Þjóðviljinn - 25.09.1986, Qupperneq 7
HEIMURINN
Hústakar hverfa
frá Ryesgade 58
Búist við hörðum aðgerðum þeirra
Frá Gesti Guðmundssyni fréttaritara
Þjóðviljans í Kaupmannahöfn:
Sl. mánudagskvöld komu
hústakarnir í Ryesgade öllum
að óvörum með þvi að yfirgefa
götuví'gin og sjálft húsið að
Ryesgade 58. Þessi ákvörðun
var tekin og framkvæmd svo
snögglega, að þeir skildu flest
sitt dót eftir, en lögregluverðir
á svæðinu uppgötvuðu ekki
hvað var á seyði, fyrr en hús-
takarnir voru á bak og burt. Á
götunni skildu þeir eftir
heimatilbúið taflborð með
hjálmum og kylfum í stað tafl-
manna, og hafa margir
freistast til að túlka það lista-
verk sem mótmæli gegn þeirri
pólitíku refskák sem hústak-
arnir drógu sig loks út úr.
Hústakarnir voru vart horfnir á
braut fyrr en forstjóri Ungbo sem
á húsið, lýsti því yfir að tekið yrði
til við að innrétta húsið á þann
hátt sem hústakarnir höfðu lagst
gegn, en pólitískar sátta-
umleitanir í borgarstjórn til að
leita lausnar á vanda hústakanna,
gufuðu upp um leið. Þessi við-
brögð færðu sönnur á þau rök
hústakanna, að einungis harðar
aðgerðir geta knúð fram umbæt-
ur á húsnæðisvandanum og voru
því enn einn sigur í því áróðurs-
stríði hústakanna, sem hafði þeg-
ar afhjúpað valdhroka Weide-
kamps yfirborgarstjóra. Hins
vegar telja margir í hópi hústaka
og stuðningsmanna þeirra, að
þeir hafi dregið sig alltof snemma
í hlé, þar sem þeir hafi verið í
þann veginn að fá full yfirráð yfir
Ryesgade 58.
Hústakarnir hafa boðað frek-
ari aðgerðir á næstu dögum, og
óttast margir að þær verði harð-
ar, þar sem hústakar eiga harma
að hefna vegna þess hráskinns-
leiks valdhafa sem flæmdi þá úr
húsinu að Ryesgade 58.
Hústakarnir skildu eftir táknrænt taflborð...
Hættulegrar veiru er saknað
Eitruð
matarolía, sem talin er hafa vald-
ið dauða 360 manna á Spáni og
valdið 20.000 mönnum heilsu-
tjóni, verðurnú send til Danmerk-
ur, þar sem henni verður eytt.
Meira en fjórar miljónir lítra af
þessari olíu, sem er menguð
repjuolía, voru seldar í verka-
mannahverfum í Madrid árið
1981, og ollu sjúkdómum og
mannslátum sem í fyrstu voru tal-
in dularfull. Þegar skaðsemi
olíunnar sannaðist, var hún gerð
upptæk, og á nú að fela dönskum
sérfræðingum í meðferð eitur-
efna að eyðileggja hana. Alls
hafa 42 menn verið ákærðir í
þessu máli, en þeir ganga allir
lausir og ekki hefur verið ákveðið
hvenær réttarhöld skuli fara
fram. Opinber saksóknari fór í
apríl fram á meira en 100.000 ára
fangelsisvist samtals fyrir átta
verslunarmenn, sem eru helstu
sakborningarnir.
Áform
breskra yfirvalda um að fram-
kvæma eyðnirannsóknir á svert-
ingjum sem komi til Englands frá
Afríku hafa valdið gremju i Kenía.
Sögðu þarlend blöð í gær að þau
bæru keim af kynþáttahatri. Að
sögn breska blaðsins „Sunday
Telegraph" hafa leynilegar
eyðnirannsóknir á ferðamönnum
frá Sambíu, Tansaníu og Úganda
gefið „ógnvekjandi niðurstöður".
