Þjóðviljinn - 25.09.1986, Síða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
AWINNULÍF
Uppboð
Menningarsögulegt slys
Dánarbúfrá síðustu öld selt á uppboði. Þór Magnússon: Kom mér á óvart.
Ragnar Hall: Engin beiðni barst umfres^un
arna hefur orðið menningar-
sögulegt slys, nánast óbreytt
aldamótaheimili með margt fá-
gætra bóka og gömul húsgögn er
leyst upp og því tvístrað við sölu,
sagði einn viðmælenda Þjóðvilj-
ans í gær um uppboð sem haldið
var um helgina á dánarbúi Páls
Pálmasonar og það selt fyrir tæp-
ar 2,4 mi|jónir samkvæmt upp-
lýsingum uppboðshaldara.
Þór Magnússon þjóöminja-
vörður sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að þegar hann hefði
frétt af því að Páll væri látinn og
ætti enga lögerfingja, hefði hann
kannað hvort hægt væri að fá að
skoða dánarbúið, þar sem hann
hefði haft grun um að það væri að
mestu óbreytt bú Pálma föður
hans. Hins vegar vildi hann ekki
kveða uppúr með menningar-
sögulegt gildi búsins, þar sem
hann hefði ekki kynnt sér það
nógu rækilega. Honum hefði hins
vegar komið uppboðið nokkuð á
óvart þar eð hann hefði staðið í
þeirri trú að slíkt yrði ekki fram-
kvæmt án hans vitundar og um
það hefði hann talað við skipta-
ráðanda og talsmenn erfðafjár-
sjóðs.
Ragnar Hall skiptaráðandi
sagði hins vegar í gær að honum
hefði engin beiðni um frestun
borist. Einhverjir hefðu haft
samband, þar á meðal þjóð-
minjavörður að því hann best
minnti, og fengið að skoða búið
og mynda það í bak og fyrir. Eng-
in tilmæli hefðu borist um frestun
uppboðs og þó hefði langur tími
liðið frá fráfalli Páls til sölu dán-
arbúsins, þannig að menn hefðu
haft nægan tíma til þess að kanna
menningarsögulegt gildi. Það
hefði því verið samdóma álit hans
og fyrirsvarsmanna erfðafjár-
sjóðs að staðið yrði að hlutunum
með þeim hætti sem gert var.
-pv
Loðnuverðið
Óhæft frelsi
Allar líkur benda nú til þess að
yflrnefnd verðlagsráðs verði
kölluð saman bráðlega til að ák-
veða fast loðnuverð þar sem til-
raunin um frjálst loðnuverð virð-
ist vera að fara út um þúfur.
Mikil óánægja er meðal sjó-
manna og útgerðarmanna um þá
samvinnu sem tekist hefur milli
loðnuverksmiðjanna að halda
verðinu föstu. Nú síðast hefur
ákvörðun ríkisverksmiðjanna að
færa sýnatöku frá skipshlið að
verksmiðjudyrum hleypt illu
blóði í samskipti aðila. Samtök
útgerðarmanna og sjómanna
hafa mótmælt þessari ákvörðun
harðlega enda getur hún leitt til
lægra söluverðs vegna rýrnunar.
íhuga loðnusjómenn jafnvel að
hætta öllum veiðum þar til gengið
hefur verið frá nýju lágmarks-
verði.
Island er í efsta sæti 3. riðils Evrópukeppni landsliða í knattspymu eftir 1-1 jafntefli við Sovótríkin, eitt stig hver þjóð. Myndina tók E.OI. af marki Arnórs Guðjohnsen, boltinn er á leið I netið og Dasayev
besta landslið heims, í gær. Island hefur 2 stig, Sovétríkin, Frakkland, Noregur og Austur-Þýskaland 1 markvörður kemur engum vörnum við. Sjá íþróttir bls. 14-15.
Tannlœknadeilan
Engin lausn í sjónmáli
Sendinefndin komin afturfrá Norðurlöndum. Kristján
Guðjónsson lögfrœðingur Tryggingastofnunar: Enginn
samningafundur verið boðaður síðan í ágúst
Blóm
Konunglegar
samræður
Karl Filipusson, prins af Wales
og ríkiserfmgi Bretlands, viður-
kenndi í sjónvarpsþætti á sunnu-
daginn að hann ætti tal við blóm-
in í garði sveitaseturs síns svo að
þau yxu betur. Þessi játning féll
tilvonandi þegnum hans þó ekki
allskostar í geð, og var fjallað um
hana í breskum blöðum af
nokkru virðingarleysi.
Margir fréttaskýrendur
minntu lesendur sina á forföður
prinsins, Georg 3., sem átti
hrókaræður við tré og dó snarr-
uglaður árið 1820. Sérfræðingar í
jarðyrkju drógu í efa skilning
blóma og jurta á mennsku máli.
Eg get ekki séð neina lausn í
sjónmáli á þessari deilu, en
málin standa þannig núna að þeir
sjúklingar sem eiga rétt á endur-
greiðslum frá Tryggingastofnun
vegna tannviðgerða fá endur-
greitt samkvæmt gjaldskrá ráð-
herra og mismuninn verða þeir
að bera sjálfir, sagði Kristján
Guðjónsson lögfræðingur Trygg-
ingastofnunar í samtali við blað-
ið.
Kristján er nýkominn úr ferð
til Norðurlanda þar sem hann og
aðrir fulltrúar frá deiluaðilum
kynntu sér samningamál tann-
lækna og gjaldskrárgerð í Dan-
mörku, Svíþjóð og Noregi.
„Við munum bera okkar upp-
lýsingar saman en ég veit ekki
hvort þetta verður til þess að
leysa málið,“ sagði Kristján.
„Það hefur enginn samninga-
fundur verið boðaður síðan í ág-
úst.“
Gjald fyrir þjónustu tannlækna
hækkaði í sumar samkvæmt við-
miðunargjaldskrá tannlækna um
13,10% að sögn Birgis Jóhanns-
sonar formanns Tannlæknafé-
lagsins, en ráðherra ákveð að
endurgreitt skyldi samkvæmt
5,5% hækkun.
-vd.
Einvígið
Jafnar
Kaipoff?
Nítjánda skák heimsmeistara-
einvígisins í skák fór í bið eftir 40
leiki í gær. Kasparoff stendur
höllum fæti, hcfur peði minna og
riddara sem má sín lítils gegn
biskupi Karpoffs.
Sigurlíkur Karpoffs mega því
teljast miklar og fari svo að hann
vinni hefur hann unnið þrjár
skákir í röð. Slíkt heyrir til al-
gerra undantekninga í heims-
meistaraeinvígi, a.m.k. hin síðari
ár. Þeir stæðu þá jafnir að vígi á
nýjan leik. Biðskákin verður
tefld í dag. -jt
Sjá nánar bls. 2