Þjóðviljinn - 25.09.1986, Síða 9

Þjóðviljinn - 25.09.1986, Síða 9
EÐISIÁNIN: iING R ÁBENDINGAR önnur lán eru tryggð með 1. eða 2. veðrétti í þeim íbúðum, sem lánað er til. Heimilt er að taka sfðari veðrétti, þó þannig, að veitt lán, ásamt áhvílandi lánum, uppfærðum, sé innan við 70% af brunabótamati íbúðarinnar. Vextir af húsnæðislánum eru breytilegir. Vextir af almennum íbúðalánum stofnunarinn- ar eru nú 3,5%. Gjalddagar eru fjórir á ári, þ.e. 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember. Fyrstu tvö árin eftir að lán er fengið er árs- fjórðungslega greidd af því fjárhæð, sem samanstendur af vöxtum og verðbótum. Að þeim tíma liðnum er ársfjórðungslega greidd fjárhæð, sem mynduð er af afborgun, vöxtum og verðbótum. HVERER GREIÐSLU- BYRÐIN? Nauðsynlegt er að allir þeir, sem hyggjast sækja um húsnæðislán, geri sér grein fyrir greiðslubyrði lánsins og beri saman við sína eigin greiðslumöguleika. Þess vegna skal hér sýnt dæmi um ársfjórðungslegar greiðslur af 1588 þús. króna láni: • Fyrstu 2 árin (án verðbóta): Kr. 13.886,00. • Frá og með 3ja ári (án verðbóta): Kr. 18.931,00. Einnig skal sýnt dæmi um ársfjórðungslegar greiðslur af láni, sem nemur kr. 2.268.000,00: • Fyrstu 2 árin (án verðbóta): Kr. 19.836,00. •* Frá og með 3ja ári (án verðbóta): Kr. 27.037,00. NOKKRAR SPURNINGAR OG SVÖR Hvernig tengist fjölskyldustærð láns- rétti? Hún tengist honum ekki lengur. Hversu stór má íbúð vera? Ef notuð íbúð er keypt hefur stærð hennar ekki áhrif á lánsfjárhæð. Lán til nýrra íbúða skerðast um 2% fyrir hvern fermetra, sem íbúðin er stærri en 170 fermetrar, að innan- máli. Gildir sú regla um allar þær byggingar, sem byggðar eru eftir teikningum, er sam- þykktar verða í byggingarnefndum byggðar- laganna eftir 1. september 1986. Um aðrar nýbyggingar gilda þær reglur, sem í gildi voru þegar teikningar af þeim voru samþykktar. Hvað um lánsréttindi námsmanna? Námsfólk nýtur sömu réttinda og aðrir (enda uppfylli það sömu skilyrði), nema það búi utan Norðurlanda. Hérlendis greiðir það iðgjöld í lífeyrissjóði, bæði af atvinnutekjum sínum (og námslánum, óski það eftir því). Á hinum Norðurlöndunum greiðir það iðgjöld í svo- nefnda ATP-sjóði, þó aðeins af launum sínum þar. Utan Norðurlanda er enginn sjóður starf- andi, sem er í sambærilegum tengslum við ís- lenska lífeyrissjóðakerfið. HURÐARÁS UM ÖXL Ef Húsnæðisstofnunin kemst að þeirri niðurstöðu, eftir að hafa kannað fram lögð gögn umsækjanda um fjárhag hans, að hann geti ekki með neinu móti staðið undir fjár- mögnun fyrirhugaðra íbúðarkaupa eða íbúð- arsmíð, mun hún skýra honum bréflega frá því. Ráðist hann í framkvæmdir allt að einu getur stofnunin krafist ríkari ábyrgðar á láni sínu, t.d. bankaábyrgðar. Einnig getur hún frestað eða synjað um lánveitingu. HAFIRÐU EKKI ÁTT ÍBÚÐ Á SL. 3 ÁRUM Lán þér tii handa getur numið allt að kr. 2.268.000,00, ef þú kaupir íbúð í smíðum eða byggir íbúð. í slíkum tilfellum gilda stærðar- takmarkanir, eins og áður hefur komið fram. Ætlir þú að kaupa notaða íbúð nemur lánið hæst kr. 1.588.000,00. Þrjár