gerð betri skil
hér í blaðinu síðar.
Á fundinum flutti dr. Vil-
hjálmur Lúðvíksson erindi, sem
hann nefndi: „Hugleiðingar um
framtíð skógræktar á íslandi".
Var erindi dr. Vilhjálms allar at-
hygli vert og líklegt til þess að
vekja auknar umræður um ís-
lenska skógrækt, sem nú er meir í
brennidepli en oft áður. Mun
blaðið greina nánar frá erindinu
og skoðunum fundarmanna á
því, sem ekki féllu allskostar í
einn farveg.
Að þessu sinni fór fram kosn-
ing á tveimur aðalmönnum í
stjórn Skógræktarfélagsins.
Kosningu hlutu: Sveinbjörn Dag-
finnsson og Baldur Helgason.
Jón Bjarnason, skólastjóri á Hól-
um, var kosinn varamaður í
stjórnina, til næstu 3ja ára og
Ólafía Jakobsdóttir til eins árs.
-mhg
Grafarvogur
Búseti
byggir
„Byggingarmál húsnæðissam-
vinnufélagsins Búseta standa nú
þannig að við höfum úthlutað
Hagvirkja þeim 15 íbúðum sem
við fcngum lán fyrir. Síðan er
hugmyndin að kaupa þær íbúðir
aftur“, sagði Páll Gunnlaugsson
formaður Búseta í samtali við
Þjóðviljann.
„Við ætluðum að byggja 46
íbúða blokk í Grafarvogi en feng-
um aðeins lánveitingu fyrir 15
íbúðum, eða þremur hæðum. Þar
sem það er ekki hagkvæmt að
byggja einungis hluta blokkar-
innar, frestuðum við fram-
kvæmdum og nú er Hagvirki lóð-
arhafi. Við tókum til þessa ráðs
vegna þess að við vildum ekki
hefja starf með svo lítið fé í hönd-
uín. Við gerum okkur vonír um
að fá lánveitingu fyrir fleiri íbúð-
um eða jafnvel öllum íbúðum
blokkarinnar og fari svo lítur
dæmið út eins og í byrjun starfs-
ins“. -GH
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Telpnameistari, lengst til vinstri, teflir við Hannes H. Stefánsson Drengjameistara Islands. Ólafur H. Ólafsson stjórnaði skákmót-
inu. Hér horfir hann spenntur á skákina. Ljósm.: Sig.
Skáksambands íslands
Hannes vann Þjóðviljabikarinn
Guðfríður Lilja Grétarsdóttirvarð Telpnameistari. 38 krakkartóku þáttímótinu
Um helgina var haldið skákmót
fyrir 14 ára og yngri á vegum
Skáksambands Islands. Keppt
var í húsi Taflfélags Reykjavíkur.
Alls tóku 38 keppendur þátt í
mótinu og komu þeir víðs vegar
að af landinu. Keppt var um far-
andbikar sem nefndur er Þjóð-
viljabikarinn og um hann hefur
verið keppt í rúin 20 ár. Einnig
voru bókaverðlaun fyrir 5 efstu
sætin. Sigurvegarinn varð Hann-
es H. Stefánnson 14 ára úr
Rcykjavík og fékk hann 9 vinn-
inga af 9 mögulegum. Ber hann
nú titilinn Drengjameistari Is-
lands.
í öðru sæti varð Sigurður Daði
Sigurðsson 14 ára úr Reykjavík,
með 8 vinninga. f þriðja sæti varð
Þröstur Árnason 14 ára úr
Reykjavík með 7 vinninga af 9.
Þrír piltar voru með 6 vinninga
af 9 mögulegum. Þeir heita: Héð-
inn Steingrímsson úr Rvík. Rún-
ar Sigurpálsson 13 ára frá Akur-
eyri og Rafn Jónsson 14 ára úr
Rvík.
Aðeins 3 stelpur tóku þátt í
mótinu.Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir 14 ára úr Reykjavík fékk 5
vinninga. Hún varð þar með
Telpnameistari íslands.
-SA.
Lánsréttur
Samfelldar greiðslur
eru nauðsynlegar
Sigurður E. Guðmundsson framkvœmdastjóri Húsnœðisstofnunar:
Löggjafinn gerir ráðfyrir óslitnum greiðslum í lífeyrissjóð áður en sótt er um.
Erum í viðræðum við ráðuneytið
Hólabrekkuskóli
Bíðum enn
Staðan er óbreytt, hér vantar
ennþá kennara fyrir þrjá bekki
yngstu barnanna og við bíðum
eftir því hvort fræðsluyfirvöld
hafa einhverja lausn á málinu,
sagði Sigurjón Fjeldsted skóla-
stjóri Hólabrekkuskóla í gær.
„Samkvæmt samþykkt
skólastjóra- og yfirkennarafél-
agsins mun ég ekki mæla með því
við ráðuneytið að ráðnir verði
réttindalausir kennarar hingað.
Við getum ekki heldur leyst þetta
með því að steypa saman fleiri
bekkjum, ég er þegar búinn að
því og útkoman er sú að í 7 ára
bekkjunum eru um 27-29 börn í
hverri deild.“ -vd.
Listahátíð
Góður
hagnaður
Salvör Nordal framkvæmdar-
stjóri listahátíðar sagði í samtali
við Þjóðvifjann að búið væri að
gera bráðabirgðauppgjör vegna
listahátíðar 86. Staðan í dag er
þannig að það er rekstraraf-
gangur upp á 300 þúsund krónur.
„Ef til vill á einhver kostnaður
eftir að koma fram, enda er þetta
aðeins bráðabirgðauppgjör,"
sagði Salvör. Ekki er búið að á-
kveða hvað gert verður við pen-1
ingana, en þeir renna líklega upp
í áframhaldandi rekstur listahá-
tíðar. Salvör sagði að hún væri
mjög ánægð með stöðuna. „Það
hefur ekki verið tekjuafgangur af
listahátíð síðan ’78“. - SA.
„Ég lít þannig á að skilningur
löggjafans sé ótvírætt sá að um-
sækjendur um lán þurfi að hafa
greitt iðgjöld til Iffeyrissjóða ós-
litið í 24 mánuði áður en sótt er
um lán. Við eigum í viðræðum
við fclagsmálaráðuneytið um
málið eins og svo mörg önnur en
það er engin deila uppi um þetta
atriði“, sagði Sigurður E. Guð-
mundsson framkvæmdastjóri
Húsnæðisstofnunar í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá
um helgina virðist misjafnt
hvernig menn vilja túlka ákvæði í
nýju húsnæðislögunum um
lánsrétt einstaklinga. Þurfi um-
sækjandi að hafa greitt óslitið í
lífeyrissjóð í 24 mánuði áður en
sótt er um, gætu verkföll eða aðr-
ar vinnustöðvanir leitt til þess að
fóik missi réttinn til láns.
Sigurður sagði í gær að enn
væri óljóst hvernig brugðist yrði
við þegar óvænt tilvik eins og
þetta kæmu upp, en það myndi
væntanlega skýrast í þessum
mánuði. Hann sagðist þeirrar
skoðunar að taka ætti á slíkum
málum af skilningi, eins og hann
orðaði það. - gg-
Þriðjudagur 9. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3