Þjóðviljinn - 15.11.1986, Page 15
DÆGURMAL
Myndina tók Bjarni Friðriksson hljóðmaður í Bláa lóninu.
BUBBI sterkur
■ KONA sterkari
Þá er hún komin íslenska út-
gáfan af útlensku plötunni hans
Bubba. Frelsi til sölu - hvorki
meira né minna - er titillinn og
gefur til kynna að vinur vor er
enn að rífa ká joð: gegn her, gegn
spilltum þingmönnum og verka-
lýðsforingjum, gegn sofanda-
hætti almennings... allt þetta
harla réttmæt gagnrýni, en svo
finnst örugglega fleirum en mér
hann fara yfir strikið á stundum.
Ég nefni sem dæmi þegar hann
sendi Jóni Ólafssyni ómaklega
tóninn í sjónvarpsþætti fyrr á
þessu ári og vændi hann um
svindl við að koma Possibillies og
Bítlavinafélaginu inn á vinsælda-
lista Rásar 2, í krafti hægra
heimataka. Á Frelsi til sölu fæ ég
ekki betur séð en það sé Vigdís
forseti sem fær slíka, að mínu viti,
vanhugsaða og fljótfærnislega
gagnrýni. Reyndar er textinn
sniðuglega hugsaður, undir rós,
eða réttar sagt fugli, í Gauknum í
klukkunni. I ofanálag er Iagið
gott. En Bubbi verður að fara vit-
urlegar með púður sitt ef hann
vill vera marktækur - skjóta ekki
á lítt seka, og stundum saklausa
þegar grannt er skoðað, jafnstór-
um skotum eða stærri en söku-
dólgarnir fá og eiga vel skilin.
En snúum okkur frá and-
skotum Bubba, að skjólstæðing-
um hans, sem eru engar smá-
skepnur: ástin sjálf og hvalirnir.
Til að undirstrika það er á fylgi-
blaði birtur úrdráttur úr Hvala-
sögu Jóhannesar Kjarvals og
Mannréttindayfirlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna. Rétt er að geta
þess í leiðinni að hönnun Jens
Guðs á því og umslagi er með
ágætum, einkum fylgiblaðinu.
Og að músikinni: 10 lög eru á
Frelsi til sölu og eru flest þeirra
grípandi melódíur. Serbinn hefur
strax náð vinsældum, en þetta er
gamalt Egó-lag, kunnuglegt, úr
hljómleikaprógrammi þeirrar
sveitar. Skemmtilegast finnst
mér eina lagið sem tekið er upp
hér, Augun mín. Ekki af því að
það er fyrsti bragfræðitexti
Bubba - eins og hann segir sjálfur
er ég ekkert viss um að þau fræði
séu honum endilega til bóta,
a.m.k. ekki enn. En þetta er vel
sungið lag og spilað: bassinn góð-
ur hjá Jakobi Magnússyni, flott
saxófónsóló hjá Rúnari Georgs-
syni og fiðlan hennar Wilmu Yo-
ung hrærir fallega í laginu. Og
ekki má gleyma aðal pottinum og
pönnunni í hljóðfæraleiknum og
upptökustjórn, sem spilar þarna
vel á gítar, hljómborð og tromm-
ur. Það er Imperiet-bassaleikar-
inn Christian Faik. Auk þessara
hljóðfæra tekur hann í bassa og
trommuheila í öðrum lögum plöt-
unnar og útsetur með Bubba.
Christian Falk fer nostursam-
legum höndum um Bubba og
smekkvísum og er með skemmti-
legar útsendingar og blæbrigða-
ríkar. Hann er ekki með neinn
yfirgang gagnvart söngnum, eins
og oft vill brenna við á íslenskum
plötum, heldur leyna vinnubrögð
hans á sér, sem fólk kemst að
raun um því oftar sem það leggur
eyrun við Frelsi til sölu. Mér
finnst reyndar gítarinn mætti
stundum vera heldur framar, en
það er nú kannski bara af því að
ég er svo mikið gítarfrík.
sér að vera sanngjarn gagnvart
sjálfum sér og öðrum, hvort sem
það er í sókn eða vörn.
Ekki ætla ég að tíunda hvert lag
þessarar plötu, en finnst ég verða
að minnast á ágæti hvalalagsins
Er nauðsinlegt að skjóta þá? - og
svo titillagið sem er Rauðirfánar í
nýjum búningi; ekki með sínu
lagi, heldur í djassbúningi, spilað
af ekta djasstríói; Bubbi talsyng-
ur líkt og Tom Waits. Sumum
finnst þetta koma eins og skratt-
inn úr sauðarleggnum síðast á
plötunni, en mér finnst þetta bara
viðkunnalegur skratti.
Erlenda útgáfan af Landi til
sölu mun verða frábrugðin þeirri
íslensku. Sérstaklega verður hlið
B umbylt, sem mér finnst van-
hugsuð ráðstöfun, því að hún
þykir mér heilsteyptari og
skemmtilegri runa en A-hliðin.
Það er nú þó einum of snemmt að
fara að rífast út af því... Bubbi fer
ekki utan fyrr en í febrúar að
vinna að henni og fær allan tíma f
heimi til verksins. Ég vona bara
að honum nýtist hann sem best og
óska honum alls góðs heima og
heiman með músiseringu sína og
annað. En þrátt fyrir gott Frelsi
til sölu, góð lög og góðan söng bíð
ég áfram eftir að Bubbi nái lengra
en hann gerði á Konu. Það geri ég
með þolinmæði, því að ég hef trú
á að honum takist það leyfi hann
ÆSKULYÐSFYLKINGIN
Utanríkismálanefnd ÆFAB
Fundur verður i utanríkismálanefnd ÆFAB sunnudaginn 15. nóvember að
Hverfisgötu 105 kl. 17.00.
Dagskrá: 1) Skýrslur frá landsfundi SHA og aðalfundi El Salvadornefndar-
innar. 2) Starfið framundan (Nánar auglýst síðar.) - Utanríkismálanefnd
ÆFAB.
Halló, halló!
Um leið og við þökkum öllum þeim sem hafa keypt af okkur happdrættis-
miða, minnum við þá sem eiga gíróseðla upp á ísskáp hjá sér að þeirra
stuðningur verður vel þeginn. DREGIÐ 1. DESEMBER N.K.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins.
Akureyri
Ungt fólk og þjóðmál
ÆFAB á Akureyri heldur opinn fund um unga fólkið og stjórnmálin í Lárus-
arhúsi, Eiðsvallagötu 18, laugardaginn 15. nóvemberre ki. 13.30.
1) Framtíðarsýn ungs fólks. Steingrímur J. Sigfússon alþm. framsaga um
kjör ungs fólks í námi og að námi loknu.
2) Fjölmiðlar, mennig og listir séð frá sjónarhóli félagshyggjufólks. Fram-
saga: Þráinn Bertelsson ritstjóri.
3) Stjórnmálaþátttaka ungs fólks í Ijósi lækkaðs kosningaaldurs. 4) Venju-
leg aðalfundarstörf. 5) Önnur mál.
ÆFA
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Æskulýðsfylkingar AB verður haldinn mán-
udaginn 17. nóvember, klukkan 20.30 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Stjórnin
VIÐ HOFUM
HÆKKAÐ VEXTI
í 16,25%.
ÁRSÁVÖXTUN
TÆP17 %
METBÓK
Sl 'kihgis
TRAUSTUR BANKI
Laugardagur 15. nóvember 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15