Þjóðviljinn - 15.11.1986, Blaðsíða 13
Af eyðni
(AIDS) koma bæði góðar fréttir
og vondar frá ráðstefnu sérfræð-
inga í Vín. Franskur prófessor við
Pasteur-stofnunina sýndi þar
frammá tilvilst hliðarveiru við
eyðniveiruna og sagði hana geta
komið af stað öðru eins fári ef
hún bærist í áhættuhópa. Hins-
vegar greindi bandarískur pró-
fessor frá því að til eru fjórar teg-
undir af eyðniveirunni, og eiga
þeir sem sýkjast af einni þeirra
ekki á hættu að sýkjast af hinum
þremur. Það er hinum sýktu að
vísu lítil huggun, en sýnir að í
náttúrunni fer fram einskonar
bólusetning, og eykur líkur á að
mönnum takist að apa eftir. Ann-
ar prófessor sagði að sennilega
yrðu hafnar bólusetningartil-
raunir eftir eitt ár eða tvö, en ekki
væri þó bitið úr nálinni með að
bóluefni fyndist. Á ráðstefnunni
var skýrt frá sæmilegum árangri
við notkun lyfsins AZT, sem til-
raunir hafa sýnt að hægir mjög á
eyðnisjúkdómnum.
Mongús
heitir indverskt rándýr af ætt de-
skatta, og er frægastur þeirra
Rikkí-tíkkí-taví, hinn frækilegi
andskoti kóbralslöngunnar í einni
af sögum Kiplings. Mongúsar
gætu nú hafist til nýrrar frægðar á
stoðarmenn lögreglu við leit að
fíkniefnum; er farin af stað árstil-
raun hjá dýragarði þar í landi um
þefnæmi þeirra. Hingað til hafa
hundar verið tíðastir í þessu hlut-
verki, en þeir þrífast illa í loftslagi
á eyjunni.
Filipo
Gonzalez, forsætisráðherra
Spánar, kom í gær til Kúbu, og
tóku Kastró og félagar á móti
honum með rauðum dregli og 21
fallbyssuskoti. Gonzalez hafði
áður heimsótt Perú og Equador,
og meðal annars lýst eindregn-
um stuðningi við Argentínumenn
í deilu þeirra við Breta útaf Falk-
landseyjum. Gonzalez er annar
spænski leiðtoginn sem kemur til
Kúbu, áður heimsótti landið
Adolfo Suarez árið 1979.
Glasgow
verður menningarborg Efna-
hagsbandalagsins árið 1990
samkvæmt ákvörðun menning-
armálaráðherra EBE. Þetta er
heiðurstitill sem gengur á milli
borga, og er notuð athyglin til að
halda veglegar menningarhátíð-
ir. Fyrsta menningarborgin var
Aþena í fyrra, nú Flórens, næst
Amsterdam, þá Vestur-Berlín,
París og Glasgow. Glasgow-
menn gleðjast; borgin hefur hing-
aðtil verið kunn fyrir annað en
kúltúr.
Klaus von
Dohnanyi
borgarstjóri Hamborgar og for-
ystumaður krata þar, hefur hafn-
að tilboði Kristilegra demókrata
um samstjórn eftir fylgishrunið í
kosningunum fyrir stuttu. Hann
hyggst efna til minnihlutastjórnar
flokks síns SPD, sem þá yrði að
styðjast ýmist við íhaldsmenn
eða græningja.
Bjartlitar brýr
eru ólíklegri sjálfsmorðstaður en
dökklitar, segir norskur litasál-
fræðingur, og leggur til að allar
háar brýr verði málaðar uppá
þann máta. Sálfræðingurinn hef-
ur einnig komist að því að uppá-
haldslitir karla eru grænt, dökk-
blátt, dökkappelsfnurautt og
fjólublátt, en uppáhald kvenna er
himinblátt, bleikt, Ijósbláttog lilla-
blátt.
ERLENDAR
FRÉTTIR
MÖRÐUR /_ i- 11 -r r n
ÁRNASON /R E U1 E R
HEIMURINN
Sovétríkin
Eldflaugamar fluttar
burt frá Kólaskaga
Sovétmenn hafa lagt niður skotstöðvar fyrir meðaldrœgar
eldflaugar á Kólaskaga til að auðvelda stofnun kjarnorku-
vopnalauss svœðis á Norðurlöndum. Segjast hafa flutt flestar
eldflaugar sínar við Eystrasalt burt. Vilja takmarka herœfing-
ar á norðurslóðum
Moskva - Jegor Ligatsjof, ann-
ar æðsti maður Sovétríkjanna,
hefur lýst því yfir að ailar með-
aldrægar eldflaugar hafi verið
fluttar burt frá Kólaskaga og
skotstöðvar þeirra verið
lagðar niður.
