Þjóðviljinn - 24.09.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 24.09.1986, Blaðsíða 2
“SPURNINGIN" Hver verða úrslit í leik ís- lands og Sovétríkjanna í dag? Gunnar Oddsson, viðskipta- fræðingur: Ég segi 3-1 fyrir Rússa. Þeir eru svo góðir, við höfum séð það í sjón- varpinu. Þefta er eitt albesta knattspyrnuliðið í heimi þessa dag- ana þannig að 3-1 Rússum í hag vaeri f raun ágætis árangur hjá okk- ur. Marteinn Marteinsson, nemi í Kennaraháskóla íslands: Ætli við segjum ekki 3-0 fyrir Rúss- ana. Þeir hafa mun meiri reynslu og eru einfaldlega betri. Ég reyni að vera raunsær. Anna G. Ólafsdóttir, snyrti- fræðingur: Ég segi 2-0 fyrir Rússa. Þeir eru nú ansi góðir. En við þurfum ekkert að vera með neina minnimáttarkennd gagnvart þeim. Við stóðum okkur t.d. ansi vel gegn Frökkunum. Hvers vegna ekki það sama gegn Rússum? Sigrún Harpa Einarsdóttir, húsmóðir: Ég hef nú lítið fylgst með þessu en við skulum segja að íslenska liðið vinni 4-2. Þeir hafa staðið sig svo vel að undanförnu að það er engin ástæða til annars en að vera bjart- sýn. John Spencer, sölumaður Flugleiða á Keflavíkurflug- velli: Úrslitin verða 4-1 fyrir Rússa. Það er svo margt þeim í hag. Mikil reynsla þeirra og mikil ferðalög margra íslensku leikmannanna munu setja sitt mark á leikinn. Svo er samæfing Rússanna mun meiri en (slendinganna. FRÉTTIR Sjúkrahúsin Teygt á sjúkralegunni Vilhjálmur Egilsson: Legudagar ofmargirþar sem daggjaldafyrirkomulagið er enn við lýði. Magnús Asmundsson Neskaupsstað: Ekki óeðlilega margir legudagar að er alþekkt á minni sjúkra- húsum úti á landsbyggðinni að fólk sé látið liggja lengur en þijrf er á tii þess að ná út fleiri legudögum og þar með meiri tekj- um. Hér á Borgarspítalanum er hins vegar svo mikil ásókn í rúmin að menn komast ekki upp með þetta, sagði Auöunrt Sigurðsson læknir á Borgarspítalanum í sam- tali við Þjóðviljann í gær. Vilhjálmur Egilsson hagfræð- ingur hélt því fram í grein um heilbrigðisþjónustuna í einu dag- blaðanna í síðustu viku að hér á landi væru vel þekkt dæmi um að sjúkrahús sem nota daggjaldafyr- irkomulagið láti fólk liggja lengur en þarf til þess að fá tekjur fyrir fleiri legudaga en ella. Magnús Skúlason aðstoðar- framkvæmdastjóri Borgarspítal- ans sagði í gær að þetta væri hægt, en á Borgarspítalanum gætu menn ekki leyft sér þetta vegna hinnar miklu ásóknar í rúm spíta- lans. Hann benti á að legudögum hefur fækkað á Borgarspítalan- um á undanförnum árum. Magnús Ásmundsson yfir- læknir á sjúkrahúsinu í Neskaup- stað var spurður hvort legudagar sjúklinga þar væru óeðlilega langir, en hann neitaði því. „Það er hugsanlegt að legudögum myndi fækka örlítið ef sjúkrahús- ið hér yrði sett á föst fjárlög, en það myndi ekki skipta neinum sköpum. Við erum frekar andvíg- ir því að vera settir á fjárlög, enda teljum við hættu á að draga myndi úr þjónustunni hér ef svo yrði.“ Ekki er talið ólíklegt að öll sjúkrahús landsins verði sett á föst fjárlög á næsta ári, en það kemur ekki í ljós fyrr en fjárlaga- frumvarp ríkistjórnarinnar verð- ur gert lýðum ljóst. -gg Trimm- drottn ingar í sumar hefur Ábyrgð hf. tryggingarfélag bindindismanna boðið almenningi uppá heilsusk- okk undir handleiðslu Guðmund- ar Þórarinssonar frjálsíþrótta- frömuðar. Á þriðja hundrað manns hafa tekið þátt í heilsusk- okkinu í Laugardalnum í sumar og að jafnaði hafa 50-60 manns sótt hverja æfingu þrisvar í viku hverri. Á mánudag lauk formlegum skokkæfingum sumarsins og þá var