Talsmaður breska utanríkisráðu-
neytisins sagði Reuter að
stjórnvöld væru að hugleiða
heilbrigðiseftirlit með innflytjend-
um og takmarkanir á straum
þeirra til landsins. Talið er að
eyðni hafi átt upptök sín á hita-
beltissvæðum Afríku. Blöð í Ken-
ía hafa tekið þessum áætlunum
mjög illa og segja að þær beri
keim af kynþáttahatri: benda þau
m.a. á að engin áform séu um að
gera slíkar eyðnirannsóknir á
ferðamönnum frá Bandaríkjun-
um, þótt mestur fjöldi eyðnisjúkl-
inga sé þar i landi. Ekki séu held-
ur gerðar neinar rannsóknir á
breskum ferðamönnum, sem
komi heim frá Afríku. Sum blöð
tengja þessi áform um eyðnir-
annsóknir við nýlega takmarkan-
ir á komu innflytjenda frá Vestur-
Afríku, Indlandi og Pakistan til
Englands.
ERLENDAR
FRÉTTjR
JÓNSSON /REU7ER
Washington - Talsvert magn af
hættulegri veiru, sem unnt
væri að nota í sýklastyrjöld,
hefur horfið úr tilraunastöð
bandaríska hersins. Kom þetta
fram í opinberum skjölum,
sem lögð voru fram í málaferl-
um gegn Pentagon í gær.
Það magn sem týnst hefur af
veiru þessari, sem nefnd er
„Chikungunya veiran“, er nægi-
legt til að sýkja alla íbúa jarðar ef
það er notað sem vopn, að sögn
Vínarborg - Margar tegundir
kjarnorkuofna, sem eru í notk-
un víða um heim, eru langt frá
því að vera öruggar, og gætu
kjarnorkuslys í framtíðinni leitt
úr læðingi enn meiri geisla-
virkni en slysið í Tsérnóbíl.
Þetta kom fram í skýrslu, sem
kjarnorkusérfræðingar frá
mörgum löndum höfðu gert að
beiðni Grænfriðunga.
París - Mitterrand Frakklands-
forseti frestaði því í dag að
taka ákvörðun um tilskipun
ríkisstjórnarinnar um nýja
kjördæmaskiptingu í landinu.
Litu fréttaskýrendur svo á, að
með þessu væri hann að forð-
ast að rjúfa þá þjóðareiningu
sem skapast hefur vegna
sprengjutilræðanna í París.
Samkvæmt frönsku stjórnar-
skránni getur ríkisstjórnin stýrt
landinu með tilskipunum, sem
ekki eru lagðar fyrir þing, en í
þeim tilvikum getur forsetinn
beitt neitunarvaldi með því að
vísindamanns sem stundað hefur
rannsóknir í rannsóknarstöðinni.
Veiran, sem geymd var í Fort Di-
etrich í Maryland, var notuð við
leit að bóluefni, og hvarf hún árið
1981. Enginn veit hvað af henni
hefur orðið. Veiran verður
mönnum ekki að bana, en að
sögn umhverfisverndarmanna
veldur hún sjúkdómi, sem gerir
menn máttlausa. Hafa þeir höfða
mál gegn bandaríska hernum til
að koma því til leiðar að tilraunir
með sýkla og veirur verði bann-
í skýrslunni er fjallað um sex
tegundir kjarnorkuofna, þ. á m.
þá tegund sem var í Tsérnóbíl-
verinu, og töldu sérfræðingarnir
að nauðsynlegt væri að gera ráð-
stafanir til að auka öryggi þeirra
allra. Því var einnig haldið fram,
að þrátt fyrir allar þær alvarlegu
afleiðingar sem Tsérnóbíl-slysið
hefur haft í för með sér, gætu slík
slys í framtíðinni orðið enn verri
neita að skrifa undir tilskipanirn-
ar. Verður þá stjórnin að leggja
þær fyrir þingið sem lagafrum-
varp og fá samþykki þess, eða
falla alveg frá þeim. Mitterrand
hefur áður beitt þessu neitunar-
valdi sínu í stjórnartíð Chiracs.
Var það gegn tilskipunum um
sölu þjóðnýttra fyrirtækja til
einkaaðila, en Chirac fékk þá
auðveldlega samþykki þingsins.