Hann sagði einnig á blaða-
mannafundi í Helsinki í fyrra-
kvöld að „flestar“ eldflaugar
hefðu verið fluttar brott frá svæð-
inu kringum Leningrad og frá
Eystrasaltsríkjum Sovét. Með
þessu eru Sovétmenn beint og
óbeint að greiða fyrir stofnun
kjarnorkuvopnalauss svæðis á
Norðurlöndum, án þess þó að
hafa gefið neinar yfirlýsingar um
hugsanlegar skuldbindingar í því
sambandi.
í sameiginlegri yfirlýsingu Lig-
atsjofs og finnskra gestgjafa úr
stjórnarflokki sósíaldemókrata
segir að finnski flokkurinn muni
halda áfram að beita sér fyrir
stofnun kjarnorkuvopnalauss
svæðis, og að Sovétmenn væru
„reiðubúnir til að leggja sitt af
mörkum til að skapa hagstæðar
aðstæður til þess að af mætti
verða“.
Ein af rökum andstæðinga
svæðisstofnunar á Norður-
löndum hafa verið að ekki væri
hægt að koma upp slíku svæði
nema það næði einnig til Kóla-
skaga. Hugmyndin um kjarnork-
uvopnalaust svæði á Norður-
löndum var fyrst sett fram af
Kekkonen Finnlandsforseta árið
1963 og hefur aukist mjög hylli á
síðari árum. Friðarhreyfingar á
Norðurlöndum hafa samið til-
lögur að tilhögun slíks svæðis og
meðal annarra stjórnmálaflokka
en hægriflokka nýtur hugmyndin
meirihlutafylgis.
Ligatsjof sagði í Helsinki að ef
grannlönd vildu að Eystrasaltið
yrði hluti af hugsanlegu bann-
svæði væru Sovétmen fúsir til að
taka kjarnorkukafbáta sína úr
flotanum sem aðsetur hefur í
Leningrad. Þá lagði Sovétmaður-
inn fram tillögur um að dregið
yrði úr heræfingum í Norður-
Evrópu, á Eystrasalti, Norður-
sjó, Barentshafi og úti fyrir
ströndum Noregs.
Engin opinber viðbrögð höfðu
borist frá norrænum ráða-
mönnum í gærkvöldi við yfirlýs-
ingum Sovétmanna, en haft var
eftir ónafngreindum norrænum
sendiráðsmanni í Moskvu, að
yfirlýsingarnar færu langleiðina
með að mæta nokkrum helstu
rökum andstæðinga kjarnorku-
vopnalauss svæðis, þótt Moskvu-
menn yrðu að lýsa gerðum sínum
Norðmenn
Osló - Norska ríkisstjórnin
boðaði í gær viðskiptabann á
Suður-Afríku frá miðju næsta
ári, að fengnu samþykki Stór-
þingsins nú fyrir jól.
Knut Frydenlund utanríkisráð-
herra sagði á blaðamannafundi
að bannið mundi ná til allra vöru-
tegunda og viðskipta og að nor-
skum skipafyrirtækjum yrði ekki
leyft að flytja olíu til Suður-
Afríku. Olíuinnflutningur til
landsins með norskum skipum er
talinn nema um þriðjungi heild-
arneyslu í Suður-Afríku. Vænt-
anlega tækju annarra þjóða skip
við þeim flutningum.
Þá verða allar flugferðir milli
landanna lagðar af, og norskum
fjármálastofnunum verður gert
óheimilt að veita suðurafrískum
fyrirtækjum lán eða tryggingar.
Norðmenn munu ennfremur
auka aðstoð sína við grannríki
Suður-Afríku, beita sér af alefli
fyrir hertum aðgerðum gegn
Suður-Afríka
boða viðskiptabann
Norska ríkisstjórnin undir forystu Gro Harlem Brundtland sker á öll tengsl við
hinn hvíta aðskilnaðarminnihluta Þieter W. Botha í Suður-Afríku.
Pretoríustjórn á vettvangi Sam- Fyrstu sex mánuði ársins var
einuðu þjóðanna, ásamt öðrum verslun milli landanna talin í 340
norrænum ríkjum. milljónum norskra króna.
og ætlunum betur til að allir létu
sannfærast.