þessi mynd tekin af þessum þremur trimmdrottningum sem hafa verið duglegastar í heilsu- skokkinu í sumar. Frá v. Guð- ríður Gísladóttir, Sólveig Kol- beinsdóttir og Anna Sigurðar- dóttir. Duglegustu heilsuskokkararnir í sumar, frá vinstri Guðríður Gísladóttir, Sólveig Kolbeinsdóttir og Anna Sigurðardóttir. Leiðbeiningarrit Vamö! Lífræn leysiefni Afjölmörgum vinnustöðum er unnið með efni sem einu nafni má nefna lífræn leysicfni. Sum hafa þá eiginleika að þau leysa upp önnur efni og eru notuð sem hreinsiefni og til íblöndunar, önnur gufa mjög fljótt upp og eru m.a. nýtt til að blanda þeim í málningu, lökk, lím og ryðvarn- arefni. Mörgum þessara efna fylgir sá annmarki að þau geta haft skaðleg heilsufarsáhrif, og hafa þau verið rannsökuð erlendis í því skyni um árabil. Efnin geta komist inn í líkamann við innönd- un og snertingu og sterk og lang- varandi áhrif geta valdið ^T^VARUÐ! LÍFRÆN LEYSÍEFNI skemmdum á heila, taugakerfi og fleiri líffærum. Slík áhrif birtast í þreytu, sleni og gleymsku - og stundum í höfuðverk og erfið- leikum við að einbeita sér. Fræðslu varðandi skaðsemi þessara efna hefur verið mjög ábótavant, en nú hefur Vinnueft- irlit ríkisins gefið út bækling og veggspjald um lífræn leysiefni, þar sem útskýrð eru varasöm áhrif, og leiðbeint um hvernig ber að varast þau. Fyrirtæki og félög iðnaðarmanna og verkafólks sem efni bæklingsins varðar, fá hvort tveggja sent og einnig öryggis- trúnaðarmenn og öryggisverðir í fyrirtækjum. Hjálparsveitir skáta Þjálfwiarmálin samræmd Landssamband hjálparsveita skáta hefur samþykkt nýtt skipulag varðandi samræmingu á þjálfun hjálparsveitanna um allt land, en þjálfunarmálin voru að- alumræðuefni fulltrúarráðsfund- ar landssambandsins sem haldinn var á Isafirði á dögunum. Að sögn Jóns Grétars Sigurðs- sonar erindreka Landssambands hjálparsveitanna er með þessu nýja þjálfunarskipulagi skilgreint nákvæmlega hvaða þjálfun hjálp- arsveitarmenn þurfa að ganga í gegnum til að geta talist fullgildir og hvaða búnað sveitirnar þurfi að hafa yfir að ráða. „Þjálfunarmálin hafa verið í ágætu lagi en það hefur vantað samræmingu í þessum efnum jafnframt því sem ákveðið hefur verið að endurskipuleggja starf björgunarskóla Landssambands- ins sem starfað hefur í 7 ár og komið að góðu gagni við þjálfun bj örgunarsveitarmanna", sagði Jón Grétar. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. september 1986 Forritun ADA- þyöandinn gengur vel Islenska tölvufyrirtækinu Artek hf gengur vel að hasla sér völl erlendis en á undanförnum mán- uðum hefur staðið yfir markaðs- átak í Evrópu og Bandaríkjun- um. Um er að ræða forrit til að þýða forritunarmálið ADA og salan gengið framar vonum, eink- um í Evrópu. í næstu viku mun starfsmaður Artek hf í Banda- ríkjunum taka til starfa og vonast forráðamenn fyrirtækisins til að hjólin fari að snúast hraðar vestra. Vilhjálmur Þorsteinsson for- stjóri Artek sagði að um helgina hefði lokið sýningu í París þar sem forritið íslenska hefði selst vel og kvað hann sölu í Evrópu hafa gengið framar vonum. „Undirtektir í Bandaríkjunum eru hins vegar ekki eins og við væntum og ætlum við okkur að bæta úr því með því að senda mann vestur til að fylgja tilboð- um eftir. Hins vegar hafa stórir aðilar vestra sýnt forritinu áhuga og má nefna í því sambandi fyrir- tækið Tektronix, sem sérhæfir sig í framleiðslu mælitækja ýmiss konar“, sagði Vilhjálmur í sam- tali. -v.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.