Þjóðviljinn - 18.12.1986, Side 5

Þjóðviljinn - 18.12.1986, Side 5
Minnisvarði um Hafliða Másson á Breiðabólstað í Vesturhópi. V-Hún. Búmarkið 440 ærgildi - fullvirðisréttur 137,5 ærgildi Frá bœndafundi í Ásbyrgi í haust og vetur hafa bænda- fundir verið haldnir víðsvegar um land. Þar hefur undantckn- ingarlaust komið fram hörð gagnrýni á búvörulögin og sumar þær aðgerðir, sem beitt hefur verið til þess að minnka hina hefðbundnu búvöruframleiðslu. Blaðið hefur ekki tíundað mikið umræður og ályktanir frá einstökum fundum en þær hafa allar hnigið til einnar áttar. Hér verður hinsvegar greint frá fundi, sem nýlega var haldinn í félags- heimilinu Ásbyrgi í Miðfirði og má segja að hann sé nokkuð ná- kvæmur þverskurður af funda- höldunum. Fréttaritari Þjóðvilj- ans á Hvammstanga, Eyjólfur R. Eyjólfsson var á fundinum og fer frásögn hans hér á eftir. Föstudaginn 5. des. sl. boðaði Búnaðarsamband V-Húnvetn- inga til almenns fundar í félags- heimilinu Ásbyrgi á Laugar- bakka í Miðfirði. Til umræðu var það ástand, sem leitt hefur af setningu búvörulaganna frá 1985 og reglugerðar þeirrar, sem land- búnaðarráðherra gaf út 29. nóv. sl. um fullvirðisrétt til handa bændum. Fundurinn var mjög vel undirbúinn og fjölsóttur. Munu flestir bændur sýslunnar, sem á annað borð áttu heimangengt, hafa verið mættir, auk fjölda Hvammstangabúa. Þingmenn kjördæmisins voru boðnir á fund- inn og mættu þeir allir utan Eyj- ólfur Konráð Jónsson, sem var erlendis. Afstaða þingmanna Framsöguræður fluttu þeir Aðalbjörn Benediktsson og Gunnar Sæmundsson. Það sem vakti athygli frétta- manns var einkum þrennt: 1. Allir þingmennirnir virtust í höfuðdráttum vera andsnúnir framleiðsluráðslögunum, jafnt stjórnarliðar sem stjórnarand- stæðingar. Til dæmis sagði Pálmi Jónsson að með því að miða framleiðsluréttinn við fram- leiðslu síðustu tveggja ára en ekki við búmark væri komið aftan að bændum. Nauðsynlegt væri að halda uppi hefðbundnum land- búnaði meðan leitað væri nýrra leiða. Forystulið bænda hefði sof- ið á verðinum. Páll Pétursson taldi lækkun út- flutningsbóta of hraða og kaup á framleiðslurétti hið mesta glap- ræði. Sú verslun gerði þá fátæku fátækari og þá ríku ríkari og til þess gerð, að þeir betur stæðu hefðu meira eftir en áður. Reglu- gerðin væri meingölluð og nota þyrfti veturinn til þess að breyta henni. Stefán Guðmundsson, sem jafnframt þingmennskunni er formaður stjórnar Byggðastofn- unar, lítur aftur á móti á fram- leiðsluráðslögin sem varnarlínu, sem stoppa eigi við til þess síðan að hefja nýja sókn. Var ekki að furða þó að menn rædu um það sín á milli eftir ræður stjórnar- þingmanna, að með ólíkindum væri að lögin skyldu nokkurntíma hafa verið samþykkt. Ragnar Arnalds sagði Alþýðu- bandalagsmenn hafa miklar áhyggjur af þróun mála, enda all- ar aðgerðir í sambandi við hana meingallaðar. Óverjandi væri að tilkynna bændum þá fyrst um framleiðslurétt þeirra löngu eftir að sláturhúsum hefði verið lok- að. Hæpið væri að taka ekki tillit til hlunninda og einnig að setja ekki stjórn á alla kjötframleiðslu á landinu. Sölusamdrátturinn á dilkakjöti stafaði ekki hvað síst af stjórnarstefnunni, þar sem dreg- ið væri úr niðurgreiðslum á kjöti samhliða minnkandi kaupgetu. Frjálsa verðlagningin hefði leitt til þess, að nú fengi kaupmaður- inn svipaða upphæð fyrir að rétta kjötlærið yfir búðarborðið og bóndinn fyrir að framleiða það. Vegna vaxtaokurs þess, sem