Þjóðviljinn - 09.09.1986, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 09.09.1986, Qupperneq 7
Annar tappinn fallinn af tveimur. Guðbjörg í einni þrautinni. Hér átti að fella þverprikið án þess að hreyfa við þeim sem standa uppá endann, og það tókst Ríkharði. (Myndir: Sig.). fara villulaust í gegnum brautina báðar umferðirnar, sem er talinn einkar góður árangur, - þeim Einari Halldórssyni og Garðari Ólafssyni, en Garðar fór sjö sek- úndum hraðar, og varð íslands- meistari karla, fékk bikar, utan- landsferð og Mözduna. Einar verður að hugga sig við að aðalat- riðið er að vera með, þótt honum finnist það eflaust frekar þunnur þrettándi. Hinsvegar getur Einar glaðst yfir úrslitum kvenna- keppninnar, því að þar sigraði Auður Yngvadóttir, eiginkona hans. Hún fékk þó enga ferðina því þær reglur giltu að slík skyldi aðeins veitt þeim sem enga hefði fengið áður, og var hin heppna Inga Kristjánsdóttir frá Eskifirði sem var í fjórða sæti kvenna. Við tókum þann kostinn að fylgjast með hjónunum Ríkharði Jónassyni og Guðbjörgu Sig- mundsdóttur frá Egilsstöðum, og látum myndirnar tala. Á sunnudag var mikið um að vera á piani Bílaborgar við Ár- túnshöfða, bílar mjökuðust fram og aftur og áhorfendur horfðu á spenntir, - þetta var íslandsmeistarakeppni í öku- leikni á vegum Bindindisfé- lags ökumanna. Forkeppni hefur farið fram í sumar á um þrjátíu stöðum víðs- vegar um land og nú mættu sigur- vegararnir til keppni sín á milli. Það setti svo aukaspennu í mótið að Bílaborg hafði heitið þeim Mazda-bíl sem tækist að komast villulaust gegnum brautina. Tveimur keppendum tókst að Ökuleikni sekúnaífr s/<ipta ö/iu Aðalatriðið ersamtað vera með Beltið er algjör skylda, líka þótt ekið séáhægari nótunum. Umsjón: Mörður Árnason Ríkharður og Guðbjörg athuga stigin, - hvort er hærra? Þriðjudagur 9. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.