Sú nýja kjördæmaskipting sem
nú er í undirbúningi, hefur verið
mjög umdeild, og telja ekki að-
eins vinstri menn að hún ívilni
stjórnarflokkunum, heldur hefur
hún sætt gagnrýni margra hægri
aðar þangað til fullkomnari ör-
yggisreglur eru komnar í fram-
kvæmd.
Bandaríkjamenn hafa undirrit-
að samning um bann við fram-
leiðslu og geymslu á veirum til
notkunar í sýklastyrjöld, en það
bann nær ekki til veira, sem hafð-
ar eru í tilraunum með varnir í
slíkri styrjöld. Chikungunya
veiran var geymd í því skyni og
svo er um margar hættulegar
veirur og sýkla.
og valdið enn meiri geislameng-
un. Sérfræðingarnir voru samt
ekki sammála um það hvaða ör-
yggisaðgerðir þyrfti að gera,
enda töldu þeir að mesta hættan
stafaði af „mannlegum mistök-
um“. „Þess er krafist að þeir sem
vinna í kjarnorkuverum séu svo
að segja fullkomnir, en það er
mannlegt að skjátlast - og hafa
leyfi til þess,“ sagði í skýrslunni.
manna sem óttast um þingsæti
sín. Fylgismenn hægri öfga-
mannsins Le Pen eru henni einn-
ig andvígir, enda myndu þeir
naumast fá nokkur þingsæti ef
hún kæmist í framkvæmd. Þar
sem stjórn Chiracs hefur aðeins
þriggja atkvæða meirihluta á
þingi, er talið að það kunni að
verða erfitt fyrir hann að fá þing-
ið til að samþykkja þessa nýju
kjördæmaskiptingu. Myndi því
sicapast harður árekstur milli
forseta landsins og ríkisstjórnar
ef forsetinn neitaði að skrifa
undir tilskipanimar.
Danmörk
Róttækir
vinstri menn
styðja
Schluter
Landsfundur róttæka vinstri
flokksins, sem er helsti miðju-
flokkur danskra stjórnmála tók
um helgina eindregna afstöðu
með áframhaldandi samstarfi
með ríkisstjórn hægri flokkanna.
Margir höfðu búist við því, að
landsfundurinn myndi endur-
skoða það samstarf, en flokkur-
inn hefur frá því snemma á öld-
inni unnið með sósíaldemókröt-
um að uppbyggingu velferðar-
samfélags, og margir flokksmenn
vilja taka upp þann þráð að nýju
eftir fjögurra ára stuðning við
hægri stjórn Schluters. Anker
Jörgensen hefur einmitt sóst eftir
því að þessir flokkar endurnýj-
uðu samstarf sitt og mun þessi
ákvörðun róttæka vinstri flokks-
ins verða enn eitt lóð á vogarskál
þess að sósíaldemókratar sam-
þykki samstarf með sósíalíska
þjóðarflokknum og stefni á
verkalýðsstjórn.
Magadansari,
Leyla Sayar að nafni, sem hefur
lagt niður dansinn og gerst
strangtrúuð Múhameðstrúar-
kona, kom fyrir rétt í Ankara í gær
og sagði að hún hefði andlega
lækningakrafta.
Sayar, sem var vel þekkt í
Tyrklandi fyrir leik sinn og maga-
dans á árunum upp úr 1960, er
nú ákærð fyrir að notfæra sér trú-
arbrögð í ábataskyni. Hún lagði
niður gagnsæjar slæður maga-
dansara fyrir tíu árum og tók í
staðinn upp strangan klæðaburð
Múhameðstrúarkvenna. Sagði
hún að spámaðurinn hefði vitrast
sér í draumi og sagt að hendur
hennar hefðu lækningamátt,
hefði hún síðan læknað ýmsar
tegundir af krabbameini. Sak-
sóknarinn lagði fram blaðaúr-
klippur, sem sýndu að maga-
dansarinn fyrrverandi hefði tekið
fé af fólki fyrir lækningar sínar, en
hún kvaðst hafa gefið Rauða
hálfmánanum allan auð sinn.
Flmmtudagur 25. september 1986 ÞJÖÐVILJINN - SIÐA 7
„Errare humanum est“
Mesta hœttan í kjarnorkuverum stafar af „mannlegum mistökum“
Frakkland
Mitterrand vill ekki
rjúfa þjóðareiningu