við- gengist tapaði ríkissjóður milj- örðum króna árlega. Væri þeim fjármunum betur varið til niður- greiðslu á búvörum öllum til hagsbóta. Samstaða dreifbýlis og þéttbýlis í öðru lagi vakti athygli sam- staðan milli bænda og íbúa þétt- býlisstaða eins og Hvammstanga. Kom það glöggt fram í máli Þórð- ar Skúlasonar sveitastjóra, Arnar Gíslasonar formann Verkalýðs- félagsins Hvatar og Gunnars Sig- urðssonarkaupfélagsstjóra. Allir lýstu þeir áhyggjum sínum vegna landbúnaðarstefnunnar, sem bitnaði jafnt á þéttbýliskjörnum landsbyggðarinnar og sveitunum sjálfum. Las Öm upp ályktun stjórnar Hvatar og hefurm hún verið birt hér í blaðinu. Ungu bændurnir í þriðja lagi vöktu athygli frá- sagnir ungra bænda af við- í Miðfirði skiptum þeirra við Stofnlánadeild, Framleiðsluráð, Búmarksnefnd eða hvað það nú heitir, allt þetta fargan, þar sem ómanneskjuleg, tölvuvædd stjórnun embættismannakerfis- ins ríkir og enginn virðist hafa pólitískt þor til að hrófla við, einsog það var orðað. - Búmark þitt er 440 ærgildi en fullvirðisréttur þinn er 137,7 ær- gildi. Eitthvað á þessa leið hljóð- aði bréfið sem ég fékk frá Fram- leiðsluráði 4. nóv. sl. Það var ungur bóndi í Hrútafirðinum, sem var að lýsa viðskiptum sínum við báknið fyrir sunnan. Haustið 1980 sótti hann um lánveitingu til Stofnlánadeildar vegna bygging- ar á 440 kinda fjárhúsi. Ekki stóð á láninu og hófst hann þegar handa um byggingu, enda gömlu fjárhúsin að hruni komin. Bú- mark hans var þá 142 ærgildi en gömlu fjárhúsin rúmuðu lítið fleira. Haustið 1981 voru fjárhús- in tilbúin til úttektar vegna lán- veitingar en þá kemur bréf frá Stofnlánadeild um að lán fáist ekki vegna þess hve búmarkið sé lágt þ.e. 142 ærgildi. Fram- kvæmdastjóri Stofnlánadeildar ráðleggur að óska eftir stækkun á búmarki og var það gert. Þann 10. nóv. 1981 berst til- kynning frá framleiðsluráði um að búmarkið sé hækkað upp í 440 ærgildi. Vorið 1984 fæst svo lof- orð fyrir láni til að byggja vot- heyshlöðu og þá var samstaðan komin. En 4. nóv. sl. kemur svo náðarhöggið frá landbúnaðar- ráðuneytjnu. Þar er viðurkennt að bóndinn hafi að vísu 440 ærg- ilda búmark en í nýju fjárhúsun- um fái hann því miður ekki að hafa nema 137,5 kindur. Líklega meiningin að láta nágrannann hafa helminginn af hrútnum. Þeir hefðu allt eins getað haft bréfið á þessa leið: Drengur minn. Við höfum endanlega ákveðið að setja þig á hausinn. Við gerum þér tilboð, sem þú getur ekki hafnað. Þú sel- ur okkur fullvirðisréttinn, ferð af jörðinni með nýju húsunum og flytur á mölina. Þú getur eflaust fengið inni í bragga á Suðureyri, þeir eru alltaf með útlendinga í frystihúsinu hjá sér hvort sem er. Þú getur svo borgað af nýju hús- unum með næturvinnu, virðingarfyllst o.s.frv. Umræður í sex og hálfan tíma Já, það var þungt hljóðið í ungu bændunum á fundinum og sögurnar allar í svipuðum dúr. Þeir fengu líka að heyra það þing- mennirnir, að til annars væri æt- iast af landsbyggðarþingmönnum en að þeir stuðluðu að því, að leggja byggðir landsins í eyði. Glöggt kom fram að menn ef- uðust stórlega um að þessar að- gerðir landbúnaðarráðherra stæðust lagalega. Á fundinum var dreift ályktun, sem samþykkt var í fundarlok mótatkvæðalaust. Fundurinn hófst kl. 9 um kvöldið og stóð til kl. 03.30 um nóttina. Var aldrei lát á umræðum og segir það sína sögu um þungann í fundar- mönnum. ere/mhg Flmmtudagur 18. desember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.