Bandaríkin
Brjóta
SALTII
Stýriflaugar settar í B-52
sprengjuflugvélar
Blaðið Washington Post
hefur skýrt frá því, að í byrjun
næstu viku muni Bandaríkja-
menn brjóta samkomulagið
sem kennt er við SALTII þegar
ný gerð sprengjuflugvéla, búin
stýriflaugum, verður tekin í
notkun í hernum.
Hér er um að ræða sprengju-
flugvélar af gerðinni B-52.
Reagan forseti lýsti því yfir í
maí leið, að Bandaríkin mundu
ekki lengur virða SALT II, sem
var undirritað 1979 en ekki stað-
fest, þótt risaveldin bæði hétu því
að virða þetta samkomulag um
eftirlit með vígbúnaði. Reagan
segir að Sovétmenn hafi þegar
rofið SALTII, en heimildir Was-
hington Post andmæla því.
Með því að taka fyrrnefndar
sprengjuflugvélar í notkun er
rofið „þak“ það sem sett var í
SALTII á fjölda þeirra flutnings-
tækja (mest 1320) sem aðilar
mega hafa til að flytja fleiri en
eina kjarnorkusprengju á áfang-
astað.
Einn af þingmönnum Demó-
krata, Les Aspin, formaður her-
málanefndar fulltrúadeildar
þingsins, segir í viðtali við Was-
hington Post, að þetta samnings-
rof komi Rússum til góða - þeir
eigi auðvelt með að fylgja á eftir
fljótlega og geti bætt við kjarna-
oddum í eldflaugar og smíðað
fleiri kafbáta til að „svara" stýrifl-
augunum í B-52. íu
Danmörk
Löggan stelur seðlum og hassi
Varðstjóri harðjaxladeildar lögreglunnar látinn víkja. Fleiri grunaðir
Frá Gesti Guðmundssyni, fréttaritara
Þjóðviljans í Kaupmannahöfn:
Varðstjóri í sérstakri harðjaxl-
adeild dönsku lögreglunnar (Ur-
opatrolen) hefur verið staðinn að
verki við að stinga á sig peningum
sem deildin hafði gert upptæka.
Þessi harðjaxladeild blandar
sér gjarnan á meðal þeirra sem
lögreglan á í höggi við og reynir
að líkjast þeim í útliti og klæða-
burði. Meðal þessara hópa eru
t.d. hústakar, Kristjaníubúar og
smáglæpamenn. Þá hefur deildin
það hlutverk að gera rassíur í
Kristjaníu og lætur þá greipar
sópa um hass og stórar peninga-
summur.
Kristjaníubúar hafa lengi ásak-
að meðlimi deildarinnar um að
stinga hluta hassins og peningun-
um í eigin vasa en þeim áburði
hefur ekki verið trúað af yfirvöld-
um. Þess er heldur ekki að vænta
að menn kæri það að lögreglan
beri á þá of litlar sakir. Þó liggja
fyrir 2 kærur á hendur harðjaxla-
deildinni frá Kristjaníubúum sem
urðu fyrir þvt að peningar sem
þeir höfðu fengið með löglegum
hætti voru gerðir upptækir. í báð-
um tilfellum munaði tugum þús-
unda á þeim upphæðum sem
harðjaxladeildin skráði og því
sem Kristjaníubúar héldu fram
að gert hefði verið upptækt.
Æðstu yfirmenn lögreglunnar
og dómstólar hafa látið þessa
kæru sem vind um eyrun þjóta,
en almennar löggur í harðjaxla-
deildinni fór hins vegar að gruna
einn félaga sinn. Fyrir nokkrum
vikum lögðu þeir gildru fyrir
hann og töldu sjálfir peninga úr
rassíunni og merktu peningaseðl-
ana. Þegar varðstjórinn var far-
inn töldu þeir peningana og sáu
að það vantaði fleiri þúsund.
Seinna um nóttina var varðstjór-
inn handtekinn á næturklúbbi
með þrjá merkta þúsundkalla í
fórum sínum. Varðstjórinn hefur
verið leystur frá störfum og bíður
nú dóms en fáir telja að hann beri
ábyrgð á hvarfi alls þess hass og
peninga sem gufað hafa upp í
vörslu harðjaxladeildarinnar og
m.a. er krafist opinberrar rann-
sóknar á starfi deildarinnar.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13