ástæður geta valdið því, að það verði lægra: í3SS»-^ Áhvílandi lán frá Húsnæðisstofnun, framreiknuð til lánveitingardags, lækka nýja húsnæðislánið um sömu fjárhæð og þau nema samtals. Gömlu húsnæðislánin (framreiknuð) og hið nýja mega ekki vera hærri (samanlagt) en sem nemur 70% af kaupverði íbúðarinnar. Nýja lánið verður að vera veðsett innan við 70% af brunabótamati íbúðarinnar. Ef meinbugir eru á því lækkar lánið eða fellur jafnvel niður. Hvort sem þú byggir, kaupir nýtt eða notað, gildir ávallt sama meginreglan: Kaupi lífeyrissjóður þinn ekki skuldabréf af Húsnæðisstofnun fyrir 55% af árlegum ráð- stöfunartekjum sínum, þá skerðist lánið til þín í hlutfalli við kaup hans. HAFIRÐU ÁTT ÍBÚÐ Á SL. 3 ÁRUM Lán til þín getur numið allt að kr. 1.588.000,00, ef þú kaupir íbúð í smíðum eða byggir íbúð. ( slíkum tilfellum gilda stærðar- mörk, eins og áður hefur komið fram. Ætlir þú að kaupa notaða íbúð nemur lánið hæst kr. 1.111.000,00. Þrjár ástæður geta vald- ið því, að það verði lægra: Áhvilandi lán frá Húsnæðisstofnun, "framreiknuð til lánveitingardags, lækka nýja húsnæðislánið um sömu fjárhæð og þau nema samtals. Gömlu húsnæðislánin (framreiknuð) og hið nýja mega ekki vera hærri (samanlagt) en sem nemur 70% af kaupverði íbúðarinnar. ^.. Nýja lánið verður að vera veðsett innan við 70% af brunabótamati íbúðarinnar. Ef meinbugir eru á því lækkar lánið eða fellur jafnvel niður. Undantekningar frá ofangreindum hámarksreglum geta komið til ef eitthvert þeirra atriða eiga við umsækjanda, sem greint er frá í liðnum „Missir fyrri íbúðar". MISSIR FYRRI (BÚÐAR Þeir geta taiist vera að byggja eða kaupa í fyrsta sinn, sem hafa misst íbúð sína eða mestan hluta eignar sinnar í henni vegna hjónaskilnaðar, greiðsluþrots, gjaldþrots eða af öðrum ástæðum, sem teknar eru gildar. Eigandi íbúðar í verkamannabústað, er hyggst selja hana, getur talist vera að byggja eða kaupa í fyrsta sinn nemi eignarhluti hans lægri fjárhæð en svarar til 25% af hámarks- byggingarláni. LANTIL ENDURBÓTA OG VIÐBYGGINGA Þá getur lán til þín numið allt að kr. 1.588.000,00, þó aldrei yfir 70% af kostnaðar- áætlun, sem Húsnæðisstofnun samþykkir. íbúðin verður að vera eldri en 15 ára, frá fok- heldisdegi að telja, og kostnaður við endur- bæturnar og/eða viðbygginguna verður að nema a.m.k. 318 þúsund krónum. Ef um viðbyggingu er að ræða skerðist lánið um 2% fyrir hvern fermetra,sem viðbyggingin og eldri íbúðin eru samanlagt stærri en 170 fermetrar. Lánstími þessara lána er allt að 21 ári. Lánsréttur hvers og eins er sem áður háður lífeyrisréttindum sjóðféiaga og skuldabréfa- kaupum lífeyrissjóðsins. LÁNTIL ORKUSPARANÐI ENDURBÓTA Þá þarf sérstök verklýsing og kostnaðar- áætlun, gerðar af trúnaðarmanni stofnunar- innar, að fylgja lánsumsókninni. Lánið getur numið allt að 70% af endurbótakostnaðinum en fer þó ekki yfir kr. 1.588.000,00. Lánstím- inn er allt að 21 ári. Um lánsréttinn og aðild að lífeyrissjóði gildir hið sama og áður hefur verið talið. FRAMHALD Á NÆSTU SÍÐU

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.